Morgunblaðið - 02.11.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.11.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLADID, LAUG ARDAGUR 2. NÓVEMBER1985 900 lítrar af bruggi í tveimur íbúðum Mesta áfengismagn sem tekið hefur verið um langt skeið LÖGREGLAN í Reykjavík hefur lagt hald á um 900 lítra af bruggi auk verulegs magns af eimuðum landa. Bruggið og áfengið fann lögregla í tveim- ur íbúðum við Yrsufell í Reykjavík og er tvennt í haldi vegna rannsóknar málsins. Játningar liggja fyrir um, að áfengið hefði verið selt á markaði í Reykjavík og það í umtalsverðum maeli. Lögreglan hefur undanfarið unn- ið að rannsókn málsins. Tvívegis hafði verið leitað á heimili höfuð- paursins eftir að grunsemdir vökn- uðu en án árangurs. Aðfaranótt föstudagsins lét svo lögreglan til skarar skríða í þriðja sinn og þá fannst áfengismagnið. Höfuðpaur- inn hafði fengið nágranna i næstu íbúð til hýsa bruggið og lagt raf- magnsleiðslur yfir í íbúðina til þess að standa straum af kostnaði við bruggun og eimingu. Brugg var í nokkrum stórum tunnum, sem tóku eitt hundrað og tvö hundruð lítra hver. Þá fundust eimingatæki og 16 flöskur af eimuð- um landa tilbúnum til söiu. Lög- reglan í Reykjavík handtók fimm manns vegna rannsóknar málsins, en hafði sleppt fjórum í gær. Ekki hafði verið tekin afstaða til þess, hvort ástæða væri til þess að gera kröfu um gæsluvarðhald yfir mann- inum, sem talinn er standa á bak við áfengisframleiðsluna í Yrsu- felli. Þetta er mesta magn af bruggi og landa, sem tekið hefur verið um langt skeið hér á landi. Handalögmál um borð í þotu TIL handalögmála kom milli íslend- ings og Svía um borð í þotu Flugleiða í gær. Flugvélin var að koma frá Stokkhólmi. Er vélin kom inn yfir landið hugðist Svíinn taka myndir og færði sig yfír að glugga þar sem íslend- ingurinn sat. Eitthvað fór í taugar íslendingsins, því hann kippti óþyrmi- lega í myndavélina. Toguðust þeir á um gripinn nokkra hríð, en svo fór að Svíanum leiddist þófíð og sló ís- lendinginn. Flugstjórar tilkynntu lögreglu í gegnum talstöð að ólæti væri meðal farþega. Svíinn hefur lagt fram kæru á íslendinginn fyrir spjöll á myndavél sinni. íslendingurinn mun á móti hafa bent á það að gleraugu sem hann var meö hafi brotnað í átökunum. Morjfunblaðiö/ Júlíus Bruggið, eimingartækin og eimaði landinn, sem lagt var hald á í íbúð við Yrsufell aðfararnótt föstudagsins. „The Great Dream“ olíumálverk cftir Gunnar Örn Gunnarsson mynd- listamann. Guggenheim listasafnið í New York kaupir mynd eftir Gunnar Örn GUGGENHEIM listasafnið í New York hefur nýlega fest kaup á oliumál- verki eftir myndlistamanninn Gunnar Örn Gunnarsson, sem heldur einkasýningu í sýningarsal hjá Achim Moeller í New York um þessar mundir. „Myndin, sem ég kalla „The Great Dream“ hefur hlotið hvað mesta athygli á sýnigunni," sagði Gunnar Örn. „Þetta er tímamóta- mynd þar sem sitt lítið af hverju sem ég hef gengið í gegn um á undanförnum árum kemur fram.“ Myndin er máluð árið 1984 og hefur verið á einni sýningu í Lundi í Svíþjóð á síðasta ári en aldrei verið sýnd á Islandi. „Eg veit ekki til að Guggenheim safnið eigi mynd eftir aðra ís- lenska listamenn og það að selja safninu mynd er hlutur sem mann hefði getað dreymt um að gerðist á efri árum. Salan, sem slík breyt- ir engu fyrir mig persónulega, en hún auðveldar vissulega umboðs- manni mínum að kynna verk mín hér í Bandaríkjunum og í Evr- ópu,“ sagði Gunnar Örn. Þegar hefur verið afráðið að Gunnar Örn sýni teikningar á pappír og skúlptúr á sýningu hjá Achim Moeller næsta vor. Skipverji á Karlsefni tekinn en síðan sleppt Lögreglan fór fram á 30 daga gæsluvarðhald yfir þre- menningunum, sem teknir voru á fimmtudagskvöldið Morgunbladid/ Júlíus Lögreglumenn fíkniefnadeildar lögreglunnar leita fíkniefna við Chevrolet Monza, sportbifreið smyglaranna, á fímmtudagskvöldið en þeir reyndu að kasta eitrinu út úr bifreiðinni. FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar í Reykjavík handtók í fyrrinótt skip- verja á togaranum Karlsefni vegna gruns um aðild að smygli á amfetam- íni, sem lögreglumenn tóku af þrem- ur mönnum eftir æsilegan eltingar- lelk og snörp átök á Grandagarði á fímmtudagskvöldið. Skipverjanum var sleppt úr haldi í gær þar sem Ijóst þykir að hann eigi ekki aðild að smyglinu á amfetamíninu, þó smávægilegt magn af hassi hafí fundist í fórum hans. Lögreglan fór í gærkvöldi fram á 30 daga gæsluvarðhald yfir þre- menningunum, sem handteknir Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins á flokksráðsfundi: Jöfnuði í viðskiptum við útlönd verður ekki náð á næsta ári — í stjórnmálaályktun fundarins er lagst gegn hugmyndum um að skattleggja sparnað „Hverjum dettur í bug að það sé aðför að velferðarkerfínu að draga úr erlendum skuldum. Hverjum dettur í hug að erlendir fjármagnseigendur vilji halda uppi velferð hér á landi," sagði Þorsteinn Pálsson formaður Sjálf- stæðisflokksins og fjármálaráðherra á flokksráðsfundi sem haldinn var í gær. í setningarræðu sinni lagði Þorsteinn áherslu á að það væri verðmæta- sköpunin sem stæði undir velferðarkerfínu og því væri nauðsynlegt að auka hana, jafnframt því sem dregið væri úr erlendum lánum. Sá áróður væri rangur að einhver ný stefna hefði verið tekin upp í velferðarmálum og nefndi Þorsteinn dæmi um hið gagnstæða. I máli Þorsteins kom fram að varpinu sem nú liggur fyrir þingi gert er ráð fyrir að vaxtabyrði ríkissjóðs á næsta ári verði 6,2% af tekjum hans. Fyrir tíu árum var þetta hlutfall 1,5%. Ef ekki verður spyrnt við fótum verður þetta hlutfall hærra á næstu árum. Ef vaxtabyrðin á næsta ári yrði sú sama og á yfirstandandi ári, hefði ríkisstjórninni verið kleift að standa að fullu við loforð sitt um að lækka tekjuskatt um 600 millj- ónir króna. Um 3,2 milljarðar króna munu renna til greiðslu vaxta árið 1986, en í fjárlagafrum- er áætlað að tekjuskattur nemi 2,7 milljörðum króna. Engu að síður mun greiðslubyrði vegna beinna skatta lækka á næsta ári. Þorsteinn Pálsson lagði áherslu á nauðsyn þess að beita aðhaldi í ríkisútgjöldum án þess að skerða kaupmátt launa. Verkefni ríkis- stjórnarinnar er að vinna að lækk- un verðbólgunnar enn frekar en orðið er og draga úr erlendum skuldum. Halli á viðskiptum ís- lendinga við útlönd er verulegur, ekki vegna vöruskipta, heldur vegna þess að íslendingar eru að borga erlendum fjármagnseigend- um vexti af lánum undangenginna ára. Helmingur af öllu lánsfé okkar kemur erlendis frá. Formað- ur Sjálfstæðisflokksins sagði að æskilegt hefði verið að geta stefnt að hallalausum viðskiptum við út- lönd strax á næsta ári, en slíkt væri ekki mögulegt, nema með því að skerða kaupmátt launa. Það væri hins vegar ekki stefna ríkis- stjórnarinnar. Þorsteinn vék einnig í ræðu sinni að hugmyndum um gengis- fellingu krónunnar, sem einni leið til að rétta við hag sjávarútvegs- ins. Hann taldi að slíkar aðgerðir orkuðu tvímælis, sérstaklega vegna þess að meiri hluti en áður af útgjöldum fyrirtækja í sjávar- útvegi væri tilkostnaður, sem myndi hækka þegar gengi íslensku krónunnar væri fellt gagnvart erlendum gjaldmiðlum. Þá er launakostnaður einnig stór hluti rekstrarkostnaðar, og engum dytti í hug að ekki þyrfti að bæta starfs- fólki sjávarútvegsfyrirtækja upp þá kjararýrnun sem það yrði fyrir í kjölfar gengislækkunar. Á fundi flokksráðs Sjálfstæðis- flokksins var samþykkt stjórn- málaályktun, þar sem meðal ann- ars er lagst gegn þeim hugmynd- um að leggja skatt á sparifé. Þá er einnig lýst yfir stuðningi við framkomið frumvarp um sveitar- stjórnarmál, með þeirri breytingu að úr því verði felldur kaflinn um héraðsnefndir. Þá lagði Vilhjálmur Egilsson, formaður Sambands ungra sjálf- stæðismanna, fram greinargerð og tillögur stjórnar SUS um aðhald og sparnað í ríkisrekstri, til kynn- ingar. voru vestur á Grandagarði. Dóm- ari í sakadómi í ávana- og fíkni- efnamálum tók sér frest til dagsins í dag, laugardags, til að kveða upp úrskurð. Lögreglumenn fíkniefnadeildar- innar voru önnum kafnir aðfarar- nótt föstudagsins í kjölfar hand- tökunnar vestur á Grandagarði. Þeir fengu úrskurði dómstóla til húsleita í tveimur íbúðum í Reykjavík, en urðu ekki fíkniefna varir í þeim. Svo sem fram kom í Morgun- blaðinu í gær, voru smyglararnir stöðvaðir við Gróubúð, bækistöð slysavarnardeildarinnar Ingólfs á Grandagarði. Lögreglumenn urðu tvívegis að aka utan í hraðskreiða sportbifreið þeirra til þess að stöðva þá. Sportbifreiðin, Chevr- olet Monza, er í eigu eins smygla- ranna. Sjónvottar bera að viðbrögð lögreglu við handtökuna hefði verið fumlaus og örugg. Að sögn Arnars Jenssonar, fulltrúa í fíkni- efnadeild lögreglunnar, var gripið til þess ráðs að stöðva þá á Grandagarði þar sem gatan er þrengst. „Við hugleiddum að stöðva þá við Karlsefni, en hættum ekki á það, því reynsla okkar er sú, að fíkniefnaneytendur - sér í lagi þeir sem neyta amfetamíns - eru óútreiknanlegir. Við vildum því ekki stöðva þá á hafnarbakkan- um af ótta við að þeir kynnu að fara sjálfum sér og öðrum að voða með því að aka út af hafnarbakk- anum og hafna í sjónum, svo dæmi sé tekið,“ sagði Arnar og bætti við: „Því stöðvuðum við þá þar sem gatan er mjóst og áður en þeir kæmust út á aðalbrautir Reykja- víkur þar sem hraðskreið sport- bifreið þeirra fengi notið sín og þeir ef til vill náð að fyrirgera amfetamíninu."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.