Morgunblaðið - 01.06.1985, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR1. JÚNÍ'1985
Alþjóðlega skákmótið í Vestmannaeyjum:
Jóhann Hjartar- L
son efstur með
tvo vinninga
Vestmannaeyjum, 31. maí.
JÓHANN Hjartarson er efstur á al-
þjóðlega skákmótinu í Vestmannaeyj-
um að loknum tveimur fyrstu umferð-
unum af þrettán. Hefur Jóhann unnið
báðar skákir sínar.
Mótið var sett í Safnahúsinu í
Eyjum á miðvikudaginn með
ávarpi Sigurðar Jónssonar forseta
bæjarstjórnar. Sigurður Einarsson
útgerðarmaður lék fyrsta leikinn
fyrir enska stórmeistarann Nigel
Short og þar með hófst baráttan á
skákborðunum sem mun standa yf-
ir fram til 11. júní nk.
Jóhann Hjartarson trjónir einn f
efsta sætinu að tveimur umferðum
loknum með tvo vinninga. Þeir
Helgi Ólafsson, Guðmundur Sigur-
jónsson og William Lombardy eru
allir með einn og hálfan vinning.
Karl Þorsteins, Jón L. Árnason,
Nigel Short og Anatoly Lein eru
með einn vinning hver, en Lein á
Framkvæmdastjórn
Sjálfstæðisflokksins:
Birgir ísl.
Gunnarsson
endurkjör-
inn formaður
Birgir ísleifur
Gunnarsson
alþingismað-
ur var endur-
kjörinn for-
maður fram-
kvæmda-
j stjórnar Sjálf-
| stæðisflokks-
ins á fundi
miðstjórnar
flokksins þann 10. maí sl.
Þá var jafnframt ákveðið að
sama fyrirkomulag yrði viðhaft og
á síðasta kjörtímabili um skipan
framkvæmdastjórnar. Hún er
skipuð formönnum þingflokks,
fjármálaráðs, fræðslu- og út-
breiðslunefnda auk formanns,
þeim Ólafi G. Einarssyni, Ingi-
mundi Sigfússyni, Jóni Hákoni
Magnússyni og Esther Guð-
mundsdóttur.
óteflda biðskák. Ásgeir Þ. Árnason,
Jonathan Tisdall og Ingvar Ás-
mundsson hafa fengið hálfan vinn-
ing, en þeir Bragi Kristjánsson,
Jim Plaskett og Björn I. Karlsson
hafa engan vinning hlotið. Bragi á
óteflda biðskák.
Þriðja umferðin verður tefld í
kvöld. — hkj.
Keppendur og stjórnendur við komuna til Vestmannaeyja.
í w Á
Morgunblaðið/Sigurgeir
Rás 1 á rás 2:
Operan Hollend-
ingurinn fljúg-
andi flutt f heild á
sunnudagskvöld
— Sent verður út á
bylgjulengd rásar 2
ÓPERAN Hollendingurinn fljúgandi
eftir Richard Wagner verður flutt í
heild í útvarpinu á sunnudagskvöldið.
l)m er að ræða upptöku frá tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands 7. mars
sl. og verður sent út á bylgjulengd
rásar 2.
Að sögn Markúsar Arnar Ant-
onssonar útvarpsstjóra nefnist
þessi dagskrá Tónlistarkvöld ríkis-
útvarpsins og er hér um tilraun að
ræða. Hann sagði að áhugi væri
fyrir hendi að flytja ýmis löng tón-
verk í heild sinni. Það þótti tilvalið
að nota þennan tíma, þar sem rás 2
hefur ekki í hyggju að nota hann í
bráð, og senda út jafnhliða dag-
skránni á rás 1.
Útsendingin á Hollendingnum
fljúgandi hefst kl. 20.00. Þulur er
Þorsteinn Hannesson.
ígarömn
Garðptöntur: , runnar. Bgum líka
blóma, **.' 09
gróðurskála.
interflora
Blómum
víðaverold
Annað:
Garðáburður. Þurrkaður
hænsnaskítur frá Holtabuinu.
Garðáhöld allskonar.
Garðslöngur. Garðkönnur.
Otiker, svalaker.
Veggpottar í úrvali.