Morgunblaðið - 09.06.1985, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1985
MADONNA
Madonna, sem er mjög
vinsæi um þessar mundir,
klæðir sig gjarnan í
kvenlega kjóla en ber um
leið mikið af áberandi
skartgripum. Platan
hennar „Like a Virgin"
hefur selst í milljónum
eintaka.
Strtúrem
sófasett
fvá Ho»a
Nina Hagen, stundum ■
kölluð pönkdrottningin.l
Hún reynir eftir '
fremsta megni að klæða
sig það furðulega að fólk
haldi að hún sé eitthvað
skrítin.
Annie Lennox í Eurythmics
vill vera eins karlmannleg og
hún getur, og er því stutt-
klippt og klæðist herraföt-
Cyndi Lauper er ekki bara þekkt fyrir lögin sín
„Girls Just Want To Have Fun“ og Time After
Time“, heldur einnig fyrir útlitið. Hún hefur verið
þekkt fyrir hárið, sem oftast er mjög skrautlegt á
litinn, og farðann sem hún notar. A þessari mynd,
sem við getum því miður aðeins birt í svart/hvítu,
er Cyndi með gult og appelsinu-litað hár með
perlufestar í öllum hugsanlegum litum og með
skæran farða.
„I Feel For You“ syngur
Chaka Khan. Hún er
oftast klædd stuttum
kjólum og stundum úr
leðri og slönguskinni svo
Skrautlegar söngkonur
í tónlistarheiminur' „
Igegnum tíðina hafa rokkstjörnur haft mikil áhrif á ungmenni, ekki
einungis söngur þeirra heldur og einnig framkoma og klæðnaður.
Þessar söngkonur á myndunum hafa löngum verið þekktar fyrir það að
klæða sig áberandi og sérkennilega og hafa örugglega fengið einhverja
til að lita hárið t.d. gult eða grænt.
Barbie
á vinnumarkaðinn
Hollendingar kunna að láta fara vel um sig. Þeir eru
handverksmenn góðir og smíða mikið af vönduðum og
fallegum húsgögnum. Hjá okkur í Bláskógum er mikið
úrval af hollenskum sófasettum. En einn galli er á gjöf
Hjarðar - þau eru svo þægileg, að þegar þú hefur sest
þá getur það reynst þrautin þyngri að rísa á fætur aftur.
Barbie hefur verið nokkuð í
fréttum að undanförnu
þar sem frægir tískuhönnuðir
hafa verið að hanna á hana
nýjan klæðnað. En það hefur
fleira breyst í lífi hennar ný-
verið því hún hefur nú skipt um
hlutverk dags daglega og er
komin út á vinnumarkaðinn.
Mattel framleiðandi hennar
sagði að Barbie hefði fyrir
löngu verið orðin hundleið á
fínu húsunum, kaffiboðunum,
sundlaugarlífinu, súkkulaðiát-
inu og fínu bílunum og langað
að fara út að vinna. Hún geng-
ur nú um í bleika viðskipta-
klæðnaðinum með skjalatösku
og tölvu og er afskaplega
ánægð með lífið og tilveruna að
öðru leyti en því, að hún áttaði
sig ekki á því hve það var erfitt
að ætla sér að ná langt. Hún sá,
að til þess að ná því takmarki,
þyrfti hún að vinna mikið og
hætta að fara oft út með Ken
vini sínum, sem framleiðandi
hans hyggst gera að íþrótta-
fréttaritara brátt.
En Barbie er ákveðin í að
standa sig í vinnunni, þ.e. sem
auglýsingastjóri, og nýlega var
Oscar de la Renta fenginn til að
hanna á hana vel viðeigandi föt
í nýja hlutverkið. Barbie er
staðráðin að láta hið nýja kjör-
orð fyrirtækisins sannast þ.e.
„Stelpur ... þær geta gert
hvað sem er.“ Rétt ekki satt ...
Raðsófasett frá kr. 31.500, sófasett með tauáklæði frá
kr. 39.520, leðursófasett frá kr. 78.100. Sem sagt...
. á oumflyjanlega
hagstæðu verði
Ármúla 8 - S: 686080 - 686244
Askrifíarsíminn cr 83033
Hvernig veistu að ég var að kaupa ost?