Morgunblaðið - 01.06.1985, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1985
11
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti:
186 nemendur útskrífuöust
eftir tíunda starfsárið
Sjötíu og fjórir nemendur luku
stúdentsprófi; 34 á almennu bók-
námssviði, 6 á heilbrigðissviði, 3 á
hússtjórnarsviði, 3 á listasviði, 2 á
tæknisviði, 7 á uppeldissviði og 19 á
viðskiptasviði. Bestum árangri á
Stúdentar Fjölbrautaskólans í Breiðholti við skólaslitin ásamt Gnðmundi Sveinssyni akólameistara.
FJÖLBRAUTASKÓLANUM í Breið-
holti var slitið laugardaginn 25. maí
sl. í Bústaðakirkju.
Þetta var tíunda starfsár skólans.
Á vorönninni voru 1.152 nemendur
við skólann. Á laugardaginn fengu
186 nemendur prófskírteini, þar af
21 á eins árs brautum skólans, 22 á
grunnnámsbraut matvælasviðs og
10 á grunnnámsbraut tæknisviðs.
Bestum árangri þar náði Alda
Benediktsdóttir. Á tveggja ára
brautum hlutu 51 prófskírteini; 22
af námsbrautum viðskiptasviðs, 6
af grunnnámsbraut listasviðs og 23
af námsbrautum tæknisviðs. Best-
um árangri þeirra náði Hannes Þ.
Guðrúnarson. Af þriggja ára braut-
um lauk 41 nemandi prófi, þar af 11
frá sveinsprófsbrautum tæknisviðs,
22 af brautum sérhæfðs verslun-
arprófs og 8 af sjúkraliðabraut heil-
brigðissviðs. Bestum árangri þar
náði Ingimundur Þorsteinsson.
stúdentsprófi náðu Þórir Bragason
af húsasmíðabraut tæknisviðs og
Bjarni Guðmundsson af eðlisfræði-
braut almenns bóknámssviðs.
Við skólaslitin léku Lárus
Sveinsson á trompet og Guðni Þ.
Guðmundsson á orgel, ávörp voru
flutt og Guðmundur Sveinsson
skólameistari sleit skólanum.
Átta nemendur útskrifuðust af sjúkraliðabrauL
Leitið upplýsinga hjá Ferðaskrifstofu Ríkisins, Flugleiðum og ferðaskrifstofum.
FR# Ferðaskrifstofa Ríkisins FLUGLEIDIR
Flug og.. hvað?
Flug og skip. Flug út, skipheim, skip út og flug heim,
eÖa eins og þú vilt.
Ferðaskrifstofa ríkisins og Flugleiðir bjóða nú enn
einn ferðamöguleikann, - flug og skip.
Við bjóðum þér að fljúga með Flugleiðum og sigla
með Norrænu, hvort heldur þú vilt heiman eða heim.
Þú gætir t.d. flogið innanlands, siglt út og flogið heim,
eða flogið út og siglt heim.
Möguleikarnir eru margir. Flafðu alla þína hentisemi.
Flugið er fljótlegra, en skemmtisigling með Norrænu
er óneitanlega freistandi.
Dæmi um verð: Flogið frá Reykjavík til Osló
Siglt frá Bergen til Seyðisfjarðar
Flogið frá Egilsstöðum til Reykjavíkur kr. 13.316.-
Flug og skip,
ánægjuleg tilbreyting á ferðamáta landsmanna.