Morgunblaðið - 01.06.1985, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR L JtJNl 1985
SALZBURG
Fæðingarborg Mozarts
— forn og myndrík
TEXTI OG MYNDIR AGNES BRAGADÓTTIR
Salzburg — Hohensalzburg í bakgrunni, en vinstra megin í forgninni er Dómkirkjan.
SALZBURG, borg saltsins — dregur nafn sitt náttúrlega af þeirri auðlind sem skóp borginni góða
afkomu á sínum tíma — saltinu. Frægð sína á hún hins vegar fyrst og fremst að þakka þeirri
staðreynd að hún er fæðingarborg Wolfgangs Amadeus Mozart, þess fræga tónskálds. Þess er
minnst með margvíslegum hætti allan ársins hring, enda er Salzburg víðkunn fyrir tónlistarvið-
burði, en á þessu ári verða þeir um 1500 talsins sem heyra undir það sem raunverulega er nefnt
menningarviðburður. í ljósi þess að Salzburg byggja einungis um 150 þúsund manns hlýtur þetta
að teljast „nokkuð gott“. Aukinheldur dregur borgin til sín ferðamenn í stríðum straumum fyrir
sakir fegurðar sinnar, sem er einstök.
Flugleiðir munu þann 12.
júní nk. hefja beint
áætlunarflug til Salz-
burg og er óhætt að full-
yrða að Flugleiðamenn,
jafnt sem austurrískir ferðamála-
frömuðir, binda miklar vonir við
þennan nýja áætlunarstað félags-
Eins og ég aegi fri í greininni, vor-
um við svo heppin að verða vitni að
brúðkaupi í Mirabellhöllinni. Hér
eru brúðhjónin ungu að vígslunni
lokinni, ásamt venslafólki.
ins. Þetta urðum við nokkrir ís-
lenskir fréttamenn áþreifanlega
varir við nú um miðjan maí er við
fórum í boði Flugleiða og ferða-
málaráðs Salzburg til Austurríkis
til þess að skoða dásemdir þessa
lands.
„Rómaborg
nordursins“
„Salzburg er ein þriggja feg-
urstu borga jarðar". Svo lýsti Al-
exander von Humboldt, Víðkunnur
19. aldar ferðamaður, Salzburg og
umhverfi hennar. Hún hefur einn-
ig verið nefnd „Rómaborg norð-
ursins" og um hana hefur verið
sagt að hún eigi fegurð sína og
þokka að þakka þeirri samhljóm-
un sem er á milli fagurrar bygg-
ingarlistar borgarinnar og nátt-
úrufegurðarinnar í umhverfinu.
Salzburg er höfuðborg héraðsins í
Austurríki, sem ber sama nafn og
borgin, Salzburg. Að mínu mati
eru þær líkingar sem hér að ofan
er vitnað til engar ýkjur, án þess
þó að ég geti fullyrt um sann-
leiksgildi þeirra. Það að koma til
borgarinnar á þeim árstíma sem
við gerðum, í 25 gráðu hita, en
borgin ljómar samt sem áður af
ferskleika vorsins — gróður fag-
urgrænn, blóm nýútsprungin og
mannlff allt að taka á sig léttleika
Getreidegasse — Gatan sem Mozart fæddist við, en hún er jafnframt
aðalverzlunargata Salzburg.
sumarsins, jafngildir því hrein-
lega að fá vorið „beint í æð“.
í hjarta Evrópu
Salzburg liggur í hjarta Evrópu
ef svo má að orði komast. Hún er
þannig staðsett að ekki tekur
langan tíma að aka eða fara með
lest til staða eins og Múnchen,
Feneyja, Búdapest og fleiri staða.
Salzburg er staðsett norðan-
megin í Alpafjöllunum, næstum í
miðju Austurríki, en þó örstutt
frá landamærum Bayern í Vest-
ur-Þýskalandi. Borgin er í um 450
metra hæð yfir sjávarmáli, í skjóli
þriggja skógi vaxinna hæða. Kast-
alinn Hohensalzburg gnæfir yfir
borgina á hæstu hæð borgarinnar.
Þetta virki hefur verið borginni til
varnar í 900 ár og virkisveggirnir,
sem heldur eru farnir að láta á sjá
og hafa lækkað nokkuð frá sinni
upprunalegu mynd, eru einstak-
lega skemmtileg umgjörð kastal-
ans.
Þegar hugsað er til líkingarinn-
ar „Rómaborg norðursins" kemur
það óneitanlega upp í hugann, að
þrátt fyrir norðlæga legu er ótrú-
lega margt suðrænt við Salzburg.
Þar nefni ég stór torgin, forn öng-
stræti, kirkjur, klaustur og glæsi-
bústaði og hallir í víðáttumiklum
og fögrum görðum. Eins og ég
sagði hér að framan fannst okkur
fréttamönnunum sem við værum
stödd í Salzburg á besta hugsan-
lega árstíma, að vori til, þegar allt
er nýútsprungið og ferskt. Ekki
eru allir þessu sammála því aust-
urríski rithöfundurinn og leikrita-
skáldið Hermann Bahr, sem fædd-
ur var í Linz, var mikill aðdáandi
Salzburg og taldi borgina ávallt
hafa jafnmikið aðdráttarafl —
óháð árstíðum. Hann sagði um
Salzburg: „Salzburg er alltaf fal-
leg og maður er sannfærður um
það að hún hefur aldrei fegurri
verið, en einmitt þetta augnablik."
Þetta má ugglaust til sanns vegar
færa, a.m.k. að einhverju leyti, en
ég hef nú kynnst Salzburg að vori
og ég þekki hana að sumri til þeg-
ar hún er bókstaflega hulin ferða-
mönnum. Ég kýs vorið, en auðvit-
að er smekkur á þessu sviði sem
öðrum mismunandi.
Margt að skoða
Þeim sem eiga leið um Salzburg,
eða hyggjast jafnvel dvelja þar
einhverja daga, vil ég benda á
nokkra staði, sem hver ferðamað-
ur verður bókstaflega að berja
augum. Fyrst nefni ég kastalann
Hohensalzburg — bæði er
skemmtilegt að skoða kastalann
og safnið í honum, Burg Museum,
auk þess sem útsýnið yfir borgina
og nágrenni hennar er stórkost-
legt frá hæðinni og ekki spillir að
njóta þess yfir einum góðum öll-
ara eða góðu vinglasi. Þessi kast-
ali er stærsta virki Mið-Evrópu
sem varðveist hefur algjörlega.
Hann var byggður laust fyrir árið
1100 og síðan stækkaður um 1500
af einhverjum erkibiskupnum, en
þeir höfðu eins og kunnugt er að-
setur sitt í Salzburg, og eftir þá,
prinsa-erkibiskuparnir, eða hvað
þeir nú nefndir eru. Það þarf vart
að ráðleggja eina kirkjuna fremur
annarri. I gömlu miðborginni eru
þær fjölmargar og allar fallegar.
Dómkirkjuna verða þó allir að
skoða, en hún er stórkostleg barr-
okkbygging, sem Austurríkismenn
segja þá fegurstu sinnar tegundar
norðan Alpafjalla. Dómkirkjan
var eyðilögð að miklu leyti í seinni
heimstyrjöldinni, en endurbyggð
síðar. Allt er þetta innan seil-
ingarfjarlægðar í gömlu borginni
og ekkert vandamál að nálgast.
Gamla miðborgin er að miklum
hluta til einungis ætluð fótgang-
andi vegfarendum og mæli ég ein-
dregið með því að íslenskir ferða-
menn reyni ekki að ferðast um
borgina á annan hátt, a.m.k. ekki
þennan borgarhluta.
Ekki má láta hjá líða að minn-
ast á húsið þar sem sjálfur Mozart
fæddist, þar sem nú er Mozart
Museum. Húsið stendur við eina
allra skemmtilegustu götuna i
Salzburg, Getreidegasse 9, sem er
reyndar aðalverzlunargata Salz-
burg í dag. Orðið Gasse er einfald-
lega smækkunarorð fyrir orðið