Morgunblaðið - 13.10.1985, Page 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. OKTÓBER1985
Fisk- og
grænmetishlaup
Kona kom að máli við mig og bað mig að birta uppskriftir af fisk- og grænmetishlaupi.
Henni þætti hlaup svo gott. Hún vildi helst hafa eitthvað einfalt og nota þá pakka, sem
matarlím er í og sleppa við að nota matarlímsblöð. Matarlím fæst nú orðið víða í
„duftformi" og finnst mörgum það hentugt. Ein tsk. af dufti jafngildir einu blaði af
matarlími. Pakkar með hlaupi eru yfirilett ætlaðir til að nota eins og þeir koma fyrir,
aðeins bæta í þá vatni, en þá má bæta á ýmsan hátt með því að setja í þá krydd, grænmeti,
fisk og kjöt og nota þá soðið af þessum afurðum í stað vatns.
Ég á það sameiginlegt með þessari konu, að mér finnst allt sem matarlím er í, mjög
gott. Þegar ég var barn sótti ég í að tyggja matarlímsblöð og mér var leyft það. Sagt var
að mig vantaði einhver efni sem væru í matarlíminu. Eitt er víst, mig „vantar" þau ekki
lengur. Núna fyrir nokkrum árum langaði mig til að aðgæta hvort eitthvað væri eftir af
þessari lyst minni. Ég stakk
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
upp í mig bita af matarlíms-
blaði en var fljót að láta það
út úr mér aftur, eða það sem
vildi fara, sumt af því ætlaði
ég ekki að geta losað úr munn-
inum aftur.
Þegar ég var að alast upp á
Seyðisfirði, var algengt að
konur drýgðu tekjur heimil-
inna með því að þurrka
sundmaga úr fiski. Konurnar
fengu þá ókeypis, þvoðu í
lækjum og hengdu til þerris á
girðingar. Voru girðingar víða
þaktar þessum hvítu sneplum.
Mér var sagt að þetta væri
ætlað til útflutnings og væri
notað í matarlím. Fleira er þó
notað til framleiðslu á matar-
lími en sundmagar úr fiski.
Þetta er protein sem unnið er
úr dýrabandsvef, sinum,
kjötbeinum, hófum o.fl. Einn-
ig er þetta hleypiefni unnið úr
ýmsum jurtum.
Hlaup meö ýsu og rjóma
Handa 3—4
500 g soðin ýsa
1 peli rjómi
1 dós sýröur rjómi
V* tsk. pipar
væn grein ferskt dill eða 2 tsk. þurrkað
1 pk. ljóst hlaup (buljong-gelé aspic 23 g)
1. Sjóðið ýsuna í litlu saltvatni, kælið og
setjið í kvörn (mixara) eða merjið fínt
með gaffii.
2. Leysið hlaupduftið upp í 4 dl af ýsu-
soðinu. Látið kólna alveg án þess að
hlaupa saman. Setjið pipar og dill út í.
4. Blandið saman ýsu, þeyttum rjóma,
sýrðum rjóma og soðinu. Hellið í mót.
Setjið í kæliskáp og látið stífna í
minnst 6 klst.
5. Dýfið mótinu augnablik í sjóðandi
vatn og hvolfið á fat.
Meðlæti: Önnur tveggja sósa sem birt-
ast hér á eftir, einnig tómatar, gúrkur,
blaðsalat og ristað brauð.
Þessi uppskrift er úr bók minni „220
gómsætir sjávarréttir". Ef ykkur finnst
of mikið mál að raða þessu eins og hér
segir má að sjálfsögðu setja allt í skál og
hella safanum með matarlíminu yfir.
Heilagfiski í tómathlaupi
Handa 6
V6 kg beinlaust heilagfiski
2 dl vatn
3 dl mysa
2 tsk. gróft salt
'h lítri tómatdjús (juice)
1 lítill laukur
6 svört piparkorn
1 lárviðarlauf
7 blöð matarlím
100 g soðnar grænar baunir
1 dl makkarónur
4 harðsoðin egg
1. Hitið vatn, mysu og salt, sjóðið
fiskinn í soðinu í 7—10 mínútur. Takið
hann síðan upp úr og kælið.
2. Setjið tómatdjús í pott, setjið pipar-
korn, laukinn í sneiðum og lárviðar-
laufið út í og sjóðið í 5 mínútur. Síið
tómatdjúsið síðan á sigti.
3. Sjóðið makkarónurnar í saltvatni, síið
og kælið, síið baunirnar, harðsjóðið
eggin, takið skurnina af þeim og kæl-
ið, skerið síðan í sneiðar.
4. Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn
í 10 mínútur. Vindið síðan upp úr
vatninu og bræðið í heitu tómatdjús-
inu. Kælið, en látið ekki hlaupa sam-
an.
5. Setjið 3 msk. af tómatdjúsinu í
hringmót, stingið því í frystihólfið á
kæliskápum og snöggkælið. Leggið
eggin í sneiðum ofan á hlaupið og upp
með börmunum að utanverðu. Raðið
fiskfitunum ofan á eggin, hellið kældu
tómatdjúsinu yfir fiskinn. Setjið aftur
í frystihólfið, þar til þetta er hlaupið
saman. Leggið þá grænu baunirnir á,
hellið kældu soðinu yfir þær, kælið á
ný, leggið makkarónurnar ofan á,
hellið kældu soði yfir þær. Setjið í
kæliskáp og látið stífna í 6 klst.
6. Skerið niður með börmum mótsins,
dýfið síðan augnablik í sjóðandi vatn
og hvolfið á fat.
Meðlæti: önnur tveggja sósa, sem birt-
ast hér síðast í þættinum. Einnig ristað
brauð.
Sprotakál (brokkoli) með
eggjum og dökku hlaupi
Handa 4
1 pk. hlaup (buljong-gelé aspic 23 g)
250 g sprotakál (má nota blómkál)
3egg
6 piparkorn
5 allrahandakorn (má sleppa)
1 lárviðarlauf
5 dl vatn
1 tsk. aromat
1. Sjóðið vatnið ásamt piparkornum,
lárviðarlaufi og allrahandakornum.
Leggið kálið í sjóðandi vatnið. Sjóðið
við hægan hita í 7 mínútur. Takið upp
úr soðinu og skerið 1 sundur í litla
bita.
2. Harðsjóðið eggin, kælið og takið af
þeim skurnina, skerið síðan í frekar
stóra bita.
3. Setjið kálið og eggin í hringform eða
annað hentugt form eða skál.
4. Leysið hlaupduftið upp í soðinu. Takið
kryddið úr soðinu, setjið aromat út í.
Hellið yfir kálið og eggin í forminu.
Látið kólna en setjið síðan í kæliskáp
og látið stífna i minnst 6 klst.
5. Skerið niður með hlaupinu með hníf.
Dýfið forminu augnablik í sjóðandi
vatn og hvolfið á fat.
Meðlæti: Önnur tveggja sósa sem birt-
ast hér síðast í þættinum og ristað
brauð.
Blaðlaukur með Ijósu hlaupi
Handa 4
1 pk. hlaup (buljong-gelé aspic 23 g)
1 meðalstór blaðlaukur
6 svört piparkorn
1 lárviðarlauf (má sleppa)
lh tsk. korianderkorn
1—2 tsk. sítrónusafi
5 dl vatn
1 tsk. fondor
1. Skerið ofan af blaðlauknum það sen.
er gróft og ljótt.
2. Kljúfið laukinn og þvoið vel undir
rennandi vatni.
3. Skerið síðan í u.þ.b. 4 sm þykkar
sneiðar.
4. Hitið vatn ásamt piparkornum, kori-
anderkornum, lárviðarlaufi og sítr-
ónusafa. Látið sjóða við hægan hita í
10 mínútur.
5. Leggið blaðlaukssneiðarnar í vatnið
og látið sjóða við hægan hita í 7 mín-
útur. Takið þá blaðlaukinn upp úr
vatninu með spaða og leggið í hring-
form eða annað form sem ykkur hent-
ar.
6. Síið soðið. Leysið síðan soðhlaupsduft-
ið upp í vatninu og hellið yfir blað-
laukinn. Látið kólna nokkuð en setjið
síðan í kæliskáp og látið vera þar í
minnst 6 klst.
7. Skerið niður með hlaupinu, dýfið síð-
an augnablik í sjóðandi vatn og hvolf-
ið á fat.
Meðlæti: Önnur tveggja sósa sem birt-
ast hér síðast í þættinum og ristað
brauð.
Sósa með fiski- eða
grænmetishlaupi nr. I
1 dós sýrður rjómi
1 msk. olíusósa (mayonaise)
1 msk. sweet relish
1 msk. tómatsósa
5 dropar tabaskósósa
Hrærið allt saman og setjið í skál.
Sósa með fiski- eða
grænmetishlaupi nr. II
4 dl súrmjólk
1 msk. olíusósa (mayonaise)
1 tsk. fiskkrydd (fish seasoning)
1 msk. smátt saxaður ferskur graslaukur
eða 2 msk. þurrkaður
5 dropar tabaskósósa
1 tsk. karry
1. Síið súrmjólkina í kaffipappírspoka
í 2—3 klst.
2. Hrærið súrmjólk og olíusósu saman,
setjið síðan allt hitt saman við og hrærið
saman.
3. Setjið í skál.