Morgunblaðið - 10.07.1985, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLl 1985
23
Flak víkingaskipsins
Norska víkingaskipið Haforninn var í sinni fyrstu sjóferð, er skipið
fórst við Færeyjar fyrir nokkrum dögum. Níu manns, sem með skipinu
voru, komust allir lífs af. Tekizt hefur að bjarga flaki skipsins, sem var
dregið til Þórshafnar. Þessi mynd er af flakinu, þar sem það marar í
hálfu kafi við bryggju í Þórshöfn.
„Við knékrjúpum
ekki fyrir Scargill“
Námamenn í Nott-
inghamshire segja
sig úr NUM
Mansfield, 9. julí AP.
SAMBAND kolanámamanna í
Nottinghamshire hefur sagt sig úr
landssamtökum námamanna í
Bretlandi (NUM) í mótmælaskyni
við skipulagsbreytingar innan
stjórnar NUM, sem leitt gætu til
þess, að Arthur Scargill yrði forseti
samtakanna til æviloka. Er talið,
að þetta kunni að leiða til upp-
lausnar NUM, en samtökin hafa
verið við lýði í 143 ár.
„Menn okkar vilja ekki kné-
Arthur Scargill,
námumanna.
leiðtogi breskra
krjúpa fyrir Arthur Scargill,"
var haft eftir David Prender-
gast, einum af forystumönnum
námamanna í Nottinghamshire.
Þar eru námamenn um 28.000 og
er það annað mesta kolahérað
Bretlands. Samþykkti stjórn
námamanna þar með 228 at-
kvæðum gegn 20 að segja sig úr
NUM.
Scargill hefur lýst þessari
ákvörðun sem „furðulegri" og að
hún feli í sér brot á reglum sam-
takanna. Heldur hann því fram,
að samband námamanna í Nott-
inghamshire eigi eftir að ein-
angrast frá öðrum samtökum
námamanna.
Harmleikurinn í Briissel:
Ráðherra neitar að
segja af sér embætti
Britasel, 9. júlí. AP.
Innanríkisráðherra Belgíu,
Charles-Ferdinand Nothomb, kveðst
ekki hafa í hyggju að segja af sér
áður en belgíska þingið tekur til um-
fjöllunar efni skýrslu um öryggis-
gæslu á Hazel-leikvangingum, þar
sem 38 knattspyrnuáhorfendur létu
lífíð í óeirðum 29. maí sl.
í skýrslunni, sem gerð var á
vegum þingmannanefndar og
opinberuð í gær, kemur fram, að
öryggisgæslu á leikvanginum hafi
verið ábótavant. Þingið mun
sennilega ræða efni skýrslunnar
seinna í vikunni.
Nothomb, sem er yfirmaður
lögreglunnar, hefur verið harðlega
gagnrýndur fyrir slæleg vinnu-
brögð í þessu máli, og hefur þess
verið krafist að hann segi af sér
ráðherraembættinu.
Innanríkisráðherrann, sem
fram að þessu hefur haldið því
fram að nægar öryggisráðstafanir
hafi verið gerðar fyrir úrslitaleik
Liverpool og Juventus í Evrópu-
keppni meistaraliða, sagðist ekki
hafa skipt um skoðun á málinu
þrátt fyrir skýrsluna.
Skýrt var frá því í dag að
fyrstudeildarkeppnin í knatt-
spyrnu hefjist ekki í Belgíu fyrr en
sérstök nefnd hafi athugað örygg-
isbúnað á knattspyrnuvöllum þar.
San Sebastian:
Tveir þjóðvarðliðar drepnir
San Sebnatian, 9. júlí. AP.
TVEIR þjóðvarðliöar voru skotnir til
bana í San Sebastian í morgunsárið
og eru skæruliðar ETA, frelsishreyf-
ingar Baska, grunaðir um verknað-
inn. Mennirnir tveir voru í kyrrstæð-
um bíl í miðborg San Sebastian þeg-
ar tveir menn hlupu að bflnum og
hófu skothríð á varðliðana. Menn-
irnir tveir flúðu af svæðinu í bfl og
er þeirra nú ákaft leitað.
Það sem af er þessu ári hafa þa
23 lögreglumenn eða þjóðvarðliðar
verið drepnir á Spáni.
Uffe Ellemann-Jensen utantíkisréðherra og Poul SchHiter, forsætisráðherra.
að gera Danmörku að lögreglu-
ríki.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið aflaði sér í Kaup-
mannahöfn í gær hefur þetta
mál einnig vakið umræður utan
fjölmiðla „Stóri-bróðir er ekki
langt undan“ er haft eftir einum
Dana sem kvaðst þó vera stuðn-
ingsmaður Schluters, „Fáum
dettur i hug að Olesen hgfi farið
til Moskvu með einhverja mold-
vörpustarfsemi í huga ... Rétt-
ast væri að Schluter viðurkenndi
að mistök hefðu orðið og héti
breytingu á þeim reglum, sem nú
virðast gilda um ferðalagaskrán-
ingar“ ... Þetta leiðir til einnar
allsherjarvitleysu og taugaveikl-
unar ef Schlúter tekur ekki í
taumana hið fyrsta." Að sögn
hfeimildarmanna Morgunblaðs-
ins voru viðbrögð á þessa lund
algeng meðal borgara.
Gistíng og fæði
á fyrsta ftokks hóteli
fyrir aðeins 990,00 kr.
pr. mann, gildir frá mánudegi tú töstudags.
Hótel Valhöll er vinalegur
veitinga- og gististaðnr
á vettvangi stóratburða
íslandssögunnar. Par
getur þú varið
sumarleyúnu á óvenjulegan
og skemmtilegan hátt
Vertu velkominn í Valhöll.
innavMJ ttu
Pingvöllum, sími 99-4080.
SUMARPRI A
SÖGUSLODUM