Morgunblaðið - 09.06.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNl 1985
B 7
Hall«ytialMt|aman
á Bayauxraflin-
um 1066
Halaatjarnan 1910
1759. Halley var þá látinn.
Nú gátu vísindamenn í fyrsta
skipti verið vissir um að hala-
stjarna kynni að nálgast jörðina
með ákveðnu millibili. Upp frá
þessu hefur umrædd halastjarna
alltaf verið kennd við Halley.
MÓÐURSÝKI
Eftir uppgötvun Halleys hætti
fólk að líta á halastjörnur sem
guðlega viðvörun og hótun, en ótti
af öðrum toga skaut þá upp kollin-
um: hvað mundi gerast ef þetta
dularfulla, risastóra himnafyrir-
bæri rækist á jörðina?
Móðursýki greip um sig 1835
þegar ny Halleyhalastjarna nálg-
aðist. Aður en hún birtist átti
þekktur franskur stjörnufræðing-
ur, Lalande, að halda fyrirlestur
um halastjörnur í Vísindaaka-
demíunni í París, en af einhverj-
um ástæðum var fyrirlestrinum
aflýst.
Sá orðrómur komst á kreik að
lögreglan hefði bannað að fyrir-
lesturinn yrði fluttur. Staðhæft
var að Lalande hefði reiknað út að
halastjarnan mundi rekast á jörð-
ina. Því var haldið fram að hann
hefði ætlað skýra frá þessu í fyrir-
lestrinum og spá heimsendi.
Halleyhalastjarnan birtist síð-
aði stöðugt á himinhvolfinu.
Framtakssamir lyfsalar aug-
lýstu „halastjörnupillur“ og önnur
lyf, sem mætti nota sem mótefni
gegn eitri halastjörnunnar. Þetta
voru aðeins sykurpillur og heima-
tilbúin saft, en fólk stóð í biðröð-
um til að verða sér úti um þessi
undralyf og þau voru keypt fyrir
hvaða verð sem upp var sett.
Þennan dag, 18. maí 1910, hvarf
hræðslan við halastjörnuna
skyndilega. Almenningur læknað-
ist að vísu ekki alveg af hræðsl-
unni, en stjörnufræðingar öðluð-
ust meiri þekkingu á raunverulegu
eðli halastjörnunnar.
NASA EKKI MEÐ
Halastjörnur eru mikilvægar
vegna þess að þær eru leifar fyrri
sólkerfa. Þær hafa breytzt tiltölu-
lega lítið síðan reikistjörnurnar
mynduðust, því að þær eru í
„frysti".
Þær veita vísindamönnum vitn-
eskju um eðli og samsetningu
hinna fornu gasskýja, sem mynd-
uðu sólina, um sjálfa myndun sól-
arinnar og þróun þeirrar myndun-
ar og fæðingu sólkerfis okkar.
Halleyhalastjarnan nálgast nú
jörðina óðfluga og fer rétt fram
hjá sólinni 1986. Þegar það gerist
fer floti geimskipa til móts við
hana.
Þetta er spennandi viðfangsefni,
en þótt undarlegt megi virðast
munu starfsmenn bandarísku
geimvísindastofnunarinnar,
NASA, sem tryggt hafa Banda-
ríkjamönnum yfirburði í könnun
geimsins í tæp 20 ár, ekki skjóta
geimfari í átt til Halleyhala-
stjörnunnar vegna niðurskurðar á
fjárlögum.
Hins vegar bendir allt til þess
að Bandaríkjamenn verði fyrstir
til að skjóta geimfari gegnum
slóða halastjörnu, að vísu annarr-
ar halastjörnu en Halleys. Því
veldur heppni, því að upphaflega
var þetta ekki ætlunin.
í desember 1983 náðu hámarki
flóknar tilraunir vísindamanna í
Japanir akjóta Sakigaka. aða Frumherjanum
sem tekur þétt í könnur Hallayhalastjörnunnai
Hallayhalastjarnan yfir Jarúsamlam 66 a.Kr.
ast 1910 í samræmi við útreikn-
inga Halleys. Þá eimdi enn eftir af
ótta manna við halastjörnur.
Þá var raunveruleg ástæða til
að óttast. Stjörnufræðingar höfðu
reiknað út að jörðin færi í gegnum
slóða halastjörnunnar.
Allt byggðist þetta á misskiln-
ingi og röngum útreikningum, en
hinar röngu upplýsingar síuðust
út. Brátt taldi fólk sig hafa vissu
fyrir því að slóði halastjömu Hall-
eys samanstæði af hreinni blá-
sýru. Hætta var talin leika á því
að þetta banvæna eiturský mundi
umlykja jörðina.
Halastjörnuóttinn var mestur í
vesturríkjum Bandaríkjanna. Þar
flýttu kaupahéðnar sér að græða á
hræðslu fólks. Málningavöruverzl-
anir auglýstu þéttiefni. Fólk þétti
glugga og hurðir til að bægja
burtu hinu banvæna eiturgasi um
leið og Halleyhalastjarnan stækk-
því skyni að stýra geimfari í
geimnum, þegar ISEE-3 (Inter-
national-Sun-Earth-Explorer) var
beint í átt til halastjörnunnar.
ISEE-3 var skotið 1978 í allt öðr-
um tilgangi.
Geimfarið var smíðað til að
kanna áhrif sólarinnar á ytri lög
gufuhvolfs jarðar og fylgjast með
þeim. Þótt það sendi mikilvægar
upplýsingar lögðu nokkrir vís-
indamenn á ráðin um hvernig þeir
gætu orðið á undan vísinda-
mönnum annarra geimferðaþjóða
í kapphlaupinu til Halleyhala-
stjörnunnar.
KAPPHLAUP
Tvö geimfaranna, sem taka þátt
í þessu kapphlaupi, kallast Vega
og eru rússnesk. Þeim hefur þegar
verið skotið í átt til Venusar, sem
Stefnumótiö viö Halleyhala-
stjörnuna. Giotto er næst ó teikn-
ingunni, en halastjörnugeimför
Rússa og Japana sjóst í fjarska,
til vinstri ó teikningunni. Halley-
halastjarnan fer rótt fram hjó
Venusi, sem sést neöst til hægri.
„Rekst stóra halastjarnan,
sem nólgast óöum, ó jöröina?"
Brezkt auglýsingaspjald
fró 1910.
Hallayhalastjaman þegar hún birtist 7. maí 1910.
Halleyhala-
stjarnan þegar
pófi bannfæröi
hana 111 sam-
kvæmt teikn-
ingu fró 1546.