Morgunblaðið - 10.07.1985, Síða 28

Morgunblaðið - 10.07.1985, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1985 Ný og fullkomin kjötyinnslustöð Hafnar hf. á Selfossi: Framleiðir gæðavörur eftir þýskum uppskriftum SelfoMj, 1. júlí. w X. JL ÚRVINNSLA landbúnaðarafurða austan Hellisheiðar er umræðuefni sem ávallt er ofarlega á baugi á Suðurlandi og sérstaklega á Sel- fossi. Höfn hf. á Seifossi hefur tek- ið forystu í þessum efnum með nýrri og fullkominni kjötvinnslu sem einstæð er í sinni röð. Kol- beinn I. Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Hafnar hf., og Björn lngi Björnsson, framleiðslustjóri, kynntu starfsemi stöðvarinnar fyrir skömmu. Höfn hf. á 60 ára starfsafmæli á þessu ári og hefur um árabil rekið sláturhús, kjötvinnslu og verslun á Selfossi. Höfuðstöðvar Hafnar hf. eru gegnt ölfusárbrú, við Tryggvatorg. Kjötvinnslan var opnuð 22. sept. 1984 eftir eins árs undir- búning. Stöðin hefur nú verið starfrækt í 9 mánuði og af full- um krafti sl. 6 mánuði. Kjöt- vinnslan stendur við Gagnheiði en sláturhús og verslun eru í höfuðstöðvunum við Tryggva- torg. Kjötvinnslustöð Hafnar getur afkastað um 1 tonni af unnum kjötvörum á dag. Stöðin er hönn- uð í Þýskalandi af fyrirtækinu C.E. Reich í Stuttgart sem lét Höfn hf. í té allan vélabúnað og með í kaupunum fylgdu upp- skriftir og sérþekking á fram- leiðslu. Stöðin er búin öllum nýtísku- legustu og bestu tækjum sem fá- anleg eru. Þar eru t.d. sérhann- aðir reykofnar fyrir hangikjöt sem eru þeir einir sinnar teg- undar á landinu. Vinnslulínan sem hráefnið fer eftir þar til úr verður fullunnin vara er mjög góð og hin fullkomnu tæki gera það að verkum að vinnslutími hinna ýmsu vörutegunda styttist til muna, um 2—3 daga í sumum tilfellum Kjötvinnslustöð Hafnar er sérstök varðandi hönnun einkum vegna þess að hún er hönnuð af sérfræðingi og fagmanni í kjöt- vinnslu. Innréttingar hússins, tæki og fyrirkomulag vinnslu- línu eru hönnuð af sama manni, sem er matvælaverkfræðingur. Auk þessa sá hann um þjálfun starfsmanna stöðvarinnar. Fullyrða má að með byggingu og starfrækslu kjötvinnslunnar hefur Höfn hf. flutt inn í landið dýrmæta þekkingu sem stuðlar að verðmætaaukningu landbún- aðarvara. Með í kaupum stöðvarinnar fylgdu uppskriftir af matar- og áleggspylsum og skinku. Þessar nýju uppskriftir gera að verkum að vörur sem unnar eru eftir þeim eru ekki í boði frá öðrum vinnslustöðvum. Höfn hf. hefur t.d. einkarétt á flestum þeim kryddtegundum sem notaðar eru í framleiðslunni. Höfn hf. er með stærri fyrir- tækjum á Suðurlandi. Heildar- velta fyrirtækisins var tæpar 130 milljónir á sl. ári. Starfs- menn eru 52, þar af vinna 12 manns að jafnaði í Kjötvinnslu- stöðinni. Sig. Jóns. Kolbeinn Kristinsson framkvæmdastjóri: „Stöðin er byggð til að styrkja úrvinnslu landbúnaðarafurða“ Selfossi l.júlí. HÖFN hf. hefur farið víða um land til að kynna framleiðslu fyrirtækisins og tók m.a. þátt í íslenskri vörukynningu Hag- kaups. Sölustjóri kjötvinnslunn- ar hefur aðsetur í stöðinni og sölukerfið er unnið í tölvu. „Þessi kjötvinnslustöð okkar er byggð til þess að styrkja úr- vinnslu landbúnaðarafurða á Suðurlandi. Hjá okkur var fyrir hendi sláturhús og vinnsla á hefðbundnum vörum. En þessi vinnsla skapar aukin verðmæti afurðanna og eykur atvinnu á svæðinu," sagði Kolbeinn I. Kristinsson framkvæmdastjóri Hafnar hf. um það framtak fyrirtækisins að byggja full- komna kjötvinnslustöð. „Auk þess eykur þetta mennt- un starfsfólksins og skapar fag- mennsku sem ekki var til áður við vinnslu á gæðavörum. Það liggur mikil vinna að baki þessarar stöðvar en stofnanir og allir aðilar sýndu málinu áhuga og vil ég í því sambandi sérstak- lega nefna Þorstein Pálsson al- þingismann og heildverslun Valdimars Gíslasonar sem kom okkur í samband við Reich-fyr- irtækið í Þýskalandi," sagði Kolbeinn. Hann sagði og að mikil áhersla hefði verið lögð á það að þekking væri til staðar þegar starfsemi hófst. Það varð svo til þess að sendur var þrautreyndur maður í nám og starfar hann nú sem framleiðslustjóri við stöð- ina. Síðan er alltaf opinn sá möguleiki að senda menn út til Þýskalands í nám eða að fá mann hingað upp til að starfs- menn geti fylgst með nýjungum í framleiðslunni. Kolbeinn lagði áherslu á að þessi tilhögun legði grunn að vörugæðum og fjölbreytni í framleiðslu. Sig. Jóns Kolbeinn I. Kristinsson framkvæmdastjóri Hafnar ásamt Hólmfríði Kjartansdóttur sölustjóra. Björn framleiðslustjóri og nemarnir með gómsætar vörur. F.v. Helgi G. Helgason, Birgir Haraldsson, Björn I. Björnsson og Gnðrún Haraldsdóttir. Þýsku uppskriftirn- ar nýjung hér á landi SelfoHMÍ. I. júlí. MEÐ starfrækslu fullkominnar kjötvinnslu hefur Höfn hf. riðið á vaðið með nýjungar í framleiðslu. Það er Björn Ingi Björnsson sem stjórnar framleiðslunni og hefur nú þegar tekið til sín þrjá lærlinga, en áhersla er lögð á að fagfólk vinni við framieiðsluna. „Vinnslulínan hérna er mjög góð,“ sagði Björn, „kjötið kemur inn í stöðina í öðrum enda stöðv- arinnar og fer út fullunnið í hin- um endanum. Björn rak áður kjötbúð Suður- vers í Reykjavík. Hann fór til Þýskalands í nám hjá Þjóðverj- unum og kynntist starfsemi og skipulagi þar. En nokkuð óvenjulegt er að Þjóðverjar hleypi öðrum inn á gafl hjá sér hvað þá að þeir láti í té leynd- ardóma uppskriftanna. Hann kvað þessa þekkingu koma sér vel því margt mætti læra af Þjóðverjum. í kjötvinnslustöðinni eru framleiddir 7 flokkar af áleggs- pylsum eftir þýskum uppskrift- um ásamt 6 mismunandi mat- arpylsum og 3 tegundum af skinku. Vörur þessar kitla bragðlaukana til muna og skink- an hefur t.d. slegið í gegn og stendur ekki við í kælum stöðv- arinnar. Auk þess að framleiða eftir þýsku uppskriftunum er önnur hefðbundin kjötfram- leiðsla í stöðinni. Björn lagði á það áherslu að við framleiðsluna í stöðinni væri eingöngu notað ekta hráefni, kjöt, vatn og krydd, nokkuð sem Þjóðverjar hefðu í hávegum. Þýsku uppskriftirnar sagði hann nýjung hér á landi og eingöngu framleitt eftir þeim í Höfn og þeir hefðu einkarétt á þeim kryddtegundum sem notaðar væru. Björn sagði það mikið atriði að geta gengið að framleiðslunni eftir ákveðinni forskrift en þurfa ekki að þreifa sig áfram. Slíkt kæmi neytendum mjög vel og skapaði öryggi í framleiðsl- unni. f stöðinni eru nú þrír lær- Iingar í námi og víst er að í full- kominni vinnslustöð fá þeir mun betri menntun en ella. Unnið er eftir fyrirmynd frá Þýskalandi og er vinnutíminn frá kl. 7 að morgni til 16, með fríu fæði sem framreitt er á staðnum. Þá er öll aðstaða starfsfólks í stöðinni til fyrirmyndar. Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.