Morgunblaðið - 09.06.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1985
B 23
i íslands
-1984
írka í eigu safnsins
sér merkilegt, að þetta langþráða
rit skuli ekki hafa séð dagsins ljós
fyrr. Ástæðan fyrir því er skil-
merkilega útlistuð í ágripi safn-
stjórans, og vísa ég fróðleiksfús-
um til hennar.
Skyld rit eru gjarnan í ársrita-
formi meðal meiriháttar safna er-
lendis, og hefur greinarhöfundur
blaðað í mörgum þeirra um dag-
ana, svo að hann hefur hér nokk-
urn samanburð. Þetta eru allt frá
þurrum og einföldum ársskýrslum
og upp í stór og vegleg rit, sem
prýdd eru mörgum litmyndum
auk svart-hvítra mynda. Iðulega
er eitthvert afmarkað tímaskeið i
söfu safnanna tekið sérstaklega til
meðferðar auk ársskýrslunnar, til
uppfyllingar og til að auka heim-
ildargildið.
Rit Listasafns íslands stenzt
hér allan samanburð, og það mun
reynast íslenzkri myndlist ótrú-
lega mikill styrkur, að þegar fyrst
er ráðizt i slíka útgáfu, skuli það
vera gert með jafn veglegum
hætti. Það skapar möguleika á
reglulegu áframhaldi t.d. i formi
útgáfu heftaðra rita i sama broti,
sem taka til meðferðar ákveðin
tímabil, fylla upp í gloppur og
auka við þær upplýsingar, sem
þegar eru komnar fram. Siðan er
möguleiki að binda þessi hefti inn
í bókarform og skapa þar staðlað-
an grundvöll fyrir framtíðina.
Utgáfa ritsins í hinu gefna
formi skapar þannig mikla mögu-
leika til að gera hinum aðskiljan-
legustu þáttum i starfsemi safns-
ins vegleg og itarleg skil og á al-
þjóðamælikvarða. Þetta er eitt-
hvað annað og meira en ef safnið
hefði tekið þá stefnu löngu fyrr að
fullnægja þessari þörf með útgáfu
litlausra smápésa i samræmi við
efnahag og opinbera fyrirgreiðslu.
★
Loksins, loksins, var fyrirsögn á
frægum ritdómi um skáldverk, er
boðaði mikla tíma i íslenzkri rit-
list og sem upp hafa gengið, svo
sem þjóðin veit.
Freistandi var að nota einnig
þessa fyrirsögn, er ég hóf ritsmíð
þessa, því að þessi útgáfa bætir úr
mikilli og brýnni þörf á kynningu
á Listasafni íslands og íslenzkri
myndlist í heild. Hún er rétta
sporið til að kynna íslenzka
myndlist á breiðum grundvelli og
til að eyða misskilningi og van-
þekkingu.
Þá hvetur útgáfan til hliðstæðra
Framtíöarhúsnæði Listasafnsins.
OMA SÉR UPP ÞAKIYFIR HÖFUDID
ÁN ÞESS AD REISA
SÉR HURDARÁS
UM ÖXL?
Útvegsbankinn leysir ekki allan vanda
húsbyggjenda, EN getur þó komið þeim
til hjólpar.
D Rdðgjafinn í Útvégsbankanum getur
reiknað út mónaðarlega greiðslu-
byrði hinna ýmsu valkosta sem hús-
byggjanda eða kaupanda bjóðast.
B Róðgjafinn getur kynnt þér hvernig
Plúslón með Ábót léttir undir greiðslu-
þungann.
Q Endurgreiðslutími getur orðið allt að
fjórum órum, jafnvel sex.
□ Fróvik fró óœtluðum sparnaði þurfa
ekki að skerða lónsréttinn.
Við erum greinilega þín megin í barótt-
unni - Ekki sattT?
PLÚSLÁN
MEÐ ABOT
ÚTVEGSBANKINN
í ÐNNBANKI*ÖU.WÓHUSTA