Morgunblaðið - 02.11.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, I^UG ARDAGUR 2. NÓVEMBER1985
21
Reynir Þorgrímsson, fonnaður Lionsklúbbains Vfðarre, afhendir Þórði
Harðarsyni, prófessor, heilsugKslutækið.
Landspítalanum af-
hent hjartagæslutæki
LIONSKLÚBBURINN Víðarr í Reykjavík afhenti Landspítala íslands
hjartagæslutæki miðvikudaginn 30. október síðastliðinn.
1 frétt frá klúbbnum segir að
notkun þessa tækis brjóti blað í
sögu hjartalækninga á íslandi,
þar sem það auðveldar til muna
allar rannsóknir á hjartasjúk-
dómum. 1 þessu sambandi eykst
sérstaklega öryggi í mælingum á
þanþrýstingi hjartans.
Til þess að taka á móti þessu
tæki voru mættir í Lionsheimil-
inu þeir Þórður Harðarson pró-
fessor og Árni Kristinsson sér-
fræðingur ásamt forsvarsmönn-
um spítalans.
Til að fjármagna kaup á þessu
tæki hefur Lionsklúbburinn Víð-
arr staðið fyrir sölu á barm-
merki, unnið að fegrun umhverf-
is meðfram þjóðveginum frá
Rauðavatni austur að Kamba-
brún, gefið út borðdagbók og nú
síðast við hreinsun Tjarnarinnar
í Reykavík eins og fram hefur
komið í blöðum.
Á meðfylgjandi mynd afhendir
Reynir Þorgrímsson formaður
Lionsklúbbsins Víðarss hjarta-
gæslutækið Þórði Harðarsyni
prófessor.
Hannyrðasýn-
ing í Þjóð-
minjasafn-
inu stendur
til áramóta
í BOGASAL Þjóóminjasafns íslands
hefur frá því í júlí sl. verið uppi sýn-
ingin Meó silfurbjarta nál. íslenskar
hannyróakonur og handverk þeirra.
Er þar kynntur um hálfur fimmti
tugur nafngreindra íslenskra hann-
yrðakvenna frá fyrri hluta 12. aldar
til seinni hluta 19. aldar — auk
einnar frá fyrri hluta hinnar tuttug-
ustu — og sýnd dæmi um handaverk
flestra þeirra.
Aðsókn að sýningunni verður að
teljast mjög góð því að um 13.500
gestir hafa skoðað hana til þessa.
Upphaflega var ráðgert að sýning-
in stæði til loka októbermánaðar,
en nú hefur verið ákveðið að fram-
lengja hana til áramóta.
Sýningunni fylgir myndskreytt
skrá á íslensku og ensku í saman-
tekt Elsu E. Guðjónsson, deildar-
stjóra Textíldeildar Þjóðminja-
safns, þar sem gerð er grein fyrir
einstökum hannyrðakonum og
verkum þeirra auk sögulegs yfir-
lits.
Sýninguna hannaði Gunnar
Bjarnason, en að uppsetningu stóð,
auk hans og Elsu E. Guðjónsson,
Margrét Gísladóttir, deildarstjóri
Forvörsludeildar safnsins.
(Fri Þ)óöminiautni falands.)
NÁMSKEIÐ Á
HEWLETT PACKARD
TÖLVUR OG HUGBÚNAÐ FRÁ TOK.
NÁMSKEIÐ A VEGUM TOK.
Fyrir notendur TOK hugbúnaðar
og HEWLETT PACKARD vélbún-
aðar.
FJÁRHAGSBÓKHALD 1.
Grunnnámskeið í fjárhagsbók-
haldi byggt á TOK kerfinu.
Haldið dagana 4.11., 18.11. og
9.12.
FJÁRHAGSBÓKHALD 2.
Námskeið ætlað þeim, sem
annað hvort hafa nokkra reynslu
af færslu bókhalds á tölvu, eða
hafa sótt námskeið FJÁRHALDS-
BÓKHALD 1. Haldið dagana
11.TT.og25.il.
MEMOMAKER
RITVINNSLUKERFIÐ.
Námskeiðið tekur aðeins fjóra
tlma og á þátttakandi að vera
fær um að nýta sér MEMO-
MAKER ritvinnslukerfið að því
loknu. Haldið dagana 29.10. og
5.11.
PCF SPJALDSKRÁRKERFIÐ.
Námskeiðið tekur fjóra tíma og
eiga þátttakendur að geta byggt
upp sín eigin spjaldskrárkerfi að
því loknu. Haldið 30.10.
VISICALC 1.
Grunnnámskeið fyrir þá sem ekki
hafa áður notað þetta vinsæla
forrit. Haldið dagana 6.11.,
12.1T og 27.11.
GRAPHICS.
Á þessu námskeiði er kennd
meðferð staðlaðra forrita frá HP
til myndrænnar framsetningar á
tölulegum upplýsingum, ásamt
notkun á grafiskum teiknurum.
Haldið dagana 13.11. og 10.12.
LISTAVINNSLA.
Kennsla í K-INFORM lista-
vinnslukerfinu. Þetta námskeið
hentar þeirp'sem vilja vinna sjálf-
stæðar vinnslur ( bókhaldi,
sniðnar eftir eigin þörfum.
Haldið dagana 19.11 og 26.11.
Staður HP Á ISLANDI,
Höfðabakka 9
Tími: 9-13
Verð: kr. 2 400
hvert námskeið.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku til Ingibjargar eða Sigurðar
í síma 685420 TÖLVUVINNSLA OG KERFISHÖNNUN HF.
FURUGEROf 5
0úf
I laufléttum
plastflöskum...