Morgunblaðið - 10.07.1985, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 10.07.1985, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1985 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1985 25 Pltrgw Útgefandi itMoMfr hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoóarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 360 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 30 kr. eintakið. Mikill fiskur, lágt verð, lítil laun að er deginum ljósara, að íslenskur sjávarútvegur á við mikinn vanda að etja. Miklu skiptir að menn samein- ist um skilgreiningu á orsök þessa vanda, fyrr verður hann ekki leystur með skynsamleg- um hætti. í síðustu viku birti Morgunblaðið greinargerð þeirra Einars Odds Kristjáns- sonar, framkvæmdastjóra á Flateyri, og Einars K. Guð- finnssonar, útgerðarstjóra á Bolungarvík, um stöðu sjávar- útvegsfyrirtækja. Þar er drep- ið á brýn úrlausnarefni. Sumt er í verkahring stjórnvalda að leysa, öðru verða útgerðar- menn og fiskverkendur sjálfir að sinna. Mikill afli berst nú á land, til dæmis á Sauðárkróki. Mál- um er hins vegar þannig hátt- að þar í bæ, að ekki er til nægi- legur mannskapur til að sinna öllum þessum afla svo að vel sé. Munar 20—30% á útflutn- ingsverðmæti vegna þess að ekki er unnt að vinna aflann með þeim hætti að hann gefi af sér hæsta verð á markaðinum. Nú eru þorskveiðar stundað- ar með þeim hætti, að afli skipa takmarkast af ákvörðun- um sem teknar eru um kvóta- skiptingu. Að sögn Ágústs Einarssonar hjá Landssam- bandi íslenskra útvegsmanna er þó hagkvæmast fyrir út- gerðarmenn og sjómenn að ná sem mestum afla á sem skemmstum tíma „og ekki við þá að sakast", eins og haft er eftir Ágústi í Morgunblaðinu í gær. Taldi hann kvörtunartón Sauðkræklinga „svolítið hlá- legan", þar sem útgerð og vinnsla væri þar undir sömu stjórn. Með hliðsjón af því ástandi, sem ríkir á íslandsmiðum og nauðsyn þess að fara vel með fiskinn í sjónum, ekki síður en eftir að hann er kominn á land, er meira en lítið að í þeim rekstri sem þolir ekki að fá mikið af hráefni. Mikill afli leiðir af sér lágt verð og þar af leiðandi lítil laun. Ef menn ætla að treysta á stjórnvöld til að leysa úr þessum vandræð- um er eins víst að þau verða aldrei leyst. Hér verða útgerð- armenn og fiskverkendur að taka höndum saman án íhlut- unar stjórnvalda. í greinargerð Vestfirð- inganna er talað um „víta- hring" þegar rætt er um störf í fiskvinnslu á íslandi og honum lýst á þann veg, að þessi störf séu „láglaunastörf, sem allir er geta flýja og fælast". Þetta er alls ekki staðbundinn vandi á Vestfjörðum. Á Sauðárkróki vantar fólk í fiskvinnu, einnig á Austurlandi og ekki síður á Suðurnesjum. Þeir sem huga ekki að þess- um grundvallarvanda í ís- lenskum sjávarútvegi og benda á leiðir honum til lausnar líta ekki til upphafsins heldur eru sífellt að takast á við afleið- ingarnar. „Ef hægt væri að fjölga starfsfólki við fisk- vinnsluna strax, mætti bjarga gríðarlegum verðmætum," seg- ir í greinargerð Vestfirð- inganna. Innan fyrirtækja í sjávar- útvegi hefur orðið stöðnun. Ekki hefur tekist að laga rekstur þeirra að breyttum að- stæðum. Vörn verður ekki snú- ið í sókn nema af stórhug og atorku. Líti menn til ríkis- valdsins í því skyni eru þeir á rangri braut. Flokksleg smámuna- semi NT Iforystugrein Morgunblaðs- ins 2. júlí var meðal annars komist þannig að orði um störf Halldórs Ásgrímssonar, sjáv- arútvegsráðherra, að hann sýndist „festa sig meira í smá- atriði við framkvæmd stefnu en stefnumótun sem skapar þessari mikilvægu atvinnu- grein hagkvæm starfsskil- yrði“. Síðan hefur NT, mál- gagn framsóknarráðherranna, krafist þess í tveimur forystu- greinum, að Morgunblaðið skýrði þessi orð sín. Þessar fyrirspurnir eru glöggur vottur um smámuna- semi framsóknar. Flokkspóli- tísk viðhorf ráða afstöðu til allra hluta. Málefnalegt mat hverfur fyrir þeim viðhorfum, hvort heldur er í sjávarút- vegsmálum eða húsnæðismál- um, af því að framsóknarmenn eru ráðherrar þeirra málefna- sviða. Stjórnarframkvæmd á þessum sviðum hefur síður en svo einkennst af stórhug. Menn þurfa ekki annað en lesa greinargerð Vestfirð- inganna sem til var vitnað hér að ofan til að finna rök fyrir athugasemd Morgunblaðsins (enda vildi Halldór Ásgríms- son gera sem minnst úr grein- argerðinni). í NT er spurt, hvort það beri ekki vott um að sjávarútvegsráðherra hugsi um annað smáatriði, að fisk- veiðistefna hafi verið mótuð í hans ráðherratíð. Var það ekki Landssamband íslenskra út- vegsmanna sem mótaði þá stefnu? AF INNLENDUM VETTVANGI STEFÁN FRIÐBJARNARSON Landsbyggð — höfuðborgarsvæði: Byggðaröskun Flutningur milli sveitarfélaga oq landshluta 1974-1984 12 000--------------------------------------------------- Milli sweitarlélaqa II000- 10000 7000 74 75 76 7 7 78 79 '80 '81 '82 '83 '84 Milli landshluta iii Íbúatala landsins 1984: 240 085 manns Htimiid: HAGSTOFA ISLANOS iiiiiiiiiiii Undanfarið hefur mikið verið skrafað og skrifað um fólksflótta úr strjálbýli í þéttbýli og af svokallaðri landsbyggð til höfuðborgarsvsðis- ins. Þetta er gömul saga og ný. Um síðastliðin aldamót bjuggu naerri þrír af hverjum fjórum landsmönn- um í sveitum. Nú búa níu af hverjum tíu í þéttbýli. Aðeins tíundi hver ein- staklingur í sveit. Hér hefur orðið „stökkbreyting" í búsetu lands- manna, sem rætur á í gjörbreyttum atvinnuháttum og lífsmáta. Þrjátíu og tvö þúsund utan — tuttugu og fímm þúsund heim íslendingar eru fólk á faralds- fæti. Það sést ekki einvörðungu af utanferðum, sem eru eitt helzta tómstundagaman landans á líð- andi stund. Hátt í fimm af hundr- aði þjóðarinnar flytzt milli sveit- arfélaga á ári hverju. Á tímabil- inu 1974—1984 fluttu fæst 10.379 og flest 11.744 einstaklingar á ári úr einu sveitarfélagi í annað. Þar af fluttu 5.500 til 6.360 á ári milli landshluta. Talið er að um 14.000 manns hafi flutzt burt af iandinu árin 1870 til 1910, mest á árunum 1880 til 1890, þegar íslenzkt landnám í Ameríku var í hámarki. En við þurfum ekki að fara yfir bæjar- lækinn til að sækja vatn. Við þurf- um ekki að líta um öxl til horfinn- ar aldar til að sjá á bak fólki til búsetu handan íslandsála. Á 20 ára tímabili, 1961—1982, fluttu 32.706 einstaklingar úr landi (þar af 23.541 íslendingur og 9.165 er- lendir ríkisborgarar) og 25.352 heim (þar af 15.614 íslendingar og 9.738 erlendir ríkisborgarar). Burtfluttir umfram aðflutta vóru rúmlega 7.350 talsins, 3.263 karlar og 4.091 kona. I þessum tölum hafa konur vinninginn sem bendir til þess að fleiri konur en karlar giftist út fyrir landsteina. Þessar háu tölur burt- og að- fluttra 1961—1982 sýna m.a. að mikil hreyfing hefur verið á ís- lendingum til tímabundinnar dvalar erlendis, bæði í tengslum við nám og atvinnu. Fólk á faraldsfæti Hér að framan er fjallað um Is- lendinga sem fólk á faraldsfæti. 32 ÞUSUND FLUTTU ÚR LANDI 1961—1982, 25 ÞÚSUND HEIM. Það væru að vísu ofsagt að kalla þá sígauna norðursins. En þeir hafa síður en svo haldið sig innan túngirðingar frá þeim tíma að Ingólfur Arnarson sté fyrst fæti á reykvískan fjörusand, eða fylgd- arlið Eiríks rauða sigldi úfinn sjó til eystri og vestri byggðar í Grænlandi, eða Leifur heppni uppgötvaði að „Guð lét fögur vfn- ber vaxa“ í Vesturheimi. Á sama tímabili (1961—1982) og 7.350 manns fluttu frá íslandi, umfram aðflutta, sogaði Reykja- vík og Reykjanes til sín fólk frá landsbyggðinni. Aðfluttir af landsbyggðinni til Reykjavíkur á þessum tíma, umfram burtflutta, vóru 5.052, og aðfluttir til Reykja- ness, umfram burtflutta, 5.398. Öll hin kjördæmin hafa tapað fólki í búferlaflutningum innanlands, sem þessum tveimur tölum nemur. Raunar gott betur því ótalinn er flutningur 1983-19985. Áraskipti eru í þessum flutning- um. Um nokkurt skeið hélt lands- byggðin í við höfuðborgarsvæðið. Aftur hefur sigið á hina verri hlið. Það er hvorki höfuðborgarsvæð- inu né landsbyggðinni í hag að efna til óeðlilegrar byggðaröskun- ar í landinu. Norðurland vestra Stöldrum við í dæmigerðu strjálbýliskjördæmi, Norðurlandi vestra. Fá kjördæmi byggja at- vinnu og afkomu í jafnríkum mæli á frumframleiðslu, landbúnaði (21%) og sjáyarútvegi (17%). Þessar atvinnugreinar hafa átt við ýmis vandamál að stríða, m.a. vegna aflatakmarkana á helztu nytjafiskum og framleiðslutak- markana í búvöru. Fá kjördæmi hafa jafn litla breidd í störfum (möguleikum fólks til starfsvals) eða jafn lágar meðaltekjur á ein- stakling (meðaltekjur á ársverk vóru 10% undir landsmeðaltali 1983). Fyrir 65 árum, árið 1920, taldi tíundi hver íslendingur heimili sitt á Norðurlandi vestra. íbúa- hlutfall þessa landsvæðis, sem var 10,3% 1920, var komið niður í 4,6% 1982. Svipaða sögu geta flest strjálbýliskjördæmi rakið. En „þróunin" hefur verið öllu nei- kvæðari hér en víðast annars stað- ar. Frá 1971 hefur íbúatala kjör- dæmisins aukizt um 8,6% á sama tíma og fjölgun á landsbyggðinni sem heild er 12,6% og í landinu öilu 15,9%. Ibúatala hefur vaxið afgerandi mest í þremur þéttbýliskjörnum á Noðurlandi vestra á þessu árabili: 1) Hvammstangi 77%, Blönduós 53% og Sauðárkrókur 42,8%. Skagaströnd, sem þekkt er af vel rekinni útgerð og fiskvinnslu, hef- ur aukið íbúatölu sína um 19% á þessu árabili. Sveitir kjördæmis- ins bera þyngsta byrði byggða- röskunar. Þar varð íbúafækkun 1971—1984 10,3%. Svipaða sögu er segja um síldarbæinn Siglufjörð. Þar varð fækkunin 8,4%. Flestir vóru heimabúandi Siglfirðingar um 3.100. Nú teljast þeir rúmlega 1.900. Gullkista og náttúruhamfarir Siglufjörður óx úr litlu þorpi í fjölmenna byggð á fyrri hluta ald- arinnar. Vöxtur staðarins, atvinna og afkoma bæjarbúa hvíldi í einu og öllu á silfurfiskinum, sem um áratugaskeið var gildur hlekkur í þjóðartekjum og lífskjarasókn Is- lendinga. Fáar verstöðvar, ef nokkur, malaði jafn mikið gull í þjóðarbúið á fyrri hluta þessarar aldar, þegar velmegun hér óx hvað mest. Hrun síldarstofnsins, sem skók þjóðarbúskapinn á sinni tíð, mölbraut undirstöður atvinnu og afkomu Siglufjarðar. Atvinnulífið var síðan smám saman laðað að breyttum aðstæðum, m.a. veiðum og vinnslu loðnu. En sagan endur- tók sig. Loðnustofninn hrundi. Ekkert annað sveitarfélag hefur í tvígang gengið í gegn um viðlíka erfiðleika, sem líkja má við nátt- úruhamfarir, og lifað af. Verður sú saga ekki frekar rak- in að sinni. GÓÐUR TUGUR ÞÚS- UNDA FLYTUR MILLI SVEITARFÉLAGA Á HVERJU ÁRI. Áttatíu ný störf á ári Áætlanadeild Framkvæmda- stofnunar telur að vinnuframboð í Norðurlandskjördæmi vestra þurfi að aukast um 1,5%, þ.e. um a.m.k. 80 ný störf að meðaltali á ári, næstu fimm til tíu árin, ef vinnumarkaðurinn á að vaxa í samræmi við líklegan mannfjölda og hamla raunhæft gegn „fólks- flótta" af svæðinu. Aðstæður í landshlutanum eru um margt hagstæðar til atvinnu- uppbyggingar: • I fyrsta lagi er gott vegasam- band bæði norður og suður, sem styrkir vöxt byggða- og þjónustu- kjarna, auk þess sem góðir flug- vellir eru á Blönduósi og Sauðár- króki, hvar senn verður varavöllur fyrir millilandaflug. • I annan stað mun Blönduvirkj- un bæta orkubúskap svæðisins og opna möguleika fyrir orkufrekan iðnað. Nærtækara er að breyta vatnsföllum í störf og útflutnings- verðmæti hér en í Eyjafirði, þar sem andstaða við atvinnustarf- semi af þessu tagi er allnokkur. • I þriðja lagi eru sveitarstjórnir „opnar“ fyrir nýrri atvinnustarf- semi og reiðubúnar, innan eðli- legra marka, til að greiða götu og staðsetningu nýrra fyrirtækja. Veiku hlekkirnir eru erfið staða undirstöðugreina, landbúnaðar og sjávarútvegs, sem vega þyngra í þessu kjördæmi en flestum öðrum. Framleiðniaukning í landbúnaði virðist ekki líkleg að óbreyttum aðstæðum. Það er því óhjákvæmi- legt aö leggja áherzlu á aðra at- vinnuuppbyggingu, til hliðar við þessar undirstöðugreinar, þó þær gegni áfram meginhlutverkum. Sveitarfélög á Norðurlandi vestra ættu að sameinast um út- tekt á atvinnulffi i landshlutanum og möguleikum til að fjölhæfa það í næstu framtíð; styrkja þær stoð- ir sem fyrir eru og byggja nýjar. Sama máli gegnir um önnur strjálbýliskjördæmi, sem standa höllum fæti á líðandi stund. Fjölbreytt atvinnulíf og batn- andi kjör, hvers konar, eru for- senda þess að halda í við aðra landshluta um byggðaþróun fram- tíðarinnar, þó blómlegt mannlff hvíli vissulega á fleiri stoðum en efnahagslegum. Ef nýta á hyggilega gögn þau og gæði, sem forsjónin hefur lagt okkur upp í hendur til framfærzlu, þurfum við að byggja landiö allt. Fiskimiðin Iiggja umhverfis land- ið allt. Þau eru hið „ytra“ lífbelti þjóðarinnar. Sama gildir um gróð- urlendið umhverfis hálendið. Það er hið „innra“ lífbelti okkar. Þriðja auðlindin er orkan í fall- vötnum okkar, sem breyta má í störf og útflutningsverðmæti. Meginauðlindin er enn ótalin: menntun, þekking og framtak fólksins sjálfs. Allt er breytingum háð, einnig byggð í landinu, eins og dæmin sanna. En byggðaröskun, sem stefnir blómlegum héruðum f hættu, er vandamál, sem þjóðin öll þarf að standa gegn. Islendingar verða hinsvegar áfram á faraldsfæti. En höfuð- ánægja hverrar ferðar á að vera heimkoman. Hitaveita Suðurnesja: Tekur að sér rekstur rafveitna Vojrum, 8. jílí, UNDIRRITAÐUR hefur verið samn- ingur á milli stjórnar Hitaveitu Suó- urnesja og fulltrúa sveitarfélaga á Suðurnesjum um að Hitaveitan taki að sér allan rekstur 6 rafveitna sveit- arfélaganna. Samninginn undirrituðu fyrir hönd hitaveitu Suðurnesja Stein- þór Júlíusson stjórnarformaður, Albert' K. Sanders, Finnbogi Björnsson og Jóhann Einvarðsson. Fyrir hönd sveitarfélaganna und- irrituðu samninginn Tómas Tóm- asson forseti bæjarstjórnar Kefla- víkur, Áki Gránz forseti bæjar- stjórnar Njarðvík, Jón Gunnar Stefánsson bæjarstjóri Grindavík, Jón K. Ólafsson sveitarstjóri Mið- neshreppi, Sigurður Ingvarsson hreppsnefndarmaður Gerða- hreppi, Leifur A. Isaksson sveitar- stjóri Vatnsleysustrandarhreppi og Þórarinn Sigurðsson sveitar- stjóri Hafnahreppi. Frá undirskríft samningsins » Morgunblaðið/EG AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR EgyDtaland: Umdeild lög um hjónabönd af- numin og egypskar kvenrétt- indakonur mótmæla ótæpilega UNDANFARNA mánuði hafa sgypskar kvenréttindakonur lát- ið að sér kveða í heimalandi sínu vegna umdeildra laga sem hæstiréttur landsins hefur num- ið úr gildi. Talsmaður helztu kvenréttindasamtakanna Nawal El-Saadawi segir að margt bendi til að egypskar konur séu nú að vakna til vitundar um réttinda- mál sín, en umræður, að ekki sé nú talað um baráttu egypskra kvenna, hafa verið í öldudal síð- asta áratug. Nawal segir að með því að nema lögin úr gildi hafi verið stigið skref aftur á bak og það hefði aldrei gerzt nema vegna þess að egypskar konur hafi ekki sýnt samtakamátt og baráttuhug sem fyrrum. Það var Anwar Sadat, þáver- andi forseti Egyptalands, sem setti lögin fyrir sex árum, en án þess að leita eftir staðfestingu þingsins. Lögin voru manna á milli kölluð „Jihan-lögin“ eftir konu Sadats, sem barðist af ák- efð fyrir að þau gengju í gildi. Samkvæmt lögunum var kveðið á um rétt eiginkonu til að skilja við mann sinn, ef hann tæki sér aðra konu og halda húsnæði hjónanna ef börn væru í hjóna- bandinu. Strangtrúaðir múhameðstrúarmenn staðhæfðu að gengið væri þarna í berhögg við kennisetningar Islam. Fyrir tveimur mánuðum var svo nefndur úrskurður kveðinn upp. Forsendur voru að Sadat - forseti hefði með setningu þeirra farið út fyrir verksvið sitt. Dóm- aramir tóku á hinn bóginn fram að einungis lagalegar forsendur væru fyrir þessari niðurstöðu og engin afstaða væri tekin um efni laganna sjálfra. Undanfarið hefur svo næsta keimlíkt frumvarp verið í egypska þinginu og er búizt við að það verði að lögum, þrátt fyrir andstöðu margra hópa, ein- kum strangtrúarmanna. Þó svo að frumvarpið verði að lögum og staðan breytist því varla hafa kvennasamtök tendr- ast upp og látið hressilega í sér heyra. Þær hafa vitnað til laga um hjónabönd frá árinu 1929 og notað tækifærið til að rifja upp skelegga kvennabaráttu i Egyptalandi um áratugi. Ekki er vafi á því að samkvæmt lögum hafa konur í Egyptalandi langt- um meiri rétt en í öðrum Araba- löndum og þær áttu áður og fyrrum mjög skeleggar baráttu- konur. Brautryðjendur voru Hoda Shariwi og Ceza Nabarawi. Þær hófu áróður fyrir að konur fengju kosningarétt um það bil að fyrri heimsstyrjöldinni var að Ijúka. Málflutningur þeirra fékk góðan hljómgrunn og Egyptar sendu fyrstu kvennasendinefnd á alþjóðlega ráðstefnu um kvenréttindi í Rómaborg 1923. Fulltrúarnir voru þær tvær kon- ur sem áður voru nefndar og sú þriöja hét Nabawia Moussa. Sendinefndinni var tekið á Italiu af forvitni og áhuga og heima fyrir var fylgst fjálglega með störfum ráðstefnunnar. Ceza Nabarawi hafði lengi litið svo á að blæja egypskra kvenna væri eitt kúgunartáknið og eftir að þær stöllur lögðu af stað heim- leiðis frá Rómaborg ákváðu þær að hætta að fela andlit sitt. Þeg- ar þær stigu úr járnbrautarlest- inni í Kairó voru þær blæjulaus- ar. Frásagnir þessa tíma bera með sér að þetta hefur verið róttæk aðgerð þá og borið vott um mikla dirfsku. Þúsundum saman fóru egypskar konur nú að dæmi þeirra, sviptu brott blæjunni og tóku þátt í fundum og mótmælagöngum um Egypta- Frumkvöólar kvennabaríttu í Egyptalandi, Ceza Nabarwi og Hoda Shariwi. Myndin er tekin skömmu eftir að þær komu fri Rómar-ráðstefnunni. Jihan Sadat og Ceza Nabarawi land þvert og endilangt. Þessi barátta mæltist misjafnlega fyrir hjá körlum, en margir reyndu eftir föngum að laga sig að „breyttum viðhorfum" eins og Hoda Shariwi komst að orði síð- ar. Þær hófu svo útgáfu fyrsta kvennréttindaritsins, L’Egypti- enne, og kom það út í 15 ár. I ritinu birtust greinar um pólitík, menningarmál, félagsleg efni og almenn réttindamál. Út- gáfan varð kvennahreyfingunni til mikils framdráttar og mikið líf var í starfseminni. Á undan- förnum áratug eða svo hefur smátt og smátt verið að draga mátt úr kvennasamtökunum og Nawal el-Saadawi segir að staða kvenna hafi versnað og þátttaka þeirra í atvinnulífi og stjórnmál- um sé ekki í samræmi við fjölda þeirra. Þrátt fyrir að konur leggi stund á háskólanám í æ ríkari mæli eru tiltölulega fáar sem færa sér síðan menntun sína í nyt. „Þær hverfa inn á heimilin og láta koma fram við sig eins og ambáttir" eins og Nawal orðar það. Hún bendir á að ein kona sitji í 32ja manna ríkisstjórn og af 458 fulltrúum á þinginu eru aðeins þrjátíu konur. I þjónustu hins opinbera eru tiltölulega fá- ar konur í æðstu stöðum. Eg- ypsku kvenréttindasamtökin benda þó á þann fjölda kvenna sem leggur stund á háskólanám. Fyrir um þrjátíu árum voru í há- skólanámi örfá prósent, en er nú liðlega helmingur. Augljóst er að áhrif strangtrúarmanna hafa eflst í landinu frá láti Sadats. En Naw- ali rekur upphaf hnignunar sam- takanna til Yom Kippur-stríð- sins árið 1973. Það hafi síöan allt færzt í aukana eftir breytinguna í íran og nú er það algeng sjón að sjá konur í Egyptalandi hylja hár sitt og klæöast búningi sem að mati strangtrúarmanna er nær hefðinni en galgopalegur búnaður sem flestar egypskar konur nota þó enn. Nabal el Saadawi hefur setið í fangelsi vegna róttækra skoð- ana, ekki sízt í trúmálum. Hún segir að eftir alvarlegt hnignun- arskeið séu egypskar konur að rumska aftur og þrátt fyrir allt hafi starf brautryðjendanna ekki verið unnið til einskis. Hún segir að það hafi að vísu töluverð áhrif hvernig kona þjóðhöfð- ingja er hverju sinni. Kona Nassers, Thiya, sást sjaldan á al- mannafæri. Jihan Sadat var mjög afdráttarlaus baráttukona fyrir auknum rétti kvenna og tók virkan þátt í stjórnmálum og hvers konar félagsmálum. Vegna þess var hún dáð á Vesturlönd- um, umdeild meðal epypskra kvenna og litin hornauga af eg- ypskum karlmönnum. Suzanne Mubarak, núverandi forsetafrú, hefur verið virk í félagsmálum en lætur lítið fara fyrir sér á opinberum vettvangi. Sumir orða það svo að hún vilji forðast að gera ámóta skyssur og Jihan Sadat vegna þess að hún vilji forðast gagnrýni sem kynni þá einnig að beinast að Mubarak og staða hans er veik fyrir. (Heimild AP, Woman in Ibe Arab Republic og Kpypl ofl.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.