Morgunblaðið - 20.10.1985, Side 48

Morgunblaðið - 20.10.1985, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER1985 t Eiginkona min og móöir okkar, EMMA GUÐRÚN KARLSDÓTTIR, Víöivöllum 18, Salfoasi, lést íSjúkrahúsi Suðurlands 18. október. Ingvi Ebenhardsson, Guörún Erla Ingvadóttir, Jónína Ingvadóttir, t | Konan mín, GUDNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR Frá Syöstu-Görðum, j , til heimilis í Laufskógum 43, Hverageröi, andaöist 13. október í Landspítalanum. Jaröarförin hefur farið fram í íkyrrþey aö ósk hinnar látnu. í Þökkum auðsýndasamúð. Guðmundur Sigurgeirsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Systirokkar, GUÐMUNDA GUÐMUNDSDÓTTIR BRUUN, Borups—Alle, 154 Kaupmannahöfn, andaðist 11. októbersl. Jaröarförin hefurfariöfram. Ólöf Guömundsdóttir, Bergljót Guómundsdóttir, Ingibjörg Guömundsdóttir, Gissur Guömundsson, Jóhannes Jónsson. t Bróöir okkar, GUDMUNDURÞÓRDARSON frá Bollastööum, andaöist á Elliheimilinu Grund mánudaginn 14. október. Útförin verður gerö frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 22. október kl. 10.30. Systkinin. t Elskulegur faöir, tengdafaöir og afi, ÁSGEIR M. ÁSGEIRSSON, kaupmaöur, Sjóbúðinní, Grandagaröi, Melabraut 7, Seltjarnarnesi, sem lést mánudaginn 14. október sl., veröur jarösunginn frá Nes- kirkju miövikudaginn 23. október kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Slysa varnafélag íslands. Guðmundur Ásgeirsson, Jakobína Valmundardóttir, Baldur Ásgeirsson, Þórunn Ólafsdóttir, Ásgeir S. Asgeirsson, Sigurveig Lúövíksdóttir, Kristín Ásgeirsdóttir, Óskar G.H. Gunnarsson, Ásgeir B. Asgeirsson, Emil Ásgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi, VILBERG SIGFÚS HELGASON, Holtageröi 78, Kópavogi, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 21. október kl. 10.30 Margrót N. Guðjónsdóttir, Elsa K. Vilbergsdóttir, Sveinn Már Gunnarsson, Guöjón S. Vilbergsson, Ásrún Kristjánsdóttir og barnabörn. t 1 Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, JÓHANNS KRISTINSSONAR, Sporöagrunni 3, Reykjavfk, sem lést í Landakotsspítala 13. október, veröur gerö frá Fríkirkjunni þriöjudagínn 22. októberkl. 13.00. Sigríöur H. Þórðardóttir, Jóhann G. Jóhannsson, Jóhann Petter, . Guölaug I. Jóhannsdóttir, Elín Ingunn, Mats Hjelte, Emma Mathilda. Vilberg S. Helga- son - Minning Fæddur 9. júlí 1912 Dáinn 11. október 1985 Kveðja frá samstarfsfólki Þegar ég frétti lát míns ágæta starfsfélaga og reglubróður Vil- bergs S. Helgasonar fann ég til þess hve „seglbúnaður lífsfleys- ins“ og byr þess á leiðinni um lífs- ins sæ er misjafn. Þegar búnaður- inn brestur eða byrinn þverr reyn- ir á þrek og hæfni farmannsins. Svo var um þennan góða djarfa dreng. Vilberg átti frá því snemma á ævi sinni við nokkurn heilsubrest að striða sem jókst þegar á leið ævina. Þá þurfti á hæfileikum hans og snilld að halda. Vilberg var sonur Helga Magn- ússonar, sem látinn er fyrir löngu, og Kristínar Jósefsdóttur, sem lést fyrir tæpu ári, þá nærri 100 ára gömul. Vilberg hlaut þann lífsförunaut sem kunni að gleðjast með honum á góðri stund og bera með honum byrðar dagsins, skildi hann og hans hugðarefni. Hann kvæntist Margréti V. Guðjónsdóttur 7. nóv- ember 1942. Þá hafði Vilberg num- ið vélvirkjun í vélsmiðju Guð- mundar Finnbogasonar hér í borg og síðan unnið að vélsmíði í Kefla- vík og víðar. Þau hjónin bjuggu fyrst í Reykjavík eða til 1946 að þau fluttu í Kópavog. Eftir það starf- aði Vilberg meðal annars í Vélsm. Keili við góðan orðstír og síðan hjá Tómasi Tómassyni í Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Þar vann hann hjá manni sem kunni að meta og hagnýta sér fjölhæfni og skilning Vilbergs á vélum og tækj- um. Þar var honum m.a. falið að framkvæma breytingar á vélum sem gerðu þær afkastameiri og skópu hagræði í rekstri. Samt var það svo að Vilberg réðst til Öryggiseftirlits ríkisins 1. febrúar 1954 í von um að fá störf betur við sitt hæfi, ekki síst af heilsufarsástæðum. Svo fór samt að í þessari stofnun sem síðar fékk heitið Vinnueftirlit ríkisins varð að fela Vilberg ýms erfið og eril- söm störf, en þar komu hinu fjöl- þættu hæfileikar hans að góðu gagni á sviði tækni og verkmenn- ingar. Honum voru falin störf eft- irlits á vélsmiðjum, trésmiðjum, fermingu og affermingu skipa, sem hann var að mestu einn við i langan tíma, einnig við bygg- ingarstörf og lyftuprófanir að nokkru leyti, auk kennslu á nám- skeiðum. Alltaf var Vilberg reiðu- búinn fyrir tilsettan tíma þegar slíkt var áætlað. Því var hægt að treysta. Mörg síðastliðin ár var sjón Vilbergs mjög skert svo að hann þurfti að nota sterkar augnlinsur til að geta notið sín við störfin. Þrátt fyrir þetta vann hann hin vandasömustu störf með mikilli prýði. { frístundum sínum vann hann mörg þau snilldarverk sem einstök eru bæði að handbragði og hugkvæmni. Þess bera merki margir skartgripir og tákn félaga sem hann unni. Við eftirlitsstörfin vann Vilberg til 31. desember 1980 að hann hætti störfum að eigin ósk. Vilberg hafði mikla ánægju af Sigurgeir Fals- son - Kveðjuorð Fæddur 10. janúar 1906 Dáinn 10. október 1985 Sigurgeir fæddist fyrir nærfellt 80 árum norður í Barðsvík á Horn- ströndum á þeim tíma árs, er daginn var tekið að lengja og skammdegismyrkrið fór dvínandi. Móðir hans lézt að afstaðinni ■fæðingu drengsins síns, sem var tekinn í fóstur af hjónum á Horni. í skjóli þeirra ól hann sín bernsku- og æskuár i einu stór- brotnasta og fegursta héraði þessa lands, þar sem andstæður eru miklar á hverri árstíð. Skammdegið er þar jafnan tími myrkurs og kulda, en jafnvel þá skína stjörnunar bjartar á heið- skíru himinhvolfinu. Um sumarsólstöður, þegar nátt- úran skartar sínum fegursta skrúða, renna dagur og nótt saman í eitt, og birtan ræður þar lögum og lofum. Or þessum jarðvegi spratt Sig- urgeir Falsson, og ekki að undra, að hugur hans leitaði oft á vit æskustöðvanna, sem luku upp fyrir honum heillandi töfraheimum. Hornstrandir hafa alið marga fjölhæfa mannkostamenn og vissulega líka sérstæða persónu- leika. Falur Jakobsson, faðir Sigur- geirs, var einn þeirrar gerðar. Skömmu eftir andlát konu sinnar fluttist hann til Bolungarvíkur, og bjó þar um þrjátíu ára skeið eða allt til dánardægurs. Á þessum árum smíðaði Falur fiskiskipaflota Bolvíkinga, og varð kunnur af fyrir vandaða smíði og lag báta, sem hann smfðaði að segja má eftir auganu. Hann var vissulega mikill hag- leiksmaður í sinni starfsgrein og vinnusamur með afbrigðum. Af honum er mikil og merk saga, sem því miður hefur aldrei verið skráð. Á uppvaxtarárum sínum tók Sigurgeir þátt I lifi og starfi fólks- ins í hinni afskekktu heimabyggð sinni, réri til fiskjar, erjaði jörðina ogseigíbjörg. Um tvítugt fluttist hann til föður síns vestur í Bolungarvík. Hugur hans hneigðist til mennta. Stundaði hann nám í Gagnfræða- skólanum á Akureyri og síðar í Samvinnuskólanum með góðum vitnisburði, enda góðum gáfum gæddur, og mun hann í hópi þeirra, er fyrstir héldu til framhalds- skólanáms frá Bolungarvík. Eftir að skólagöngu lauk, gerðist hann fiskkaupandi og harðfisk- verkandi, og varð kunnur af, sök- um vandaðrar framleiðslu, þrifn- aðar og snyrtimennsku. Hann var og líka traustur í öllum viðskipt- um. t Eiginmaður minn, laöir okkar, sonur og bróðir, SÆVAR ÞÓRÐARSON, Faxabraut 78, er lést 14. þ.m. verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 22. þ.m. kl. 14.00. Snrún Ólafsdóttir, Guðrún Sævarsdóttir, Katrín Sævarsdóttir, Kristín Sævarsdóttir, Eiríkur Sævarsson, Þóróur Björnsson, Guörún Guöbjartsdóttir, og systkini. lestri góða bóka og var mikill unn- andi ferðalaga og fegurðar lands- ins. Hann gladdist með glöðum og þótt hann væri ekki skjótur til vináttu var hann vinur vina sinna. Við starfsfélagar hans eigum margar góðar minningar frá gleði- stundum með þeim hjónunum Vilberg og Margréti. Viðmótshlýja þeirra og hæfileg glaðværð skap- aði alltaf þægilegt „andrúmsloft" meðal okkar. Börn Vilbergs og Margrétar eru: Elsa Kristín hjúkrunarfræðingur, gift Sveini M. Gunnarssyni lækni, þau eiga þrjú börn og Guðjón Sig- fús læknir, kvæntur Ásrúnu Kristjánsdóttur hjúkrunarfræð- ingi, þau eiga tvö börn. Öllum þessum aðilum og öðru vensla- og vinafólki vottum við, fyrrverandi starfsfélagar Vil- bergs, dýpstu samúð, einkum þó hans eftirlifandi eiginkonu, Mar- gréti V. Guðjónsdóttur, sem starf- að hefur og strítt af mikilli elju við skerta heilsu í mörg ár við hlið síns elskulega eiginmanns. Guðs blessun styrki hana og fylgi henni með minningunum um hinn farna förunaut, föður og afa. Friðg. G. . Síðar varð hann aðili að út- gerðarfélaginu Græði h/f, og var endurskoðandi þess fyrirtækis, einnig eftir að hann flutti til Reykjavíkur á árinu 1957, og allar götur síðan, á meðan kraftar og heilsa leyfðu. Það starf annaðist hann af h'nnu mestu vandvirkni, sem og annað það, er hann tók sér fyrir hendur, en aðalstarf hans syðra var á Vegamálaskrifstofunni. Sigurgeir var vissulega sérstæð- ur í eðli sínu og háttum. Hann virtist aldrei þurfa að flýta sér. Hann var greindur vel og at- hugull, trygglyndur, og bjó yfir mikilli kímnigáfu, og grunnt var á græzkulausri stríðni. Hann var höfðingi heim að sækja í þess orðs beztu merkingu, og síðast en ekki sizt vinur vina sinna. Það var gott að leita athvarfs hjá honum og létta á hjartanu og eiga hann að trúnaðarvini. Við þessi vegamót er þessa minnzt og þakkað heilum huga. Hluttekning er vottuð systkin- um hans og nánasta skylduliði, og þá sérstaklega Rósu, systur hans, sem hélt heimili með honum hér vestra og síðan syðra og annaðist hann af kostgæfni öll síðustu veik- indaárin hans. Megi sólstöðubirta norðursins lýsa honum á nýrri vegferð. Benedikt Bjarnason Bolungarvík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.