Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. OKTÓBER1985
Vinnustofa Kjarvals á sýningu í Háholti
í TILEFNI aldarafmælis Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals opnar Þorvaldnr
Guðmundsson sýningu á 150 verkum eftir Kjarval, sem unnin eru í olíu,
með vatnslitum, tússi auk teikninga í Háholti í Hafnarfirði á laugardaginn.
A sýningunni verður „Lífshlaup“, mynd sem Kjarval málaði á veggfóður
vinnustofu sinnar í Austurstræti sýnt og hefur vinnustofa Kjarvals eins
og hún var, með gluggum, hurð og ofnum verið sett upp í sýningarsalnum.
Að sögn Þorvalds voru þessar myndir sýndar á sínum tíma á Kjarvalsstöð-
um en sú sýning stóð í skamman tíma og má því segja að myndirnar
hafi vart verið sýndar almenningi fyrr en nú.
Stefnuræða forsætisráðherra:
Kaupmáttur ráöstöfunartekna
eykst um 4,5 % á þessu ári
í STEFNURÆÐU Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra, sem væntan-
lega verður flutt nk. fimmtudag, kemur fram að þjóðhagsáætlun gerir ráð
fyrír því að verðbólga muni á ný fara hjaðnandi síðustu mánuði þessa árs og
verði í árslok liðlega 20%. Jafnframt kemur fram að gert er ráð fyrir að
kaupmáttur ráðstöfunartekna á þessu ári muni aukast um 4,5% og er þá talið
að hann verði 6% meiri á síðari hluta þessa árs, en hann var á 4. ársfjórðungi
1983.
Kristján Guðmunds-
son bæjarstjóri
í Kópavogi:
Ræða verður
framtíð Foss-
vogsdals í
alvöru
„ÉG VÆNTI þess að fulltrúar
Reykjavíkur og Kópavogs komi
saman hið fyrsta til þess að ræða
um framtíðarskipan Fossvogsdals-
ins,“ sagði Kristján Guðmundsson,
bæjarstjóri Kópavogs, í samtali við
Morgunblaðiö er undir hann voru
borin ummæli Davíðs Oddssonar,
borgarstjóra, í Morgunblaðinu sl.
sunnudag þar sem hann sagði að
Reykjavíkurborg hefði neitunarvald
um byggingu golfvallar í Fossvogs-
dal.
Davíð sagði þá að samkvæmt
samningum sem gerðir voru um
lögsöguskipti og land, þá byggðu
Kópavogsbúar ekki golfvöll nema
með samþykki Reykjavíkurborgar.
Kristján sagði að samningurinn,
sem borgarstjóri hefði vitnað í,
hefði verið gerður árið 1973 milli
byggðarlaganna þar sem ákveðið
var að skjóta á frest breytingum
á mörkun Fossvogsdalsins í tvö ár.
^Nú eru hinsvegar liðin 12 ár og
ekkert hefur verið ákveðið enn svo
að það er kominn tími til að menn
fari að ræða þessi mál í alvöru."
Að sögn Kristjáns átti að nota
þennan tveggja ára frest m.a. til
að endurskoða umferðarkerfi höf-
uðborgarsvæðisins, gera athugan-
ir á nauðsyn Fossvogsbrautar og
skoða hvernig hægt væri að nýta
dalinn m.t.t. samtengingar á úti-
vistarsvæðum sveitarfélaganna. í
umræddum samningum segir enn-
fremur að Fossvogsbraut verði
ekki lögð nema með samþykki
beggja aðila og rísi ágreiningur í
því efni verði málið lagt fyrir
gerðardóm.
„Ég þykist vita að margir hugsi
til þess að Fossvogsdalurinn verði
ákjósanlegt útivistarsvæði. Ef
Fossvogsbrautin verður lögð verð-
ur þessi hugmynd sem komið hefur
fram um golfvöllinn að engu. En
á liðnum árum hefur margoft
komið fram að bæjarstjórn Kópa-
vogs er andvíg lagningu Fossvogs-
brautur," sagði Kristján Guð-
mundsson að lokum.
í ræðu forsætisráðherra kemur
fram að halli ríkissjóðs á þessu ári
sé áætlaður 1800 milljónir króna,
en við afgreiðslu fjárlaga 1985 var
hann áætlaður 700 milljónir.
Þyngst eru sagðir vega launasamn-
ingar þeir sem gerðir voru sl. vor.
Forsætisráðherra greinir frá því
að eftirspum eftir fjármagni sé
mjög mikil og hafi leitt til þess að
mikið sé selt af skuldabréfum með
miklum afföllum á opnum markaði.
Um þá starfsemi þurfi að setja lög
og reglur og það sé ráðgert að gera
á þessu þingi, sem nú er að hefjast.
Forsætisráðherra segir að lækk-
un erlendra skulda verði að mati
ríkisstjórnarinnar meginmarkmið í
efnahagsmálum þjóðarinnar næstu
árin, jafnframt því sem nauðsyn-
legt verði að leggja áherslu á að
hjöðnun verðbólgu haldi áfram.
Gert er ráð fyrir því í þjóðhags-
áætlun að viðskiptakjör haldist í
meginatriðum óbreytt næstu 3 árin,
þótt gengi dollara lækki en Ev-
rópugjaldmiðla hækki. Byggt sé á
5% árlegri aukningu útflutnings
næstu 3 árin og að aflaverðmæti
aukist um 4 til 5% á ári.
Forsætisráðherra segir að ekki
sé hægt að gera ráð fyrir að við-
skiptajöfnuður náist fyrr en á árinu
1988. Því valdi hinar miklu erlendu
skuldir. Áætlað sé að erlendar
skuldir þjóðarinnar í árslok í ár
nemi um 53% af landsframleiðslu
og á næsta ári 54%. Þær lækki
síðan 1987 í 52,5% af landsfram-
leiðslu og í 49% árið 1988.
Forsætisráðherra bendir á
sparnaðarleiðir, bæði í ríkisrekstri
og hjá almenningi, sem leiðir að
ofangreindum markmiðum. Segir
hann að stjórnarflokkarnir hafi
ákveðið að leita leiða til þess að
draga enn frekar úr ríkisútgjöldum,
þannig að sem minnst viðbótar-
skattheimta verði nauðsynleg til
þess að tryggja hallalaus fjárlög.
Ásgeir M. Ásgeirsson
Ásgeir í
Sjóbúð-
inni látinn
ÁSGEIR M. Ásgeirsson, fyrrverandi
skipstjóri og kaupmaður í Sjóbúðinni
við Grandagarð, lést mánudaginn 14.
október.
Ásgeir var fæddur 20. febrúar
1910 að Tröð í Álftafirði í N-ísa-
fjarðarsýslu.
Hann stundaði sjómennsku í tæp
30 ár á línuveiðurum, togurum og
flutningaskipum og sigldi hann t.d.
öll stríðsárin til Englands sem
stýrimaður og skipstjóri. Ásgeir lét
af skipstjórn 1950 vegna heilsu-
brests og rak eftir það Sjóbúðina
við Grandagarð í Reykjavík. Eigin-
kona Ásgeirs, Sigríður Soffía Guð-
mundsdóttir, lést árið 1965.
Ásgeir lætur eftir sig sex bðrn.
Kjarvalsstaðir:
Yfirlitssýning á verkum Kjarvals
Á KJ ARVALíiSTÖÐUM verður í dag opnuð yfírlitssýning á verkum Jóhann-
esar Sveinssonar Kjarval í tilefni þess, að nú eru liðin eitt hundrað ár
frá fæðingu hans. Málverkin eru flest úr einkaeign og hafa mörg þeirra
ekki verið sýnd opinberlega áður. Á göngum Kjarvalsstaða er sýning á
munum og minjum úr fórum Kjarvals. Þá eru og sýndar Ijósmyndir af
listamanninum frá ýmsum tímum.
„Það má segja að sýningin sé
búin að vera í deiglunni síðastlið-
in þrjú ár,“ sagði Einar Hákonar-
son, formaður stjórnar Kjarvals-
staða. „Vegna sýningarinnar var
jafnframt sett í gang umfangs-
mikil skráning á verkum eftir
Kjarval og hafa þegar verið skráð
um þrjú þúsund verk sem valið
var úr á þessa sýningu. Það kom
á óvart hvað Kjarval var afkasta-
mikill listamaður og er nú talið
sennilegt að verk hans séu á bilinu
sjö til nfu þúsund. Skráningu
verður haldið áfram núna næstu
daga og er tekið á móti upplýsing-
um um óskráð verk á skrifstofu
Kjarvalsstaða." Sýningin á per-
sónulegum munum Kjarvals á
göngunum er einungis lítið brot
af því sem hann ánafnaði Reykja-
víkurborg.
Á sýningunni eru 177 málverk
og er elsta myndin frá 1901 og
yngstu myndirnar frá 1967—’68.
Þá eru á sýningunni 35 teikningar
og vatnslitamyndir úr eigu
Reykjavíkurborgar. I sýningar-
skrá, sem er 86 blaðsíður að stærð
og prýdd fjölda ljósmynda af
Kjarval og verkum hans, skrifa
Davíð Oddsson borgarstjóri,
Matthías Johannessen ritstjóri,
listfræðingarnir Bera Nordal og
Guðbjörg Kristjánsdóttir og Árni
Sigurjónsson bókmenntafræðing-
ur. I tilefni sýningarinnar hefur
verið gerður myndbandsþáttur er
nefnist „Meistari Kjarval" þar
sem í stuttu máli er rakinn ferill
Kjarvals í máli og myndum. Þátt-
urinn verður sýndur i fundarsal,
umsjónarmaður hans er Þóra
Kristjánsdóttir listráðunautur.
Þá verða fluttir fyrirlestrar i
tengslum við sýninguna i næsta
mánuði. Aðalsteinn Ingólfsson
listfræðingur fjallar þá um bóka-
skreytingar Kjarvals, Árni Hjart-
arson jarðfræðingur og Hallgerð-
ur Gfsladóttir sagnfræðingur
greina frá Hellamyndum Kjarv-
als og Valtýr Pétursson flytur
erindi um listamanninn. Safna-
kennarar Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkurumdæmis, þær
Bryndís Sverrisdóttir og Sólveig
Georgsdóttir, hafa unnið fræðslu-
efni fyrir skólanemendur á
grunnskólastigi og mun skipu-
leggja kynnisferðir á sýninguna.
Verndari sýningarinnar er for-
seti íslands, Vígdís Finnbogadótt-
ir. í sýningarnefnd eru Einar
Hákonarson formaður stjórnar
Kjarvalsstaða, Gunnar Kvaran
listfræðingur, ólafur Jónsson
lögfræðingur, Steinþór Sigurðs-
son listmálari, sem jafnframt
hannaði sýninguna og Þóra
Kristjánsdóttir listráðunautur
Kjarvalsstaða. Að undirbúningi
sýningarinnar hafa auk þess
unnið Jóna Guðbrandsdóttir og
Stefán Halldórsson starfsmenn
Kjarvalsstaða, Guðmundur
Magnússon myndlistarkennari og
starfsmenn trésmiðaverkstæðis
Reykjavíkurborgar auk fjölda
annarra. Sýningin verður opin
daglega frá kl. 14-22 fram til 15.
desember.
Morgunblaðið/Árni Sœberg
Hluti þeirra muna og minja Kjarvals, sem sýnd eru á göngum Kjarvalsstaða.