Morgunblaðið - 20.10.1985, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.10.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER1985 7 „Við lærum hvor af öðrum « — segja þeir Marc Tardue og Szymon Kuran sem halda sameiginlega tónleika Tónleikar verða haldnir í Norræna húsinu annað kvöld, minudagskvöld, og hefjast þeir kl. 20.30. Þar leika Marc Tardue á píanó og Szymon Kuran i fiðlu. Þeir eru báðir góðkunnir í íslensku tóniistarlífi. Blaöamaður Morgun- blaðsins ræddi við þi um veruna hér i landi og um tónlistarhTið. Marc er frá Bandaríkjunum. Hann sagðist hafa verið á íslandi meira eða minna siðan árið 1982, en nú væri hann á förum þar sem honum hefði verið boðin tónlistar- stjórastaða við „The Ensemble Instrumental de Grenoble" í Frakklandi. „Sl. þrjú ár hef ég unnið með íslensku óperunni og líkað það ágætlega og fór ég m.a. með í ferðalag um landsbyggðina og var Sinfóníuhljómsveitin með i þeirri för. Einnig hef ég unnið nokkuð með Íslensku hljómsveit- inni og mun ég leika með henni nk. fimmtudag á tónleikum í Lang- holtskirkju. Szymon er frá Póllandi, kom hingað fyrir ári eftir nokkra við- dvöl í Englandi. Hann er ráðinn hjá Sinfóníuhljómsveit íslands. „Eg mun örugglega verða hér á landi a.m.k. næsta ár en síðan hef ég ekki hugsað lengra fram í tím- ann,“ sagði Szymon. „Ástandið í Póllandi er slæmt eins og er, en þó vildi ég gjarnan fara að heim- sækja mitt fólk þar. Vegabréfið mitt er að renna út og hef ég notið mikils stuðnings frá íslenskum stjórnvöldum hvað því viðvíkur. Það versta er að ekkert pólskt sendiráð skuli vera hér.“ Þeir félagar kynntust fyrst er þeir unnu báðir að uppsetningu „Carmen“ sl. vetur f óperunni. „Okkur hefur komið mjög vel saman og eigum auðvelt með að spila saman svo við ákváðum að hittast af og til til að leika og búa til tónlist sem góðir vinir frekar en listamenn," sagði Marc. Szymon samdi þrjú tónverk, sem flutt voru hér á Islandi í fyrravet- ur. Sinfóníuhljómsveit íslands flutti verk hans „Elegía" (memory of victims of Marshal Law in Po- land few years ago). Þá flutti Kammersveit Reykjavíkur „Quart- et Square" síðasta vor, og Szymon lék sjálfur einleik á fiðlu á Musica Nova-tónleikum sl. vor. Á tónleikunum í Norræna hús- inu annað kvöld mun Szymon leika einleik á fiðlu verk eftir Bach, Partita, d-moll. Þá leikur Marc sónötu í d-moll eftir Beethoven og síðast munu þeir félagar leika saman sónötu i d-moll eftir Brahms og sónötu eftir Finn Torfa Stefánsson. Þeir Szymon og Marc voru sammála um það að mikið væri um gott tónlistarfólk hér á landi miðað við fólksfjölda. Hinsvegar fannst þeim nokkur hætta á að þetta fólk einangraðist hér sökum fámennis. „Sumt af þessu góða tónlistarfólki er „heimsfrægt" á íslandi þó enginn þekki það er- lendis. Gott tónlistarfólk þarf að vera sjálfsgagnrýnið. Sinfóníu- hljómsveitin er að leita að nýjum stjórnanda. Hljómsveitin þarf verulega á góðum stjórnanda að halda sem tilbúinn er til að vera hér áfram, sem getur verið hljóð- færaleikurunum góður kennari auk þess sem hann verður að geta töfrað persónuleika hljómsveitar- innar fram, því ekki skortir á hæfileika fólksins þar,“ sagði Marc. Marc Tardue við píanóið og Szymon Kuran, fíðluleikari. Morgunblaðið/Júlíus Akranes: Nýr kjarasamningur starfs- mannafélags og bæjarstjórnar Akranesi, 17. okliber. NÝR kjarasamningur milli Starfsmannafélags Akraness og bæjarstjórnar hefur verið undirritaður. Samningurinn gildir frá 1. júní síðastliðinn til næstu ára- móta. Honum hefur þegar verið sagt upp með venjulegum fyrirvara og er því að líkindum stutt í næstu samningagerð. Þessi kjarasamningur er gerður eftir nýju launakerfi, færður úr því formi sem áður var, í svipað form og hjá ríkis- starfsmönnum. Hækkanir frá því sem áður voru, koma því jafnar niður á alla starfs- menn, enda sérkjarasamningar ekki iausir. Þessi samningur gefur rösk 11% frá 1. júní síðastliðnum, síðan 2.4% frá 1. ágúst og 4.5% hækkun frá 1. október. Helgi Andrésson, formaður samninganefndar starfs- mannafélags Akraness, sagði að þessi samningur væri gerður í fram- haldi af samningum annarra, og mesti tíminn við gerð hans hefði orsakast af þeim veigamiklu breyt- ingum, sem nýtt launakerfi væri. »Ég er alls ekki ánægður með þennan samning, því ýmsar breyt- ingar skapa ekki hagræði en við átt- um engra kosta völ og því sættum við okkur við hann til skamms tíma. Forsendur fyrir þessari breyttu samningagerð tel ég að hafi brostið þegar fjármálaráðherra synjaði BSRB um 5% hækkun launa þann 1. júlí síðastliðinn, en þá urðu launa- stigar aftur tveir, sagði Helgi. Og ennfremur er ég þeirrar skoðunar að tilkoma launanefndar sveitarfé- laga hafi tafið alla samningsgerð þar sem bæjarstjórn hefur afsalað sér samningsrétti til nefndarinnar við gerð aðalkjarasamnings." Að- spurður um 3% hækkunina sem aðrir launþegar hafa fengið sagði Helgi að hún kæmi til viðbótar þessum nýja samningi. Ingimundur Sigurpálsson, bæjar- stjóri á Akranesi, sagði að þessi nýji kjarasamningur þýddi um 3.8 millj- ón króna útgjaldaaukningu fyrir bæjarsjóð. Og væri 3% hækkunin þá ekki meðtalin. Aðspurður hvers vegna ekki væri farin sú leið, að semja til lengri tíma þegar svo stutt væri í að samningar væru að nýju lausir, sagði Ingimundur, að aðilar hefðu verið sammála um að fara sömu leið og ríkisvaldið og flest bæjarfélögin sem öll miða nýja samninga við næstu áramót. — J.G. ÍVETUR Nú eykur Samvinnuferöir-Landsýn fjölbreytnina í ferðavali vetrarins og býður upp á vetrarferðir til hinnar gullfallegu eyju Möltu og sögulandsins mikla, Israels. MALTA Sólrík og hlý, jafnvel yfir vetrarmánuð- ina. Sérkennilegt mannlíf og rnjög góður aðbúnaður fyrir ferðamenn. ÍSRAEL Israelsferð er öllum ógleymanleg - Jerúsalem, Betlehem, Dauðahafið og aðrir sögustaðir sjá fyrir bví. Og svo eru bar fyrsta flokks sólarstrendur og gististaðir. Brottför alla mánudaga Við fljúgum um Kaupmannahöfn og gistum þar eina nótt, bæði í upphafi og lok ferðar. Á Möltu velur þú um gistingu í sumarhúsum eða íbúðum og í ísrael er gist á hótelum í þeim verðflokki sem hver og einn óskar. Vetrarferð til Möltu eða ísrael er spennandi ævintýri fyrir sóldýrkendur á öllum aldri. 7 MALTA Verð1) frá kr. 21.250 (1 vika) 23.280 (2 vikur) 24.870 (3 vikur) Innlfallð: Flug, Keflavík - Kaupmannahöfn - Malta/lsrael - Kaupmannahöfri - Keflavlk, gisting og fararstjórn. Athugiö að gisting í Kaupmannahöfn er ekki innifalin, en sölufólk okkar er að sjálfsögðu reiðubúið að aðstoða við val og pöntun. ÍSRAEL Verð1) frá kr. 27.810 (1 vika) 31.900 (2 vikur) 35.050 (3 vikur) 1) Miðað við gengi 10. október. Samvinnuferóir - Landsýn AUSTURSTR/ETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SlMAR 21400 A 23727 Munlö elnnlg Kanaríklúbblnnl Hann er auðvitað á sínum stað í vetur, og fer nú hver að verða síðastur að tryggja sér miða!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.