Morgunblaðið - 01.06.1985, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1985
21
íslenskir listamenn hafa náð
að varðveita persónuleika sinn
— segir rússneski ljósmyndarinn Vladimir Sichov
usiiisimei |
m*- ... ?
'•^1
í næsta nágrenni við ísbjörninn er umgengni ekki eins góð.
endastarf að koma upp skrúðgarði
við Gimli í Reykjavík.
Menn leita gjarnan liðsinnis
Hreinsunardeildar við að hirða af
lóðum vélar og bílgarma og einnig
við að hreinsa til á byggingar-
lóðum. Að sögn Péturs Hannes-
sonar er orðið lítið um að fólk
geymi lengi drasl á lóðum sínum.
Hægt er að hringja í hreinsunar-
deild og fá aðstoð við slíka flutn-
inga. Hann kvað gróður sífellt
vera að aukast í görðum borgar-
innar og öll hirðing þeirra er mun
betri en var fyrir nokkrum árum.
Pétur kvað menn nota mikið gáma
þá sem hreinsunardeildin hefur
sett upp á ýmsum stöðum í borg-
inni og greinilegt sé að þeirra hafi
verið þörf.
Eitt af því versta sem hreinsun-
ardeildarmenn fást við er að fjar-
lægja glerbrot af öllu tagi. Það er
ótrúlega mikið um að fólk brjóti
flöskur og oft er mikið um gler-
brot í kringum skóla og sjoppur.
Pétur kvað erfitt að ná glerbrot-
unum upp úr grófu malbiki og
ekki ótítt að þau skæru sundur
dekk á hreinsunarbílunum og öðr-
um bílum. Pétur gat þess að
flöskubrot væru alltaf töluvert
fátíðari þegar gosdrykkjaverk-
smiðjur hækkuðu verð á flöskum,
en þegar verðið færi lækkandi ykj-
ust flöskubrotin að sama skapi.
Við skulum vona að Reykjavík
verði svo vel á sig komin eftir
hreinsunarherferðina að við get-
um öll séð hana þeim augum sem
Tómas Guðmundsson leit hana
morguninn sem hann orti um
hana kvæðið „Júnímorgunn".
Úðinn drýpur og sindrar í silfurgljá.
f svona veðri finnst regninu gaman að detta
á blómin, sem nú eru upptekin af að spretta
og eru fyrir skemmstu komin á stjá.
Og upp úr regninu rís hin unga borg,
rjóð og tær eins og nýstigin upp af baði.
Og sólin brosir á sínu himneska hlaði
og horfir með velþóknun yfir stræti og torg.
Og léttir geislar glitra um lygnan fjörð
eins og glóbjört minning um tunglskinið
frá í vetur.
ó, engan ég þekki, sem gæti gert þetta betur
en guð, að búa til svona fallega jörð.
TEXTI:
GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR
LJÓSM.: JÚLÍUS
RÚSSNESKI Ijósmyndarinn Vla-
dimir Sichov var staddur hér á landi
fyrir nokkru. Hingað kom hann
vegna útgáfu bókar um íslenska list.
Vladimir Sichov tók allar myndirnar
í bókinni af 165 íslenskum lista-
mönnum úr öllum listgreinum.
Sichov var spurður hvers vegna
hann hafi tekið að sér þetta verk-
efni.
„Þetta byrjaði allt með því að ég
kynntist Thomas Holton, forstjóra
Hildu hf., árið 1982, þegar ég
myndaði hann fyrir People Maga-
zine. Síðar fékk hann þá hugmynd
að gefa út bók þar sem rakin er
saga íslenskra listgreina með
myndum af íslenskum lista-
mönnum úr öllum listgreinum.
Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt er
gert í heiminum, að blanda saman
öllum listgreinunum í eina bók.
Það hefur verið mjög skemmti-
legt að vinna við gerð bókarinnar.
íslensk list er stórkostleg og ís-
lenskir listamenn hafa náð að
varðveita persónluleika sinn. Þeir
hlaupa ekki alltaf á eftir tísk-
unni.“
Sigurður A. Magnússon skrifar
texta bókarinnar, Torfi Jónsson
hannaði hana og forseti íslands,
frú Vigdís Finnbogadóttir, skrifar
innganginn.
— Hvenær voru myndirnar
teknar?
„Ég byrjaði að mynda 1983 og
hef komið hingað nokkrum sinn-
um og dvalið í stuttan tíma í senn.
Lengsta dvölin var 6 vikur. Það
var sumarið 1983. En margir ís-
lenskir listamenn búa erlendis og
hef ég ferðast til fjölmargra ann-
arra landa til að taka myndir af
þeim.“
— En þetta er ekki í fyrsta
skipti sem út kemur bók með
myndum þínum?
„Nei, það er ekki rétt. Bókin
„The Russians" kom út árið 1979.
Hún hefur að geyma myndir af
rússnesku fólki, hinu daglega lífi i
Rússlandi. Bókin hefur komið út í
fimm þjóðlöndum, Ítalíu, Frakk-
landi, Svíþjóð, Noregi og Banda-
ríkjunum. Þarna var viðfangsefn-
ið venjulegt fólk, sem er mér mjög
mikilvægt. Það er skemmtilegasta
viðfangsefni mitt. En það vill svo
undarlega til að ég er eftirsóttur
tískuljósmyndari og hef unnið
mikið fyrir Vouge í Frakklandi.
Einnig hef ég tekið myndir fyrir
Paris Match, Life og Stern auk
þess sem ég hef unnið fyrir ýmsar
fréttastofur."
— Ert þú þá líka fréttaljós-
myndari?
„Nei ég er það raunar ekki.
Hinsvegar læt ég mig ekki vanta
þegar stórviðburðir gerast, svo
sem ólympíuleikarnir og mikil-
vægir fótboltaleikir."
— Að lokum. Hvað tekur nú
við, þegar þú hefur lokið við bók-
ina?
„Ég er að taka myndir af fræg-
um stjörnum, þeim Joan Collins,
Lauren Hutton og Marisa Beren-
son. Þær eru að vinna við upptöku
á bandarísku myndinni „Sins“. Ég
verð á ferð og flugi á meðan ég
vinn að þessu verkefni, níu vikur í
París, eina í Nizza og tvær í Fen-
eyjum," sagði Vladimir Sichov.
í tengslum við útkomu bókar-
innar í sumar verður haldin sýn-
ing á ljósmyndum Vladimirs Sich-
ov á Kjarvalsstöðum. Sýningin
verður opnuð þann 13. júlí.
Morgunblaöiö/Ól.K.Mag.
Vladimir Sichov
ÞAÐ
I
FJOLSKYLDUNNI
plötiltestingin
Nýjustu afkvæmin:
4
Naglatappi m/skrúfuhaus sem hægt er að losa
aftur. Lengdir: 25mm,- 160 mm.
Mono-Max: örugg festing fyrir gljúp efni.
Sænska fyrirtækið Thorsmans hefur í áraraðir sérhæft sig í framleiðslu á vörum til festingar. Þurfi að festa þilplötur,
eldhússkápa eða dýrindis listaverk þá er óhætt að treysta Thorsmans fyrir öruggri festingu.
Thorsmans fæst í flestum byggingavöruverslunum.
.J^RONNING Sundabor9
sími 84000