Morgunblaðið - 01.06.1985, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1988-----------------------------------------27
Grænland:
Rækjan unn-
in um borö
(■rænlandi, 29. maí. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttariUra Mbl.
GRÆNLENSKA landsþingið hefur
ákveðiö, að stór hluti rækjutogara-
flotans, sem er í eigu landsstjórnar-
innar, verði búinn til að vinna rækj-
una um borð. Munu þá um 100
manns missa vinnuna í landi.
Eftir að skipunum hefur verið
breytt mun rækjuaflinn, sem unn-
inn er í landi, minnka um 3.000
tonn er breytingarnar eru taldar
nauðsynlegar til að bæta rekstr-
arstöðu þeirra. Verður 38 milljón-
um dkr. varið til endurbótanna,
sem verða í aðalatriðum þær, að
komið verður fyrir suðutækjum og
frystum.
Hundar
bíta
mest
— svo menn
New York, 31. mȒ. AP.
SAMKVÆMT skýrslum lækna í
New York var það dýr sem oftast
beit fólk á síðasta ári hundurinn,
„besti vinur mannsins“ eins og
hann hefur oft verið kallaður. I
öðru sæti var maðurinn sjálfur!
Og í alls sex ár hefur mannsbit-
um fjölgað jafnt og þétt á sama
tíma og hundsbitum hefur fækk-
að að sama skapi. Hundsbit voru
á síðasta ári 10.659, mannsbit
1.593. Hér er aðeins um bit að
ræða sem eru nógu alvarleg til
þess að um þau sé tilkynnt og
gert að sárum þeirra sem verða
fyrir þeim. Má ætla að bæði
hundar og menn bíti miklu oftar
þegar á heildina er litið.
I þriðja sæti voru kettir með
sínar beittu tennur, tilkynnt
var um 875 kattabit og 254
rottubit. Skýrslan sýndi, að
New York er sannkallaður
frumskógur: 99 íkornabit, 46
hamstursbit, 32 kanínubit 14
músabit, 8 snáksbit, 5 páfa-
gauksbit, 5 hrossabit, 5 apabit,
3 kóngulóarbit, 4 þvottabjarn-
arbit, 2 eðlubit, 2 sporðdreka-
bit, 2 leðurblökubit, 2 bý-
flugnastungur og ein vespu-
stunga. Loks má geta þess, að
taminn svanur í Flushing
Park, dýragarðinum beit
fruntalega í fingur á óknytta-
unglingi sem ætlaði að atast i
honum. Þurfti að kippa fingr-
inum í liðinn og sauma fáein
spor.
Barátta gegn krabbameini:
Einfættur
gekk 8
þúsund km
Victoria, Kanada, 29. maí. AP.
EINFÆTTUR Kanadamaður af
ungverskum ættum safnaði jafnvirði
tæplega 600 milljóna islen.sk ra
króna til baráttunnar gegn krabba-
meini með því að ganga yfir þvert
Kanada á fjórtán mánuðum.
Maðurinn, sem heitir Steve
Fonyo og er 19 ára gamall, missti
annan fótlegginn eftir að hann
sýktist af krabbameini tólf ára
gamall.
Hinni löngu göngu Fonyo lauk í
gær, er hann kom til borgarinnar
Victora á Kyrrahafsströnd Kan-
ada. Átti hann þá að baki tæpa
átta þúsund kílómetra, og gekk
hina ellefu síðustu á einum degi í
úrhellisrigningu. Fylgdust þús-
undir manna í borginni með enda-
sprettinum og klöppuðu Fonyo lof
í lófa.
laugardag frá kl. 13 «1117
Viö kynnum fjóra OPEL bíla á bílasýning-
unni í BÍLVANGSSALNUM á laugar-
daginn: OPEL KADETT, sem valinn
hefur veriö sem bíll ársins 1985, OPEL
ASCONA, sem fullnaegir flestum kröfum
bílaáhugamannsins. OPEL REKOWIX
bílinn sem sker sig hvarvetna úr, og OPEL
COWSA. smábílinn sem allir falla fyrir.
OPEL bílarnir eru samnefnari þess besta í
þýskri hönnun. Traustir og liprir í akstri og
einstaklega þægilegir fyrir ökumann og
farþega.
Þú kynnist þessum bílum á Opelsýning-
unni aö Höföabakka 9. Ef þú átt góöan
notaöan bíl erum viö vísir til aö vilja kippa
honum upp í einn nýjan og spegilgljáandi
OPEL. til aö auövelda þér viöskiptin.
Greiösluskilmálarnir hjá okkur eru líka
sveigjanlegri en gengur og gerist.
BÍLVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687BOO
Auglýsingaþjónustan