Morgunblaðið - 09.06.1985, Side 34
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 9. JUNÍ 1985
34 B
fclk í
fréttum
BJÖRN
ÁRNASON
FAGOTTLEIKARI +
KN ATTSP YRNUÞ J ÁLF ARI
Gott ad vera í
tveimur svona
ólíkum störfumu
Efri myndin er af Birni
meft fagottinn, en Björn var
16 ára gamall er hann byrj-
aði að læra á hann.
Björn Árnason þekkja ef-
laust margir sem fagott-
leikara annaðhvort með íslensku
hljómsveitinni, úr óperunni,
Þjóðleikhúsinu eða sem kennara
sinn en svo eru enn aðrir sem
þekkja hann sem þjálfarann í
knattspyrnu hjá Víkingi eða Þór.
Hvernig skyldi það annars
fara saman að hafa það að at-
vinnu að vera fagottleikari og
hinsvegar þjálfa knattspyrnu-
menn?
— Ég tel að það sé afskaplega
gott að vera í tveimur svona
ólíkum störfum. Hvort tveggja
eru streituvaldandi, en það er
samt ákveðin afslöppun fólgin i
því að koma úr hljómsveitar-
gryfjunni og fara út að æfa með
hressum strákum og svo öfugt.
Þetta gat þó verið dálftið tvf-
sýnt þegar ég var að þjálfa Þór á
Akureyri. Það gat komið fyrir að
ég þurfti að fara norður og koma
strax aftur til að spila en þá
byrjaði að snjóa eða blása f
öfuga átt. Ég varð þá að treysta
á góða kunningja f hljómsveit-
inni sem hlupu undir bagga með
mér.
— Byrjaðirðu strax sem
strákur að leika á fagott?
— Nei, ég var sextán ára þeg-
ar ég byrjaði. Ég hafði eignast
plötu með fagottleik nokkru áð-
ur og vanist hljóðfaerinu. Að
sjálfsögðu var poppið þó efst á
tista á þessum tíma, en upp úr
þessu fór ég meira að kaupa
klassiska tónlist og á þessum ár-
um tíðkaðist það aö vikukaupið
færi í plötukaup. Ég fór f Tón-
listarskólann og lauk þaðan ein-
leikaraprófi ’76 og árið áður
blásarakennaraprófi. Að því
loknu lagði ég leið mína til Vfn-
arborgar og nam þar við sam-
nefndan háskóla fagottleik auk
þess að vera á knattspyrnunám-
skeiðum f frístundum á vegum
austurríska knattspyrnusam-
bandsins. Ég fylgdist einnig með
æfingum hjá Austria Wien sem
á þessum tima var á toppnum í
Evrópu og það var afskaplega
lærdómsríkt og gaman að geta
fylgst með þeim.
— Hvenær vaknaði áhuginn á
knattspy rnunni ?
— Eg bjó f vesturbænum,
nánar tiltekið á Hringbrautinni
á móti Framnesvellinum. Þarna
var ég sem smápolli að fylgjast
með mönnum eins og Þórólfi
Beck, Ellert B. Schram og fleir-
um sem ég fékk svo reyndar
tækifæri til að leika með seinna,
eða 1968 og var þá langyngstur.
Sá tími var mjög eftirminni-
legur og góður skóli að fá að
kynnast og leika með þessum
mönnum.
— En hvernig er þá fyrir
KR-ing að þjálfa fyrir Víking?
— Mér finnst mjög gaman að
þjálfa fyrir þá þó það sé mjög
strembið verkefni. Liðið hefur að
undanförnu misst marga góða
menn en eftir sitja líka efnilegir
strákar sem með tíð og tfma geta
orðið verulega gott lið.
Allt er nú
til í henni
veröld
Hver maöur hefur sinn
smekk. Þannig skreytir
myndhöggvarinn Malin F.
í París bílinn sinn. Anna
Níssels, fréttaritari Mbl. í
Parts, gekk fram hjé hon-
um og smellti af þessari
myndl
Fyrir Wham!-
aðdáendur
Þessi mynd var tekin af David Cassidy og konu hans,
Meryl Tanz, George Michael og vinkonu hans, Pat Fern-
andes þar sem þau voru einhvers staðar á veitingastað að
rabba um daginn og veginn. Við birtum þessa mynd sér-
staklega, ef Wham-aðdáendur hefðu gaman af að líta
George Michael og vinkonu hans.
LITIÐ INN í
UPPTÖKUSAL
„Fastir liöir eins og venjulega“
essa dagana standa yfir tökur á sex þátta fram-
haldsmyndaflokki sem sjónvarpið er að láta
gera. Vinnuheitið á þáttaröðinni er „Fastir liðir eins
og venjulega" og fjalla þeir um líf þrennra hjóna.
Þetta á að vera léttur fjölskylduharmleikur og er
handritið samið af þeim Eddu Björgvinsdóttur og
Helgu Thorberg en leikstjórinn, Gísli Rúnar Jónsson,
aðstoðaði einnig við handritsgerð. Viðar Eggertsson
er aðstoðarleikstjóri, upptöku stjórnar Viðar Vík-
ingsson, leikmynd gerir Gunnar Baldursson en með
aðalhlutverk fara Arnar Jónsson, Hrönn Stein-
grímsdóttir, Júlíus Brjánsson, Ragnheiður Steindórs-
dóttir, Jóhann Sigurðsson, Sigrún Edda Björnsdóttir
og Bessi Bjarnason. Alls koma um 30 leikarar við
sögu.
Ætlunin er að þættirnir líti dagsins ljós þegar fer
að vetra en þangað til er nánari skilgreining á inni-
haldi þáttanna hernaðarleyndarmál.