Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. OKTÓBER1985
Nóbelsverðlaimin í læknisfræði til tveggja Bandaríkjamanna:
Fá verðlaunin fyrir
rannsóknir á kólester-
óli og æðasjúkdómum
Stokkhóimi, 14. oktober. AP.
NÓBELSVERÐLAUNIN í læknisfrædi á árinu 1985 féllu í hlut tveggja
bandarískra vísindamanna, Michaels S. Browns og Josephs L. Goldsteins,
og fengu þeir þau fyrir rannsóknir sínar á kólesterólefnaskiptum og sjúk-
dómum, sem þeim tengjast.
í yfirlýsingu Nóbelstofnunar-
innar í Stokkhólmi sagði, að upp-
götvanir og rannsóknir Bandríkja-
mannanna hefðu „stóraukið þekk-
ingu manna á kólesterólefnaskipt-
um og á meðferð við sjúkdómum,
sem stafa af óeðlilega miklu kól-
esteróli í blóðinu." Brown og Gold-
stein uppgötvuðu, að á yfirborði
frumnanna í mannslíkamanum
eru skynjarar eða viðtæki, sem
innihalda lipoprotein („low-dens-
ity lipoprotein") og ráða miklu um
upptöku kólesteróls. Þegar þessum
viðtækjum fækkar eða þau starfa
ekki sem skyldi eykst kólesteról. í
Símamynd AP.
Bandari.sku vísindamennirnir, Joseph L Goldstein og Michael S. Brown,
urðu að sjálfsögðu kampakátir þegar þeim bárust tíðindin um að þeir hefðu
fengið Nóbelsverðlaunin. Hér skála þeir á hóteli í Cambridge í Massac-
husetts þar sem þeir voru á ráðstefnu.
blóðinu og það sest síðan innan á
æðarnar og veldur hjartaáföllum
eða heilablóðfalli.
„Uppgötvanir Browns og Gold-
steins hafa aukið mjög þekkingu
manna á kólesterólefnaskiptum og
er nú líklegra en áður, að unnt
verði að koma í veg fyrir eða draga
úr æðakölkun og hjartaáföllum,"
sagði f yfirlýsingu Nóbelstofnun-
arinnar. Sagði þar einnig, að rann-
sóknirnar kynnu að leiða til þess,
að hægt væri með lyfjagjöf að
fjölga viðtækjunum og draga
þannig stórlega úr þeim sjúk-
dómum, sem of mikið kólesteról
veldur. „Sá dagur kann að koma,
að menn geta keypt sér steik og
étið hana líka,“ sagði í yfirlýsingu
stofnunarinnar.
Bandarísku verðlaunahafarnir,
Michael S. Brown og Joseph L.
Goldstein, eru 44 og 45 ára að aldri
og starfa báðir við sameindaerfða-
fræðideild háskólans í Dallas í
Texas. Þeir skipta á milli sín nærri
tíu milljónum ísl. kr. og hafa verð-
launin ekki verið jafn há fyrr í 84
ára sögu Nóbelsverðlaunanna.
Nóbelsverðlaunin í hagfræði, eðlis-
og efnafræði verða tilkynnt síðar
í vikunni og bókmenntaverðlaunin
í þessari eða næstu viku. Sjálf
verðlaunaafhendingin fer fram 10.
desember en þann dag árið 1896
lést Alfred Nobel, höfundur verð-
launanna.
Grikkland:
Erfiðir tímar fram-
undan í efnahagsmálum
Aþenu, 14. október. AP.
GRIKKIR sjá fram á að þurfa ad
herða beltisólarnar í vetur, sakir
umfangsmikilla efnahagsaðgerða
stjórnar Andreasar Papandreus, sem
kynntar voru á fóstudag. Búast má
við að innflutningur munaðarvöru
dragist saman og nýr skattur hefur
verið lagður á hagnað í einkageiran-
um, jafnframt gengisfellingu drökm-
unnar um 15 prósent á föstudag.
Þetta er öðru sinni, sem stjórn
sósíalistaflokks Grikklands (PA-
SOK) fellir gengi drökmunnar á
fjórum árum. „Við eyðum meiru,
en við framleiðum, og tökum við
frekari lán, stofnum við efnahags-
legu sjálfstæði landsins i hættu,"
sagði Papandreu, þegar hann boð-
aði gengisfellinguna.
Skuldir Grikkja erlendis hafa
tvöfaldast síðan 1981 og er nú talið
að þeir skuldi um 758 milljarða
króna.
Gífurlegur innflutningur og að
sama skapi lítill útflutningur hef-
ur leitt til þess að viðskiptahallinn
í ár mun a.m.k. nema 74 milljörð-
um króna.
Umfangsmiklar efnahagsað-
gerðir voru kynntar jafnhliða
gengisfellingunni, og er þeim ætl-
að að minnka eftirspurn á dýrum
innfluttum matvörum, fötum og
neysluvörum, sem Grikkir taka
fram yfir innlenda framleiðslu.
Costas Simitis, viðskiptaráð-
herra, kvað það lenda á launþeg-
um, bændum og verslunarmönnum
að koma jafnvægi á efnahags-
ástandið.
Laun verða áfram bundin vísi-
tölu, en vísitalan verður nú reiknuð
eftir nýju kerfi, sem hefur í för
með sér að laun hækka minna en
áður.
Kaupsýslumönnum verður gert
að greiða sérstakan skatt fyrir
1984, sem nær allt frá þremur til
tíu prósenta, eftir hagnaði.
Bændur verða heimtir um hærri
skatta og verðhækkanir á búvöru
verða lægri en verðbólgu nemur.
Verðbólga er nú 18,5 prósent á
Grikklandi, sem er þrisvar sinnum
hærra en meðaltal í ríkjum Evr-
ópubandalagsins.
Innflytjendur bifreiða og raf-
magnstækja verða skyldaðir til að
Andreas Papandreu, forsætisráð-
herra Grikklands.
greiða 80 prósent andvirðis ráð-
gerðra innflutningsvara inn á
reikninga, sem verða lokaðir í sex
mánuði, sagði Simitis.
Einnig var ákveðið að herða
verðlagseftirlit, minnka fjárútlát
til félagsmála og taka harðar á
skattsvikurum.
Stjórnarandstaðan hefur gagn-
rýnt þessar aðgerðir harðlega og
segja bæði íhaldsflokkurinn og
Kommúnistaflokkurinn að þær
muni leiða til hærri verðbólgu,
aukins atvinnuleysis og minnka
kaupmátt launa.
Símamynd/ AP
Kostnaðarsöm herœfing
Heræfingar fara oft fram með ærnum tilkostnaöi. Þessar myndir sýna
hvar freigátunni HMS Sailsbury var sökkt undan ströndum Bretlands
nýverið. Tvær tegundir herþota vörpuðu sprengjum á freigátuna, önnur
leysistýrðum sprengjum, hin skutulflaugum sérstaklega gerðum til að
skjóta úr lofti skotmörk á legi.
Jafnt eftir
fyrstu umferð
— áskorendamótsins í skák
Montpellier, 13. október. AP.
ÚRSLIT réðust á laugardag í fyrstu
umferð áskorendamótsins í Mont-
pellier í Frakklandi fyrir næsta
heimsmeistaraeinvígi í skák. Öllum
skákunum lyktaði með jafntefli, þótt
margslungin og spennandi staða hafi
komið upp í mörgum þeirra.
í þessari fyrstu umferð leiddu
þessir saman hesta sína: Seirawan
(Bandaríkjunum) og Portisj (Ung-
verjalandi), Spraggett (Kanada)
og Youssoupov (Sovétríkjunum),
Nogueires (Kúbu) og Tal (Sovét-
ríkjunum), Sokolov og Vaganian
(Sovétríkjunum), Smyslov (Sovét-
ríkjunum) og Timman (Hollandi),
Tsjernine (Sovétríkjunum) og
Libli (Ungverjalandi), Beliassky
(Sovétríkjunum) og Korchnoi
(Sviss) og Short (Englandi) og
Spassky (Frakklandi).
Sigri Kasparov í heimsmeistara-
einvíginu, sem nú fer fram í
Moskvu, tefla fjórir efstu á þessu
móti áskorendaeinvígi, en Karpov
á rétt á að skora aftur á Kasparov
eftir sex mánuði. Beri Karpov
sigur úr býtum tekur Kasparov
þátt í áskorendaeinvígjunum og
komast þá aðeins þrír áfram úr
áskorendamótinu.
Lögga talar um lögguna
Síðari hluti viðtalsins við lögregluþjón
sem segir fpá göllum í innviðum
Reykj avíkurlögreglunnar.
/omúel
NÝR OC HRESS
Á BLAÐSÖLUSTÖÐUM
ALLT LAND