Morgunblaðið - 09.06.1985, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 09.06.1985, Blaðsíða 31
B 31 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNl 1985 Ríkismarki skipt fyrir nýtt þýskt mark 1948. Þýskaland varð ekki fullvalda í einu vetfangi þrátt fyrir stjórn- arskrána 1949. Vesturveldin höfðu eftirlit með löggjafarvaldinu, og hernámsliðið dvaldi áfram í land- inu. Bonnstjórnin fékk með Pet- ersberg-samningnum heimild til takmarkaðrar utanríkisþjónustu og að gerast aðili að ákveðnum al- þjóðastofnunum (OEEC og vís- inda- og menntastofnunum SÞ). Árið 1952 var undirritaður samn- ingur sem í raun og veru batt enda á stríðið og viðurkenndi fullveldi sambandslýðveldisins þótt nokkr- ar táknrænar takmarkanir fylgdu. Hernámsliðið varð öryggissveitir. Adenauer aðhylltist orð de Gaulles frá 1945 þess efnis að Frakkland og Þýskaland yrðu að draga strik yfir fyrri erjur og taka upp samstarf sem Vestur-Evrópu- þjóðir. Afstaðan til Frakka var samt flókin. Þeir höfðu lagst gegn stofnun miðstýrðs ríkis í Þýska- landi nema Ruhr-héraðið yrði sett undir alþjóðlega stjórn, Saar und- ir stjórn Frakka og Rínarlönd undir stjórn hernámsliðsins. Þetta minnti um of á Versalasamn- ingana 1919. Kola- og stálsam- bandið kom á hinn bóginn til að leysa Þýskalandsmálið gagnvart Vesturlöndum og síðar EEC. Kola- og stálsambandið tók til starfa 1952, og Bonnstjórnin fékk Saar aftur 1957. Frá Pleven-áætlun til aðildar að NATO Öryggishlið Þýskalandsmálsins varð mikilvæg vegna þeirrar þró- unar í alþjóðastjórnmálum sem fylgdi í kjölfar upphafs Kóreu- stríðsins 1950. Hervæðing Þýska- lands hlaut fimm árum eftir stríðslok að verða litin hornauga í þeim löndum sem stríðsvél Hitlers hafði ekið yfir. Finna varð því nýtt form fyrir hervæðinguna í likingu við það sem gert var á efnahagssviðinu. Mótstöðu gætti einnig gegn hervæðingu innan sambandslýðveldisins, enda and- mæltu jafnaðarmenn undir for- ustu Schumachers hástöfum end- urreisn þýsks hernaðaranda. röðum CSU í Bayern, sem var ákærður fyrir misbeitingu valds og einkum vegna tillitsleysis. Tímaritið birti haustið 1962 upp- lýsingar þar sem því var haldið fram að NATO gæti ekki komið í veg fyrir árás Sovétríkjanna á Mið-Evrópu, en yfirstjórn örygg- ismála gat sýnt fram á að hér var um leyniskjöl að ræða. Málið hafði ekki úrslitaþýðingu, en afdrifarík- ara varð hvernig Strauss lét í skjóli dómsmálaráðherra frjálsra demókrata hefja lögregluaðgerðir gegn tímaritinu og stjórn þess. Aðferðir Strauss voru taldar draga dám af viðbrögðurn annars valdakerfis, enda braust út uppþot á þinginu og í flokki frjálsra demókrata og loks í flokki Strauss. Adenauer neyddist til að víkja Strauss frá völdum, en það gerði honum sjálfum erfiðara um vik að standa gegn kröfunni um að láta af völdum. Adenauer undirritaði fransk- þýskan vináttusamning í janúar 1963, skömmu eftir að de Gaulle hafði beitt neitunarvaldi gegn að- ild Breta að efnahagsbandalaginu, en þetta orsakaði samsæri innan rikisstjórnarinnar. Adenauer lét af völdum í október 1963 og fékk Ludwig Erhard í hendur stjórn- taumana. Lausnin fólst í aðild Þýskalands að NATO eftir að Frakkar höfðu hafnað stofnun öryggi'sbandalags Vestur-Evrópuþjóða 1954. Full- veldið var óbeinlínis staðfest með stjórnmálasambandi við Moskvu sem tekið var upp í tengslum við heimsókn Adenauers þangað I september 1955. Afstaðan til austurs varð þó torráðin. Heimsóknin til Moskvu var einkum ætluð til að greiða götu þýskra stríðsfanga sem enn höfðu ekki verið sendir heim. Bonn horfði fram hjá Austur- Þýskalandi, en Bonnstjórnin neit- aði að taka upp stjórnmálasam- band við þau lönd sem viður- kenndu það, og var það í samræmi við stefnu sem tók nafn af Walter Hallstein, Hallstein-kenninguna. Bonn tók með tortryggni og lík- lega með réttu hinum hógværu loforðum Rússa (og Eisenhowers forseta) um hlutlaust og sameinað Þýskaland. Dulles, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði er Willy Brandt, borgarstjóri í Berl- ín, færði þetta í tal við hann 1959: „Við og Rússar erum ósammála um þúsund atriði, en í einu máli er ekki um skoðanaágreining að ræða. Við ætlum ekki að heimila sameinuðu og hervæddu Þýska- landi að athafna sig á einskis manns landi milli austurs og vest- urs.“ Hugmyndin um Þýskaland sem Ríki Hitlers haföi háö trúar- bragöastríö gegn meginhluta heimsbyggöarinnar, en heimsbyggöin fordæmdi þá trú sem verulegur hluti þýsku þjóöarinnar haföi sam- einast um. Myndin er frá rótt- arhöldunum í Niirnberg þar aem nasistaforingjar voru dregnir fyrir rátt. ir, en höfðu áður lagst bæði gegn efnahagssamstarfinu og aðildinni að NATO. Erich Ollenhauer, eftir- maður Schumachers og starfs- maður flokksins, lenti í skugga Willys Brandts, borgarstjóra Berl- ínar. Brandt komst í sviðsljósið í átökunum um Berlín 1958 og 1961 og var í senn aðlaðandi og at- hafnasamur nýr foringi. Hinn kraftmikli og umdeildi varnarmálaráöherra Franz Josef Strauss (f. 1915). And- stæöingar hans fullyrtu aö hann „boöaöi nýja þjóöern- isstefnu D-marksins meö hárri raust“. Hann gekk þó einu skrefi of langt 1962 og ákæröi útgefendur tímarits- ins Der Spiegel fyrir landráö og varö aö láta af völdum. hluta hinna kristnu Vesturlanda var Adenauer rík í huga. Hann kann að hafa verið betri hermaður kalda stríðsins en jafnvel Dulles. Útþenslustefna Þjóðverja í aust- urátt sem hófst á 12. öld hafði orð- ið fyrir áfalli, og fremsta víglina þýskrar menningar hafði þokast vestur vegna sigurs Sovétríkj- anna. Adenauer taldi ætíð sam- bandslýðveldið verja austurtak- mörk Vesturlanda (kvöldlands- ins). Lok Adenauerstímabilsins Kristilegir demókratar fengu yfir 50% atkvæða við kosningar 1957 og valdastaða flokksins hefur aldrei verið hagstæðari. Jafnað- armenn breyttu gjörsamlega um stefnu árið 1959 og urðu talsmenn samstarfs við Vestur-Evrópuþjóð- Þýska undrið Kosningarnar 1961 staðfestu fylgisaukningu jafnaðarmanna og frjálsra demókrata, en fylgi stjórnarflokkanna fór minnkandi. Helsta afleiðing kosninganna varð sú að kristilegir demókratar og frjálsir demókratar mynduðu bandalag, en hinir siðarnefndu settu þó það skilyrði að Adenauer gegndi ekki embætti kanslara fram til næstu kosninga 1965. Honum var einnig ógnað af sundr- ungu og andstöðu i eigin flokki, og systurflokkurinn í Bayern, CSU, var ósamstæður og hugmynda- fræðin svífandi. Adenauer hafði áður haft öll tögl og hagldir í sín- um flokki. Ludwig Erhard, vara- kanslari hans síðan 1957, hafði einungis áhuga á efnahagsmálum, en slíkt var erfitt að samræma þeirri tilhneigingu Adenauers að setja pólitískar bollaleggingar i hásætið. Elli og aldarandi höfðu náð tök- um á hinum áttræða kanslara við upphaf 7. áratugarins. Þróun við- reisnarstarfsins virtist einnig kalla á nýja starfskrafta. Rot- höggið á stöðu Adenauers kom í tengslum við svonefnt Spiegel-mál 1962. Tímaritið Der Spiegel í Hamborg sem var þekkt fyrir ósamræmdan og hispurslausan málflutning hélt uppi persónu- legum hefndaraðgerðum gegn Franz Josef Strauss varnarmála- ráðherra, stjórnmálamanni 'úr Myntbreytingin í júní 1948 verkaði eins og vítamínssprauta á efnahagslíf á hernámssvæðum vesturveldanna þriggja. Hin hreinræktaða vöruskiptaverslun (sígarettuhagfræðin) hætti. Upp- hafsmenn umbótanna voru þeir Ludwig Erhard og Bandaríkja- maðurinn Joseph Dodge. Tölur um eyðilegginguna á stríðsárunum gefa að sumu leyti ranga mynd. Stríðsrekstur banda- manna og sprengjuárásir höfðu eyðilagt jafnvirði um 12% fjár- magns í iðnaði og stríðsskaðabæt- ur o.fl. svöruðu til um 8% til við- bótar. Fjórir fimmtu hlutar voru því enn ósnertir. Framlriðslan 1946 var á hinn bóginn aðeins þriðjungur framleiðslunnar 1936. Bæði tækniþróun og hæft vinnuafl var tiltækt, en skipulag (og dreif- ingu hráefnis) skorti ásamt upp- örvun til ibúanna sem voru sinnu- litlir vegna hinnar löngu styrjald- ar og ósigursins. Stefnubreyting Vesturlanda við áramótin 1946— 1947, myntbreytingin og dollara- milljarðar Marshall-aðstoðarinn- ar gerðu Þjóðverjum kleift að hefja viðreisnarstarf sitt sjálfir. Framleiðsla Þýskalands þre- faldaðist á árunum 1950—1965. Framleiðslutölum ársins 1936 var náð 1950, og næstu árin var jöfn þróun í átt til stóraukinnar vel- megunar. Framfærslukostnaður hækkaði tiltölulega hægt, og hag- vöxturinn olli því breytingu á lífs- kjörum Þjóðverja. Takmarkið var þó framleiðsla og útflutningur en ekki neysla. Út- flutningurinn jókst um 10% á ári að meðaltali á tímabilinu 1955— 1964. Vöxtur en ekki skipting lífs- gæða var því aðalatriðið. Þetta krafðist fórna af þeim sem sköp- uðu velmegunina. Framsýni verkalýðsleiðtoga sem voru hóg- værir í launakröfum og andvígir verkföllum stuðlaði verulega að aukningu velmegunar. Þjóðin gerði sér grein fyrir nauðsyn þess að gera kröfur í samræmi við veruleikann, enda var hún reynsl- unni ríkari frá atvinnuleysi ár- anna milli stríða, stríðsárunum og ósigrinum, Endir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.