Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. OKTÓBER1985
Þorsteinn Pálsson á Varðarfundi:
Verðum að færa aðhaldið frá
launamönnum til ríkisins
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, flytur ræöu á fundi Varðar. Morgunblaðið/Bjarni
„Aðeins með einurð og festu
tekst okkur aö vinna okkur út úr
þeim efnahagserfiðleikum sem við
okkur blasa, en nú er ekki lengur
hægt að láta aðhaldið bitna á launa-
mönnum. Við verðum að færa
aðhaldið frá hinum almenna laun-
þega til ríkisins. Með þessu er ég
ekki að segja að gefa megi lausan
tauminn í kjarasamningum en ekki
verður lengur hægt að leggja að-
haldið á launamenn, þeir bera nógu
þungar byrðar nú þegar,“ sagði
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, á fundi Lands-
málafélagsins Varðar í Valhöll sl.
fimmtudagskvöld.
í ræðu sinni fjallaði Þorsteinn
um stjórnmálaástandið og þau
verkefni sem bíða ríkisstjórnar-
innar nú þegar kjörtímabilið er
rúmlega hálfnað, og vék einnig
að þeim breytingum sem gerðar
hafa verið á ríkisstjórninni.
Þorsteinn sagði: „Menn hafa
spurt hvort ekki hafi verið eðli-
legra að efna til kosninga heldur
en að stokka upp ríkisstjórnina.
Það er ekki óeðlilegt að velta
þesari spurningu fyrir sér. Nið-
urstaðan var hins vegar sú að
ekkert hafi komið fram í stjórn-
arsamstarfinu er réttlætir þing-
rof og nýjar kosningar. Mitt mat
á stöðunni var að eðlilegra væri
að nota þetta tækifæri til þess
að endurskipuleggja stjórnina
svo hún kæmi óbundin til starfa
og ný stjórn og bind ég vonir við
að meiri einurð og festa ríki í
störfum hennar hér á eftir og
Sjálfstæðisflokkurinn standi
sterkari i stjórnarsamstarfinu
nú en áður. Hér er um nýmæli
að ræða í íslenskri stjórnmála-
sögu að hluta þannig til um
stjórn landsmanna á miðju kjör-
tímabili og tíminn einn mun leiða
í ljós hvort þessi tilraun hefur
tekist."
Þorsteinn ræddi síðan lítillega
um þann árangur sem náðst
hefur í baráttunni gegn verð-
bólgunni og sagði að þrátt fyrir
að ríkisstjórnin hefði ekki náð
tilætluðum árangri á ýmsum
sviðum þá væri svo margt sem
gæfi mönnum tilefni til bjartsýni
og engin ástæða væri til þess að
fyllast bölmóði. Þorsteinn sagði:
„Okkur hefur tekist að sigrast á
óðaverðbólgunni en það var óða-
verðbólgan sem leiddi til þess að
lánskjaravísitalan hækkaði um-
fram almenna verðlagsþróun.
Stjórnarandstöðuflokkarnir
hafa aftur og aftur reynt að telja
okkur trú um að lánskjaravísital-
an hafi hækkað vegna aðgerða
núverandi ríkisstjórnar. Sann-
leikurinn er hins vegar sá að
uppruna hækkunar lánskjara-
vísitölunnar má rekja til síðustu
mánaða síðustu ríkisstjórnar en
núverandi ríkisstjórn hefur aftur
á móti tekist að ná lánskjaravísi-
tölunni niður. Þetta sést best á
línuriti er Þjóðviljinn birti á
forsíðu fyrir skömmu undir slag-
orðinu „ránskjaravísitala";
sjaldan hefur Þjóðviljinn opin-
berað mistök Alþýðubandalags-
ins með eins afgerandi hætti. En
árangur hefur einnig náðst á
öðrum sviðum. Tekist hefur í
fyrsta skipti í hálfan annan ára-
tug að auka peningalegan sparn-
að í þjóðfélaginu. En sparnaður
er forsenda hagvaxtar og eina
leiðin fyrir okkur til þess að
vinna bug á efnahagserfiðleikum
okkar. Hafin er endurskipulagn-
ing fjárfestingarsjóða, land-
búnaðarráðgjöfin hefur verið
endurbætt og fleira mætti nefna
sem hlýtur að auka bjartsýni
okkar og trú á framtíðina."
Þorsteinn vék síðan að erlendri
skuldasöfnun sem hann sagði að
hefði hafist af fullum þunga upp
úr 1980. Hann sagði að hugtakið
„erlend skuldasöfnun" væri ekki
bara hugtak er hagfræðingar og
sérfræðingar í stofnunum þyrftu
að hafa áhyggjur af. Erlend
skuldasöfnun hefði íþyngt fram-
leiðsluatvinnuvegunum og valdið
spennu og erfiðleikum á vinnu- s
markaðinum. Hann sagði að
meginmarkmið ríkisstjórnarinn-
ar hlyti að vera það að stöðva
og draga úr erlendri skuldasöfn-
un og stefna að hallalausum fjár-
lögum og þetta hefði verið stað-
Það eru hjólbarðarnir, sem ráða mestu um
aksturshæfni bílsins í íslenskri vetrarfærð.
9 Goodyear Ultra Grip snjóhjólbarðarnir hafa sjálf-
hreinsandi munstur og halda því spyrnu- og
hemlunareiginleikum sínum, hvemig sem færðin
er.
# Með Ultra Grip snjómunstrinu hefur tekist að
hanna form, sem heldur veghljóði hjólbarðans í
algjöru lágmarki, þegar ekið er á auðum vegi.
# Á Goodyear Ultra Grip snjóhjólbörðum mætir þú
öruggur ramm-íslenskri vetrarveðráttu.
# Þetta eru kostir, sem krefjast verður af vetrarbíl
á nútíma snjóhjólbörðum.
# Þessa kosti fær þinn bíll sjálfkrafa með Goodyear
Ultra Grip.
good'/year
GEFUR ^RÉTTA GRIPIÐ
^0^Verslunar-
og skrifstofuhúsnæði
við Austurströnd á Seltjamamesi
Möguleiki er að skipta plássinu í smærri eða stærri einingar.
Á 1. hæð eru stórir og bjartir gluggar, 2. hæðin hentug fyrir
skrifstofur. - Kjallari hugsaður sem lager.
Allar nánari upplýsingar og teikningar
fyrirliggjandi á skrifstofu okkar.
’UINÍSl
Reykjavík
Skrifstofa Eiðsgranda. Símar: 26697 - 26609
fj
5!