Morgunblaðið - 09.06.1985, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 09.06.1985, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JtJNl 1985 B 43 Manstu gamla daga eftir Pétur Pétursson þul Á góðviðrisdögum má ganga að því vísu að hitta roskna og aldraða Reykvíkinga sem sitja við þjóðbraut þvera, á Lækjartorgi, Austurvelli, í Austurstræti eða hvar annars staðar sem hægt er að tylla sér á bekk og spjalla við gamla kunningja um lífið og tilveruna, líðandi stund eða löngu liðna tíð. Þeir sem gefa sér tíma að hlýða á frásagnir verða margs vísari um mannlíf og atburði. Að vísu má segja að veraldarsagan haldi sínu striki og breyti ekki um farveg þótt það tal sé eigi fært í annála, en ósköp er notalegt að heyra gamansögur um tiltektir ungmenna, störf og leiki, æskubrek og bardús. Að þessu sinni er staldrað við hjá bræðrum tveimur, Stefni múrara og Þóri verkamanni. Þeir eru synir Runólfs Stefánssonar skipstjóra í Reykjavík. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamaður birti á sinni tíð viðtal við Runólf í bók sinni „Við sem byggðum þessa borg“. Aldraðir Reykvíkingar muna vel eftir Runólfi. Hann var svipmikill maður og fór ekki með veggjum. Stefnir (tv.) og Þórir Runólfssynir í „Fógetagarðinum" f stuttu spjalli við þá bræður berst talið að fyrri tíð, leikjum og starfi í Reykjavík á mótum skútualdar og togaratímabils. Hvað höfðu horskir strákar fyrir stafni þá? „Ég var kominn í Gramsarafélagið Gleypi," segir Stefnir. „Gleypir, það var voða- legt fyrirtæki maður. Þetta var eiginlega þannig uppbyggt, að Óskar nokkur Gunnlaugsson, hann átti heima á Skólavörðu- stíg 12, og við, strákar á svipuðu reki, höfðum með okkur félag. Óskar var dugnaðarstrákur. Karlinn á skútunum í gamla daga og við þurftum að bjarga okkur eins og aðrir samborgar- ar. Karlarnir voru alltaf með pokana, svo þeir komu þreyttir heim úr síðustu skútuferð. Þá tókum við pokana af þeim. Við höfðum sleða, eða einhver tæki til að koma þessu heim til þeirra. Fyrir þetta máttum við hreinsa dekkið og það var alltaf eitthvert slams á dekkinu og þar gátum við alltaf búið til peninga, ann- aðhvort heima eða heiman. Selt stundum. Þetta gekk út yfir tog- arana seinna og það var Ijóm- andi og skemmtilegt djobb.“ „Já, segir Stefnlr og kemst í baráttuham. Og það mátti eng- inn Vesturbæingur komast í þetta, sko. Þeir voru drepnir al- veg. Skörungar og sjóvettlingar voru stundum seldir í land. Svona var lífið í þá daga.“ Það skal játað að heiti félags- ins vakti vægast sagt furðu og til voru áheyrendur sem efuðust um tilvist þess. Við nánari athugun kom þó í ljós að frásögn Stefnis átti við rök að styðjast og var félagsins meira að segja getið á prenti. Steindór Sigurðsson skáld og ritstjóri, kunnur í hópi lista- manna á sinni tíð, gaf út Kvöld- blaðið árið 1923. Það var að sögn Steindórs fyrsta kvöldblað Fs- lands — minnsta dagblað Is- lands. Þórir, bróðir Stefnis, man vel eftir Steindóri og útgáfu hans. Steindór hafði aðsetur með blað sitt í skúr við Skólavörðustíg 13. Það var í næsta nágrenni við Benedikt Sveinsson bókavörð, fáeinum fetum ofar en hús Sparisjóðs Reykjavíkur stendur nú. Allt er þar nú með öðrum brag. í Kvöldblaði Steindórs hinn 7. desember 1923 má sjá eftirfar- andi auglýsingu: „Gramsfélagið Gleypir. Fundur í fyrramálið niður á garði kl. 8. Mágur heldur fyrirlestur. Stjórnin.“ PYRSTA KVÖLDBLAD tSLANDS — - KINSTA PAQBLAD tSLANDS Grammófónaviðgerðir KVÖLDBLAÐIÐ 1 x _ uiuewi rtirni » rv tcr A VIl\c bestar og ódýrastar á Vigtaverkstæðinu Siml 1272 SkólavörðustÍB 3. Simi 1272 Raykjarik 7. daAUntm H>». |.7. >1 Minniablað. Avextir — Jólatréakraut Tódulí — Meelifætl Ættu allir að kaupa til Jólanna i L U o IV A.. LnodabókMafnið: Laatr&n&lur opinn (rá 1—7. AlþýiSubðk»»alniB. j LMtiars&lur oplnn trá 10—10. Útlán frá 8—10 •. m. BaAhúsiB opiB (rá 8—á. NnturvðrB hafur: j . Reykjavikur»pót*k þmi viku. Inlenxku lelktöngin ódýrunt I A IIC. Hef til efni 1 pluMtappi t di.ua. Útbý þau o* seri úr garbl. — Lialbalendur udi adr ttl: Astriðar Eggertsd. Itúbhir kaupir hæðsta verði Haukur Björnsson MJóstraatl 2. Kl. 4—6. KvBldblaBia kamur tt daflete, koaUr 6 atun i lauaaaölu of 80 aura á mánuAi fýrir áakrifaodur er borfiat fruaa. — Áakrílendur f«ta einnif ríg fyrir traim vikum — 40 au. Mon. Skblavórðmtig 18. BUindbr Stgurðtuon. . | Úr beejarllflnu. 8tálka aú, or fotiB var um í fyretu blöðum Kv.bi., «r nd laus úr ,9tfininum“. HafBl hún svolt sig i 18 daga og v&r avo alept Árabátið ajomamnafélagaiDa vmr i gaorkvoldi. ÞOttl akamtunin gúB og fór vel (rem. Dansafi frameftir nóttinni. Hndapeklafélagld. Raykjavikur- atúkan beidur fund i þvOld. íþróttnfél Eoykjavíknr haldur akemtifund I IBnO annaB kvóld. Dana til kl. 8. ■adnr dntt i • Bankaatreatl i gmr var viat •ittbvafi Oatyrkur .1 gangi. Maiddi hann alg nokkuð J hendi aam þó mun «kki vaaa varlagt. Bajarafjéraartaadar var i Klak«aailegt þykir mórgum aem von ar.'afi Timarítttjórinn Mjölkurfél. fonnaBurina akull reyna afi ráfiaat aB Thor Jaoaan, fyrlr þafi afi h&fa laakkafi mjOlkurvarfiiB þegar hundruB manna UBa neyB i baanum og þatta «ru þó menn aam trakar t*ljaat alþtfiuttlBtogar. Nokknr avér aru þegar kom- inn til Kv. bl. viB apumlugunnl ,HvaB þykir þér ánagjuiegast viB danaleiki". — BlaBiB vonaat aftír flmyii avörum áBur an þau vnéa blrt. í þorpara Ulóui. Nokkrum augnabtikum ai&ar beyrBi nann rOdd ar aklpaBI al láta akipabátln dtfyrír borBatokkinn. Auglýsing um fund í Gramsarafélaginu Gleypi í Kvöldblaðinu 7. des. 1923. Kvöldblaðið kom út daglega. Kostaði 5 aura í lausasölu og 80 aura á mánuði fyrir áskrifendur. Síðar berst talið að öðrum nágrönnum þeirra bræðra á Skólavörðustígnum. Skauta- hlaupi á Reykjavíkurtjörn sem er skammt undan, því myndin af þeim bræðrum er tekin á mörk- um Kirkjustrætis og Aðalstræt- is. Stefnir segir: „Kristján Jóelsson, sonur Jóels snikkara á 15, hann brunaði þarna alveg miskunnarlaust aftur á bak og áfram á tjörninni. Kiddi Jóels, hann var okkar prins í þessum efnum. Hann kunni að skrifa áttu með skautunum án ess að hreyfa sig. Og þetta þótti meist- araverk." Um fyrirlesturinn sem fluttur var niðri á garði kl. 8 þ. 8. des- ember 1923 er fátt eitt vitað, en ekki þarf að efa að þar hafa menn ráðið ráðum sínum og tek- ið ákvörðun um einhver afreks- verk. Óskar Gunnlaugsson, sem Stefnir nefndi í upphafi máls, er einn hinn kunnasti í hópi reyk- vískra hafnarverkamanna um hálfrar aldar skeið. Hörkudug- legur, orðheppinn og höfðingja- djarfur. Stefnir múrari hefir víða ferð- ast um land og reist mannvirki mörg. Um tíma var hann búsett- ur í Ólafsvík en er nú aftur flutt- ur i heimahaga. Þórir, sem situr hér við hlið bróður síns, vann um áratuga skeið hjá Eimskipafélagi Islands við Reykjavíkurhöfn. Virtur maður og vel látinn, vinsæll og tillögugóður. Emilía ljósmyndari mundar vélina og festir bros bræðranna á filmu sína. Og svo heldur hver í sína átt. '19.$úni 3viku& Fínar ferðir í þrjár vikur á eina vinsælustu strönd Spánar: Beint leiguflug og góð gisting á hótelum (með eða án fæðis) Hvítu ströndina. eða í íbuðagistingu. Islenskir fararstjórar Benidorm býður upp á fjölbreytta afþreyingu af öllu tagi: Verðdæmi: Ibúðagisting frá kr 23.910.- pr. m. Næturklúbba, diskotek, alþjóðleqa veitingastaði, kaffihus, Hjón i íbúð með tvö börn frá kr. 17.932.- pr. m skemmtigarða, tívolí, golfvelli, sjóskíði, dýragarð . . . miðalda- veislu. Éitthvað tyrir aífa. Brottfarardagar: 29/5, 19/6, 10/7, 31/7, 21/8, 11/9, og 2/10 FERÐAMIÐSTOÐIN AÐALSTRÆTI9 SÍMI28133

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.