Morgunblaðið - 01.06.1985, Side 22
22
MORGUNBLADID, LAUGARDAGUR 1. JÚNl 1985
Aldarafmælis
Garðyrkjufélags
íslands minnst
GARÐYRKJUFÉLAG íslands á aldarafmæli nm þessar mundir en það var
stofnað 26. maí árið 1885. Afmælisins var minnst með ýmsu móti á Hótel
Sögu sl. laugardag af fjölmörgum félagsmönnum og velunnurum Garðyrkju-
félagsins.
Sigríðar Hjartar, varaformaður
Garðyrkjufélags íslands, rakti þar
sögu félagsins og Jón Pálsson,
formaður félagsins, minntist
Georgs Schierbeck, landlæknis og
annars aðalstofnenda Garðyrkju-
félagsins. Gunnar Eyjólfsson,
leikari, sem var kynnir á afmælis-
fundinum, las upp boðsbréf stofn-
enda félagsins og eftirtaldir fluttu
ávörp: Jónas Jónasson, búnaðar-
málastjóri, Grétar Unnsteinsson,
skólastjóri Garðyrkjuskólans, og
Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri
Reykj avíkurborgar.
Að því loknu voru tuttugu og
sex félagsmenn heiðraðir fyrir vel
unnin störf í þágu félagsins og
garðyrkjunnar almennt. Fimm
hlutu gulllaufið, þrír silfurlaufið
og átján hlutu heiðursskjal félags-
ins. Þeir sem fengu gullaufið voru:
Ágústa Björnsdóttir, Einar I. Sig-
geirsson, Jón Pálsson, Kristinn
Helgason og Ólafur B. Guðmunds-
son. Silfurlaufið hlutu Guðrún Jó-
hannsdóttir, Halldóra Haralds-
dóttir og Lára Halla Jóhannes-
dóttir.
Þá var skýrt frá styrkjum sem
Garðyrkjufélagið hefur veitt þeim
Ólafi Njálssyni og Þórunni Valdi-
marsdóttur. Félagið hlaut og
styrki, annars vegar frá Reykja-
víkurborg og hins vegar Búnaðar-
félagi íslands. Þá bárust félaginu
skeyti og gjafir, m.a. iágmynd af
Schierbeck landlækni frá Rann-
sóknastofnuninni Neðri-Ási.
Að sögn Sigríðar Hjartar, vara-
formanns Garðyrkjufélags ís-
lands, fór afmælisfagnaðurinn
fram eins og best varð á kosið. Á
sunnudeginum var svo efnt til
skoðunarferðar á vegum Garð-
yrkjufélagsins þar sem menn gátu
virt fyrir sér garða þriggja félags-
manna, sem búsettir eru í Reykja-
vík.
Frá afmælisfagnaðinum sl. laugardag.
Aldarafmælis Lista-
safns íslands minnst
UM ÞESSAR MUNDIR er þess minnst á tvennan hátt í Listasafni
íslands að ein öld er liðin frá stofnun bess. í dag, laugardaginn 1. júní,
verður opnuð í húsakynnum safnsins sýningin „Fjórir frumherjar“. Þá
kemur út um þessar mumndir ritið „Listasafn iíslands 1884—1984“.
Á sýningunni verða sýnd 111
verk brautryðjenda íslenskrar
nútímamálaralistar, þeirra Þór-
arins B. Þorlákssonar, Ásgríms
Jónssonar, Jóns Stefánssonar og
Jóhannesar S. Kjarvals. Allar
myndirnar eru í eigu safnsins.
Upphaflega var áformað að
halda sýninguna á aldarafmæli
safnsins 14. október 1984, en það
reyndist ógerlegt vegna verk-
falla. Þetta er stærsta sýning
sinnar tegundar sem haldin hef-
ur verið í listasafninu og fer vel
á því þar sem nú eru liðin 100 ár
frá því að fyrst var haldin opin-
ber sýning á vegum safnsins í
Barnaskólahúsinu. Við opnunina
verður frumflutt tónverk fyrir
strengjasveit og nefnist það
„Aldamót". það er sérstaklega
samið af Atla Heimi Sveinssyni
að beiðni forráðamanna safns-
ins. Þá hefur verið gefin út stór
og vegleg sýningarskrá þar sem
ýtarlega er fjallað um hvern
listamann. Skráin er prýdd
fjölda litmynda. Sýningin verður
opin daglega frá kl. 13:30 til
16:00 til loka ágústmánaðar.
í tilefni afmælisins er um
þessar mundir að koma út bókin
„Listasafn íslands 1884—1984“.
Ritið geymir upplýsingar um öll
verk íslenskra listamanna í
safninu, en að auki sjást hér á
einum stað flest öndvegisverk ís-
lenskrar myndlistar. Bókinni er
skipt í fjölda kafla. Auk skrár og
mynda af listaverkunum má þar
finna æviatriði höfunda þeirra,
myndir frá starfseminni, nafna-
skrá, skrá yfir sýningar frá 1950
og upplýsingar um gefendur ís-
lenskra verka. Mikill fjöldi
mynda er í bókinni, þar á meðal
167 litmyndir af verkum safns-
ins, flestar teknar af Kristjáni
P. Guðnasyni. Ritið er bannig
neimildar- og uppsláttarrit og
bætir úr brýnni þörf safna, skóla
og annarra menningarstofnana
fyrir aðgengilega bók um ís-
lenska málaralist og myndlist-
armenn. Einnig er hún sjálfsögð
þeim sem kunna vilja skil á
menningararfi tslendinga.
Dr. Selma Jónsdóttir, for-
stöðumaður Listasafns íslands,
ritar ágrip af sögu safnsins í
upphafi bókarinnar. Þar rekur
hún meðal annars aðdragandann
að stofnun þess og greinir frá
miklu starfi brautryðjanda
safnsins, Björns Bjarnasonar.
Jóhannes Jóhannsson listmálari
hannaði bókina en Halldór
Jónsson hafði umsjón með
verkinu. Prentun fór fram í
Kassagerð Reykjavíkur, en hún
ásamt Leifi Breiðfjörð myndlist-
armanni og þjóðhátíðarsjóði
styrktu útgáfu bókarinnar.
Morgunbladid/Gmilía
Aðstandendur bókarinnar (frá vinstri); Halldór lónsson, Karla Kristjánsdóttir deildarstjóri, Jóhannes Jó-
hannsson listmálari, dr. Selma Jónsdóttir og Bera Nordal Iistfræóingur. Á milli þeirra er veggspjald sem
iistasafnið hefur gefið út í tilefni sýningarinnar.
164 stúd-
entar út-
skrifaðir
frá MS
Menntaskólinn við Sund út-
skrifaði 164 stúdenta á
flmmtudaginn var. Állir sem
reyndu við prófin í vor náðu
tilskildum árangri, en slíkt
mun vera fátítt í framhalds-
skólum. Settu stúdentar upp
húfurnar eftir athöfn í Há-
skólabíói og hér sést hluti
nýstúdentanna.
OPIÐÍDAGlO-4 ^5^ Vijrumarkaðurinn hl. eidistorgi n