Morgunblaðið - 17.11.1985, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.11.1985, Blaðsíða 32
32 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985 mmhnn “Qorr\\\ hciVnski lykillinn minn vill ekki Opncx úiihurðinA, Xrúhtikrátt." .. .að láta tilbiðja sig. TM Reg. U.S. Pat. Off.—all rights reserved °1985 Los Angeles Times Syndicate Fá fimm glös af rustamcnn- is-saft! HÖGNI HREKKVÍSI Okurlánin að sliga fólk Fyrir stuttu kom þörf ábending til ráðamanna þessarar okurlána- þjóðar um að mikill fjöldi manna séu að verða gjaldþrota þrátt fyrir þrælavinnu og heiðarleika í hví- vetna. Hvað veldur? Ætli þurfi að útskýra það nánar? Öllum hugs- andi mönnum ætti að vera ljóst að verðtryggðu okurlánin eru að sliga fjölda fólks og það sem verra er, það er að fara með heilsu fjöl- margra heiðarlegra manna, eyði- leggja heimili og hjónabönd og skipta þjóðinni í sárgraman hóp á annan veginn, en gírugan gróða- hóp á hinn veginn. Mér varð það á að taka verð- tryggt okurlán árið 1981. Þetta okurlán var þá 30 þúsund krónur. Nú hefi ég staðið í skilum allar götur síðan, greitt okurvexti og borgað af þessu láni. Nú er láns- upphæðin orðin rösklega eitt- hundrað þúsund krónur. Það hljóta allir heilvita menn að sjá hversu vonlaus barátta það hlýtur að vera fyrir þá, sem hafa tekið hærri lán en þetta smáræði, þeir hljóta að fara á hausinn fyrr en síðar. Árið 1981 gekk mér betur en nú að lifa af launum mínum. Þá var verð á matvælum viðráðanlegra. Nú hrökkva launin varla til þess að fæða fjölskyldu mína, hvað þá að klæða hana sómasamlega. Á meðan vex okurlánið og vex eins og púkinn á fjósbitanum. Hvað hugsa forráðamenn þessarar þjóð- ar? Ætla þeir ekki að leiðrétta þetta svívirðilega okur? Það er ef til vill skýringin á þessu, að þeir sem eiga fé í bönkum, horfa gírug- um augum á sinn sjóð stækka á kostnað hinna sem verr eru stadd- ir. Raunsær Mikilvægt er að gangandi vegfarendur beri endurskinsmerki nú þegar skammdegið færist yfir. HEILRÆÐI Skammdegið færist yfir Foreldrar: Látið börnin bera end- urskinsmerki. Notkun þeirra tryggir öryggi barnanna í umferðinni. Kennarar: Brýnið fyrir börnunum að fara varlega í umferð- inni og gefið þeim góð ráð í þeim efnum. Vegfarendur: Hvert fótmál í umferð- inni krefst umhugsunar ogaðgæslu. Ökumenn: Ljósker bifreiðanna verða að vera hrein og ljósin rétt stillt til þess að ljósmagnið nýtist sem best við aksturinn. Rétt notkun stefnuljósa auð- veldar alla umferð. Hjólreiða- og bifhjóla- menn: Hafið öryggisbúnað hjólanna í fullkomnu lagi. Munið ljósabúnaðinn og endurskinsmerkin. Klæð- ist ávallt yfirhöfnum í áberandi lit með endur- skins-merkjum. Víkverji skrifar Ifréttum sjónvarps fyrir nokkru var sagt frá því að smygl á fíkniefnum milli Danmerkur og Svíþjóðar væri alvarlegt vandamál og virtist sífellt aukast. Þar kom fram að lögreglumenn telja að aðeins takist að koma í veg fyrir 5% af þessu smygli. 95% varnings- ins komist á milli landanna og aðferðir glæpamannanna verða sífellt þróaðri. Þetta leiðir hugann að smygli á fíkniefnum til íslands. Á skömmum tíma hefur komist upp um smygl á miklu af amfeta- mfni hingað til lands. Efninu hefur verið komið um borð í íslenska togara í höfnum erlendis. Skyldi árangur íslenskra löggæzlumanna vera svipaður og þeirra í Dan- mörku og Svíþjóð? xxx Gamli bærinn í Hafnarfirði stendur á sérlega fallegum stað og við höfnina blandast sam- an iðandi athafnalíf og vinaleg fegurð. Hafnfirðingar hafa verið iðnir við að gera upp gömul hús á liðnum árum og eru mörg þeirra þekkt úr sögu bæjarins. Niður við höfnina steinsnar frá Hvaleyri hf., áður Bæjarútgerðinni, eru Sivertsenshús og Bryde-hús. Bæði eru þessi hús notuð sem minjasöfn. í húsunum sitt hvorum megin við eru veitingastaðirnir Riddarinn og A. Hansen. Mikil vinna var lögð í breytingar á þessum húsum og þar er nú boðið upp á góðar veitingar í skemmtilegu umhverfi. Andi lið- ins tíma hefur ekki tapast í endur- byggingunni og veitingarnar eru f takt við það sem nú gerist í ís- lenzkri matargerð. XXX Okurmál eru mjög í sviðsljósinu um þessar mundir, auk þess sem nú eru birtar ákærur og kveðnir upp dómar í hverju fjár- svikamálinu á fætur öðru. Að öll þessi mál koma upp á yfirborðið núna getur varla verið tilviljun. Ein ástæðan er vafalaust sú, að um leið og tekst að hafa hemil á verðlagsþróuninni í landinu koma f ljós ýmis kýli sem annars er unnt að fela í óðaverð- bólgunni. Önnur ástæðan er án efa sú að löggæsla og dómsvald eru betur á verði gagnvart brotum af þessu tagi, jafnframt því sem kunnáttu og þekkingu við rann- sókn og meðferð slíkra mála hefur fleygt fram hér á landi á allra síðustu árum. En fyrst og fremst afhjúpa svikamálin öll verulegar mein- semdir í fjármagnskerfi okkar. Okurlánastarfsemi til að mynda blómstrar ekki án þess að raun- veruleg þörf sé fyrir hana. Þessi starfsemi byggist fyrst og fremst á því að leysa tfmabundinn fjár- magnsskort smáfyrirtækja, sem eru tilbúin að greiða fyrir þá þjón- ustu á afarkjörum — e.t.v. vegna þess að þessir aðilar geta oft á tíðum velt þessari vaxtabyrði með einhverjum hætti út í verðlagið. Ljótasti þáttur okurlánastarfsem- innar er hins vegar þegar okurlán- ararnir nýta sér neyð fólks, sem leitar á þeirra náðir í örvæntingu, og komast jafnvel upp með að blóð- mjólka það svo árum skiptir. Okurstarfsemin verður hins vegar aldrei upprætt að fullu nema hoggið sé að sjálfri rótinni, þ.e. fjármagnsskortinum í landinu. Nú er samt tæpast hægt að segja að svigrúmið sé mikið f þeim efnum eins og háttar til hér á landi. Alltof stór hluti þjóðartekna fer til að greiða afborganir og vexti af erlendum lánum vegna offjár- festingarveislu liðinna ára. Þess vegna er nærtækast að gera ráð- stafanir til að laða allt það fjár- magn sem til er í landinu inn á hinn opna fjármagnsmarkað. Lyk- ilatriði í slíkum ráðstöfunum eru verðbréfamarkaðir, sem reknir eru fyrir opnum tjöldum og settir undir eðlilegt eftirlit, t.d. af hálfu bankaeftirlitsins. Þar eiga fjár- magnseigendur að geta fengið „hæsta eðlilega ávöxtun fjármuna sinna og freistast þar af leiðandi síður til að leita með þá í skúma- skot neðanjarðarhagkerfisins. Það væri því mikill skaði ef okurlána- umræðurnar nú yrðu til að kippa fótunum undan heilbrigðum verð- bréfaviðskiptum eins og nú eru hjá aðilum sem standa að væntan- legu Verðbréfaþingi Islands. Önn- ur leið til að draga úr fjármagns- skortinum er síðan að laða til Iandsins erlent fjármagn í formi fjárfestinga í ýmsum nýiðnaðar- og smáfyrirtækjum. Það mun hins vegar krefjast þróaðri fjármagns- markaðar heldur en hér er að finna núna — fjármagnsmarkaðar sem rekinn yrði á svipuðum frjálsræð- isgrunni og í löndunum sem næst okkur liggja og mestan áhuga munu hafa á að fjárfesta hér á landi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.