Morgunblaðið - 17.11.1985, Blaðsíða 15
asei flaayavóví vt wjnkawvvsi?. .QiaA.iaviuoaow_
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985
Svona eru byggingar olíufélaganna reistar, vegna frostsins í jörðu þýðir lítið að grafa grunna, frostið þrýst-
Ir öllu hægt og bítandi upp á við. Það eru í staðinn reknir niður staurar og ótrúlega stór og vegleg
mannvirki hafa verið reist á slíkum staurum.
er hægt að aka lengra í norður.
Starf mitt er fólgið í því að ég
ek eða fer í þyrlu til borstöðva
sem eru víða og geri við talstöðv-
ar og bílasíma. A sumrin ferðast
ég mikið með Twin Otter-flugvél
með flotholtum, því þá er lent á
vötnum og ám. Sumir af þessum
olíuborpöllum eru langt úti í
íshafinu, 150—200 km, en það
getur verið erfitt að gera sér
grein fyrir því, þar sem ísinn er
jafnvel nokkurra metra þykkur
Hvernig andrúmsloft og um-
hverfi er svo þarna?
„Það er óhætt að segja að ég
hafi fengið „kúltúrsjokk" þegar
ég kom þarna fyrst. Þarna eru
bæði eskimóar og indíánar og
einu hvítu mennirnir sem þarna
búa eru þeir sem tengjast olíu-
vinnslunni. Hinir innfæddu lifa á
Sleðahundur: Falleg dýr og vinaleg að sjá, en engin gæludýr.
Dæmigerð mynd af Ishafinu á þessum slóðum.
Gert við vinnuvól á Íshafsísnum, 150 km á hafi úti á 69 gráðu noröur.
Guttormur reynir að breiða segldúk yfir tækið og hjálpar þaö dálítiö.
„Þetta hófst fyrir fjórum árum,
er fjarskyldur Vestur—íslend-
ingur kom hingað til lands. Hann
á fallegt safn gamalla bíla og það
var afráðið að ég færi vestur um
haf með honum og ynni við þetta
safn, sæi um viðhald o.fl. Frændi
þessi býr í Bandaríkjunum og
undi ég hag mínum vel þar um
hríð, en svo var það fyrir tveimur
árum, að ég sá fyrir nokkurs
konar tilviljun auglýsingu í blaði.
Þar var verið að leita að útvarps-
virkja til að starfa fyrir olíufélög-
in í „North West Territories" en
svo heitir stærsta fylki Kanada
og átti viðkomandi virki að hafa
aðsetur við landamæri NWT og
Alaska, fast við Norður-íshafið.
Ég sótti um og var ráðinn."
Segðu okkur eitthvað meira um
þetta...
„Þarna er borað fyrir olíu á
veturna, einmitt þá vegna þess
að þá er allt frosið og hægt að
aka yfir hvað sem er á jeppum
og vinnuvélum. Á sumrin myndi
það ekkert þýða, því þetta eru
freðmýrar og það er allt á floti á
sumrin þar sem frost fer aldrei
úr jörðu. Ég hef búið í þorpi sem
heitir Inuvik, en hvergi í Kanada
veiðum og í frístundum er bók-
staflega ekkert við að vera ef
barinn er undanskilinn og víst
er að hinir innfæddu ekki síður
en hvítir starfsmenn olíufélag-
anna undanskilja hann ekki.
Þetta er vel borguð vinna í ol-
íunni, en margir drekka burtu
allar tekjurnar jafn harðan og
þær skila sér. Ég hef hins vegar
haft áhuga á því að safna mínum
peningum og þess vegna hef ég
lagt þessa vinnu á mig. Það er
þó ekki átakalaust að leggja fyrir,
því þarna er afar dýrt að lifa,
helmingi dýrara en annars staðar
í Kanada."
En í hverju er vinnan fólgin?
„Það er mikil útivinna og hún
er einkum erfið fyrir þær sakir,
að kuldinn getur orðið gífurlegur
á veturna, 80—90 stiga frost þar
sem vindar ná að gnauða óáreitt-
ir, en um 40 stig þar sem barr-
skógar ná að hefta för vindsins.
Úti á íshafsísnum eru engir barr-
a m
B 15
skógar og aðstaðan þar getur því
orðið afar erfið. Því eru manna-
skipti á þessum slóðum tíð og er
ég ekkert hissa á því. Það hefur
enginn fyrr enst eins lengi og ég
í útvarpsvirkjastarfinu og ég er
gallharður að halda þetta út í
nokkur ár enn.“
Hvers vegna?
„Jú, eins og ég sagði, þá eru
launin góð og svo gefur þetta
möguleika á því að ferðast. Ég á
bæði bíl og mótorhjól fyrir vestan
og síðasta sumar notaði ég fríið
mitt til þess að ferðast um
Bandaríkin þver og endilöng að
kalla má. Ég fór á hjólinu suður
alla vesturströndina og síðan yfir
þvera Nevadaeyðimörkina. Tók í
þetta rúman mánuð."
Er lífsbarátta innfæddra á þess-
um slóðum erfið?
Ég skil ekki annað en að svo
sé. Þetta eru veiðimenn upp til
hópa og það er ekkert annað að
gera. Þeir búa ýmist í tjöldum
eða í hrörlegum kofum sem þeir
hafa sjálfir reist sér eða fylkis-
stjórnin. Eskimóarnir veiða aðal-
lega hvali, svokallaða Beluga-
hvali, einnig seli og hreindýr.
Þeir nota töluvert sleðahunda og
það eru engin gæludýr. Indíán-
arnir veiða aðallega rádýr og
hreindýr, einnig mikið úlfa og
refi, en skinn þeirra selja þeir
„Hudson Bay“-fyrirtækinu. Það
eru margar indíánaþjóðir þarna,
en engar af þessum nafnkunn-
ustu, helst að ég nefni Deni-
þjóðflokkinn. Þarna er ein elsta
indíánabyggð Norður-Ameríku,
Old Crow-byggðarlagið. Þessi
upptalning segir manni að þarna
er mikið dýralíf þótt kuldinn sé
mikill og vetur langir. Ég hef séð
áhrifamikla sjón, sjón sem ekki
margir hafa séð, það eru moskus-
uxarnir sem lifa fyrir norðan
skógarmörkin við þau hrikaleg-
ustu skilyrði sem hægt er að
hugsa sér. Það er mikið af þeim
þarna og eskimóarnir nýta sér
þá einnig. Þá er þarna einnig
mikið af bjarndýrum. Þegar fólk
er á ferli við olíuborstöðvarnar
úti í íshafinu, er jafnan „hvíta-
bjarnarvakt". Þá er ekki fátítt
að fólk lendi í klónum á brún-
björnum (Kodiak eða brown be-
ar) og sé limlest eða drepið.
í heild séð er þetta heldur grá
tilvera þarna norður frá, en kost-
ir eru fyrir hendi, annars væri
maður ekki að standa í þessu og
það gefur augaleið að maður væri
ekki að þessu nema laus og liðug-
ur, fjölskyldumenn eru þarna
ekki. Ég ætla því að halda þessu
áfram um sinn og athuga svo
minn gang í fyllingu tímans."
- gg
Húsgagnasýning
Falleg á frábæru verði
T.d. leðursófasettfrákr.
kr. 75.500 stgr.
Tausófasettfrá
kr. 42.750 stgr.
Stakir leöursófar frá
kr. 29.800 stgr.
Stakir tausófar frá
kr. 18.900 stgr.
Raðsófasettfrá
kr. 41.700 stgr.