Morgunblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1985 — írakar halda áfram loftár- ásum á Iran Níkósíu, 31. maí. AP. HERÞOTUR íraka gerðu enn í dag harðar loftárásir á Teheran, höfuðborg írans, og tvær aðrar borgir þar í landi. Skýrði IRNA, hin opinbera fréttastofa írans, frá þessu í dag. Ekki var skýrt frá manntjóni. Teheran hefur orðið fyrir loftárásum íraka hvað eftir annað undanfarna daga, en hlé var á loftárásum íraka í 7 vikur, unz þeir hófu stórfelldar loftárásir á íranskar borgir á ný sl. sunnudag. Hashemi Rafsanjani, talsmað- ur íranska þingsins, sagði í dag, að eldflaugum yrði skotið á Bagdad og aðrar borgir í írak, ef írakar héldu áfram loftárásum á íranskar borgir. Þá sagði hann ennfremur, að Irönum hefði tek- ist að efla loftvarnir sínar, sem ætti að gera þeim það kleift að koma í veg fyrir loftárásir íraka. „Þeir munu ekki framar verða þess megnugir að fara til loft- árása langt inn í Iran,“ sagði Rafsanjani. Talsmaður írösku herstjórnar- innar sagði í dag, að íraskar her- þotur hefðu gert loftárásir á þrjár íranskar borgir, þeirra á meðal Teheran, og hefðu auk þess skotið niður eina flugvél ír- ana. Giftust þrátt fyrir 64 ára aldursmun Það er ekki að sjá annað en að vel fari á með þessum nýgiftu hjónakornum þrátt fyrir 64 ára aldursmun. Hún heitir Ruth Kimber og er 92 ára að aldri, en eiginmaðurinn heitir Kevin Friday og er 28 ára gamall. Þau kynntust fyrir þremur mánuðum, en hann kom á heimili hennar til að hreinsa gólfteppi. Þau höfðu ekki mikinn viðbúnað við giftinguna og létu borgaralega vígslu nægja, enda hálfsmeyk við að ættingjar Ruthar færu að blanda sér í málið. Sprengja grandaði lögreglu- manni og barni Pamplona, Spáni. 31. mai. AP. ÖFLUG sprengja sprakk á fjölfar- inni götu í spænsku borginni Pampl- ona í raorgun og létust tveir, lítið bam og spænskur öryggisvörður. Tveir öryggisverðir og gömul kona slösuðust að auki alvarlega. Lögreglan fékk ábendingu um sprengjuna er maður sem vildi ekki láta nafns getið hringdi og sagði allt af létta. Benti hann á ákveðinn bíl sem lagt hafði verið við stöðumæli. Er lögreglumenn- irnir þrír nálguðust bílinn sprakk sprengjan með framangreindum afleiðingum. Talið er víst, að að- skilnaðarhreyfing Baska, ETA, hafi staðið á bak við hryðjuverkið, en með þessum tveimur dauðsföll- um hafa alls 14 manns látið lifið í pólitískum hryðjuverkum það sem af er þessu ári á Spáni. Nokkrum klukkustundum áður en að sprengjan sprakk var spænskur lögreglumaður myrtur í borginni Marquina, eigi langt frá Pamplona. Þar voru ETA-skæru- liðar á ferðinni. w mstúS JUSTICI p, /'kuLdd i mttTFF Stroessner, þú lýgur! Nasistaveiðarinn Beate Klarsfeld er hér ásamt vinum og stuðnings- mönnum að mótmæla fyrir framan aðsetur hæstatéttar í borginni As- unction, höfuðborg Paraguay. Þar var þess krafist að stjórn Alfredo Stroessners hershöfðingja gæfi upplýsingar um verustað stríðsglæpa- mannsins Josefs Mengele. A skiltinu sem Klarsfeld heldur á stendur: „Stroessner, þú lýgur!“ Voru blóðsugur og varúlfar hald- in sjaldgæf- um sjúkdómi? EÐLISFRÆÐINGAR nokkrir telja að sannleikskorn sé trúlega að finna í frásögnum um vampírur og varúlfa í þjóðsögum. Telja þeirað það fólk sera var álitið í umræddum hópi kunni að hafa verið haldið sjaldgæfum en arfgengum sjúkdómi sem lækning er til við nú tii dags, en var alls ekki á miðöldum og allt fram á þessa öld. Fólk haldið þessum sjúkdómi verður loðið, tannbert og finnur til ef það fer út í dagsbirtu eða fær á sig hvítlauk, sem þótti jafnan brúklegur sem vopn gegn blóðsugum. Alþjóðlegt þing eðlis- og efna- fræðinga stendur nú yfir í Los Angeles og þar hafa verið haldnir nokkrir fróðlegir fyrirlestrar; einn þeirra flutti David Dolphin frá Bresku Kólombíu í dag. Dolphin sagði að umræddur sjúkdómur héti „porphyria". „Ef fólk haldið þess- um sjúkdómi fór út 1 sól eða venju- legt dagsljós, leið það vítiskvalir, það afmyndaðist allt, húðin flagn- aði af og það gat jafn vel misst fingur og nef. Hendurnar urðu eins og hrammar, hárvöxtur jókst og þó tennurnar stækkuðu ekki í raun, strekktist svo á húðinni í gómun- um, að tennurnar urðu meira áber- andi,“ sagði Dolphin. „Porphyria" var og er arfgengur sjúkdómur og stafar af því að lík- aminn nær ekki að framleiöa rauð blóðkorn sem skyldi. í dag er hægt að hafa hemil á sjúkdómnum með því að byggja upp rauð blóðkorn. Dolphin sagði vel hugsanlegt að skilningur hafi rikt f Mið- og Austur-Evrópu um það af hverju Smábörnin skynugri en ætlað hafði verið Lw Angeles, 31. mnf. AP. NÝJUSTU rannsóknir hafa leitt í Ijós, að 14 mánaða gömul börn geta munað og líkt eftir atferli annarra þótt sólarhringur sé liðinn frá því þau sáu fyrirmyndina. Þykir það benda til, að hugarstarfsemi smábarna sé miklu þroskaðri en fyrr var talið. Sá, sem rannsóknirnar annað- ist, Andrew Meltzoff, sálfræð- ingur við Washington-háskóla, hefur áður sýnt fram á, að þriggja daga gömul börn geta líkt eftir svipbrigðum fólks og þótti það á sínum tíma nokkuð byltingarkennd uppgötvun og brjóta í bága við fyrri kenning- ar, sem flestar eru komnar frá barnasálfræðingnum Jean Piag- et. „Piaget og fleiri töldu, að geta barna til að líkja eftir svipbrigð- um markaði tímamót á þroska- ferli þeirra vegna þess, að þá þyrftu þau að notast við tvö skilningarvit. Barnið sér svip- brigðin en ekki sitt eigið andlit og verður því að nota snertiskyn- ið til að líkja eftir svipnum," sagði Meltzoff. Piaget var hins vegar viss um, að börn gætu ekki líkt eftir svipbrigðum fyrr en þau væru ársgömul. Við rannsóknir Meltzoffs var 14 mánaða gömlum börnum sýnt leikfang, sem tekið var í sundur að þeim ásjáandi, og þau síðan send heim með foreldrum sínum. Næsta dag var komið með þau aftur og leikfangið sett í hend- urnar á þeim. Langflest börnin tóku leikfangið í sundur strax á sama hátt og þau höfðu séð dag- inn áður. Þótti þetta sýna, að Pi- aget hefði haft rangt fyrir sér þegar hann sagði, að minni barna þroskaðist ekki fyrr en þau væru orðin 18-24 mánaða- Ekki eru allir sálfræðingar á sama máli og Meltzoff um hug- arþroska smábarna. Eugene Abravamel, sálfræðingur við George Washington-háskólann, reyndi að endurtaka tilraunir Meltzoffs en ekki kveðst hann hafa haft erindi sem erfiði nema að litlu leyti. Var það helst, að litlu börnin rækju út úr sér tunguna framan í hann til að svara honum í sömu mynt. sjúkdómurinn stafaði, því hafi sjúklingarnir verið á stjái á nótt- unni og þar eð ekki var hægt að fá blóðkornagjafir, hafi legið beinast við að drekka eins mikið blóð úr öðru fólki og kostur var. Dolphin sagði að gamla þjóðsag- an um að hvítlaukur fældi blóðsug- ur frá gæti átt við rök að styðjast, því í hvítlauk væru efni sem æstu mjög sjúkdóminn sem hér um ræð- ir. Því væri alls ekki fráleitt að „blóðsugur" í gamla daga hefðu hljóðað og hörfað er hvítlauk var skvett á þær. Ýmsir sem hlýddu á fyrirlestur Dolphins voru yfir sig hrifnir af því að komin væri fram skýring, sem gerði þjóðsögur á borð við þær sem fjalla um blóðsugur og varúlfa, trúanlegar í vissum skiln- •ngi- _____^_________ Lítið hraungos í St. Helens Vancouver, Wnshington. 31. mní. AP. ÖRYGGIS- og almannavarnir eru í viðbragðsstöðu allt í kringum eld- fjallið mikla St. Helens í Washing- tonríki. Þar hefur verið búist við gosi, e.t.v. sprengigosi, síðustu daga þar sem kambur fjallsins hefur bólgnað út síðustu vikur, alveg eins og þegar fyrri gos hafa brotist út, sum hver með skelfilegum afleiðing- um. Jarðvísindamenn sem voguðu sér á lítilli flugvél ofan í gíginn í dag sáu dálítið af nýrunnu hrauni sem benti til þess að gos sé þegar hafið þó það hafi hljótt um sig. Þetta er fyrsta eldvirknin í 8 mánuði, en aldrei hefur fjallið sof- ið svo lengi í einu síðan virknin mikla hófst með stórgosi í mars 1980. Mesta gosið var svo í maí á því ári, þá létust 57 manns, hraun og aska þöktu þúsundir ferkíló- metra og aska féll um allan heim. Steve Brantley, jarðfræðingur í Washington, sagði að þó gosið virtist lítið og ómerkilegt, mætti alls ekki vanmeta fjallið. „Það gæti enn orðið sprengigos," sagði Brantley.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.