Morgunblaðið - 09.06.1985, Page 22

Morgunblaðið - 09.06.1985, Page 22
22 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNl 1985 Ásgrímur Jónsson/ Kvöld í Reykjavík, 1916/227. Jóhannes S. Kjarval/ Ung stúlka, 1927/281. Listasan 1884- Heildarskrá listavt Myndlist Bragi Ásgeirsson Listasafn íslands telst 100 ára um þessar mundir, svo sem kunn- ugt er, og hafa í tilefni þess verið haldnar margar og merkar sýn- ingar í sölum þess. Hin síðasta i röð þessara af- mælissýninga var opnuð sl. laug- ardag og nefnist hún „Pjórir frumherjar": Þórarinn B. Þorláks- son, Ásgrímur Jónsson, Jón Stef- ánsson, Jóhannes S. Kjarval. Jafn- framt telst þetta útgáfudagur veglegrar bókar, sem er mynd- skreytt heildarskrá yfir verk í eigu safnsins frá upphafi ásamt ágripi af sögu safnsins, er dr. Selma Jónsdóttir, safnstjóri, hef- ur tekið saman. Bókin, sem er í stóru broti, hef- ur að geyma eftirprentanir af 217 listaverkum og þar af hvorki meira né minna en 169 i lit og af þvl má ráða, að hér hefur verið færst mikið í fang og af stórhug. Þetta eru einmitt réttu vinnu- brögðin, og væntanlega markar þessi útgáfa kaflaskil í sögu safns- ins um öll umsvif og skilning ráða- manna og þjóðarinnar á mikilvægi þess. Ekki þarf að fjölyrða um það hér, hve mikil umbylting það verð- ur, er safnið flytur svo í eigið hús- næði á næsta ári. Þetta tvennt verður ekki einasta til að auka styrk íslenzkrar myndlistar í öll- um skilningi inn og út á við, held- ur treysta sjálfstæði þjóðarinnar og auka virðingu hennar í samfé- lagi þjóðanna. Hundrað ár teljast langur tími í uppbyggingu eins listasafns og þá einkum, þegar tekið er tillit til þess, að þjóðin hefur verið sjálf- stæð í meira en fjóra áratugi og á því tímabili lifað umbrotamikið þroskaskeið. Skilningur stórhuga einstaklinga hefur hér vegið öllu þyngra en ráðamanna, og án þeirra væri enn Iangt í land, að safnbyggingin væri í næsta sjón- máli. Einnig væri langt í land, að rit það, er hér verður fjallað um, sæi dagsins Ijós, ef ekki kæmi til djörfung og víðsýni þeirra, er að baki standa, sem hefur eflst bjart- sýni við hinar mörgu óvæntu og höfðinglegu gjafir. Útgáfa bóka og heimildarrita, er varða innri starfsemi, er einn af veigamestu þáttum í uppbygg- ingu listasafna, og er það i sjálfu Jóhannes S. Kjarval/ Mosfellsheiöi, 1948/1229. AADKt Svavar Guónason/ Stuðlaberg, 1949/766.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.