Morgunblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1985 • Arnór í baráttu viö spánskan Mkmann (landslaik. Amór hafur variö frá knattspyrnu í bráóum tvö heil keppnistímabil vegna meiösla. Hann er nú aö hafja mfingar á nýjan laik. ' Jabbar frábær Lakers sigraði Boston 109—102 Frá Gunnari Valgairssyni fréttaritara Morg- unblaösins í Bandaríkjunum. Boston Celtics slátraöi Los Angeles Lakers í fyrsta leik þess- ara liöa í úrslitum um „heims- meistaratitilinn“ í körfuknattleik, 148—114, en í gær komu Los Angeles Lakers ákveönir til leiks og sigruöu 109—102. Strax á fyrstu mínútum leiksins voru Lakers ákveðnir í aö selja sig dýrt. Komust strax í 11—4 og var staöan eftir fyrsta leikhlutann 31—26. í öörum leikhluta héldu Lakers áfram og keyröu leikinn upp og héldu hraöanum og voru 18 stigum yfir í hálfleik, 64 —46. Þessi leikhluti var mjög góöur af hálfu Lakers og höföu Boston- leikmenn ekkert svar viö þessum góöa leik. Áhangendur Boston áttu ekki til orö yfir þennan leik Lakers og þögöu þunnu hljóöi. I þriöja leikhluta eftir hálfleik héldu þeir lengst af 10—13 stiga forystu en Boston var aldrei langt undan og var staðan 87—75 eftir þrjá leikhluta og allt gat gerst í þeim fjóröa og síöasta. Boston saxaöi á forskot Lakers í fjóröa leikhluta og þegar 4 mín. voru eftir var staöan 100—96 og allt á suöupunkti. Þegar tvær mín- útur voru eftir, var staöan 104—100 fyrir Lakers sem virtust vera aö missa flugið, en þeim tókst aö halda þetta út og sigruöu 109—102 og var þetta sanngjam sigur Lakers, þar sem þeir voru yfir allan leiktímann. Hinn 38 ára gamli Jabbar spilaði eins og 20 ára gamall unglingur, lék hreint frábærlega, skoraði 30 stig og tók 17 fráköst, stórkostleg- ur leikmaöur. Önnur hetja Lakers var Cooper, kom af bekknum, skoraöi 22 stig, hitti í 8 af 9 skotum og geröi mikið af lykilkörfum. Larry Bird var bestur hjá Bost- on, skoraöi 26 stig. Aöalmunurinn á liöunum í þessum leik var aö Boston tókst ekki aö halda niöri hraöanum hjá Lakers. Lakers réöu bæöi sóknar- og varnarfráköstun- um. Þetta var annar leikur þessara liöa af sjö og voru báöir í Boston, næstu þrír leikirnir veröa í Los Angeles. • Larry Bird *r álitinn besti körfuknattleiksmaóur { Banda- ríkjunum í dag. Bird bestur BANDARÍSKU atvinnumennirnir í NBA-körfuknattleiknum hafa val- ió í „All Star“-liöið 1985. Það voru leíkmenn sjálfir sem völdu. Larry Bird fékk flest atkvæði og var í efsta sæti hjá öllum. Listinn yfir tvö bestu lið Bandaríkjanna fer hér á eftir: A-liö: Larry Bird, Boston Bernard King, New York Moses Malone, Philadelphia Earvin „Magic” Johnson, LA Lak- ers Isiah Thomas, Detroit B-liö: Terry Cummings, Milwaukee ^ Ralph Sampson, Houston Kareem Jabbar, LA Lakers Michael Jordan, Chicago Sidney Moncrief, Milwaukee „Öll blöð uppfull af f réttum frá harmleiknum“ — segir Arnór Guöjohnsen sem samdi við Anderlecht í gær „ÞAÐ ERU öll blöð og aðrir fjöl- miðlar undirlagðir af fréttum frá hinum hryllílega atburði sem geröist á Heysel-leikvanginum síðastliðínn miðvikudag. Og allir eru sammála um að sá harmleik- ur sem átti sér stað þar sé svart- ur blettur á knattspyrnuíþrótt- inni. Menn eru ekki sammála um hvernig á aö bregöast við þessu hér í Belgíu en allir eru sammála um aö það duga engin vettlinga- tök. Taka verði málin mjög föst- um tökum svo að svona komi ekki fyrir aftur,“ sagði Arnór Guð- johnsen í spjalli viö Mbl. í gær- dag. Arnór sagöist ekki hafa fariö á völlinn en hinsvegar fylgst meö öllu í sjónvarpinu eins og milljónir manna í allri Evrópu. „Þaó átti aö sjálfsögóu enginn von á þessu, og þrátt fyrir aö smá ólæti heföu átt sér staö í bænum um daginn þar sem stuönings- menn Liverpool og Juventus fóru um í hópum, þá var lögreglan alls óviöbúin því aö slík læti skyldu brjótast út klukkutíma fyrir leikinn. Slíkt gerist aö öllu jöfnu ekki fyrr en eftir leik eöa á meóan á honum stendur. Þaö verö ég aö segja aö belgískir áhorfendur eru hin mestu prúömenni ef miöa á viö þá ensku. Þetta eru villimenn," sagöi Arnór. Hvað með sjálfan þig, Arnór, ertu búinn að ná þér af meiðslun- um sem þú hlaust fyrr í vetur og ganga frá samningi við Ander- lecht? „Ég er aö fara á fund meö stjórn Anderlecht þar sem ég mun skrifa undir eins árs samning viö félagiö. Ég tel þaö vera rétta ákvöröun hjá mér aö vera hér áfram meöan ég er aö ná mér á strik aftur. Því er ég ánægöur meö aö félagiö skuli vilja endurnýja samning sinn viö mig. Ég er enn ekki orðinn góöur af þeim meiöslum sem ég hlaut fyrr i vetur. Þaö er fyrst núna sem ég er farinn aö æfa og hleyp svona i tíu mínútur á dag til aö byrja meö. Liöböndin i hnénu slitnuöu og svona meiðsl taka langan tíma aö jafna sig. Ég mun halda áfram aö æfa rólega og vera í meöferö. Ég kem heim til íslands í frí um miöjan júnímánuö og verö þar í meöferö. Ég stefni aö því aö fá mig góöan fyrir næsta keppnistímabil en þaö mun taka langan tíma aö komast í góöa leikæfingu aftur.“ Hefur þetta ekki reynt á þig andlega að vera svona frá keppni í tvö ár næstum því? „Jú, vissulega hefur þetta veriö mjög erfitt tímabil. En þaö er lítiö hægt að gera annaö en aö taka þessu meö ró og fullri skynsemi. Ég hef aldrei lent í öðrum eins meiöslum og aö slíta liöböndin í hnénu á æfingu svo til strax um leið og ég var aö ná mór eftir stór- an uppskurð. En þetta herðir mann líka. Knattspyrnan býöur uppá þessa hættu aö menn meið- ist, en þaö er sjálfsagt ekki oft sem óheppnin eltir menn eins og mig í þessu tilfelli. Ég er ekkert alltof bjartsýnn á aö vel takist til, ég mun taka þetta rólega og sjá hvernig gengur. Þetta verður allt aö þróast rólega. Ég var mjög sár yfir því aö missa af landsleikjunum. Þaö heföi veriö gaman aö geta leikiö gegn Skotum og Spánverjum. Eina sem maöur getur gert er aö vona aö maöur nái sér aö fullu á strik aftur.“ Verður lið Anderlecht sem vann deildarkeppnina í vetur með miklum yfirburðum óbreytt næsta keppnistímabil? „Já aö mestu leyti. Þó var keypt- ur nýr leikmaöur um daginn. Janssen frá Waterschei. Morton Olsen er búinn aö skrifa undir eins árs samning en það var nokkur óvissa um hann. Per Frimann á eft- ir aö semja en óg reikna meö því að hann skrifi undir næstu daga. Liöiö verður því mjög svipaö og síðasta keppnistímabil. Liöiö var gífurlega sterkt i vetur og hörö samkeppni aö komast í byrjunarliöið. Árangur Anderlecht í vetur er einn sá besti sem félagiö hefur náó í deildarkeppninni frá upphafi." — ÞR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.