Morgunblaðið - 09.06.1985, Page 17

Morgunblaðið - 09.06.1985, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNl 1985 B 17 Úr valíumvímunni í REGNBOGANUM standa nú yfir sýningar i bandarísku kvikmyndinni „Úr valíumvímunni" en myndin nefnist á frummálinu „I’m Dancing as Fast as I Can“. Skv. upplýsingum frá Regnbog- anum er myndin gerð eftir hand- riti Daniels Rabes, leikstjóri er Jack Hofsiss og tónlist samdi Stan Silverman. Með aðalhlutverk fra Jill Clayburgh og Nicol William- son. Myndin fjallar um kunnan sjónvarpsmann í Bandaríkjunum, Barböru Gordon. Hún verður háð róandi lyfjum og er hún reynir að losna undan fargi þeirra gengur hún í gegnum eld og brennistein. En bráðum kemur betri tíð... Rangárvallakynning á Kjarvalsstöðum: 20 fyrirtæki með fjöl- breytta framleiðslu ÖLL IÐNFYRIRTÆKI í Rangárvallasýslu, 20 að tölu, efna til Rangárvalla kynningar á Kjarvalsstöðum dagana 21.—23. júní nk., en öll fyrirtækin munu sýna þar framleiðslu sína sem er mjög fjölbreytt þótt Rangárvallasýsla sé ef til vill þekktust sem landbúnaðarbérað. Auk iðnfyrirtækja munu fyrir- tæki í matvælaframleiðslu sýna á Kjarvalsstöðum og kynna fram- leiðslu sína. Þeir sem sýna eru Hellufyrirtækin Mosfell sem framleiðir margs konar viðlegu- búnað og fleira, saumastofa sem framleiðir vinnufatnað og tísku- fatnað, Glerverksmiðjan Samverk sem framleiðir m.a. einangrun- argler, Efnagerðin Búra, sem pakkar m.a. kryddi, Kraftkjúkl- ingur sem ræktar og pakkar kjúklingum, Trésmiðjan Rangá sem framleiðir m.a. sumarhús og mun reisa húshluta á sýningar- svæði Kjarvalsstaða, Skeifna- smiðjan, Sláturhúsið Dímon, Kjötvinnslan og Gíslabakarí. Þá mun Kartöfluverksmiðjan í Þykkvabæ sýna framleiðslu sína á Rangárvallakynningu Kjarvals- staða. Frá Hvolsvelli sýna fyrirtækin Sunna sem framleiðir prjónafatn- að, Húsgagnaiðjan sem framleiðir heimilishúsgögn og sjúkrahús- gögn, Vélsmiðja Kaupfélagsins sem framleiðir baggatínur, sorp- brennsluofna o.fl., Prjónaver sem framleiðir prjónafatnað og hefur í niðurstöðum könnunar sem Landlæknisembættið, Krabbameins- félagið og berklaverndunardeild Heilsuvcrndarstöðvarinnar létu gera í apríl kom fram að 1—3% fram- haldsskólanema neytir kannabis- efna mánaðarlega eða oftar. Hins- vegar nota 63% áfengi þetta oft og 34% nota tóbak. Ketnur þetta fram í einnig saumastofu á Hellu, Ás sem framleiðir íbúðarhús, bari og verkfæraskápa, Blikksmiðjan Sörli sem framleiðir m.a. rennur og sorpskápa, Bílaskjól sem klæð- ir og byggir yfir bíla og Lista- smiðjan sem framleiðir skraut- muni. Aðgangur verður ókeypis á Rangárvallakynninguna sem verð- ur í öllum austurhluta Kjarvals- staða. tímaritinu Heilbrigðismál. Og segir þar að vegna umræðna um mikla hassneyslu hérlendis vekji þessar lágu töíur um neyslu kanabisefna at- hygli. Urtakskönnun þessi var gerð í 9. bekk grunnskóla og í 2. og 4. bekk framhaldsskóla og náði til 1881 nemanda úr 40 skólum. Neysla kannabisefna hjá framhaldsskólanemum 1—3% Myndbandstæki með omissandi yfirburði! Nú hefur Philips rutt sér til rúrns á VHS markaðnum með splunkunýtt myndbandstæki sem skarar fram úr hvað snertir gæði og áreiðanleika. Phiiips VR 6460 er búiö öllum hefð- bundnum möguleikum myndbandstækja og tveimur nýjungum sem eiga eftir aö þykja ómissandi hjá öllum vídeógeggjur- um. 1. Fljótandi haus sem „eltir" myndbandiö og kemur í veg fyrir bjögun myndarinnar, jafnvel þó spólan sé orðin lúin og þreytt eftir endalausan snúning. 2. Sjálfleitari sem finnur besta útsend- ingarstyrk hverju sinni og losar þig þannig við að snúa of litlum tökkum með „of stórum" fingrum. Ef þú vilt fá afbragðsmyndgæði út úr myndbandstækninni er öruggast að tengja það við sjónvarp frá stærsta sjónvarpstækja- framleiðanda í heimi: Philips. kr. 46.900.-stgr. Heimilistækí hf HAFNARSTRÆTI3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.