Morgunblaðið - 10.07.1985, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1985
Mexíkó:
Stjórnarflokkur-
inn lýsir yfir sigri
AP/Slmamynd
Shianouk fursti, einn af leiðtogum andspyrnunnar gegn Víetnömum í Kamb-
ódíu, sagði í dag að hann hefði sætt sig við ósigur í baráttunni við víetnamska
innrásarherinn. Shianouk, sem nú er í Kína til að freista þess að fá hernað-
arstuðning við skæruliðasamtök sín, kvaðst þó ekki ætla að hætta baráttunni
við Víetnama.
Kambódía:
Shianouk sér
fram á
Peking, 9. júli. AP.
SIHANOUK fursti, einn leiðtoga
andspyrnunnar gegn Víetnömum í
Kambódíu, sagðist í dag sætta sig
við ósigur í baráttuni við víet-
namska innrásarherinn.
Kom þetta fram á frétta-
mannafundi sem hann hélt í dag
í Kína. Þar sækist hann eftir
hernaðaraðstoð stjórnvalda við
skæruliðasamtök sín og leitar
sér lækninga.
Hann bætti því þó við að hann
mundi halda áfram baráttu
sinni í þeirri von að Vietnamar,
ósigur
sem studdir eru af Sovét-
mönnum, og Kínverjar komist
að málamiðlun um að binda
enda á stríðið í Kambódíu.
Shianouk sagðist ekki vilja
starfa með kommúnistasamtök-
um Pols Pot, Rauðu khmerun-
um, sem berjast einnig gegn
Víetnömum, en ætti ekki ann-
arra kosta völ. Ástæðan væri sú
að Kínverjar hefðu hótað að
hætta stuðningi við samtök sín
ef hann hætti samstarfinu við
Pol Pot.
Meiíkóborg, 9. júlí. AP.
Stjórnarflokkurinn í Mexíkó,
PRI, hcfur lýst yfir sigri í þingkosn-
ingum í landinu, en þær fóru fram í
landinu um helgina. Hins vegar
staðhæfðu talsmenn stjórnarand-
stöðuflokkanna að umfangsmikið
kosningasvindl hefði verið haft í
frammi. Kosningarnar eru hinar
fyrstu síðan Miguel de la Madrid
Forsíða kynningarbæklings um mót-
ið í Strasbourg.
var kjörinn forseti 1982.
Enda þótt endanleg úrslit kosn-
inganna muni ekki liggja fyrir
fyrr en í næstu viku, þá sögðu
formælendur stjórnarflokksins,
sem verið hefur við í völd frá
stofnun hans 1929, að PRI hefði
unnið stórsigur í öllum kjördæm-
um landsins.
Talsmaður helsta stjórnarand-
stöðuflokksins, PAN , sagði aftur
á móti að hér hafi verið um stór-
fellt kosningasvindl að ræða: „Það
fóru í raun engar kosningar fram í
landinu."
Kosið var um fylkisstjóra í sjö
fylkjum og 400 sæti á sambands-
þinginu.
Europa Cantat:
Alþjódlegt kóra-
mót í Strasbourg
EVRÓPUSAMBAND kóra, sem skipaðir eru ungu fólki, efnir til 9. alþjóða-
móts síns I Strasbourg í Frakklandi dagana 17. til 28. júlí næstkomandi. 4000
manns taka þátt í mótinu. í fréttatilkynningu frá þeim er skipuleggja það,
segir, að þetta mót, sem efnt er til á þriggja ára fresti, sé eitt hið mikilvæg-
asta í veröldinni.
Kórar hvaðanæva úr Evrópu
hittast á mótinu sem að þessu
sinni verður sérstaklega helgað
tónlistarári Evrópu. Francois
Mitterrand, Frakklandsforseti, og
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, verða viðstaddir þeg-
ar mótið hefst.
I fréttatilkynningunni kemur
fram, að þátttakendur eru frá yfir
30 löndum. í þeim hópi verður
Hamrahlíðarkórinn undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur. Auk kóra
frá Evrópu verður söngfólk frá
Venezúela, Japan og Bandaríkjun-
um í Strasbourg. Verða yfir 100
tónleikar dagana sem mótið
stendur.
Nýtt — Nýtt — Nýtt — Nýtt — Nýtt
Litli risinn
Einnig fáanieg
fleiri þráðlaus
verkfæri frá
BOSCH
Nýi höggborinn frá BOSCH
gengur fyrir rafhlöðu og borar í gegnum stein
og stál með ótrúlegum krafti. Seigur sá stutti.
Að sjálfsögðu fylgir hleðslutæki litla risanum
og allt kemur þetta í hentugri járntösku.
Engar snúrur, ekkert vesen. Þú getur
notað BOSCH hvar sem er.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suöurlandsbraut 16 Sími 9135200
BOSH —- BOSH - JOSF^ BOSH
Agca og Celebi
samprófaðir
Róm, 9. júlf. AP.
MEHMET Ali Agca og tyrkneskur
maður, Musa Serdar Celebi, voru í
dag samprófaðir fyrir rétti vegna mis-
ræmis í framburði þeirra, en sá síðar-
nefndi er ákærður fyrir að hafa að-
stoðað Agca í morðtilraun hans við
páfann og fyrir að hafa þegið hluta af
því fé, 1,2 milljónum dollara, sem
greiddir voru fyrir tilræðið.
Celebi viðurkenndi að hafa hitt
Agca að máli í Mílanó í desember
1980, en það hefði verið af tilviljun.
Hann hefði komið til borgarinnar í
þeim tilgangi að hitta annan mann,
Sozen Skin Vedat að nafni, sem
hann hefði áður haft samskipti við.
Saksóknarinn lagði þá fram eið-
Lítið réttar-
öryggi í Osló
Lögreglan er í sumarfríi
Osló, 9. júlf. Frá frelUriUra Morgunblaó«iiu
i. E. Laure.
OSLÓ verður ótryggur staður í sumar.
Þar verður aðeins lágmarksfjöldi lög-
reglumanna við störf og bfla- og inn-
brotsþjófar geta reiknað með því að
komast hjá refsingu og rannsókn og
það jafnvel þó að lögreglan þekki nöfn
þeirra.
Sjálf hefur lögreglan orðið fyrst
til að kvarta yfir þessu ástandi.
Venjulega eru yfir 100 lögreglu-
mannsefni kölluð til i Osló á meðan
fastráðnir lögreglumenn þar eru i
sumarleyfi. í ár verða hins vegar að-
eins 15 verðandi lögregluþjónar
fengnir til starfa í þessu skyni.
Það verður því lítið um eftirlits-
ferðir akandi eða gangandi lögreglu-
manna um miðborg Oslóar. Þar að
auki mun lögreglan ekki hafa tíma
til þess að rannsaka „smábrot" eins
og bílþjófnaði og innbrot. „Ef
ástandið verður jafn slæmt og lög-
reglan sjálf spáir, verðum við að
taka það til athugunar, hvort ekki
þurfi að kalla til aukafóík til þess að
halda uppi lögum og reglu,“ segir i
tilkynningu, sem norska dómsmála-
ráðuneytiö hefur látið fara frá sér.
festa yfirlýsingu frá Vedat þess
efnis, að hann hefði aldrei hitt Cel-
ebi að máli í desember þetta ár
heldur hefði það gerzt sumarið á
eftir.
Heilahimnu-
bólga í Thule
Nuuk, 9. júlí. Frá frétUriUra MorgunbUteins,
N. J. Bniun.
HEILAHIMNUBÓLGA er komin upp
í Thule, nyrzt á Vestur-Grænlandi.
Kom hún upp á meðal grænlenzkra
veiðimanna, en hennar hefur ekki orð-
ið vart hjá starfsmönnum bandarísku
herstöðvarinnar, sem þarna er.
Nfu manns hafa tekið veikina og
eru þeir allir þungt haldnir. Enginn
hefur þó dáið úr veikinni. Óskað
hefur verið eftir því, að tveir dansk-
ir sérfræðingar komi til Thule, en
þeir voru enn ókomnir í dag, þriðju-
dag. Heilbrigðisyfirvöld í Thule
hafa bannað íbúunum að fara þaðan
og jafnframt hefur utanaðkomandi
fólki verið bannað að fara þangað að
svo komnu.
í Thule eru aðeins 8 sjúkrarúm á
sjúkrahúsinu og er nú ráðgert að
gera heimavistarskólann þar að við-
lagasjúkrahúsi.
Lúxemborg:
Carlotta
stórhertoga-
ynja látin
Lúxemborg, 9. júlfi. AP.
KARLOTTA stórhertogaynja af
Lúxemborg lézt í dag 89 ára að aldri.
Hún var þjóðhöfðingi lands síns i 45
ár frá 1919 til 1964 og var móðir
Jeans, núverandi stórhertoga af
Lúxemborg.