Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. OKTÓBER1985
15
fest á Stykkishólmsfundinum
svokallaða.
„Það er ekki einfalt verk að
draga úr ríkisútgjöldum og án
efa verður hörð glíma um fjár-
lagafrumvarpið á Alþingi. En
þetta verður að takast því það
er borin von að árangur náist í
íslenskum efnahagsstjórnmálum
nema árangur náist á þessu
sviði," sagði Þorsteinn.
Síðan ræddi hann um þær
lausnir er stjórnarandstaðan
byði upp á og sagði hann að fátt
væri fýsilegt í þeim efnum. Hann
sagði: „Alþýðuflokkurinn boðar
skattahækkanir til þess að leysa
vandamálin. Skattahækkanir
eiga að leysa allan vanda. Tillög-
ur Alþýðuflokksins ganga langt
frammúr því sem við höfum verið
að velta fyrir okkur og eru með
öllu óraunhæfar. Alþýðuflokks-
menn vilja stórauka söluskatt og
m.a. leggja söluskatt á oinbera
þjónustu. Ekki er það nú til þess
fallið að létta undir með heimil-
um í landinu. Þeir vilja þrefalda
eignaskatt sem þýðir að hæsta
skattþrep myndi hækka um
500% frá því sem nú er. Þannig
hljóma tillögur Alþýðuflokksins,
en hvað hefur Alþýðubandalagið
framm að færa? Hjá þeim ræður
gamli kreppuáraboðskapurinn
ríkjum. Kjarninn í þeirra mál-
flutningi er alltaf sá sami, þeir
hvetja til verkfalla til lausnar
hjá okkar erfiðleikum. Þessi
boðskapur hefur ekki átt upp á
pallborðið hjá kjósendum, enda
fer fylgi þeirra hríðminnkandi
dag frá degi samkvæmt skoðana-
könnunum. En við verðum að
átta okkur á að því aumari sem
stjórnarandstaðan er því meiri
ábvrð hvílir á okkar herðum."
I lokaorðum sínum minnti
Þorsteinn fundarmenn á orð sr.
Heimis Steinssonar er hann við-
hafði við setningu Alþingis, að
stjórnarathafnirnar væru fyrir
fólkið en ekki stjórnmálamenn-
ina eða hagfræðinga og eftir því
yrðu stjórnmálamennirnir að
starfa. Að lokum sagði Þor-
steinn: „Við þær aðstæður er nú
ríkja er óhjákvæmilegt að sýna
festu og aðhald til þess að viðun-
andi árangur náist í efnahags-
málunum. Við verðum að halda
af öryggi um stjórnvölinn og
vona ég að þær breytingar sem
nú hafa verið gerðar á ríkis-
stjórninni stuðli að því.“
Góður rómur var gerður að
máli Þorsteins á fundinum og
hvöttu flestir þeirra er til máls
tóku á fundinum Sjálfstæðis-
menn til að sýna samstöðu og
styðja dyggilega við bakið á for-
manni flokksins. Eða eins og einn
fundarmanna Sigurður E. Hall-
dórsson orðaði það: íþróttir og
stjórnmál eiga það sameiginlegt
að það er ekki nóg að velja góða
menn til forrystu, það eru oft
stuðningsmennirnir sem ráða
úrslitum um það hvort góður
árangur náist. Fundarstjóri var
Anna K. Jónsdóttir.
Flateyri:
VarnargarÖ-
urinn fyrir
neðan Kamb-
inn styrktur
Flateyri, 30. sept
Á FLATEYRI er verið að endurbæta
varnargarðinn fyrir neðan Kambinn
eða Brimnesið. Það er Flateyrar-
hreppur sem sér um verkið en ríkið
borgar verkið úr sérstökum sjóði sem
sérstaklega er ætlaður vörnum við
sjó.
Búið er að safna í þennan sjóð
í rúm fjögur ár. Verkinu er þannig
háttað að klappir eru sprengdar
inn með firðinum, því síðan ekið
að Kambnum og þar er því sturtað
niður í fjöruna.
Riörp tncri
MCX50F
Nýtt og glæsilegt létt bifhjól
frá Honda í „Chopper“st(l.
MCX50 er búið steyptum ál-
felgum, vökvadiskabremsum
að framan, ferhyrndri fram-
lukt, stóru fullkomnu mæla-
borði, bögglabera og ýmsu
öðru.
Hagstætt verð og greiðslu-
skilmálar.
HONDA-UMBOÐIÐ
VATNAGÖRÐUM 24
SÍMAR: 38772, 82086
MCX50 hefur frábæra
aksturseiginleika og mjúkan
fjaörabúnað.
EIGANDINN
ber ábyrgð á að engin slysahætta skapist af grýlukertum. Húseigandinn ber líka
ábyrgð á að ekki skapist verulegt tjón af frosti í niðurföllum, því um leið og
utanaðkomandi vatn kemst ekki venjulega leið í niðurfall þá leitar vatn að
öðrum leiðum, sem getur leitt til að leki myndist í híbýlum þar sem hans er síst
von.
Hitastrengina frá Rönning má m.a. leggja í eftirfarandi:
Þakrennur, niðurföll = tryggir eðlilega lelð vatnslns.
Rör = vörn gegn frostmyndun.
Tröppur = vörn gegn hálku.
Bílskúrsaðkeyrslur = snjóbraeðsla.
Gólf = upphitun híbýla.
Hitastrengirnir frá Rönning vinna í þágu húseig-
enda.
Itarlegri upplýsingar fást hjá sölumönnum okkar.
iJJJ
Jtf RÖNNING