Morgunblaðið - 20.10.1985, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER1985
Landsvirkjun tekur
2,5 milljarða kr. lán
LANDSVIRKJUN hefur tekið lán til 15 ára aö fjárhæð sextíu milljónir
Bandaríkjadollara, eða jafnvirði 2.491 milljón íslenskra króna á núverandi
gengi. Var lánssamningurinn milli Landsvirkjunar og Manufactures Hanover
Ltd., Daiwa Bank Ltd. og nítján annarra erlendra banka og lánastofnana
undirritaöur í London í gær, föstudag.
Af hálfu Landsvirkjunnar var
lánssamningurinn undirritaður af
dr. Jóhannesi Nordal, stjórnarfor-
manni Landsvirkjunnar off Hall-
dóri Jónatanssyni, forstjóra fyrir-
taekisins.
Lán þetta er tekið með opinberri
skuldabréfaútgáfu í London og er
lánstími 15 ár. Landsvirkjun er þó
heimilt að greiða lánið upp hvenær
sem er að þremur árum liðnum
frá undirritun lánssamingsins án
aukakostnaðar fyrir Landsvirkj-
un, auk þess sem skuldabréfaeig-
endur eiga hver fyrir sig rétt á að
krefjast endurgreiðslu þegar tólf
ár erú liðin af lánstímanum. Að
öðru leyti falla skuldabréfin ekki
í gjaiddaga fyrr en að 15 ára láns-
tímanum liðnum.
Sjö ár eftir
af samningnum
1 FRÉTT Morgunblaðsins í gær um
að húseignirnar Vesturgata 6, 8. 10
og lOa, væru til sölu er sagt að veit-
ingamaður Naustsins hafi gert
samning um leigu húsnæðisins
Vesturgata 6—8 til 15 ára. Geir
Zoega, einn af eigendum fasteign-
anna hafði samband við blaðið
vegna þessa og vildi að fram kæmi
að leigusamningurinn hefði verið
gerður fyrir þremur árum og til tíu
ára, þannig að sjö ár væru nú eftir
af honum.
Vextir af láninu eru sex mánaða
millibankavextir í London eins og
þeir eru á hverjum tíma að við-
bættu vaxtaálagi sem er %% p.a.
f dag eru vextir þessir þannig
reiknaðir um 8,4% p.a.
Af lánsfjárhæðinni verður um
21 milljón Bandaríkjadollara (872
milljónum króna) varið til fjár-
mögnunar virkjanaframkvæmda
Landsvirkjunnar í ár og um 39
milljónum Bandaríkjadollara
(1619 milljónum króna) til að
greiða upp eldri og óhagstæðari
lán.
Morgunblaðið/Bjarni
íbúðarhúsið Hafnarstræti 27 og vélsmiðjuhúsið Hafnarstræti 27b, en á síðarnefnda húsinu og öðru enn verr förnu á
lóðinni svo og á gamla lýsistanknum hvíla lán upp á milljónir úr opinberum sjóðum, m.a. Byggðasjóði og Iðnlánasjóði.
Flugfiskur Flateyri hf. gjaldþrota:
Framkvæmdastjórinn óskaði
sjálfur eftir gjaldþrotaskiptum
— 6,8 milljóna króna smíðatrygging á gömlum lýsistanki
Magnús L. Sveins-
son forseti
borgarstjórnar
ÞAU mistök voru gerð við vinnslu
laugardagsblaðsins, að Ingibjörg
Rafnar var sögð forseti borgar-
stjórnar. Þetta er rangt, forseti
borgarstjórnar Reykjavíkur er
Magnús L. Sveinsson. Ingibjörg
var varaforseti borgarstjórnar í
upphafi kjörtímabilsins. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
SKIPTARÁÐANDINN í fsafjarðar-
sýslu, Pétur Kr. Hafstein, sýslumað-
ur á Isafirði, hefur kveðið upp gjald-
þrotaúrskurð yfir búi fyrirtækisins
Fhigfiskur, Flateyri hf., á Flateyri
við Önundarfjörð og framkvæmda-
stjóra þess. Málið bar aö með þeim
hætti að framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins óskaði sjálfur eftir því fyrir
skömmu að fyrirtækið og hann sjálf-
ur yrðu lýst gjaldþrota.
Starfsemi Flugfisks liggur nú
niðri og framkvæmdastjórinn er
fluttur af staðnum. Fyrirtækið
framleiddi ýmsar vörur úr trefja-
plasti, meðal annars báta. Eignir
búsins hafa verið skrifaðar upp og
á næstunni verður auglýst innköll-
un til köfuhafa í Lögbirtingablað-
inu en skiptafundur verður að
líkindum haldinn um miðjan jan-
úar. Pétur Kr. Hafstein, sýslumað-
ur, sagði í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gær, að upplýs-
ingar um heildarfjárhæð krafna í
búið lægju ekki fyrir fyrr en að
loknum tveggja mánaða innköllun-
arfresti. Hann sagði þó að yfirlýs-
ing framkvæmdastjórans um að
hann teldi skuldir sínar og fyrir-
tækisins meiri en eignir væri for-
senda gjaldþrotaúrskurðarins.
Framkvæmdastjórinn hefur
stundað nokkra plastframleiðslu á
Flateyri undanfarin ár. Fyrr á
þessu ári, nánar tiltekið þann
fyrsta febrúar, var stofnað hluta-
félagið Flugfiskur, Flateyri, sem
yfirtók reksturinn. Félagið var
skráð 25. júb' í sumar og sam-
kvæmt upplýsingum hlutafélaga-
skár eru stofnendur fimm: fram-
kvæmdastjórinn og eiginkona
hans, endiún er stjórnarformaður
fyrirtækisins, og þrír einstakling-
ar búsettir í Flateyrarhreppi. Til-
gangur félagsins er framleiðsla og
sala vara úr trefjaplasti, bátasmíði
svo og verzlun með alls konar
vörur í báta. Félagið var stofnað
Velta Atlantshafsflutninga
áætluð 1,9 milljarðar kr. í ár
ÁÆTLUÐ velta á þessu ári á vöruflotningum Hafskips hf. milli Evrópu og
Bandaríkjanna er 1,9 milljarðar ísl. króna, en félagið heldur uppi umfangsmikÚ
um siglingum á Norður-Atlantshafinu með fjórum stórum gámaskipum fyrir utan
íslandssiglingar. Um helgina (19. og 20. október) fer fram 20 manna fundur
Hafskips um Atlantshafssiglingarnar hér í Reykjavík og sitja hann u forstöðu-
menn sex svæðaskrifstofa erlendis, en þeir eru allir fslendingar.
Gámaskip Hafskips, sem öll eru erlendum umboðsaðilum á þessum
leiguskip, taka frá 500 upp i 700
gáma í ferð, en það eru fimm til sex
sinnum fleiri gámar en skip félags-
ins, sem stunda íslandsflutninga,
bera í ferð hvert um sig. Gámafloti
Hafskips er nú um 7.500 gámaein-
ingar, en þar af eru 5.500 til 6.000
gámar notaðir i flutningum þvert yf-
ir N-Atlantshafið. Starfsmenn fé-
lagsins á Norður-Atlantshafssviði
eru um 130 manns, og þar af eru 72 á
umræddum fjórum skipum. Auk
þess starfa nokkrir tugir manna hjá
vettvangi. Hafskip rekur alls sex
skrifstofur erlendis með íslenskum
forstöðumönnum og með u.þ.b. 50
starfsmönnum alls.
Nú er unnið að því að tölvuvæða
A-Atlantshafsstarfsemina og á því
verki að ljúka fljótlega á næsta ári.
Þá verða skrifstofur félagsins í
beinu tölvusambandi að staðaldri og
geta þá m.a. sent skipsskjöl og farm-
skrár samstundis á milli hafna.
Tvisvar á ári eru haldnir sam-
ræmingarfundir Hafskips hf. um
Atlantshafssiglingar, þar sem farið
er yfir starfsemina í heild og fram-
tíðaráætlanir markaðar og sam-
ræmdar. Fyrri fundurinn á þessu ári
fór fram í mars sl. í Köge í Dan-
mörku með 40 íslenskum og erlend-
um yfirmönnum og umboðsaðilum,
en nú á fundinum í Reykjavik voru
aðeins íslenskir starfsmenn, af þeim
eru 8 starfandi erlendis, en hinir á
aöalskrifstofu Hafskips hf. hér
heima.
Hafskip hf. starfrækir eigin skrif-
stofur í Kaupmannahöfn, Varberg,
Hamborg, Rotterdam, Ipswich og
New York. Auk þess rekur dóttur-
fyrirtæki þess, Cosmos Shipping Co.,
fimm skrifstofur í Bandaríkjunum
og eina 1 Rotterdam og í Reykjavtk.
(tlr frétt fri HaTskip.)
w§mmWBKMiém
Morgunblaöiö/Bjarni
Gamli lýsistankurinn að Sólbakka á
Flateyri þar sem starfsemi Flugfi.sk.s
var til húsa.
með 1.800 þúsund kr. hlutafé og
voru 653 þúsund krónur greiddar
við stofnun með yfirtöku eigna
eldra fyrirtækisins. Hlutaféð er
nú allt orðið kræft.
Engin fasteign er þinglesin eign
hlutafélagsins, en þrjár fasteignir
á Flateyri eru þinglýstar eignir
framkvæmdastjórans, íbúðarhúsið
Hafnarstræti 27, vélsmiðjuhús að
Hafnarstræti 27b og iðnaðarhús-
næði að Sólbakka. Iðnaðarhús-
næðið er innréttað í gömlum lýs-
istanki, steyptum. Vélsmiðjan er
talin illa farin, meðal annars
þaklaus að hluta. Fasteignamat
húsanna er innan við þrjár millj-
ónir og brunabótamat þeirra rúm-
ar þrjár milljónir. Lýsistankurinn
er þó ekki metinn í brunabótamati
og hefur eigandinn tryggt hann
með svokallaðri smíðatryggingu
fyrir rúmar 6,8 milljónir og „við-
byggingu" við vélsmiðjuhúsið fyrir
1,4 milljónir. Þá eru vélar í iðnað-
arhúsnæðinu tryggðar fyrir rúmar
500 þúsund krónur.
Á þessum fasteignum hvíla veð-
skuldir að fjárhæð um það bil 5,5
milljónir króna. Stærsta þinglýsta
skuldin er við Byggðasjóð, 7 lán
frá árunum 1980 til 1985, samtals
að fjárhæð 2.570 þúsund kr., þar
af tvær milljónir samkvæmt
skuldabréfi útgefnu 31. júlí í
sumar. Aðrar skuldir eru meðal
annars við Útvegsbankann, Iðn-
lánasjóð (7 lán, samtals 650 þús-
und kr.) og Sparisjóð Þingeyrar.
ítrekað er að þetta eru þinglýstar
skuldir og segir því ekkert um
raunverulegar eftirstöðvar þess-
ara lána né annarra skulda búsins.
Morgunblaðinu er kunnugt um
skuldir við sýslumannsembættið
vegna söluskatts og fleira að fjár-
hæð 6-700 þúsund krónur. Einnig
er vitað um skuldir við einstakl-
inga og fyrirtæki á Flateyri og að
einstaklingar þar og víðar eru í
ábyrgð fyrir lánum.
Að loknum innköllunarfresti
mun skiptaráðandi semja frum-
varp að úthlutunarskrá, sem hann
leggur fyrir skiptafund. Kröfuhaf-
ar eiga seturétt á skiptafundi og
ræður fundurinn frekari meðferð
málefna búsins. Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins er ljóst
að eignir búsins hrþkkva ekki fyrir
skuldum, ekki sfst þar sem ekki
er vitað hvers virði eignirnar eru,
enda mjög erfitt að selja fasteignir
á Flateyri eins og víðar, en það
ætti að skýrast á skiptafundi hve
miklu kröfuhafar tapa við gjald-
þrotauppgjörið.
Engin gengisfelling
en gengið látið síga
Segir Tómas Árnason, seðlabankastjóri
Frá Hafskipsfundinum.
Morgunblaðiö/Árni Sæborg
GENGISFELLING er ekki inni í myndinni í þeim skilningi, að gengið lækki
um mörg prósent í einu stökki,“ sagði Tómas Árnason, Seðlabankastjóri í
samtali við Morgunblaðið. Meðalgengi erlendra gjaldmiðla hefur það sem
af er árinu hækkað um tæp 13%. Þar af hefur sterlingspundið hækkað um
25%og dollar aðeins um 21/2%
„Ég mótmæli því ekki, að til
greina kemur að gengi krónunnar
sigi á næstu vikum og mánuðum
með auknum tilkostnaði atvinnu-
veganna vegna nýgerðra kjara-
samninga og breytinga, sem kunna
að verða á gjaídeyrismörkuðum.
Við leggjum áherslu á að fyllsta
aðhalds verði gætt en ég vil ítreka,
að gengisfelling kemur ekki til
greina," sagði Tómas Árnason.
Að sðgn Tómasar eru heildar-
innlán með áætluðum vöxtum nú
36.122 milljónir króna, en útlán
35.577 milljónir. Um áramót voru
útlán rúmum fjórum milljörðum
hærri en innlán, sem hafa með
áætluðum vöxtum hækkað um
40% frá áramótum á sama tíma
og útlán hafa aukist um 19,7%.
Staða ríkissjóðs við Seðlabank-
ann er á viðskiptareikningi nei-
kvæð um 2,3 milljarða króna og
skuldabréf um 2,3 milljarða. Staða
ríkissjóðs við Seðlabankann er
samtals neikvæð um 4,6 milljarða
króna og hefur versnað verulega á
undangengnum misserum.