Morgunblaðið - 17.11.1985, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 17.11.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985 B 5 Séð inn Fossvogsdal. Fremst á myndinni er Nesti. Þar sem þrengst er á milli byggða í Kópavogi og Reykjavík eru 180metrar. Aðalskipulagsuppdráttur Kópavogs, eins og skipulagið hefur verið samþykkt í Kópavogi, en eins og sjá má efst á teikningunni er gert ráð fyrir útivistarsvæði á mörkum bæjarfélaganna, en á samþykktu skipulagi Reykjavíkur- borgar er Fossvogsbraut á landamörkunum. Kópavogsbær hefur nú farið fram á að sú skipan verði afnumin af Reykjavíkurborg og skipulagsyfirvöldum. fellingar stofnbrautar um Elliða- árdal, að atvinnusvæði færist austur og suður í tengslum við íbúðabyggðina og ennfremur að Reykjavíkurborg hafi ekki staðið við fyrirhugaðar ráðstafanir í öðru stofnbrautarkerfi aðalskipulags, til dæmis „skurðfríum" gatnamót- um á Miklubraut (þ.e. gatnamótum á tveimur hæðum), eða úrlausnum við Bústaðaveg til að miðla aust- ur-vesturumferð. Tengsl viö aðrar vegaframkvæmdir Afstaða Reykjavíkurborgar byggist samkvæmt viðtölum und- irritaðra við forráðamenn borgar- skipulags fyrst og fremst á því, að þeir telja mjög óskynsamlegt að loka þeim möguleika að þarna geti komið austur/vestur-tenging. Þá telja þeir samninginn frá 1973 enn í fullu gildi, enda hafi honum aldrei verið sagt formlega upp. í samningnum er reyndar gert ráð fyrir, að ef ágreiningur rísi um framkvæmd hans skuli hann lagð- ur fyrir gerðardóm, skipaðan ein- um fulltrúa frá hvorum aðila. Ef þeir nái ekki saman, skuli dóm- kvaddur oddamaður af Hæstarétti og ráði þá meirihluti. Ljóst er, að Reykjavíkurborg á við mikla erfið- leika að etja hvað varðar miðlun umferðar á þessum leiðum. Um- ferð um Bústaðaveg er oðin mjög mikil og slysahætta. Því er ljóst að leggja þarf í mjög kostnaðar- samar framkvæmdir við aðrar stofnbrautir, ef Fossvogsbraut kemur ekki. Þó er nefnt, að umtals- verð breikkun Miklubrautar, þ.e. í 6—8 akreinar með tveggja hæða gatnamótum, geti að hluta komið í stað Fossvogsbrautar, en þær framkvæmdir eru mjög kostnað- arsamar og fyrirséð að þeim fylgja miklar umferðartruflanir á fram- kvæmdatíma. Reykvíkingar binda einnig vonir við að ýmsar aðrar framkvæmdir og lagfæringar geti dregið úr umferðaröngþveiti á þessu svæði, t.d. lagning stofn- brautar við Hlíðarfót, þ.e. neðan Fossvogskirkjugarðs, sem liggja mun áfram meðfram Öskjuhlíð og niður í miðborg. Þessi stofnbraut er á áætlun næstu 5—10 ára. Þá er ætlunin að breikka Kringlumýr- arbraut úr Kópavogi að nýju brúnni og hin nýja Reykjanes- braut verður tengd við Breiðholtið næsta haust. Allt þetta telja borg- aryfirvöld að geti dregið úr álaginu á Miklubraut og á annarri austur/ vesturumferð, þó svo að þessar framkvæmdir leysi ekki þann langtímavanda, sem þau segja fyrirséðan. Vilji til viöræöna, en Kópavogsbúar vilja „annaö gildismat“ Borgaryfirvöld byggja flestar sínar röksemdir á umferðarkönn- unum, tölulegum upplýsingum um fjölgun bifreiða, sem orðið hefur umtalsvert meiri en ætlað var, og mannfjöldaspám. Formaður skipulagsnefndar Kópavogs, Ás- mundur Ásmundsson, segir m.a., að Reykvíkingar einblíni um of á þennan þátt. Hann segir Kópa- vogsbúa fyllilega tilbúna til að ræða málið en þá á víðari grund- velli. Þar séu umhverfismálin þeim efst í huga. „Við erum til- búnir að endurskoða og fresta þessu um ákveðinn tíma, en þá verður að koma annað gildismat. Umhverfismál og landnýting verð- ur að vera inni í myndinni. Það er fleira til en bara umferð og bílar,“ sagði hann. Hann bendir og á að Fossvogsdalurinn sé eitt hið ákjósanlegasta útivistarsvæði á öllu höfuðborgarsvæðinu. Að- spurður um, hvernig Kópavogur hyggist þá leysa umferðarvandann um Nýbýlaveginn og aðrar aust- ur/vesturgötur í austurbænum segir hann þann vanda að stærst- um hluta tilkominn vegna þess sem hann kallar „þvingaða strauma" á stofnbrautum í norð- ur/suður, þ.e. á Kringlumýrar- braut og Hafnarfjarðarvegi. Hið gífurlega gegnumstreymi muni t.d. strax minnka með tilkomu Reykja- nesbrautar upp í Breiðholt. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson for- maður skipulagsnefndar Reykja- víkurborgar segir, að Reykvíking- ar séu vissulega tilbúnir til að setjast niður og ræða málin. Að- spurður um afgreiðslu kröfu bæj- arstjórnar Kópavogs um niðurfell- ingu skipulags Fossvogsdals úr skipulagi Reykjavíkur, segir hann það mál í höndum borgarráðs, en það hafði verið sent til kynningar í skipulagsnefnd. „Ég tel Fossvogs- brautina sameiginlegt vandamál og sameiginlegt hagsmunamál Reykvíkinga og Kópavogsbúa. Okkur ber skylda til að leysa þetta á sem farsælastan hátt.“ Sigurður Thoroddsen skipulagsstjóri tekur í sama streng og formenn skipu- lagsnefndanna um að bezta lausn- in hljóti að vera sú, að aðilar setj- ist nú niður og finni lausn á þessu deilumáli, enda farsælast að opin- ber afskipti þurfi ekki til að koma. Leysa veggöng vandann? Óneitanlega hafa báðir aðilar sitthvað til síns máls, eins og ætíð þegar tveir deila, en vegna legu þrætusvæðisins um miðbik höfuð- borgarsvæðisins er líklega nokkuð til í þeim fullyrðingum, að þetta mál komi fleirum við en deiluaðil- um, þ.e. þeim sístækkandi hópi landsmanna, sem komast þarf leið- ar sinnar um þetta landsvæði. Hér verður að lokum gerð grein fyrir forathugun á Fossvogsbraut, sem Hönnun hf. vann fyrir borgarverk- fræðinginn í Reykjavík í febrúar 1984. Þar kemur m.a. fram hug- mynd, sem virðist í fljótu bragði geta komið til móts við óskir beggja, þó kostnaðarsöm sé. Athugunin nær til þriggja mis- munandi kosta Fossvogsbrautar, þ.e. hefðbundinn vegur í núverandi jarðvegshæð; hefðbundinn vegur grafinn niður á fasta undirstöðu og að brautin verði lögð um veg- göng og fyllt yfir. Gert er ráð fyrir 2,5 km beinum vegi um miðjan dalinn, tveimur akreinum í báðar áttir og umferð 28 þúsund bifreiða á sólarhring. Ekki er gert ráð fyrir neinum brottakstri efnis og jarð- vegur er þannig að djúpt er niður á fast. Niðurstaða athugunarinnar leiðir í ljós, að allar þessar leiðir munu færar, en að stofnkostnaður vegganga sé um fimmfaldur kostn- aður hefðbundins vegar. Veggöng munu kosta á milli 500-600 millj. króna. Fyrir þann mismun segir að eftirfarandi fáist: Landrými haldist að mestu óspillt á svæðinu. Aðstaða fáist um leið fyrir útivist. Truflun vegna umferðar og um- ferðarhávaða hverfi. Umferðar- öryggi. Enginn snjómokstur og minna viðhald á akbrautum. Loka- niðurstaða Hönnunar hf. er: „Skoðun okkar er sú, að veggöng á þessum stað geti átt rétt á sér frá tæknilegu sjónarmiði. Kostn- aður er meiri við veggöng en opinn veg og e.t.v. má afmarka 'göngin við viðkvæmustu svæðin þar sem byggð er þéttust.“ Miðað við stöðu mála í dag verð- ur varla hafist handa um gerð Fossvogsbrautar á næstu árum, ef hún verður þá samþykkt. Aðspurð- ir segja Kópavogsbúar m.a., að frestun skipulags svæðisins til fimm ára, án tryggingar fyrir því, að Fossvogsbraut verði tekin út af skipulagi Reykjavíkurborgar, komi ekki til greina. Þeir segja ennfremur að framtíðarhugmynd- ir um lagningu vegganga séu ekki ákjósanlegar því það þýði frestun um ófyrirséðan tíma á nýtingu dalsins sem útivistarsvæðis. Minna má á, að þegar liggja fyrir hugmyndir um nýtingu dalsins, Kópavogsmegin, sem útivistar- svæðis, t.d. meðfylgjandi teikning að 18 holu golfvelli. Þó golfvöllur sé kannski ekki heppilegasta hug- myndin að nýtingu svæðisins til útivistar vegna nálægðar við íbúðabyggðina, má af þessu sjá, að Kópavogsbúum er full alvara, enda fleiri hugmyndir i vinnslu. Endanleg staðfesting á aðal- skipulagi Kópavogs er í höndum ráðherra félagsmála. Þá má að lokum benda á, að fyrir Reykvík- inga er það ekki góður kostur að falla frá staðfestu skipulagi urn Fossvogsbraut. íbúar Reykjavík- urmegin í dalnum hafa margir andmælt gerð brautarinnar, en þeim má vera fyllilega ljóst, að aðalskipulag Reykjavíkurborgar hefur gert ráð fyrir brautinni allt frá árinu 1962, eða áður en Foss- vogshverfið byggðist. Með þvi að falla frá skipulaginu geta borgar- yfirvöld reiknað með kröftugri mótmælum, þegar og ef taka á brautina á ný inn í skipulag. 1:2000 ú.Æ« 8 9 4 4 37 í*o m 2835

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.