Morgunblaðið - 09.06.1985, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JtlNÍ 1985
K 40 B
2-Z(c
© 1985 Umversal Press Syndicate
„t-j rö&IC99 ^cura-
daemi annarra, sem skokJca. \>úsoar
íviku, ýmist einir sér dba'\$mxrri hópum.1'
a.
ást er ...
... að vera
stimamjúkur.
TM Reg. U.S. Pat. Off.—all rights reserved
° 1985 Los Angeles Times Syndicate
Naesti liður er útvarpsleikritið:
Heimsóknin í örkina hans Noa.
Leikendur ...
HÖGNI HREKKVlSI
V FÖK.UM TlL VlNSTRI VlE? UlSKKLESSUMA
OQ ÖKOM £M0 l'NORPUI? 4P/VIJÓlKCJKSLETT-
UNUM."
Þakkir fyrir ánægju
lega ferð
R.E. skrifar:
Ferðaskrifstofan Atlantik efndi
til Mallorkaferðar þann 17. apríl
sl. Sérstaklega var eldri borgurum
boðin þátttaka og af því tilefni
voru með í ferðinni Hermann
Ragnar Stefánsson, sem var
skemmtistjóri, og Arndís Finns-
son, hjúkrunarkona. Fyrir var á
Mallorka Rebekka Kristjánsdóttir
Velvakandi hvetur lesendur til að
skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga
til föstudaga, ef þeir koma þvf ekki
við að skrifa. Meðal efnis, sem vel
er þegið, eru ábendingar og orða-
skipti, fyrirspurnir og frásagnir,
auk pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn,
nafnnúmer og heimilisföng verða
að fylgja öllu efni til þáttarins, þó
að höfundar óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina þvf til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér f
dálkunum.
fararstjóri, sem tók á móti hópn-
um á flugvellinum.
Við vorum sex vinkonur sem
ákváðum að fara í þessa ferð og
urðum sannarlega ekki fyrir
vonbrigðum. Þarna var réttur
maður á réttum stað. Rebekka var
þarna bersýnilega mjög vel kynnt.
Hún var þaulkunnug öllum að-
stæðum og ávallt boðin og búin að
rétta hjálparhönd ef á þurfti að
halda. Hermann Ragnar er óþarft
að kynna. Eftirmiðdagsfundirnir
með honum blönduðu gestunum
skemmtilega saman.
Þótt ferðin væri sérstaklega
ætluð eldri borgurum var þó nokk-
ur hópur af ungu fólki með börn
sín. Fór sérstaklega vel á með öll-
um hópnum og yngstu farþegarnir
tóku af lífi og sál þátt í leikjum og
söng, sem Hermann Ragnar
kenndi þeim sérstaklega.
Þótt allir vonuðust til að hjúkr-
unarkona hópsins hefði sem
minnst að gera reyndist Arndís al-
veg ómissandi. Engin alvarleg
óhöpp komu fyrir, en á þetta löng-
um tíma (fólk var ýmist 3 eða 6
vikur) fer ekki hjá því að ýmsir
smákvillar geri vart við sig. Það
stóð ekki á Arndísi að liðsinna.
Ég hef farið margar hópferðir
til útlanda og yfirleitt alltaf verið
ánægð með dvölina úti, en þessi
ferð var alveg sérstök. Fyrir hönd
okkar vinkvennanna þakka ég
fyrir ógleymanlegar ánægjustund-
ir.
Nokkrar lín-
ur um sjón-
varpið
JX skrifar:
Fyrst langar mig til að biðja
sjónvarpið um að hætta að sýna
lélega þætti eins og „Dallas" og
„Verði laganna" en fá frekar
meira af frábærum þáttum eins og
„Hótel Tindastól" eða Dave Allen.
Líka mætti endursýna „Löður“.
Einnig langar mig til að spyrja
sjónvarpið hvort það verði sýnt
meira af sjónvarpsþáttunum
„Dýrin mín stór og smá“ sem
gerðir voru eftir sögum James
Herriots en ég veit að til eru fleiri
þættir af því, sem sjónvarpið hef-
ur ekki sýnt.
Góða hljómsveit
á Listahátíð
Ein, sem hatar Duran Duran
skrifar:
Á þriðjudaginn síðasta skrifaði
einhver bandvitlaus Duran Duran
aðdáandi í Velvakanda. Hann spyr
hvernig það væri að fá einhverja
almennilega hljómsveit á Lista-
hátíð eins og Duran Duran. Það
eru margar fleiri til.
Einnig segir hann að enginn
hlusti á þessar sígaulandi
hljómsveitir eins og Wham, U2 og
Frankie Goes to Hollywood. Þetta
eru góðar hljómsveitir og ég veit
um marga sem hlusta á þær.
Ég er einnig sammála aðstand-
endum rásar 2 að Duran Duran sé
bara smábarnahljómsveit. Þið
Duran Duran-aðdáendur, haldið
þið virkilega að Duran Duran sé
eina hljómsveitin i heiminum?
Það er vitleysa.
P.S. Það væri nær að fá
„Frankie Goes to Hollywood" eða
Nik Kershaw á Listahátíð.
Þessir hringdu . . .
Lítil umfjöllun
Jón Jónsson, áhugamaður um
útvarp á Selfossi, hringdi:
Mér finnst allt of lítið gert úr
svæðisútvarpi þeirra Norðan-
manna á Akureyri í fjölmiðlum
og það sama má segja um sjón-
varpsstöð þeirra Olafsfirðinga.
Þetta tvennt er mikið framtak
og maður heyrir aldrei um þetta
í fjölmiðlum.
Nú er verið að ræða þessi mál
einmitt á Alþingi og eflaust er
barist hart.
Símon svarti
Duran Duran-aðdáandi hringdi:
Þetta með hann Símon svarta
í „Fólk í fréttum" í Mbl. er
Símon
svarti
ábyggilega ekki satt, en það kom
í blaðinu 29. maí sl. Hann myndi
aldrei láta klippa hárið sitt stutt
eða lita það svart.
Stytta, blóm
og bekkir
Kirdís hringdi:
Húsmóðir fædd árið 1904 í
Reykjavík leggur til að ef hús
Kristjáns Sveinssonar, augn-
læknis og heiðursborgara
Reykjavíkur, verði rifið, þá verði
reist stytta af honum með blóm-
um og bekkjum f kring á Póst-
hússtræti 17.
Haldið köttum
inni
Orðscnding frá Kattavinafélag-
inu:
Við viljum beina þeim tilmæl-
um til kattaeigenda að þeir haldi
köttum sínum inni uns þrastar-
ungar eru fleygir og komnir burt
frá hreiðrum sínum.
i
í