Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. OKTÓBER1985
Israel:
Kynna nýja tillögu um
málefni Vesturbakkans
Tel Aviv, Israel, 14. okt AP.
SHIMON Peres, forsætisráðherra
Israels, raun á næstunni kynna
bandarísku stjórninni tillögu að
bráðabirgðasamkomulagi við Jórd-
aníumenn um sjálfstæði Palestínu-
manna á Vesturbakkanum, að því
er dagblaö í Israel greindi frá í dag.
Aætlunin, sem ætlað er að
hrinda í framkvæmd með tilstyrk
Jórdaníumanna, gæti tekið gildi
innan fárra mánaða og náð til
þeirra 750.000 Palestínumanna,
sem búa á Vesturbakkanum, að
sögn dagblaðsins Davar, sem styð-
ur Verkamannaflokk Peresar for-
sætisráðherra.
Ekki greindi blaðið frá neinum
efnisatriðum tillögunnar né nefndi
Gaza-svæðið á nafn, en Peres
hefur áður sagt, að hann geti
hugsað sér að setjast að samninga-
borðinu með Jórdaníumönnum og
hefja viðræður á grundvelli friðar-
samkomulags Egypta og Israels-
manna frá 1979.
Átti að skjóta
vélina niður
— ef flugmaðurinn neitaði að lenda?
Dubrovnik, Júgoslavíu, 14. október. AP.
HAFT er eftir sjómönnum af flug-
móðurskipinu Saratoga að flug-
menn herþotanna, sem knúðu
egypsku flutningavélina með pai-
estínsku hryðjuverkamennina inn-
anborðs, er rændu farþegaskipinu
Achille Lauro í síðustu viku, hafi
verið skipað að skjóta vélina niður,
ef flugmenn hennar þverskölluðust
við að hlýða fyrirmælum um að
lenda á Sikiley.
Dátarnir höfðu landgönguleyfi
í Dubrovnik á Júgoslavíu þegar
þeir greindu frá þessu. Sögðu
þeir ennfremur að sovéskt her-
skip heföi elt Saratoga meðan á
aðgerðinni stóð.
Einn áhafnarmanna kveðst
hafa fylgst með ratsjám og loft-
skeytaskiptum við herþoturnar.
Segir hann að þær hafi flogið í
veg fyrir flutningavélina og gefið
til kynna með bæði hljóð- og ljós-
merkjum að hún yrði skotin
niður ef ekki yrði farið eftir
fyrirmælum.
Þegar Ronald Reagan var
spurður hvort hann hefði verið
til reiðubúinn að fyrirskipa að
vélin yrði skotin niður svaraði
hann að bragði: „Þeir geta velt
því fyrir sér þegar þeir festa
svefn á kvöldin."
„Ég fylltist
ofsahræðslu"
Kafrí, 14. oktdber. AP.
EINN palestínsku sjóræningjanna
grét þegar ekkja hins myrta Kling-
hoffers, leitaði fregna af afdrifum
manns síns, segir fyrrverandi gísl
af Achilie Lauro.
Marylin Klinghoffer spurði í
síbylju eftir manni sínum Leon,
öryrkja í hjólastól. „Hún spurði
sama manninn hvað eftir annað:
Hvar er hann, reyndu að finna
hann? Að lokum laut skærulið-
inn niður að henni, kyssti hana
á ennið og bað hana setjast. Svo
gekk hann burtu, settist niður
og grét,“ sagði Jane Gooch, far-
þegi skemmtiferðaskipsins. Hún
var ein sex breskra kvenna sem
voru um borð. Þær sögðu á blaða-
mannafundi í Kaíró að þrír
hryðjuverkamannanna hefðu
viljað þær allar feigar, en sá
fjórði, sem þær kölluðu Ómar,
hefði verndað þær.
Þær kváðu hryðjuverkamenn-
ina oft liafa skipt skapi, ýmist
hreyttu þeir ónotum í farþega
eða þeir sýndu merki góð-
mennsku.
Flogið var með nokkra Banda-
ríkjamenn, sem voru um borð í
skemmtiferðaskipinu til Ítalíu,
svo þeir mættu bera kennsl á
sjóræningjana. Dómari nokkur,
sem með var í för, sagði að þeir
hefðu horft á sig vantrúuðum
augum þegar hann sá þá aftur
og hann hefði greint um leið að
hér væri um sömu menn að ræða.
Sjötíu og níu Vestur-Þjóðverj-
ar, sem misstu af ráninu þar sem
þeir ákváðu að fara landleiðina
frá Alexandríu til Port Said,
virtust fullir gremju yfir því að
sumarfríinu hefði lokið á þennan
hátt, stað þess að gleðjast yfir
því að verða af ráninu.
Um þrjátíu Austurríkismenn
voru um borð þegar skipinu var
rænt. Þar af höfðu fjórir verið
skráðir sem ísraelar fyrir hand-
vömm. „Þeir sögðu okkur að við
værum á „dauðalistanum“,“ segir
Melanie Gratl. „Þeir gáfu mér
fimm mínútur til að sækja vega-
bréf okkar, þá myndu þeir drepa
manninn minn.“ Þegar hún birt-
ist með vegabréfin neituðu þeir
að trúa: „Ég fylltist ofsahræðslu
og var um megn að hugsa,“ sagði
frú Gratl.
Gífurlegar öryggisráðstafanir í Blackpool
Gífurlegar öryggisráðstafanir voru gerðar í Blackpool vegna flokksþings breska íhaldsflokksins þar. Hér má
sjá breska forsætisráðherrann Margaret Thatcher, koma til flokksþingsins.
Bretland:
Síkhar handteknir vegna
heimsóknar Gandhis
London, 14. október. AP.
OPINBER tveggja daga heimsókn
forsætisráðherra Indlands, Rajiv
Gandhi, til Bretlands, hófst í dag.
Vegna heimsóknarinnar hefur
breska lögreglan handtekið 11 að-
skilnaðarsinna síkha og Kashmírbúa
vegna gruns um samsæri þeirra um
að ráða Gandhi af dögum. Leiðtogar
síkha og Kashmírbúa neita ásökun-
um um að samsæri hafi verið í
undirbúningi og segja handtökurnar
til þess eins gerðar að friða ind-
versku stjórnina.
Breska innanríkisráðuneytið
hefur gefið lögreglunni leyfi til að
halda aðskilnaðarsinnunum
föngnum fram á fimmtudag án
þess að ákæra verði gefin út, en
lög til að koma í veg fyrir hryðju-
verkastarfsemi heimila að mönn-
um sé haldið föngnum í sjö daga
án þess að ákæra sé gefin út.
Breska lögreglan hefur neitað að
skýra út hvers vegna mennirnir
hafi verið handteknir.
Talsmaður aðskilnaðarsinna
síkha, sagði að friðsamleg mót-
mæli hefðu verið það eina sem
Filippseyjan
13 láta lífið í
Manila, Filippseyjum, 14. október. AP.
HANDSPRENGJA sprakk á sviði
þar sem hanaslagur fór fram með
þeim afleiðingum að 13 manns létu
lífið og tugir manna særðust. Óttast
er að tala látinna eigi eftir að hækka,
þar eð margir þeirra sem særðust
eru þungt haldnir á sjúkrahúsum.
Um þúsund manns voru í húsinu
þegar sprengjan sprakk.
Sams konar atvik átti sér stað
í síðasta mánuði, þegar hand-
fyrirhugað hefði verið vegna heim-
sóknar Gandhis til Bretlands og
lýsti undrun sinni á handtökunum,
þar eð sumir hina handteknu,
hefðu hitt innanríkisráðherrann
Douglas Hurd og fullvissað hann
um að um ekkert ofbeldi yrði að
ræða.
Gandhi heldur annað kvöld til
Nassau á Bahamaeyjum á fund
leiðtoga samveldislandanna. Hann
mun einnig koma við á Kúbu, í
Bandaríkjunum og Hollandi áður
en hann heldur aftur til Indlands
25. október næstkomandi.
Gandhi hefur ásakað Breta fyrir
að vera ekki nægilega einarða í
afstöðu sinni til aðskilnaðastefnu
síkha og Kashmírbúa og gert er
ráð fyrir að það mál beri á góma
í viðræðum hans við Margaret
Thatcher, forsætisráðherra Bret-
lands, auk þess sem viðræðurnar
snúist um afvopnunarmálefni,
tengsl austurs og vesturs, stríðið
fyrir botni Persaflóa og fleira.
Suður-Afríka:
Hvítur lögreglu-
maður drepinn
Jóhanneurborg, Suður-Afríku, 14. okt. AP.
FYRSTI hvíti hermaðurinn, sem
myrtur er í kynþáttaóeirðunum í
sprengingu
sprengju var hent inn í kvik-
myndahús. Þá létu 18 manns lífið.
í báðum tilfellum hafa hryðju-
verkamennirnir komist undan, en
engin samtök hafa lýst ábyrgð af
atburðunum á hendur sér. Stjórn-
völd hafa hins vegar ásakað
kommúnista eða aðskilnaðarsinna
múhameðstrúarmanna fyrir að
bera ábyrgð á sprengingunum.
Suður-Afríku, var stunginn til bana
í gærkvöldi, þar sem hann var að
skyldustörfum, að því er yfirvöld
sögðuídag.
Maðurinn, Johan Schoeman und-
irforingi, lét lífið í óeirðum í Kwaza-
kele, svertingjabyggð fyrir austan
borgina Port Elizabeth í Höfðahér-
aði.
Fyrr um daginn höfðu tveir
svertingjar fallið í átökum nálægt
borginni Worcester, sem einnig er
í Höfðahéraði, um 110 km frá
Höfðaborg.
Lögreglan í Höfðaborg reyndi í
dag að draga úr hræðslu hvítra
manna og kvað löggæslu hafa verið
aukna við alla helstu þjóðvegi
austan við borgina, en þar eru
mestu óróasvæði landsins.
Hvemig eiga
stjömumerkin saman - í alvöru?
Með því að kanna sambúð 25 þúsund para komst úanda-
rískur stjörnufræðlngur að því hvernig stjörniimerkin eru
1 sambúð — í raun og veru, og gefur einkunnir eftir þvi.
NÝR OC HRESS
Á BLAÐSÖLUSTÖÐUM
ALLT LAND