Morgunblaðið - 10.07.1985, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. jULl 1985
29
Ættarmót
niðja Jóhanns
og Sigurlaugar
á Skarði
Niðjar hjónanna Jóhanns Bessa-
sonar og Sigurlaugar Einarsdóttur,
hyggjast halda sttarmót að Skarði í
Dalsmynni og á Grenivík dagana
2.-4. ágúst nk.
Bjuggu þau Jóhann og Sigur-
laug á Skarði seinni hluta nítj-
ándu aldar og fram á þessa öld.
Eru niðjar hjónanna orðnir 650
talsins, séu makar taldir með, og
flestir þeirra enn á lífi.
(Úr fretutilkynninjíu frnmkvrmduiefndar
mótsins.)
„Tvímælalaust á að nýta
Víðivelli undir stórmótu
MorgunblaÖiÖ/V aldimar
Gunnar Dungal í góðum félagsskap tveggja blómarósa sem aðstoðuðu hann
við afhendingu verðlauna, en þter eru til vinstri Arna Matthiesen og Viktoría
Marínusdóttir.
var lagður í aðstöðu fyrir dans-
leikjahald en það skilaði sér ekki
til baka í þeim mæli sem vonast
hafði verið til. Miðaverðið, 750
krónur, var í fullu samræmi við
það sem verið hefur á sambæri-
legum mótum svo varla hefur það
fælt fólk frá, umfram það sem er
venjulega. Við selduin sér inn á
böllin og virtist það ekki falla í
góðan jarðveg en þess má geta að
þegar slík mót eru haldin á lands-
byggðinni, eins og til dæmis á
Kaldármelum eða Melgerðismel-
um, og víða eru yfirleitt sætaferð-
ir á dansleiki í næsta nágrenni.
Fólk þarf að borga fyrir ferðirnar
og síðan inn á ballið, ætli það séu
ekki fimm hundruð krónur eða
meira í dag, og svo borgar þetta
fólk sig einnig inn á mótið og
þetta þykir ekkert mál. Við héld-
um aftur dansleiki á mótsstaðnum
og kostaði 300 krónur inn á hann
sem átti að ganga upp í kostnað-
inn við gerð aðstöðunnar fyrir
dansleikinn."
— Hvernig hyggist þið mæta
þessu tapi?
„Það er til Fjórðungsmótasjóð-
ur sem er ætlaður til að mæta
tapi, ef verður, á slíkum mótum.
Þessi sjóður er þannig tilkominn
að þegar ágóði er af þessum mót-
um er greiddur í hann ákveðinn
hluti og þeir fjármunir geymdir til
mögru áranna. Við munum sjálf-
sagt leita til sjóðsins en mér skilst
að í honum séu um 300 þúsund
krónur. Einnig munum við leita
allra hugsanlegra leiða til að bæta
stöðuna, við erum t.d. að reyna að
semja við lánardrottna og einnig
er verið að koma ýmsum hlutum
sem Fjórðungsmótið á í verð. Þeg-
ar upp verður staðið er ekki víst
að þetta verði svo stór upphæð
sem kemur í hlut hvers félags að
greiða en það voru fimmtán hest-
amannafélög sem stóðu að þessu
móti og verður tapinu skipt jafnt
á milli þeirra.“
— Telur þú að fenginni þessari
reynslu leggjandi út í annað sam-
bærilegt mót eða Landsmót hér á
þessum stað?
„Ég tel að tvímælalaust eigi að
stefna að slíku, því hér er búið að
byggja upp það góða aðstöðu að ég
tel ekki verjandi annað en hún
verði notuð undir stórmót. Ég hef
alltaf verið þeirrar skoðunar að
staðir fyrir stóru mótin eigi að
vera fáir en að sama skapi betri.
Annað sem vert er að nefna í
þessu sambandi er að allt það fólk
sem lagði hönd á plóginn nú hefur
öðlast dýrmæta reynslu sem ég tel
sjálfsagt að nýta á komandi ár-
um.“
— Að lokum Gunnar, ert þú
ánægður með mótið og á ég þá við
sýningarnar og hestakostinn?
„Það verður að segjast eins og
er að ég sá lítið af því sem fram
fór, en það litla sem ég sá var ég
ánægður með. Hestakosturinn var
mjög góður að mati flestra. Við í
framkvæmdanefndinni vorum
vissir um að öll hrossin að undan-
skildum kynbótahrossunum væru
góð en ég held að þau hafi ekki
brugðist frekar en önnur hross á
mótinu og hafa sennilega aldrei
verið jafngóð kynbótahross á
Fjórðungsmóti."
Félag smábátaeigenda
í Reykjavík;
Mótmælir helg-
arróðrabanninu
Morgunblaðinu hefur borist und-
irskriftalisti frá Félagi smábátaeig-
enda í Reykjavík þar sem métmælt
er helgarróðrabanni því, sem Sjávar-
útvegsráðuneytið setti á róðrabáta
undir 10 lestum.
Auk þess benda hinir 24 smá-
bátaeigendur, sem undir skjalið
skrifa, á það að íslensk veðrátta
sjái alveg um sókn þeirra.
> "
Atli Olafsson, eigandi Bílaverkstæðisins Stimpils.
Bflaverkstæðið Stimpill tekur tii starfa
Að Auðbrekku 30 í Kópavogi, hefur verið opnað
Bflaverkstæðið Stimpill, sem sérhæft hefur sig í við-
gerðum Lada-bifreiða.
Auk þess mun þar gert við flestar aðrar tegundir
bíla, séð um almennt viðhald, smærri réttingar og
þess háttar. Eigandi Bílaverkstæðisins Stimpils er
Atli Ólafsson.
— segir Gunnar Dungal formaður framkvæmda-
nefndar Fjórðungsmótsins í Reykjavík
Ljóst mun nú vera að hallinn á nýafstöðnu Fjórðungsmóti er á bilinu fimm
til sjö hundruð þúsund krónur og vekur þetta mikla athygli því það mun
ríkjandi skoðun að mótið sé það besta sinnar tegundar. Mikið var lagt undir
til að gera hlutina sem besta úr garði og þrátt fyrir að veður hafi ekki verið
alveg í samræmi við óskir mótshaldaranna tókst vel til með alla framkvæmd.
Til þess að dæmið gengi upp þurfti um átta hundruð til eitt þúsund fleiri
mótsgesti og nú brennur sú spurning á vörum margra hvers vegna áætlanir
um fjölda mótsgesta brugðust. Einn af þeim sem veltir þessu fyrir sér er
Gunnar B. Dungal, formaður framkvæmdanefndar mótsins, og var hann
inntur eftir því hvað hann teldi líklegasta svarið við þessari spurningu.
„Það mun nú ljóst að 4.500
manns borguðu sig inn á mótið en
við gerðum okkur vonir um svona
8—10 þúsund manns og tókum við
þá mið af öðrum fjórðungsmótum
undanfarin ár og var þá tillit tekið
til nálægðar þéttbýlisins. Starfs-
fólk við mótið hefur verið um 700
og boðsgestir um 100. Einnig leik-
Ferðamálaráð:
Gel'ur út
bækling um
silungsveiðar
FERÐAMÁLARAÐ hefur gefið út
litprentaðan bækling á ensku um sil-
ungsveiðar á íslandi. Bæklingurinn
ber heitið „Angling in Iceland", átta
síður að stærð þar sem f máli og
myndum er vakin athygli á hinum
margvíslegu möguleikum á fiskveiði
hér á landi, öðrum en laxveiði. í
bæklingnum er einkum fjallað um
silungsveiði, en einnig vikið að
möguleikum á sjóstangaveiði.
Bæklingurinn er gerður í sam-
ráði við Landssamband veiðifé-
laga, sem lét gera sérstakan fylgi-
bækling, þar sem sagt er frá sil-
ungsveiði á sjö tilteknum stöðum,
Brúará, Hreðavatni, Vatnsdals-
vatni, Hnausatjörn, Höfðavatni,
Laxá í Aðaldal ofan brúar og
Eiðavatni. Þessum fylgibæklingi
er ætlað að gefa sýnishorn af þeim
möguleikum serh bjóðast i sil-
ungsveiði hér á landi.
„Angling in Iceland“ er prentað-
ur í 50 þúsund eintökum. Hluta
upplagsins hefur þegar verið
dreift í samvinnu við Iceland
Review. Að öðru leyti verður
bæklingnum einkum dreift fyrir
milligöngu sportveiðifélaga og
klúbba á meginlandi Evrópu og í
Bandaríkjunum. Ferðamálaráð
hefur til athugunar að láta einnig
prenta þennan bækling á þýsku og
dönsku, norsku eða sænsku.
Ferðamálaráð gerir sér vonir um,
að sú athygli sem vakin er á þessu
á erlendum vettvangi, verði til að
auka tekjur þjóðarinnar af erlend-
um ferðamönnum og veiti þeim
jafnframt aukna ánægju af dvöl-
inni hér.
(Úr rrétutilkynningu.)
ur grunur á að hátt í 500 manns
hafi svindlað sér inn á svæðið
þrátt fyrir að það væri girt með
neti og tveimur gaddavírsstrengj-
um, í það minnsta sáust margir á
laugardagskvöldið með rifin botn
á buxum. Þannig má telja að
fjöldinn sem kom á mótsstað hafi
verið hátt í sex þúsund.
Við teljum okkur hafa náð á
mótið þessum harða kjarna hesta-
manna víðsvegar að sem við vor-
um alltaf öruggir með. En það sem
brást að mínum dómi var fjöl-
skyldufólkið á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu. Við reiknuðum með að
fólk kæmi með krakkana sína þótt
það væri ekki sjálft í hesta-
mennsku.
Það var ætlun okkar sem að
þessu móti stóðum að halda gott
mót sem greinilega hefur tekist en
það var líka ætlunin að láta það
standa undir sér og rúmlega það.
Það er í sjálfu sér vandalítið að
halda glæsilegt mót ef ekki þarf
að hugsa um peningahliðina á
málinu og standa svo uppi með
langan skuldahala. Reynt var að
sjálfsögðu að halda öllum kostnaði
niðri eins og frekast var unnt.
Dansleikirnir brugðust sem
tekjulind en töluverður kostnaður
Stórkostleg sumarútsala
á barnafatnaði
afsláttur
*S1
Armúla 1 A. S. 91-686113.