Morgunblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGÚÍR l! JÚNÍ1985 Flugslysið á Grænlandsjökli: Var áhöfnin að losa sig við leyniskjöl er fyrri björgunarvélin birtist? Kaupmannahofn, 31. maí. AP. BROTLENDING tveggja hreyfla flugvélar á Grsnlandi 22. apríl er enn í dag hulin leynd, en fréttir herma, að áhöfn vélarinnar, þ.e. þeir tveir sem fórust í lendingunni og hinir þrír, sem komust lífs af, hafi e.Lv. verið viðriðnir alþjóðlega hryðjuverkastarfsemi. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar bar annar hinna látnu, Ahmed Khalid, á sér vegabréf frá fimm Midausturlöndum og per- sónuskilríki gefin út af Frelsis- fylkingu Palestínuaraba. Embættismenn hafa staðfest, að Fokker Friendship-flugvélin, sem var 30 ára gömul, hafi verið á leið frá Norður-Yemen til nýs eig- anda, ríkisflugfélagsins í Nicar- agua, Aero Nica. í áhöfninni voru Bandaríkjamaður, Jórdaníu- maður, Filippseyingur, Indverji og fyrrnefndur Khalid. Vélin brotnaði og gereyðilagð- ist, þegar reynd var lending á Grænlandsjökli, nálægt radarstöð bandaríska hersins, vegna þess að eldsneytið hafði gengið til þurrð- ar. Khalid og Filippseyingurinn létu lífið. Bandaríska sendiráðið í Kaup- mannahöfn staðfesti fréttir, sem hafðar voru eftir Bandaríkja- mönnunum, er tóku þátt í björg- unaraðgerðum vegna slyssins, um að áhöfnin hefði ekkert látið til sín heyra, þegar bandarisk Herc- ules-herflugvél flaug yfir slysstað- inn einni klukkustund eftir brot- lendinguna. Bandaríkjamaðurinn, Dennis Craig að nafni, gaf fyrst merki, er önnur vél á vegum bandaríska hersins flaug yfir staðinn nokkr- um klukkustundum síðar. Embættismenn hafa neitað að staðfesta frétt danska dagblaðsins Jyllands-posten um að allt bendi til þess, að ástæðan fyrir því, að fyrri björgunarvélinni hafi ekki verið gefið merki, hafi verið sú, að áhöfnin hafi þá verið að losa sig við leyniskjöl. Lögreglan í Kaupmannahöfn játaði í byrjun maímánaðar, að hún hefði komið fyrir hlerunar- tækjum á sjúkrastofunni, þar sem Jórdaníumaðurinn var að ná sér eftir kal og meiðsli, er hann hlaut í brotlendingunni. Grikkland: Umræða um heilsu- far Papandreous Aþenu, 31. nuí. AP. TALSMAÐUR gríska sósíalista- flokksins vísaði í dag á bug fréttum, sem birst hafa í blöðum stjórnar- andstöðunnar, um að Papandreou, forsætisráðherra, gengi ekki heill til skógar. „Þetta er út í hött. Hann er bet- ur á sig kominn en nokkur okkar. f morgun byrjaði hann daginn með sundspretti og það mun sjást í sjónvarpinu í kvöld, að hann er við hestaheilsu," sagði talsmaður sósialistaflokksins við frétta- menn. Orðrómurinn um það að Papandreou væri ekki hraustur komst fyrst á kreik fyrir þremur vikum þegar hann hætti við kosn- ingaferð til eyjarinnar Mytilene. Kosningar verða í Grikklandi á sunnudag en Papandreou boðaði til þeirra sex mánuðum áður en kjörtímabilið rann út. f blöðum stjórnarandstöðunnar hefur verið sagt, að forsætisráðherrann þjáð- ist af streitu og þreytu og hefði verið undir læknishendi að undan- förnu. Er það raunar haft eftir fyrrum samstarfsmönnum Pap- andreous, að hann sé haldinn Noregur: Verkfall boðað á borpöllum Osló, 31. maí. AP. VERKALÝÐSFÉLÖG í Noregi hafa boðað til verkfalls á olíbor- pöllum í Norðursjó 13. júní nk. nema áður hafi tekist nýir samn- ingar um kaup og kjör. Verkalýðsfélögin halda því fram, að umbjóðendur þeirra á bropöllunum hafi ekki fengið þær launahækkanir, sem um samdist í fyrra og er haft eftir Eivind Lönn- ingen, formanni í félagi verka- manna á olíborpöllunum, að verk- fallið muni ná til 2—5.000 manna. Ekki er vitað, að hve miklu leyti olíuvinnsla Norðmanna mun stöðvast ef til verkfallsins kemur. sjaldgæfum húðsjúkdómi, sem einnig leggst á nýrun og veldur blóðrásarsjúkdómum. Veður víða um heim Lngtt Hmt Akureyri 12 Amtterdam 16 21 Aþena 16 30 Barcelona 22 Berlin 12 23 BrUttel 16 22 Chicago 18 25 Dublin 12 20 Feneyjar 26 Frankfurt 10 21 Genl 11 20 Heltinki 12 22 Hong Kong 25 27 Jerútalem 15 25 Kaupm.höfn 10 18 Lat Palmat 23 Littabon 13 21 London 7 19 Lot Angelet 16 29 Luxemborg 24 Malaga 24 Maliorca 28 Miamí 26 29 Montreal 13 26 Motkva 15 28 New York 12 22 Otló 12 1 22 Parit 14 22 Pekíng 13 25 Reykjavík 10 Rio de Janeiro 16 30 Rómaborg 1S 27 Stokkhólmur 13 22 Sydney 13 19 Tókýó 14 21 Vínarborg 17 20 Þórthöfn 11 léttskýjað Hefur þetta tilvik orðið til þess, að í dag var samþykkt lagabreyt- ing á danska þinginu, og eru þar verulega þrengdar heimildir lög- reglunnar til að beita hlerunar- tækjum á sjúkrahúsum og í öðrum opinberum byggingum. Gagnrýnt hefur verið í dönskum blöðum, að fyrri björgunarvélin skuli ekki hafa lent á slysstaðnum. í fréttum frá stjórnvöldum hef- ur hins vegar komið fram, að Bandaríkjamennirnir hafi horfið frá því að lenda, þar sem þeir hafi ekki séð neitt lífsmark á slysstaðnum og myrkur hafi verið að skella á, auk þess sem þeir hafi ekki talið óhætt að lenda vélinni á jöklinum. Vestur-Þýskaland: Mynd þessi er tekin á Briissel-nugvelli í gær er ættingjar ítölsku knatt- spyrnuunnendanna, er létu lífið í óeirðunum á miðvikudgaskvöld, komu til Belgíu. Einnar mínútu þögn á leikjum 1. deildar í virðingarskyni við þá er létust í Briissel Frankfurt, Róm og Vín, 31. maí. AP. Vestur-þýsk knattspyrnufélög munu gangast fyrir einnar mínútu þögn á leikjum 1. deildarinnar á laugardag í virðingarskyni við fórnarlömb upp- þotsins í Bríi3sel, að því er v-þýska knattspyrnusambandið tilkynnti í dag. Leikirnir verða stöðvaðir 10 mínútum eftir að flautað hefur verið til þeirra í því skyni að minnast þeirra sem létust, eftir að áhangendur Liverpool-liðsins réð- ust á stuðningsmenn ítalska liðs- ins á Heysel-leikvanginum á mið- Skotið afskammbyssu á knattspyrnuleikvanginum Þessar sjónvarpsmyndir frá Heysel-leikvanginum í Bríissel á miðviku- dag sýna mann miða skammbyssu. (Sjá örina á efri mynd). Á neðri myndinni má sjá blossann þegar byssumaðurinn hleypti af. vikudagskvöld. ítalski innanríkisráðherrann, Oscar Luigi Scalfaro, sagði í dag, að það væri „óskiljanlegt", hvað belgíska lögreglan hefði verið van- búin að bregðast við óeirðunum. Hann kvað Bretana bera alla ábyrgð í málinu, hvernig sem á væri litið. „Breskir knattspyrnu- áhangendur grípa til ofbeldis hvar og hvenær sem er, hvað sem það kostar," sagði hann. Scalfaro talaði við blaðamenn, áður en Bettino Craxi forsætis- ráðherra setti sérstakan ríkis- stjórnarfund, þar sem ræða átti atburðinn í Brússel. Neil Kinnock, leiðtogi Verka- mannaflokksins í Bretlandi, sem staddur er í Vínarborg, krafðist þess í dag, að gerðar yrðu marg- víslegar umbætur i málefnum knattspyrnuíþróttarinnar, ekki síst að því er varðaði öryggismál. Hann kvað það mundu verða mik- inn sigur fyrir „illþýðið, sem framdi ódæðið í Brússel", að banna breskum knattspyrnuliðum þátttöku í Evrópukeppnum. GENGI GJALDMIÐLA Dollarinn óstöðugur London, 31. maí AP. GENGI Bandaríkjadollars var óstöðugt í dag, eftir að stjórnvöld í Washington höfðu tilkynnt, að dreg- ið hefði lítillega úr eftirspurn eftir verksmiðjuvörum í aprfl og að við- skiptahalli Bandaríkjanna við útlönd hefði numið nær 12 milljörðum doll- ara í þeim mánuði. Gengi sterlingspundins hækkaði heldur og fengust fyrir það 1,2870 dollarar síðdegis í dag (1,2745). Gengi dollarans gagnvart ýmsum helztu gjaldmiðlum heims var annars þannig, að fyrir hann feng- ust 3,0675 vestur-þýzk mörk (3,0810), 2,5965 svissneskir frank- ar (2,5940), 9,3950 franskir frank- ar (9,3787), 3,4840 hollenzk gyllini (3,4675), 1.971,00 ítalskar lírur (1,965,50), 1,3760 kanadískir doll- arar (1,3745) og 251,78 japönsk jen (251,63).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.