Morgunblaðið - 17.11.1985, Page 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985
HÆGRI OG VINSTRI TAKAST Á:
Sumum kemur vel
að vera örvhentir
Örvhentir eiga ekki alltaf sjö
dagana sæla. Flestir hlutir eru
gerðir fyrir „rétthenta“ og auðveld-
ustu verk eins og að sauma á
saumavél eða toga sláttuvél í gang,
geta snúist fyrir þeim. Til skamms
tíma var börnum bannað að beita
vinstri hendinni og hún jafnvel
bundin fyrir aftan bak þegar þau
áttu að læra að skrifa. Aðeins 8%
mannkynsins eru örvhent og hægri
höndin hefur fengið hærri sess í
siðaðra manna samskiptum; við
heilsum með hægri hendinni.
Menn eins og Leonardo da Vinci,
Beethoven, Goethe, Charlie Chapl-
in, Paul McCartney, John McEn-
roe og Robert Baden-Powell, innan
hreyfingarinnar sem hann stofnaði,
skátahreyfingarinnar, heilsast allir
með vinstri hendinni.
Hliðarnar tvær hafa sína póli-
tísku merkingu og í Biblíunni
kemur skýrt fram til hvorrar
handar við Frelsarann verður
betra að lenda á dómsdegi: „En
er mannssonurinn kemur í dýrð
sinni og allir englarnir með
honum, þá mun hann setjast í
hásæti dýrðar sinnar, og allar
þjóðirnar munu safnast saman
frammi fyrir honum, og hann
mun skipa sauðunum sér til
hægri handar og höfrunum sér
tii vinstri handar. Þá mun kon-
ungurinn segja við þá til hægri
handar: Komið, þér hinir bless-
uðu föður míns og takið að erfð
ríkið, sem yður var fyrirbúið frá
grundvöllum heims; ... Þá mun
hann og segja við þá til vinstri
handar: Farið frá mér þér bölv-
aðir, í eilífa eldinn, sem fyrir-
búinn er djöflinum og englum
hans.“ (Matteus, 25,31).
En til eru þeir sem njóta þess
að vera örvhentir. Bestu tennis-
kappar heims eru langflestir
örvhentir, einnig bestu boxarar
og skylmingamenn og það þykir
gott að vera örvfættur í fótbolt-
anum. í golfi er hins vegar betra
að vera „rétthentur". Golfút-
búnaður er gerður fyrir þá sem
kunna að beita hægri hendinni.
Það er vegna fyrirkomulags
heilabúsins og „boðveitukerfis"
líkamans, taugakerfisins, að
flestir beita hægri höndinni frek-
ar en þeirri vinstri. Vinstri hlið
heilans sendir út meirihluta
fyrirskipunarboða til líkamans
og boðin fara yfir í hægri hönd-
ina fyrst af því að taugakerfið
liggur í kross. Vinstri hlið heil-
ans „hugsar" meira en hægri hlið
hans. Hún vinnur úr því sem við
heyrum og við segjum en hægri
hliðin sér hlutina í heild sinni
og bregst við þeim án þess að
eyða tíma í að kryfja þá til
mergjar.
Þetta kemur örvhentum
skylmingamönnum vel, enda
hafa allir heimsmeistarar í
skylmingum verið örvhentir síð-
an á ólympíuleikunum í Mexíkó
1968. Boðin frá hægri helmingi
heilans fara beint niður í vinstri
handlegginn á þeim og þeir geta
brugðist við skylmingarástand-
inu sekúndubroti fyrr en „rétt-
hentir" andstæðingar þeirra.
Þeim hefur hins vegar ekki farn-
ast eins vel í einvígum og í
íþróttakeppnum. Þegar á hólm-
inn er komið rétta örvhentir
skylmingamenn fram vinstri
hluta Hkamans, þar sem hjartað
er að finna um leið og þeir leggja
til atlögu við andstæðinginn.
Boðveita líkamans ræður ekki
eins miklu um góða frammistöðu
örvhentra tennisspilara og
skylmingamanna. Margir sigur-
sælustu tennisspilarar heims eru
þó örvhentir. Það var t.d. í fyrsta
sinn í ár að „rétthentur" leik-
maður, Ivan Lewndl, sigraði US
Open-keppnina í Flushing Mea-
dows í Bandaríkjunum. Góðir
tenniskappar reyna að vinna stig
með því að slá boltann þannig
að mótherjinn þurfi að beita
„bakhöndinni" sem mest. Stór
meirihluti tennisspilara eru rétt-
hentir og boltinn er því í flestum
tilvikum sendur vinstra megin
við andstæðinginn. En það er
ekki góður leikur gegn örvhent-
um og „rétthentir” þurfa því að
breyta leik sínum dálítið þegar
þeir mæta þeim. Þetta kemur
örvhentum vel og það er oft ekki
fyrr en í úrslitaleikjum sem þeir
keppa við annan örvhentan —
og þá þurfa báðir að breyta sín-
um leik af því að þeir eru vanir
að keppa við „rétthenta".
örvhentir boxarar hafa einnig
náð langt á boxarabrautinni.
Þeir eru svo heppnir að viðkvæm
Örvhentir skylmingamenn
reka fram hjartahliðina þegar
á hólminn er komið.
„Rétthentir“ kunna ekki alltaf
að verjast höggum örvhentra
boxara.
John McEnroe nýtur þess að
vera örvhentur.
innyfli líkamans liggja vel við
höggi vinstri handar og þeim
tekst því oft að meiða „rétthenta"
andstæðinga sína áður en þeim
tekst að lumbra almennilega á
þeim. Lifrin liggur t.d. sérstak-
lega vel við höggi vinstri handar-
innar undir rifbeinunum hægra
megin. Og góðir boxarar eins og
Bretinn Sibson, kunna oft ekki
að verjast höggum örvhentra.
Marvin Hagler, heimsmeistari í
milliþungavigt, er örvhentur og
kýldi Sibson eitt sinn í spað í sex
lotum af því að Sibson vissi ekki
hvernig hann átti að verjast fíl-
efldum höggum vinstri handar
Haglers.
Klukkuvísar snúast eins og
gangur sólarinnar á norðurhveli
jarðar, frá vinstri til hægri. Þeir
sem villast í myrkri ganga yfir-
leitt í hringi og þá öfugt við gang
sólar. Hægri fóturinn er kraft-
meiri á flestum og hann tekur
ákveðnari skref, vinstri fóturinn
dregst eiginlega aftur úr og
sveigja til vinstri kemur á göngu-
leiðina. Kapphlaup á íþróttaleik-
vöngum eru hlaupin á móti gangi
sólar. Hægri fóturinn er utan við
hringinn og beitir meira afli en
vinstri fóturinn.
Auðvitað er hægt að þjálfa
hendur og fætur svo að þeir verði
jafn aflmiklir. En öll mannsbörn
eru fædd annað hvort „rétthent"
eða örvhent. Dýr eru hins vegar
laus við þetta og jafnvægi ríkir
milli útlima þeirra. Enginn
knattspyrnumaður kemst mjög
langt á vinstri væng án þess að
vera örvfættur eða með vel þjálf-
aðan vinstri fót. Real Madrid
borgaði einu sinni himinháa
summu fyrir „örvfættling" en nú
þykja þeir sem eru jafnvígir á
báða fætur bestir í íþróttinni.
Platini, Maradona, Rummenigge,
Zico og Socrates geta allir beitt
báðum fótum á hraðan og gagn-
legan hátt. ab
Til sölu
Dodge Power Wagon 200
Árgerö ’79 kominn ’81 á götuna ekinn 20.000 km,
10— 11 manna, 318 vél. Með honum fylgir 6 tonna
spil, toppljós, spoke felgur dana 60 hásingar aftur
og fram, vökvastýri, pover bremsur, kastarar, drif-
lokur, cargoljós, plussklædd sæti.
Bíllinn verður til sýnis í húsi Hjálparsveitar skáta,
Garðabævið Bæjarbraut, laugardaginn 16.,sunnu-
daginn 17. nóv. milli kl. 10—19 og þriðjudaginn 19.
nóv. millikl. 19—22.
Hægt er að fá upplýsingar í símum 46860 og 641480
ásamatíma.
J
LÍTIÐ INN —
LEITIÐ UPPLÝSINGA.
ÞÓRUNN í ÖRUGGT SÆTI í
BORGARSTJÓRN.
STUÐNINGSMENN
SiuaBin«s®*“
HÖFUM OPNAÐ KOSNINGA-
SKRIFSTOFU ÞÓRUNNAR
GESTSDOTTUR FORMANNS
LANDSSAMBANDS SJALF-
STÆÐISKVENNA í HAFNAR-
STRÆTI20,3. HÆÐ.
OPIÐ FRÁ14—22 ALLA DAGA.
SÍMAR:
622055og34199