Morgunblaðið - 02.11.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER1985
7
Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu:
Skipulagsmál til umræðu
AÐALFUNDUR Sanitaka sveitar-
félaga á höfuborgarsvæðinu hófst
í gær í Hlégarði í Mosfellssveit.
Fundinum lýkur í dag klukkan
17.00.
Að sögn Gests ólafssonar
framkvæmdastjóra samtakanna
er aðalmálið á dagskrá aðalfund-
arins kynning, umræður og
ákvarðanataka um svæðisskipu-
lag höfuðborgarsvæðisins, þ.e.
svæðisins frá Hafnarfirði að
Kollafirði. Fjallað verður um
náttúrulegar forsendur þess,
mannfjöldaþróun, húsnæðismál,
atvinnumál, miðhverfi, opinbera
þjónustu, veitukerfi, samgöngur,
umhverfi og útivist og langtíma-
þróun höfuborgarsvæðisins. Auk
þess fara fram öll venjuleg aðal-
fundarstörf svo sem kosning í
nefndir, flutt skýrsla stjórnar
o.fl. Þá flytja þeir Jóhann Ein-
varðsson aðstoðarmaður félags-
málaráðherra og Jon Helgason
dómsmálaráðherra ávörp.
Handavinnu-
og kökubasar
Hringsins
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn held-
ur sinn árlega handavinnu- og köku-
basar sunnudaginn 3. nóvember kl.
14.00 f Fóstbræöraheimilinu, Lang-
holtsvegi 109-111.
Hringurinn, sem hefur starfað í
rösk áttatíu ár, hefur einkum
unnið að líknarmálum fyrir börn,
m.a. hefur félagið safnað fé til
tækjakaupa fyrir allar. deildir
Barnaspítala Hringsins. Allur
ágóði af basarnum rennur til
Barnaspítalasjóðs Hringsins, sem
og aðrar fjáraflanir félagsins.
Basar kvenfélagsins Hringsins verður haldinn í Fóstbræðraheimilinu Lang-
holtsveg 109-111 sunnudaginn 3. nóvember.
Vetrarstarf í Lang-
holtskirkju hafið
VETRARSTARFIÐ í Langholtskirkju er nú hafíð af fullum krafti, segir
í frétt frá safnaðarstjórn, sem Morgunblaðinu hefur borizt. Kvenfélag,
Bræðrafélag og kórinn hafa hafíð störf. Nýlega var kosin ný sóknarnefnd
samkvæmt nýsettum lögum um kirkjusóknir, sóknarnefndir, héraðsfund
o.fl., en samkvæmt þeim lagði fyrri nefnd niður umboð sitt. Fjölgað var
í sóknarnefndinni úr fimm í sjö og eru varamenn jafnmargir. Sóknar-
nefndin hefur haldið vikulega fundi og verður svo enn um sinn að
minnsta kosti.
Fyrirsjáanlegt er mikið hljóm-
leikastarf í hinni nýju kirkju,
æfingar og hljómleikar, auk þess,
sem verður á vegum Kórs Lang-
holtskirkju. Það er flestra manna
mál, segir í fréttinni frá nefnd-
inni, að Langholtskirkja sé nú
besta hljómleikahús í landinu
vegna ágætis hljómburðar og
stærðar.
1 vor hélt Pólýfónkórinn hljóm-
leika í kirkjunni og síðar Karla—
kórinn Fóstbræður. Nýlega var
þar Módettukór Hallgrímskirkju
og íslenzka hljómsveitin með sína
fyrstu hljómleika af a.m.k. átta,
sem haldnir verða í vetur.
Sunnudaginn 3. nóvember verð-
ur haldin Guðbrandsmessa i
minningu Guðbrands Hólabisk-
ups Þorlákssonar, en kirkjan var
af biskupi Islands helguð minn-
ingu Guðbrands biskups, en
vígsluár hennar bar upp á 300 ára
afmæli útgáfu Guðbrandsbiblíu.
Þessi helgun fór fram á biblíudag-
inn í fyrra.
Afmælis safnaðarins verður
minnst fyrsta sunnudag í að-
ventu, sem nú ber upp á 1. des-
ember. Þá um kvöldið verður há-
tíðarsamkoma í kirkjunni og
safnaðarheimilinu.
Sóknarnefnd hefir nú eins og
undanfarin ár sent öllum heimil-
um í sókninni gíróseðla með ósk
um að húsráðendur leggi sitt af
mörkum til að standa undir bygg-
ingakostnaði við kirkjuna. Kostn-
aðurinn við smíði Langholts-
kirkju var afar mikill og skortir
fé til að standast hann. Sóknar-
nefnd minnir safnaðarfólk vin-
samlegast á gíróseðlana og hvetur
það til þess að bregðast nú vel við
— segir að lokum í frétt sóknar-
nefndar.
Valsmenn
Knattspyrnudeildin
heldur
„uppskeruhátíð"
í Broadway á morgun, sunnudag og hefst
hátíöin kl. 14.30. Valsmenn eru hvattir til
aö mæta. Knattspyrnudeild Vals
Ritstjóri og
framkvæmda-
stjóri Þjóð-
ólfs segja
upp störfum
Selfossi 1. nóvember
Um næstu áramót verða breyting-
ar á ritstjórn og framkvæmdastjórn
landsmálablaðsins Þjóðólfs, mál-
gagns framsóknarmanna á Suður-
Íandi. Ritstjóri blaðsins, Gísli Sig-
urðsson mun hætta störfum. Sama
er að segja um framkvæmda og
auglýsingastjóra blaðsins Ingu
Holdö, konu Gísla.
Ástæðan fyrir þessum uppsögn-
um hjá Þjóðólfi eru þær að hug-
myndir flokksmanna og ritstjóra
um uppsetningu og efnisval hafa
ekki farið saman.
Gísli hefur starfað við Þjóðólf í
20 ár og hafði þetta að segja um
hlutverk landsmálablaða: „Mér
hefur alltaf fundist hlutverk
landsmálablaða stórt á sviði
menningarmála í hverju héraði og
vildi óska þess að Þjóðólfur og
önnur landsmálablöð geti haldið
starfsemi sinni áfram".
Sig Jóns.
* ÞAÐ to ARA
GÐ Á SUTLAGI
um margviður-
du KORK O
T gólfflísum
r þú kaupir KORK
AST þá faerðu
VBYRGÐAR-
ÁBYRGÐIN GILDIR
YFIR 14 GERÐIR K O P.
HRINGIÐ EFTIR
FREKARI UPPLÝSIIMGUM.
Wicanders
Kork-cvPlast
Sœnsk gœðavara í 25 ár.
KORK O PLAST er með slitsterka vinylhúð og notað á gólf sem mikið
mæðir á, svo sem á flugstöðvum og á sjúkrahúsum.
KORK O PLAST er auðvelt að þrífa og þægilegt er að ganga á því.
Sérlega hentugt fyrir vinnustaði, banka og opinberar skrifstofur.
KORK O PLAST byggir ekki upp spennu og er mikið notað í
tölvuherbergjum.
KORK O PLAST fæst í 13 mismunandi korkmynstrum.
Gegnsæ. slitsterk og
auðþrifanleg
^ vinyl-filma
Rakavarnarhuð
i köntum
Serstaklega valinn
korkur i 13 mismunandi
munstrum.
Sterkt vinyl-undirlag
Fjaðrandi korkur.
EF ÞÚ BÝRÐ ÚTI Á LANDI ÞÁ SENDUM VIÐ ÞÉR ÓKEYPIS
SÝNISHORN OG BÆKLING.
ÞÞ
co
Einkaumboö á Islandi.
Þ. ÞORGRIMSSON & CQ
Armúla 16 • Reykjavik • sími 38640