Morgunblaðið - 10.07.1985, Side 1
48 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
153. tbl. 72. árg.___________________________________MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1985_______________________________Prentemiðja Morgunblaðsins
Persaflói:
Olíuskip að sökkva
eftir árás íraka
Símamynd/AP
Lík fjögurra svertingja, sem létu lífíð í átökum við lögreglu hvítra manna í Suður-Afríku um helgina, flutt inn i
íþróttaleikvanginn Kwa-Thema skammt frá Jóhannesarborg í gsr. Þar var haldin minningarathöfn um mennina áður
en útfor þeirra fór fram.
Blóðugustu átök lögreglu
og syertingja í tíu mánuði
Jóhannesarborg, 9. júlí. AP.
HVÍTIR lögreglumenn skutu a.rn.k. sjö svertingja til bana í borginni
Kwa-Thema í Suður-Afríku í dag. Þetta gerðist aðeins nokkrum
klukkutímum áður en um tíu þúsund svartir menn komu saman á
íþróttaleikvangi í borginni til að fylgja fjórum kynbræðrum sínum til
grafar. Mennirnir létu lífíð í átökum við lögreglu um helgina.
Manima, Bahrain, 9. júlí. AP.
SEINT í kvöld loguðu eldar enn um
borð í tyrkneska risaolíuskipinu,
sem í morgun varð fyrir eldflauga-
árás íraskra herþota í Persaflóa. Öll-
um í áhöfninni hefur verið bjargað
heilum á húfí, en mikil olía lekur úr
skipinu og óttast er að það kunni að
springa í loft upp eða sökkva.
David Stockman
Stockman segir
af sér embætti
Washington, 9. júlí. AP.
DAVID Stockman, einn helsti fjár-
málaráðgjafí Reagans Bandaríkja-
forseta, hefur sagt af sér embætti
forstöðumanns fjárlaga- og hag-
sýslustofnunar ríkisins.
Talsmaður stofn'unarinnar
sagði í dag, að Stockman myndi
láta af embætti. 1. ágúst nk. Ekki
hefur verið greint frá því hverjar
ástæður afsagnar hans eru.
Stockman, sem er 38 ára að
aldri, hefur verið forstöðumaður
fjárlagastofnunarinnar frá því
Reagan tók við embætti í janúar
1981. Áður var hann þingmaður
repúblikana í fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings.
Olíuskip þetta er rúmlega 392
þúsund tonn að stærð og hið
stærsta sem orðið hefur fyrir árás
í Persaflóa, frá því stríð írana og
Íraka hófst fyrir fimm árum. Það
sigldi undir tyrkneskum fána, en
stjórnvöld í íran höfðu það á leigu.
Skipið, sem heitir M. Vatan, var
að flytja 380 þúsund tonn af hrá-
olíu frá Kharg-eyju, aðalolíuhöfn
írana, til Sirri-eyjar, sem er í um
560 km fjarlægð, en þar var ætl-
unin að skipa farminum um borð í
önnur oiíuskip. írakar hafa
oftsinnis gert árásir á olíuskip á
leið frá Kharg-eyju og þvi hefur
erlendum kaupendum þótt trygg-
ara að sækja olíu á annan stað.
Yfirvöld í Jóhannesarborg
segja, að sjömenningarnir hafi
látið lífið þegar lögreglan skaut á
hóp fólks, sem réðst á heimili
svartra lögreglumanna.
Vestrænir fréttamenn hafa eft-
ir öðrum heimildum, að lögreglan
hafi varpað táragassprengjum
inn i kvikmyndahús í Kwa-
Thema þar sem fólk hafði safnast
saman til að syrgja fjórmenn-
ingana. Hafi lögreglan skotið sex
menn, sem reyndu að komast
undan og sært einn alvarlega. Þá
er sagt, að lögreglan hafi skotið
tvo aðra svertingja til bana í
átökum fyrir utan íþróttaleik-
vanginn í borginni.
Fréttamaður, sem fór inn í
kvikmyndahúsið síðdegis, sagði
að þar hefðu verið blóðslettur út
um allt og greinileg ummerki um
skothríð.
Átökin í Suður-Afríku í dag
eru einhver hin blóðugustu, sem
þar hafa orðið á síðustu tíu mán-
uðum, sem einkennst hafa af
óeirðum vegna aðskilnaðarstefnu
Zimbabwe:
Harmre, 9. júlf. AP.
MÚG/EÐI hefur runnið á marga
stuðningsmenn Roberts Mugabe,
forsætisráðherra Zimbawe, eftir
hinn mikla sigur hans í þingkosning-
unum í fyrri viku og þá yfírlýsingu
hans á sunnudag, að hann hygðist
stofna sósíalískt eins flokks ríki í
landinu.
Stuðningsmenn Mugabe, eink-
um ungir menn og konur, hafa frá
því á sunnudag farið um götur
höfuðborgarinnar, Harare, og út-
hverfa hennar, og ráðist á and-
stæðinga ráðherrans og heimili
þeirra. Fjöldi manna hefur slasast
og orðið fyrir eignatjóni. Einn lét
lífið í átökunum í gær.
Fréttamenn, sem í gær voru á
ferð í Mufakose, einu úthverfa
Harare, höfðu eftir ungum óeirða-
seggi úr flokki Mugabe, sem skip-
aði þeim að verða á brott: „Þetta
fólk getur ekki búið hér lengur.
Við höfum barið flokkana þeirra
niður og það ekkert pláss fyrir það
í eins flokks ríki.“
Ráðherrar í ríkisstjórn Mugabe
hafa hvatt fólk til að hætta
ofsóknunum, en á þá hefur ekki
verið hlustað. Lögreglan í Harare
þykir sýna óeirðaseggjunum mikla
linkind.
í kosningunum hlaut flokkur
Mugabe 63 þingsæti af 79, en
flokkur helsta andstæðings hans í
Íminnihlutastjórnar hvítra
manna. 400 manns hafa fallið á
þessum tíma, flestir í Jóhannes-
arborg og nágrenni.
stjórnmálum, Joshua Nkomo, fékk
15 þingmenn kjörna. Það er gegn
Nkomo og stuðningsmönnum
hans, sem árásirnar hafa einkum
beinst.
TASS sakar
Reagan um
sefasýkistal
MoNkvu, 9. júli. AP.
TASS, hin opinbera fréttastofa Sovét-
ríkjanna, veittist i dag harðlega að
Ronald Reagan Bandaríkjaforseta
vegna ummæla hans í gær um „sam-
bandsríki hryðjuverkamanna". Sagði
fréttastofan, að forsetinn væri með
sefasýkistal í því skyni að auðvelda
ríkisstjórn sinni að framfylgja eigin
hryðjuverkastefnu.
Fréttastofan sagði, að tilraunir
Bandaríkjamanna til að loka Beir-
út-flugvelli og gagnrýni þeirra á ör-
yggisgæslu á Aþenu-flugvelli væri
hvort tveggja dæmi um hryðju-
verkastefnu. Hótun Reagans um að
endurgjalda árásir hermdarverka-
manna kvað fréttastofan til marks
um að Bandaríkjamenn vildu fá að
fara sínu fram um heim allan og
ráðast á lönd og þjóðir í nafni bar-
áttu gegn hryðjuverkum.
Dagblaðið New York Times:
Sovétmenn tilbúnir
að samþykkja geim-
varnarannsóknir
New York, 9. júlí. AP.
DAGBLAÐIÐ New York Times
segir í dag, að fulltrúar Sovétríkj-
anna í afvopnunarviðræðunum f
Genf hafí gefíð í skyn fyrir hálfum
mánuði að þeir væru rciðubúnir til
að gera samning er heimili rann-
sóknir á varnarbúnaði í geimnum.
Fram að þessu hafa viðræður
stórveldanna í Genf strandað á
andstöðu Sovétmanna við geim-
varnarannsóknir Bandaríkja-
manna.
Haft er eftir ónafngreindum
bandarískum embættismönnum
að fyrir tveimur vikum hafi
samningamenn Sovétríkjanna
gert fulltrúum Bandaríkjanna
óformlega grein fyrir því, að þeir
myndu ekki krefjast þess að all-
ar rannsóknir á geimvörnum
yrðu bannaðar. Embættismenn-
irnir sögðu, að Sovétmenn vildu
gera greinarmun á geimvarnar-
rannsóknum annars vegar og
þróun geimvarnarbúnaðar og til-
raunum með geimvopn hins veg-
ar, en hinu síðarnefnda væru
þeir andvígir.
Embættismennirnir sögðu, að
ef Sovétmenn fylgdu orðum sín-
um eftir með formlegri tillögu,
eins og þeir hafa vanalega gert í
dæmum af þessu tagi, mundi það
verða til þess að Reagan Banda-
ríkjaforseti yrði að slaka á
stefnu sinni, sem aftur mundi
hafa það í för með sér að viðræð-
urnar í Genf kæmust á skrið.
Andstæðingar
Mugabe ofsóttir