Morgunblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNl 1986 Lög frá Alþingi Tvenn lög vóru samþykkt í efri deild Alþingis sl. miðvikudag. • Samþykkt var stjórnarfrumvarp, sem flutt var vegna samkomulags við launþegasamtök í landinu, um að fella niður ákvæði í lögum um bann við verðbótum á laun. • Ennfremur frumvarp til breyt- inga á erfðalögum, sem kveður á um að annað hjóna eöa bæði geti mælt svo fyrir í erfðaskrá að það þeirra sem lengur lifir skuli hafa heimild til að sitja í óskiptu búi með niðjum beggja, hvort sem þeir eru fjárráða eða ófjárráða. Ber skiptaráðanda þá að gefa út leyfi til setu í óskiptu búi til eftirlifandi maka. Þingslit og eld- húsdagsumræður BÚIST er við að Alþingi Ijúki störf- um fyrir 17. júní næstkomandi og þingi því slitið annað hvort föstudag- inn 14. eða laugardaginn 15. júní. Formleg ákvörðun hefur hins vegar ekki verið tekin. Samkvæmt þingsköpum eiga al- mennar stjórnmálaumræður að fara fram fyrir þingslit, svokall- aðar eldhúsdagsumræður og er þeim útvarpað. Ákvörðun hefur Bflbelti: ---- Meiri hluti allsherjarnefndar neðri deildar á móti sektum Meirihluti allsherjarnefnd- ar neðri deildar Alþingis 'Æggst gegn samþykkt frum- varps um breytingar á um- ferðarlögum, er gerir ráð fyrir að þeir er ekki nota bílbelti í bifreiðum verði látnir sæta sektum. Frum- varpið hefur þegar hlotið samþykki efri deildar, en Þegar kraftmenn eins og hann Magnús Þórarinsson verða sjötug- ir, verðui manni hugsað til Sig- hvats Sturlusonar á Grund í Eyja- firði, sem barðist með sonum sín- um og féll með þeim í orrustu, þá kominn á áttræðisaldur. Það er ekki nokkur lífsins leið að skynja ellimörk á afmælisbarn- inu — dugnaðurinn og orkan eru slík, að slíkt minnir einna helzt á Blöndu „niðri við ós“ í leysingum n«ð tilheyrandi jakaburði og krafthljóðum. Blanda í ham blasir við augum úr Kvennaskólanum á Blönduósi — þar var gist að vor- lagi 1980 á vegum framkvæmda- nefndar Húnavöku, en Magnús frændi örvaði undirskráðan til dáða og sagði honum að halda sýningu á slóðum feðranna þar fyrir norðan — og því var náttúr- lega hlýtt, af því að Magnús er meðal annars gamall verkstjóri úr vikurverksmiðjunni undan Jökli á Snæfellsnesi. Þar var hann frægur (yrir að reka menn á stundinni ef ’píúr sýndu af sér ódöngun og peysuskap. Það er strangleikafólk í ættinni — þ.e.a.s. Þorvaldsættinni, sem er blönduð Bólstaðarhlíðarætt og með Stephensen-ívaf. Þessi fyrrverandi fasteignasali (hann rak fyrirtækið Nýja fast- eignasalan áratugum saman í Rvík við orðstír og höfðu fáir und- flutningsmenn þess eru sjö þingmenn deildarinnar úr öllum þingflokkum. Á sein- asta þingi var frumvarpið einnig flutt, og hlaut sam- hljóöa samþykki efri deildar, en í seinni deild hlaut það ekki afgreiðslu. Þingmennirnir Guðmundur Einarsson (BJ), ólafur Þ. Þórðar- an honum) — sölutempóið var slíkt, að það minnti á fjárdrátt í Stafnsrétt eða eitthvað þvíumlíkt — og þessi athafnamaður hann Magnús — þessi lífskúnstner, sem er stoltastur og stórlyndastur næstum allra manna, sem grein- arhöf. hefur kynnzt á lífsleiðinni — hann er með raunbetri mönnum, sem hægt er að kynnast. Hins vegar er erfiðara en allt, sem erfitt er, að kynnast Magnúsi. Hann gefur yfirleitt aldrei skýr- ingar. Hann fór ekki menntaveginn eins og bræður hans dr. Hjalti yf- irlæknir og prófessor eða glæsi- mennið hann Hermann, sem var stjórnmálamaður „á hægri bakk- anum“ af lífi og sál eins og faðir þeirra Þórarinn, sem var lengi þingmaður þeirra Húnvetninga — og alger „lord“ í framkomu. Hann kenndi Sigurði Guðmundssyni skólameistara úr Mjóadal og frá Æsustöðum undir skóla. „Her- mann sálugi minnti alltaf á Tyr- one Power í útliti," sagði hún- vetnsk vinkona við þann, sem þetta skrifar. Hermann var lengi lögreglu- maður þama í Texas Norðursins (eins konar Marshall McCloud) en hann hafði verið handboltastjarna í MR og í Háskólanum. Alls voru þau Hjaltabakkasyst- son (F), Pálmi Jónsson (S) og Friðjón Þórðarson (S) skipa meiri- hluta allsherjarnefndar, en sá síð- astnefndi hefur fyrirvara á and- stöðu sinni. Álit nefndarinnar hljóðar svo: „Meirihluti nefndarinnar telur að varanlegur grunnur að bættri um- ferðarmenningu og meira öryggi verði ekki lagður með sektar- ákvæðum. Úrbætur verða að fást með jákvæðri löggæslu, hvatningu kinin ellefu. Einn bræðranna, Jón, situr að ættaróðalinu Hjalta- bakka, og margir muna þann töfr- andi persónuleika Þorvald, föður Gissurar, sem lengi var einn af innstu koppum á Vöruflutninga- miðstöðinni og er nú í „herfor- ingjaráði" hjá Landleiðum og ekki má gleyma systkinum Gissurar, þeim Örlygi hjá Flugleiðum, elleg- ar henni Sigríði, þeirri gjörvilegu donnu, sem á fyrir mann einn sona síra Eiríks heitins Alberts- sonar á Hesti í Borgarfirði, Frið- rik, sem er verndari Pólýfónkórs- ins hans Ingólfs í Útsýn. Þetta er gott lið og sterkt. Magnús frændi minn er hlé- drægur maður — mótaöur af vinnuhörku og sjálfsögun. Hann er mínútumaður — sprottinn á fætur fyrir allar aldir eins og bú- andi sem hugar að veðri og býr sig undir athafnadag. Hann er hættur veraldarsýsli, þ.e. fasteignasöl- unni — en málar þess í stað mynd- ir frá morgni til kvölds í vinnu- stofu sinni í Nýja Galleríinu að Laugavegi 12. Magnús nam myndlist á sínum tíma við gamla myndlistaskólann í Reykjavík. Samtíða honum voru þar Nína Tryggvadóttir og Kristján Dav- íðsson, þeir hafa haldið sínum kunningsskap síðan. Eitt sinn spurði greinarhöf. Finn Jónsson listmálara, sem var lærimeistari og upplýsingum, umferðarkennslu og aðgerðum á sviði gatnafram- kvæmda og skipulags, svo að dæmi séu nefnd. Notkun einstaklinga á bílbelt- um verður að byggjast á fullvissu þeirra sjálfra um nytsemi hennar en ekki ótta við lögreglu- og dómsvald. Meirihluti nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði fellt." við skólann, ásamt Jóhanni Briem um Magnús sem nemanda: „Hann var með beztu nemendum skólans, ágætur nemandi f alla staði, hafði efnilegt teiknaratalent yfirleitt og var áhugasamur." Finnur bætti því við, að af því litla, sem hann hefði séð af málverkum eftir Magnús löngu síðar, litist sér lag- lega á það. Magnús er ekki í neinni mynd- listarmafíu eða klíku. Hann er auk þess bágrækur í hjörð eins og fleiri af ættinni — og hefur karl- mennsku og þor til að standa einn. í honum er ekki gramm af múgsál. Hann er vel kvæntur. Konan að vestan — úr Dýrafirði, Vilborg Guðbergsdóttir frá Höfða. Börnin eru sjö — og hvert öðru mann- vænlegra. Magnús er höfðingi heim að sækja. Þá er hann kátur eins og Húnvetninga er háttur á manna- mótum. En skapið er mikið og ef hann hefði verið hestur, þá hefði hann örugglega verið fjörhár gæð- ingur, en einnig brúklegur í strangri vatnareið... og hefði ekki drepið húsbónda sinn og eig- anda nema hann hefði reiðzt við hann á leið úr kaupstað á reið yfir Blöndu í miklum vexti. Kæri vinur og velgjörðarmaður Magnús. Ég vona það eitt, að þú takir mig ekki alveg af lífi fyrir þessa viðleitni mína í þá átt að votta þér virðingu mína og þakkir þrátt fyrir allt sem á milli okkar hefur gengið. Eins og allir vita hef ég sýnt hjá þér að minnsta kosti tvisvar — að Laugavegi 12 — og skipti okkar urðu góð, þegar upp var staðið, en þá höfðum við eldað grátt silfur um hríð. Það er önnur saga. Lifðu alltaf! Að Hæðardragi, Rvík, Steingrímur St.Th. Sigurðsson ekki verið tekin um dagsetningu, en gert er ráð fyrir að þær fari fram þriðjudaginn 11. júní. STUTTAR ÞINGFRÉTTIR: Þingsköp Alþingis Þingskapanefnd hefur skilað áliti sínu um frumvarp til laga um þingsköp Alþingis. Nefndin, leggur til nokkrar breytingar meðal annars um að forseti geti við umræður um þingsályktun- artillögur ákveðið frávik frá hinni almennu reglu um ræðu- tíma, ef fyrir liggur rökstudd beiðni þingflokks þar að lútandi. Þá leggur nefndin einnig til að komið verði upp rafeindabúnaði fyrir atkvæðagreiðslur, líkt og gerist í þjóðþingum annarra landa. Frumvarpinu var vísað frá neðri deild með öllum greiddum atkvæðum í gær til efri deildar með samþykktum breytingartil- lögum þingskaparnefndar. Byggðastofnun Fjárhags- og viðskiptanefnd neðri deildar klofnaði i afstöðu sinni til frumvarps til laga um Byggðastofnun. Meirihluti nefndarinnar leggur til að frum- varpið verði samþykkt, með nokkrum breytingum. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins, þeir Frið- rik Sophusson, Þorsteinn Páls- son og Halldór Blöndal skrifa undir með fyrirvara. Kjartan Jó- hannsson (Á) leggur til að frum- varpið verði fellt. Guðmundur Einarsson (BJ) og Svavar Gestsson hafa ekki skilað áliti, en sá síðarnefndi leggur fram breytingartillögu ásamt Hall- dóri Blöndal um að heimili og varnarþing Byggðastofnunar verði á Akureyri. Stuðningur við smáfyrirtæki Meirihluti atvinnumálanefnd- ar hefur skilað nefndaráliti um þingsályktunartillögu um stuðn- ing við stofnun og rekstur smá- fyrirtækja. Lagt er til að ekki verði sérstaklega ályktað um þessi mál í trausti þess að ríkis- stjórnin hafi upp markvissar að- gerðir til eflingar íslensku at- vinnulífi. Framhaldsnám í sjávarútvegsfræðum Þingmenn Austurlands, þeir Helgi Seljan (Abl.), Jón Krist- jánsson (F) og Egill Jónsson (S) hafa lagt fram tillögu til þings- ályktunar um framhaldsnám í sjávarútvegsfræðum á Höfn í Hornafirði. Tillagan er svohljóð- andi: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að hún beiti sér fyrir athugun á því að hefja kennslu í sjávarútvegsfræðum á framhaldsstigi á Höfn í Horna- firði sem þróast gæti i framtíð- inni yfir á háskólastig. Athugun- in skal unnin í samráði við Há- skóla Islands, skóla tengda sjáv- arútvegi og samstarfsnefnd um framhaldsnám á Austurlandi." Sjötugur f dag: Magnús Þórarinsson, listmálari frá Hjaltabakka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.