Morgunblaðið - 20.10.1985, Qupperneq 56
KEILUSALURiNN
^ OPINN 9.00-00.30
Mikið spurt
um sjóvogina
„VIÐ höfum fengið góóar undirtekt-
ir, betri en ég þorði aö vona“, sagði
Gylfi Aóalsteinsson, framkvæmda-
^stjóri Marel hf. í samtali vió Morgun-
blaóió er hann var spurður hvaóa
möttökur framleiósluvörur fyrirtæk-
isins hefóu fengió á FISH EXPO
sjávarútvegssýningunni í Seattle.
Sýningin hófst á miðvikudag og
lauk í gær, laugardag. Tvö íslensk
fyrirtæki tóku þátt í sýningunni,
Marel sem var með bás í nafni
dótturfyrirtækis síns í Kanada, og
Hampiðjan. Marel sýndi nýju sjó-
vogirnar, vogir fyrir fiskeldi og
venjulegar vogir fyrir fiskiðnað.
Stolinn bíll
brennur á
miðri heiði
Á ÁTTUNDA tímanum í gærmorgun
hringdi maóur nokkur til lögreglunn-
ar í Akureyri, sagðist vera staddur
í sæluhúsinu Sesseljubúð á Öxna-
dalsheiói og aó þar væri bfll aó
brenna.
Lögregla og slökkvilið óku strax
af stað i gegnum slydduna á heið-
----inni. Þegar komið var í Sesseljubúð
á heiðinni miðri, nærri klukku-
stundu síðar, var það brunnið af
bílnum, sem brunnið gat. Ökumað-
urinn var í sæluhúsinu og varð
strax ljóst, að hann hafði reynt
að hressa upp á tilveru sína um
nóttina með áfengisneyslu. Hvert
ferðinni var heitið var honum
hulið og sömuleiðis er óljóst hvern-
ig kviknaði í bílnum.
Þegar farið var að athuga málið
kom í Ijós að bíllinn var óskráður
og númerslaus. Ekkert var í gær-
morgun vitað um eiganda bílsins
annað en það, að ökumaðurinn í
Sesseljubúð átti bílinn ekki og
hafði aldrei átt. Hann var færður
í fangageymslu lögreglunnar á
Akureyri, þar sem hann átti að
sofa úr sér áður en hann yrði yfir-
heyrður nánar.
Smyglaði 90
grömmum af
kókaíni
MAÐURINN, sem sveik liólega
fimm hundruð þúsund út úr þremur
bönkum í Reykjavík, hefur vió yfir-
heyrslur hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins, vióurkennt aó hafa smyglað
MteO grömmum af kókaíni til landsins.
Maðurinn fór tvívcgis til útlanda til
að kaupa fíkniefni og notaði til þess
féó, sem hann sveik út úr bönkunum.
Hann smyglaði kókaíninu til lands-
ins meó því aó fara frá Danmörku
til Færeyja og síóan hingaó til lands.
Þetta er mesta kókaínsmygl,
sem uppvíst hefur orðið, en ekki
tókst að hafa uppi á fíkniefnunum.
Árið 1983 voru lagt hald á 7.3
grömm af kókaíni, 25 grömm 1983
og 18 grömm í fyrra. Aætlað sölu-
verðmæti kókainsins hér á landi
er um 700 þúsund krónur.
» Maðurinn var handtekinn um
miðja síðustu viku. Hann hafði
daginn áður náð að svíkja um 170
þúsund krónur út úr banka með
því að opna sparisjóðsbók, „greitt"
inn á bókina með falsaðri ávísun
og tekið féð samdægurs út úr úti-
búi bankans. Hann var með í
höndunum farseðil til útlanda og
"“íhafði í fórum sínum umtalsverða
fjárhæð í gjaldeyri.
SnÐHST lANSTRAIIST
SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR.
Fjör í frímínútum
Morgunblaftið/RAX.
Mælingar á mótefnum alnæmisveininnar hefjast á Borgarspítalanum á næstu vikum:
RKÍ íhugar að styrkja Borgar-
spítalann til tækjakaupa
RAUÐI kross íslands íhugar nú aó
veita 500-700 þúsund krónum til
kaupa á útbúnaói til að mæla mótefni
gegn alnæmisveirunni í blóói. Morg-
unblaöió hefur heimildir fyrir því að
upphaflega hafi staóió til að styrkja
Landspítalinn til þessara kaupa, en
vegna þess að vióunandi aóstaóa er
ekki fyrir hendi þar sem stendur,
sé í athugun að veita Borgarspítalan-
um þetta fé. Á Borgarspítalanum er
nú fullinnréttuð rannsóknastofa meó
sérstökum öryggisskáp til að meó-
höndla áhættusýni. Guðjón Magnús-
son, varaformaöur RKÍ og aóstoóar-
landlæknir, vildi ekkert um málið
segja aó svo stöddu, en sagði aó
ákvörðun ætti að liggja fyrir á þriðju-
dag.
Að sögn þeirra Haraldar Briem
og Sigurðar Guðmundssonar smit-
sjúkdómalækna á Borgarspítalan-
um munu mótefnamælinar á
áhættusýnum hefjast á Borgar-
spítalanum á næstu vikum. Búið
er að gera ráðstafanir til að fá til
landsins þann útbúnað sem til þess
þarf. Haraldur sagði að tvær að-
ferðir væru notaðar til að mæla
mótefni alnæmisveirunnar, skim-
prófanir (Elisa) og staðfestingar-
prófanir (Western blot). Skimpróf-
anir eru nokkuð örugg „sía“,
þ.e.a.s. komi út úr þeim neikvæð
niðurstaða er talið fullvíst að mót-
efni sé ekki að finna í blóðinu.
Hins vegar koma stundum út úr
þessum prófunum „falskt jákvæð-
ar niðurstöður" og því þarf annað
próf til nánari staðfestingar. Ein-
ungis skimprófanir verða gerðar á
Borgarspítalanum fyrst um sinn.
Heilbrigðisráðhera hefur ákveð-
ið að koma skuli upp aðstöðu til
alnæmisrannsókna í nýbyggingu á
lóð Landspítalans og skuli hún
vera undir stjórn Rannsóknar-
stofu Háskóla fslands í veirufræði.
Það húsnæði er tilbúið undir tré-
verk og að sögn Guðjóns Magnús-
sonar er stefnt að því að taka það
í notkun ekki síðar en um áramót-
in. Þar verða þá gerðar skimpróf-
anir, fyrst til að byrja með á blóð-
sýnum áhættuhópa.
„Það eru allir sammála um að
byrja á því að koma upp aðstöðu
til að veita fólki í áhættuhópum
þjónustu áður en farið verður að
skima blóð sem berst Blóðbankan-
um,“ sagði Guðjón. „Menn greinir
hins vegar á um það hversu fljót-
lega eftir að búið er að koma slíkri
aðstöðu upp eigi að hefja kerfis-
bundnar skimprófanir á blóði blóð-
gjafa.“
Það sem um er að ræða í þessu
sambandi er ótti manna við að
laða til Blóðbankans fólk í áhættu-
hópum sem vill láta rannsaka
hvort það hafi veiruna í blóði sínu.
Það gæti aukið hættuna á að sýkt
blóð komist í umferð, ekki síst
vegna þess að a.m.k. 5% þeirra sem
sýktir eru mynda engin mótefni.
Guðjón sagði hins vegar að það
væri tiltölulega einfalt mál að
mótefnaprófa blóð sem bærist
Blóðbankanum. Sambærilegar
prófanir væru þegar gerðar þar í
sambandi við lifrarbólgu.
Nú þegar er vitað um fáeina
fslendinga sem hafa svokölluð
forstigseinkenni alnæmis, en al-
næmi á efsta stigi hefur ekki
greinst í íslenskum manni ennþá,
að sögn Guðjóns Magnússonar.
Ríkið sækir
um vínveit-
ingaleyfi
MEÐAL umsókna sem liggja
fyrir um leyfi til vínveitinga er
umsókn um endurnýjun á vín-
veitingaleyfi í veitingahúsinu
Borgartúni 6, sem er í eigu ríkis-
ins. Bréf frá dómsmálaráöuneyt-
inu varðandi málið var lagt fram
á fundi borgarráös þann 8. októ-
ber siöastliöinn. Umsókninni var
vísað til umsagnar áfengisvarnar-
nefndar.
Fleiri umsóknir um leyfi til
vínveitinga liggja nú fyrjr hjá
dómsmálaráðuneytinu. Ýmist
er hér um að ræða ný leyfi eða
endurnýjun leyfa. Meðal um-
sækjenda eru veitingastaður-
inn „Þrír Frakkar" við Baldurs-
götu, Hressingarskálinn í
Austurstræti, Mensa í Lækjar-
götu, Laugavegur 28 B, Klúbb-
urinn, Safari og Gaukur á
Stöng.
Líklega stærsta bleikja
sem veiðst hefur hér
— Lifði á bleikju og hafði því nóg æti
RISABLEIKJAN sem veiddist í Skorradalsvatni um síöustu helgi og
sagt var frá í Morgunblaöinu á miðvikudag er að öllum líkindum
stærsta bleikja sem veiðst hefur hér á landi. Jón Kristjánsson fiskifræð-
ingur hjá Veiðimálastofnun segist ekki vita til að stærri bleikja hafi
veiðst og Davíð Pétursson hreppstjóri á Grund í Skorradal segir að
þetta sé trúlega íslandsme t og jafn»el Norðurlandamet.
Bleikjan er 22 pund að þyngd
og 87,5 sm að lengd. Jón Krist-
jánsson sagði að stærsta bleikjan
sem hann hefði heyrt um væri
17 punda, líka úr Skorradals-
vatni og þar hefðu einnig veiðst
14-15 punda bleikjur, m.a. ein
sem væri nú uppstoppuð á Veiði-
málastofnun. Davíð á Grund
sagði að stærsti fiskur sem veiðst
hefði í Skorradalsvatni þar til
risableikjan veiddist nú væri 18
punda og hefði hann veiðist fyrir
1-2 árum. Hann sagði að fyrir
rúmum áratug hefði 16 punda
fiskur veiðst þar á stöng og hefði
hann þá verið Norðurlandamet.
Samkvæmt því taldi Davíð það
líklegt að 22 punda bleikjan sem
nú veiddist væri einnig Norður-
landamet.
Davíð sagði að silungurinn í
Skorradalsvatni væri yfirleitt
um og innan við eitt pund að
þyngd. Jón Kristjánsson sagði
að þegar vatnafiskar kæmust
yfir ákveðna stærð færu þeir að
éta aðra fiska, hefðu þá nóg æti
og stækkuðu ört. Taldi hann lík-
legt að risabeikjan væri orðin
15-20 ára. Það voru starfsménn
Skógræktar ríkisins í Hvammi í
Skorradal sem náðu bleikjunni
þegar þeir vitjuðu um net fyrir
landi Hvamms á laugardag.
Bleikjan er geymd í frysti.