Morgunblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 31
31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1985
- -■—" • -............... ■■ ■ ' "
HANDAVINNU-
POKINN
BANGSAVINIR
ERU þeir ekki eigulegir? Og lítill vandi að búa til. Eins og ég
var búin að lofa mörgum þeirra sem skrifuðu mér þegar ég
kom með uppskriftir af leikföngum í nóvember í fyrra, ætla ég
að bjóða ykkur snið af stóra bangsanum, sem er á miðri myndinni.
En þið þurfið að skrifa eftir því til mín. Vegna plássleysis hér í
dálkunum get ég ekki birt sniðið í réttri stærð.
Efnið í bangsann getur verið margskonar, til dæmis plussefni alls
konar (fást oft í Vogue), rifflað eða slétt flauel, jersey-efni, prjónles
efni, og meira að segja satín. Sama er að segja um buxurnar, þær
geta verið úr silki, lérefti, blúndu eða prjónaefni. Það er ykkar að
velja, en hér kemur leiðarvísir, sem þið skuluð geyma þar til þið fáið
sniðin.
1. Fram- og bakstykki
2. Efra höfuðstykki
3. Hliðarhöfuðstykki
4. Trýnið
5. Eyrun
6. Bakstykki (höfuð)
7. Fram- og bakstykki
(buxur)
Klipping:
Sniðin eru án sauma, sem eiga að vera um 1 sm. Fram og bakstykki
(nr. 1) klippast á broti einu sinni hvort. Efra höfuðstykki, trýni og
bak-höfuðstykki (nr. 2, 4 og 6) leggjast á tvöfalt efni og klippast á
broti, einu sinni hvert. Hliðar-höfuðstykki (nr. 3) klippist tvisvar.
Eyrun (nr. 5) klippast fjórum sinnum. Buxurnar (nr. 7) klippast
tvisvar.
Þegar þið hafið saumað bangsann saman skulið þið klippa af
saumfarinu að minnsta kosti helming, þá er betra að snúa honum
við. En bangsinn er saumaður saman sem hér segir:
Fram og bakstykki lagt saman rétt móti réttu og saumað saman
allt í kring nema hálsopið. Snúið á réttuna og fyllið með góðu
púðafyllingarefni (vatti eða svampkurli).
Saumið efra höfuðstykki, nr. 2, við hliðarstykki, nr. 3, og látið
töluna 1 á báðum sniðum standast á. Saumið svo trýnið á, og látið þá
töluna 2 standast á. Saumið miðsauminn, einnig í trýninu. Leggið
saman fram- og bakstykki höfuðs, rétt móti réttu, og saumið saman,
nema við hálsinn og þar sem eyrun koma (talan 3).
Saumið eyrun, 2+2 saman, ekkert látið inn í þau, snúið þeim og
stingið inn í höfuðsniðið (talan 3). Saumið þau svo á í höndunum.
Saumið í augun (litlar tölur eða plastperlur). Saumið út nefið fremst
á trýninu og tunguna, eða notið bút af svörtu á trýnið og rauðu í
tunguna, mætti vera úr fílti eða gervileðri. Saumið buxurnar saman,
skreytið með blúndu að neðan, setjið teygju í mittið, og þá er allt
komið.
Svo er bara að skrifa eftir sniðum í réttri stærð ef þið hafið áhuga.
Utanáskriftin er:
Dyngjan,
Morgunblaðinu,
Aðalstræti 6,
101 Reykjavík.
Fjölbrautaskólinn í Vestmannaeyjum:
196 stunduðu nám á vorönn
Vestmannaeyjum, 23. maí.
Framhaldsskólnanum í Vest-
mannaeyjum var slitið í 6. sinn laug-
ardaginn 18. maí sl. Nemendur við
skólann voru 215 á haustönn og 196
á vorönn. Fastir kennarar eru 10
auk skólameistara og stundakennar-
ar voru 10 á haustönn en 7 á vorönn.
1 janúar voru útskrifaðir 5
húsasmiðir og 2 nemendur með
verslunarpróf.
Við skólaslit nú voru útskrifaðir
14 stúdentar, 10 nemendur með
verslunarpróf, 23 nemendur með
lokapróf (3. stig) iðnaðarmanna (9
vélvirkjar, 5. bifvélavirkjar, 4
plötusmiðir, 3 húsasmiðir, einn
rafvirki og einn netagerðarmað-
ur). 1 vélstjóri með réttindi 2.
stigs og 4 vélaverðir með 1. stig. 6
nemendur luku prófum af grunn-
deild rafiðna.
í ávarpi formanns skólanefndar,
Arnar Sigurmundssonar, kom
fram að menntamálaráðherra hef-
ur ákveðið að setja Ólaf H. Sigur-
jónsson skólameistara við skólann
í stað Gísla H. Friðgeirssonar sem
nú lætur af störfum. Ólafur var
aðstoðarskólameistari og gegndi
starfi skólameistara sl. vetur í
leyfi Gísla. Einnig kom fram að
skólinn flytur í sumar í húsnæði
það sem gagnfræðaskólinn hefur
haft frá upphafi, nema verklega
kennslan, sem áfram verður í
gamla Iðnskólahúsinu.
í ræðu skólameistara kom m.a.
fram, að í haust er hugmyndin að
hefja kennslu í öldungadeild ef
leyf fæst, einnig verður reynt að
koma á fót félagsfræðibraut og
íþróttabraut.
Skólameistari hvatti til þess að
hafin yrði bygging nýs verknáms-
húss hið allra fyrsta.
Aðstoðarskólameistari er Bald-
vin Kristjánsson og stjórnaði
hann skólaslitaathöfninni og ann-
aðist útskrift og verðlaunaafhend-
ingar ásamt skólameistara.
— hkj.
Ólafur H. Sigurjónsson, skólameist-
ar FÍV.
Tónleikar í
Norræna húsinu
ÞRIÐJU tónleikarnir í röðinni „llngir
norranir einleikarar" veröa haldnir í
Norræna húsinu á sunnudagskvöldið
2. júní. Á þessum tónleikum kemur
fram norski píanóleikarinn Christian
Eggen.
Christian Eggen fæddist árið 1957,
og útskrifaðist árið 1978 úr tónlist-
arháskólanum í Osló. Hann hefur,
auk þess að halda fjölda tónleika og
gefa út hljómplötur, samið tónlist
fyrir leikhús og kvikmyndir. Honum
hafa hlotnast styrkir og viðurkenn-
ingar sem einleikara, stjórnanda og
tónskáldi.
A tónleikunum verða flutt verk
eftir Edvard Grieg, Wolfgang Ama-
deus Mozart, Chopin, og Carl Niel-
sen. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.
Leiðrétting
EFTIRNAFN Hönnu Lóu Frið-
jónsdóttur misritaðist í B-blaði
Morgunblaðsins þann 31. maí, er
fjallað var um ungar konur í
íþróttum. Morgunblaðið biðst
velvirðingar á mistökunum.
Opið í dag
frá kl.10-17
íslenskur húsbúnaður h.f. efnir til sýningar á nýjungum frá Axis,
Trésmiðjunni Víði og Gefjuni sem voru sýndar á Bella Center,
Kaupmannahöfn í byrjun maí. Einnig kynnum við nýjungar frá
Húsgagnaiðjunni á Hvolsvelli og hótel-línu frá Topphúsgögnum.
ÍSLENSKUR HÚSBÚNADUR
Langholtsvegi 111, sími 686605.