Morgunblaðið - 13.10.1985, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. OKTÓBER1985
B 13
sneyðingu og pökkun telur hann
alltof mikinn. „Þá finnst okkur
flutningskostnaðurinn á mjólk-
inni, sem við greiðum sjálfir, alltof
hár. Við borgum í dag jafnmikið
fyrir hvern lítra af mjólk héðan
niður á Hvammstanga, sem er
fimm kílómetra vegalengd, og við
greiðum fyrir hvert kg. af fóður-
bæti i flutningi alla leið frá
Reykjavík. Ég held að það megi
lagfæra ýmislegt í sambandi við
kostnaðarþættina í mjólkurbú-
skapnum. Við fáum til dæmis
borgað meira fyrir mjólkina yfir
vetrarmánuðina og þrátt fyrir
hækkanir í vor fengum við 50 þús-
und krónum minna fyrir mjólkina
í júnímánuði síðastliðnum en fyrir
maímánuð.
Fallþungi ungnauta af
GaJloway-kyni 200 kg
Meðalnyt úr kú er um 4.000 lítr-
ar á ári, en góð kýr gefur af sér
allt að 5.000 til 6.000 lítra. Auk
mjólkurbúskapar rækta þeir bræð-
ur holdanaut og eru með gullfal-
legar skepnur, blendinga af
Jón í mjaltagryfjunni.
Galloway-kyninu frá Hrísey.
Nokkrir ungir tuddar um 20 mán-
aða að aldri fara til slátrunar nú
í haust og sögðu þeir fallþunga
hvers þeirra u.þ.b. 200 kg. Þá hafa
nokkrir kálfar gengið undir kú af
sama kyni í sumar og það gefið
góðan árangur, að þeirra sögn.
Holdanautin sögðust þeir geyma í
húsi, ekki taka áhættuna af að
sleppa þeim, enda tarfar dyntóttir,
þó ekki hafi þeir sýnt af sér að
vera mannýgir innandyra.
Þeir bræður hófu búskap árið
1973. Nýja hjarðfjósið byggðu þeir
á árunum 1975 til 1979, en áður
voru þeir með 22 kýr í tveimur
fjósum. Friðrik sagði, að þeir
hefðu byggt það sjálfir svo til
einir, þannig að lán og styrkir
hefðu dugað og vel það fyrir öllum
efniskaupum. Á sama tíma og þeir
byggðu fjósið reisti annar bróðir-
inn, Jón, einbýlishús á jörðinni.
— En hvað með vaxtabyrði? Nú
fer hún illa með marga bændur,
sem staðið hafa í stórframkvæmd-
um eins og þið. „Vextirnir eru
ekkert mál hjá okkur. Miðfjarð-
aráin sér um vaxtabyrðina. Við
eigum 56 einingar af 1.200 í veiði-
réttindum og það stendur alveg
undir vöxtum."
Kúabúskapur betur á vegi
staddur en kindabúskapur
Varðandi afkomu almennt sagði
Friðrik: „Ég tel að kúabúskapur
sé betur á vegi staddur en kindabú-
skapur. Það er alltof lítið gert til
að selja kindakjöt, öll umræða er
fremur andsnúin því. Við þurfum
aðeins að líta á, hvernig staðið er
að verki hjá svína-, og kjúklinga-
bændum. Þeir standa sig vel í
framleiðslu alls kyns skyndirétta
og auglýsa sína vöru stöðugt. Ég
held að það sé mjög hættulegt að
fækka sauðfé meira en orðið er.
Ef það er gert þá hrynja byggða-
lögin, þvi bændur geta ekki lifað
á minni búum en þeir reka nú. Ef
þeir eru neyddir til þess þá hætta
þeir frekar og það er lítið spenn-
andi að búa í sveitum þar sem allt
er að leggjast í auðn í kringum
mann.“
Ókostir kúabúskapar
hverfa með félagsbúskap
Þeir bræður tóku fram í lokin
að velgengni þeirra byggðist fyrst
og fremst á því að ekkert óvænt
hefði komið upp á, en í búskap
mætti lítið bera út af til að strik
kæmi í reikninginn. Þá sögðu þeir
afkomuna ekki síst byggjast á því
hversu mikið þeir hefðu unnið
sjálfir við uppbygginguna. Aðal-
kosturinn við félagsbúskap er að
þeirra sögn sá, að þeir eru engan
veginn eins bundnir og aðrir
bændur sem reka kúabúskap. Þeir
geta leyft sér að stunda aðra vinnu,
auk þess sem unnt er að komast
að heiman með fjölskylduna annað
slagið, en ókosturinn við kúabú-
skap mun heistur vera sá að sinna
þarf kúm og mjalta kvölds og
morgna, hvort sem á dagatalinum
stendur mánudagur, sunnudagur
eða hvaða annar dagur ársins sem
rennur upp.
Texti/FRÍÐA PROPPÉ
Ljósm./MATTHÍAS PÉTURSSON
gullfallegt
postulínskaffistell
með gyllingu.
Sænsk gæðavara.
Hafnarstræti 11
sími 13469
Verðlisti, október 1985
Ariston, kæliskápar án með
Teg. Lítr. Hæð Br. Dýpt sölusk. sölusk.
sm sm sm Kr. Kr.
DF-230 230 139 55 58,5 14.570 18.210 (20.945)
DF-280 280 160 55 60 15.345 19.180 (22.430)
DF-330 330 165 60 60 18.520 23.150 (26.620)
DF-330 3T 330 165 60 60 22.570 28.210 (32.445)
MP-220 220 122 55 60 13.310 16.640 (19.130)
ME-220 220 122 55 60 11.300 14.125 (17.495)
ME-140 140 85 50 60 10.160 12.700 (14.600)
Ariston, Combineraðir Kæli/Frystiskápar
RF-290/80 280 155 55 60 19.405 24.255 (27.895)
Rf-340 340 180 60 60 25.625 32.030 (36.840)
Ariston, þvottavélar
WM-800 TXDE 85 60 55 18.625 23.280 (26.775)
WM-810 TXDE 85 60 55 18.675 23.345 (26.845)
Kjölur sf.
Hverfisgata 37, símar 21490 og 21846.
Keflavík: Víkurbraut 13,92-2121.