Morgunblaðið - 17.11.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.11.1985, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985 AF INNLENDUM VETTVANGI FRÍÐA PROPPÉ Itl' P| Skipulagsstjórn ríkisins afgreidir aðalskipulag Kópavogs með fyrirvara um frestun á skipulagi dalsins til fimm ára. Kópavogur krefst niðurfell- ingar á samþykktu skipulagi Reykjavíkurborgar, þar sem gert er ráð fyrir Fossvogsbraut. Akvöróun um nýtingu Foss- vogsdals enn slegið á frest UNDANFARIN ár hafa yfirvöld Kópavogskaupstaðar og Reykjavíkurborgar deilt hart um nýtingu Fossvogsdals, deiluefnið vegagerð eða útivistarsvæði. Deilur sem þessar eru ekki nýjar af nálinni. Erlendis hafa hraðbrautalagnir iðulega leitt til harðvítugra deilna og hérlendis er skemmst að minnast harðra deilna um Hafnarfjarðarveg innan Garðabæjar. Skipulagsstjórn ríkisins samþykkti á fundi sínum hinn 23. október sl. tillögu að aðalskipulagi Kópa- vogs árin 1984-2004 með fyrirvara um, að bæjarstjórn Kópavogs fallist á frestun skipulags til fimm ára í Fossvogs- dal. Hér er um að ræða það svæði á landamörkum Kópavogs og Reykjavíkurborgar, sem sveitarfélögin hafa deilt um nýtingu á. í samþykktu aðalskipulagi Reykjavíkurborgar er þarna gert ráð fyrir stofnbraut, en í aðalskipulagi Kópavogs, sem skipulagsstjórn gerði fyrrgreindan fyrirvara við, hefur bæjarstjórn Kópavogs ákveðið útivistarsvæði. Beiðni skipulagsstjórnar um frestun skipulags Fossvogsdals til fimm ára svaraði bæjarstjórn Kópavogs með samþykkt á bæjar- stjórnarfundi 28. október sl. en þar er sú krafa gerð til borgarstjórnar Reykjavíkur og skipulagsstjórnar, að skipulag svæðisins i Fossvogs- dal, innan bæjarmarka Kópavogs, verði fellt út af aðalskipulagi Reykjavíkur, en sú staðreynd að skipulagið nær inn í Kópavogsland á rætur í gömlu samkomulagi sveitarfélaganna. í áfangaskýrslu um vegakerfi höfuðborgarsvæðisins 1990-92, sem unnin var af vinnuhópi um vegakerfi svæðisins, er ekki talin þörf á Fossvogsbraut eða öðrum dýrum lausnum fyrir austur- vesturumferð á þessu svæði á því tímabili. Umferðarspár benda þó til, að ekki verði komist hjá kostn- aðarsömum lausnum síðar og er brautin þá talin einn kosta. Vinnu- hópurinn — skipaður fulltrúa Vegagerðar ríkisins, borgarverk- fræðings og bæjarverkfræðings í Kópavogi — Skipulagsstjórn ríkis- ins og Vegagerð ríkisins mæla því með að umræddu skipulagi verði frestað og tíminn notaður til frek- ari kannana og viðræðna deiluað- ila. Málið er nú í höndum borgar- stjórnar Reykjavíkur og bíða skipulagsyfirvöld eftir svari frá þeim, en Reykjavíkurborg hefur farið fram á að bæjarstjórn Kópa- vogs sendi þeim skriflega greinar- gerð um málið. Ljóst er að hér er um sameiginlegt hagsmuna- og úrlausnarmál viðkomandi sveitar- félaga að ræða og er umferðar- þunginn í austur/vesturlínu innan sveitarfélaganna beggja orðinn gífurlegur. Má sem dæmi nefna Bústaðaveg í Reykjavík og Nýbýla- veg í austurbæ Kópavogs. Hér á eftir verður drepið á nokkra þætti í forsögu þessa máls og gerð grein fyrir hugmyndum og tillögum til lausnar. í tengslum við gerð aðalskipu- lags Reykjavíkurborgar 1962-1983 gerðu öll sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu með sér samkomu- lag árið 1965 um stofnbrautakerfi svæðisins. Var þar gert ráð fyrir Fossvogsbraut sem hluta tenging- ar þjóðvegakerfisins við höfuð- borgarsvæðið. Var hún þar hluti af tengingu frá Suðurlandsvegi í miðborg Reykjavíkur í gegnum Elliðaárdal, Fossvogsdal, undir Hlíðarfæti (neðan Fossvogskirkju- garðs), meðfram Reykjavíkurflug- velli og eftir Sólareyjargötu niður í miðborgina. Samskipti Reykja- víkurborgar og Kópavogskaup- staðar varðandi landsvæði á mörk- um sveitarfélaganna byggjast síð- an að mestu á makaskiptum, þ.e. skiptum og sölum á landareignum. Samkomulagið frá 9. október 1973 Byggð í Fossvogsdal óx jafnt og þétt upp úr þessu og bilið milli byggðanna minnkar. Reykjavíkur- borg byggir m.a. skóla alveg við landamörkin og Kópavogur skipu- leggur Viðlagasjóðsbyggð neðst í Snælandshverfinu árið 1974. Bilið á milli byggða er nú 180 metrar þar sem það er styst, en sökum veðursældar og staðsetningar í hjarta byggðar á höfuðborgar- svæðinu hafa lóðir undir íbúðar- húsnæði verið mjög eftirsóknar- verðar báðum megin í dalnum. Á þessu tímabili, eða 9. október 1973, gera sveitarfélögin með sér samkomulag um breytingar á mörkum kaupstaðanna. í sam- komulaginu felst m.a. ákvörðun um að breyting á mörkum kaup- staðanna í Fossvogsdal verði skot- ið á frest í tvö ár í því skyni að á þvi tímabili fari fram athugun á nauðsyn Fossvogsbrautar. Enn- fremur skuli athugað með hvaða hætti gera megi slíka braut, ef nauðsynleg reynist og að athugun fari fram á samtengingu útivistar- svæða í dalnum, þar með tengingu skógræktarstöðvar Skógræktarfé- lags Reykjavíkur við fyrirhugað útivistarsvæði Kópavogskaupstað- ar í landi Lundar. I lok hins undir- ritaða samnings segir, að ef í ljós komi að nauðsynlegt reynist að ráðast í gerð Fossvogsbrautar, þ.e. að ekki finnist aðrar lausnir að dómi beggja aðila, skuli eftirfar- andi ákvæði gilda: „Suðurbrún Fossvogsbrautar verði mörk kaup- staðanna. Þegar til framkvæmda kemur, þó eigi fyrr en að 4 árum.j liðnum frá dagsetningu samkomu- lags þessa, lætur Kópavogskaup- staður Reykjavík í té kvaðalaust og án endurgjalds land það, er hann á í Fossvogsdal og lendir innan marka Reykjavíkur skv. samkomulagi þessu.“ Margir samverkandi þættir næstu árin verða til þess að Kópa- vogsbúar telja sig ekki lengur bundna af samkomulaginu frá ár- inu 1965 og í viðtölum við þá kemur helst fram, að þeir telja samkomu- lagið um stofnbrautir brotið með niðurfellingu stofnbrautar um Elliðaárdal, sem tengja átti Foss- vogsbraut og Suðurlandsveg, en niðurfellingin er staðfest í skipu- lagi austursvæða Reykjavíkur, árið 1978. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti fyrst 27. maí 1977 að fella skyldi Fossvogsbraut út úr skipulagi. Þeir benda á, auk niður- Núverandi ásUnd stofnbrautakern.s (til vinstri) á svæði Reykjavíkur og Kópavogs. Tölur sýna tugþúsundir bíla á sólarhring. Stofnbrautir framtíðar (til hægri). Helstu niðurstöóur vinnuhópsins, sem um er rætt. Eins og sjá má er spurningamerki við Fossvogsbraut en í niðurstöðum segir m.a.: „Til þess að tryggja gott ástand umferðar í framtíðinni verður að gera ráð fyrir því að Fossvogsbraut komi eða Miklabraut verði 6-8 akreinar með planfríum (tveggja hæða) gatnamótum. Brú yfir Kleppsvík (efst til hægri) getur þó létt sæmilega á Miklubraut og öðrum samsíða götum. í því tilviki verður þó að gera ráð fyrir a.m.k. 6 akreinum á Miklubraut til að tryggja gott ástand." Til viðbótar er þess getið að hæpið sé að brú yfir Kleppsvík geti orðið álitlegur kostur á næstu áratugum nema kostirnir Fossvogsbraut, tveggja hæða gatnamót á Miklubraut og brú yfir Elliðaárósa verði allir útilokaðir eða taldir mjög óæskilegir. M) stptember tfilS m Ém -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.