Morgunblaðið - 17.11.1985, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985
B 7
Afmæliskveðja:
Ingibjörg Stefáns-
dóttir frá Stakkahlíð
Þegar við Andrés Andrésson
kaupmaður og klæðskerameistari
í Reykjavík hófum samstarf að
kirkjumálum með stofnun óháða
safnaðarins sá ég frú Ingibjörgu,
konu hans, fyrst, en hún var þá í
blóma lífsins. Ég þekkti þó áður
til ættar hennar; og ættaróðalið,
æskuheimili hennar, Stakkahlíð í
Loðmundarfirði, þekktu flestir
Austfirðingar þeirra tíma af af-
spurn. Baldvin afi hennar í
Stakkahlíð var héraðskunnur
maður, og síðan Stefán sonur hans
og faðir Ingibjargar, sem kvæntur
var ólafíu Ólafsdóttur og bjuggu
þau eftir Baldvin í Stakkahlíð all-
an sinn búskap og Stefán var
hreppstjóri og í fyrirsvari fyrir
byggðarlagið, enda kvað að þeim
manni. Honum kynntist ég á heim-
ili Andrésar og Ingibjargar í
Reykjavík.
Ingibjörg er í senn fyrirmannleg
kona og alúðleg og fer henni hvort
tveggja jafnvel. Það liggur við að
sumir geti verið of fyrirmannlegir,
verði óaðgengilegir fyrir bragðið,
en aðrir of alúðlegir, ef svo mætti
segja, svo að jaðri við flíruskap.
Ingibjörg ratar þarna hinn gullna
meðalveg og heldur því ávallt reisn
og virðingu án þess að vingjarn-
leiki hennar sneyðist við það. Vinir
Andrésar Andréssonar urðu þess
fljótlega áskynja hve mikla ást
hann bar til þessarar ungu konu
sinnar og virti hana jafnframt
mikils vegna mannkosta hennar
og ástríkis sem hún auðsýndi
honum. Það er auðvelt að láta sér
þykja vænt um þau, hvort um sig
og bæði saman, og á þeim trausta
grundvelli byggðist samlíf þeirra
allt. Þau bjuggu á Suðurgötu 24
og þar fæddust börn þeirra öll.
Sigrún, er lagði stund á verslunar-
störf en lést fyrir 7 árum, Berglind,
sem býr í Hafnarfirði, Andrés,
skrifstofumaður hjá Almennum
tryggingum, og Stefán, trésmiður,
sem einnig á heimili í Reykjavík.
Ég þekkti öll þessi systkini frá
blautu barnsbeini, skírði sum
þeirra og fermdi öll og get því
manna best borið þeim vitni, og
elskulegri systkinahóp er erfitt að
hugsa sér. Slíkt var barnalán Ingi-
bjargar og Andrésar og kom hvort
tveggja til, erfðir, eðliskostir for-
eldranna og beggja ætta, og ástríkt
uppeldi með hollu taumhaldi.
Ingibjörg var og er börnum sín-
um mikil og góð móðir. Heimilið
mótaðist af hlýju, mildi, og öfga-
leysi. Prestur og stjórnarmenn
Óháða safnaðarins nutu oft gest-
risni þeirra hjóna fyrr á árum, en
Andrés var stjórnarformaður til
dauðadags. Vér munum enn hve
gott var að koma á þetta menning-
arheimili, þar sem friður og ein-
drægni réð ríkjum. En heimilis-
hlýjunnar þar nutu ekki aðeins
vinir og samstarfsmenn þeirra
hjóna, heldur og margir ókunnug-
ir, sjúkir og sárir, má til sanns
vegar færa, fólk sem leitaði and-
legs styrks hjá Andrési. En það
orð fór af, þótt hann væri manna
hógværastur, að honum væri léð
einhver náðargáfa eða andlegur
máttur til góðra áhrifa, sem aðeins
væri fáum gefinn. Að sitja í ná-
lægð hans og tala við hann styrkti
margan manninn í erfiðleikum
lífsins. Segulafl sumra manna
verður seint skýrt. Hann gat aldrei
neitað nokkurs manns bón sem
þurfti að létta á hjarta sínu við
hann, og í það fór ómældur timi
hjá honum, tími sem segja mátti
að tekinn væri frá konu og börnum
á stundum, en enginn taldi eftir
heldur leit á það sem mikið lá að
geta gefið öðrum tíma. Enn
minnast ýmsir hljóðra stunda í
návist þessa manns, þó flestir
gestir hans séu nú gengnir sömu
leið og hann, en Andrés lést fyrir
15 árum og söknuðu hans allir sem
höfðu kynnst honum.
Þá stóð frú Ingibjörg uppi með
drengina á æskuskeiði en dæturn-
ar höfðu þá stofnað eigin heimili.
Fyrir sjö árum dó eldri dóttirin,
Sigrún, síðan frá þremur ungum
börnum, aðeins 34 ára gömul. Hún
var flestum yndislegri kona og
móðir, ég hefi sjaldan kynnst
hreinni og fegurri sál. Dauði henn-
ar var þyngsta áfallið í lífi frú
Ingibjargar. En öll börn hennar
hafa verið henni ómetanlegur
styrkur, auk tengdabarna og
barnabarna, sem eru nú hennar
mesta gleði og orðin 11 að tölu.
Síðustu árin hefir hún átt við
vanheilsu að stríða en tekið þeim
örlögum með æðruleysi eins og
vænta mátti af þeirri hófstilltu og
lífsreyndu konu.
Gull prófast í eldi og guðhræddir
menn í nauðum, mælir ritningin.
Það mætti allt eins vel orða það
svo, að í ljós komi þegar mest á
reynir hver maðurinn er, það er
manngerðin, eða sálarstyrkurinn.
Sálarstyrkur er einmitt orð sem
mér finnst eiga öðrum hugtökum
betur við frú Ingibjörgu Stefáns-
dóttur. í rósemi og trausti skal
styrkur yðar vera: Afmælisósk
mín er sú að henni bregðist aldrei
sá styrkur og að henni gefist
bærileg, góð og batnandi heilsa svo
lengi sem hún lifir.
Ég óska þér, góða vinkona, inni-
lega til hamingju með sjötugsaf-
mælið á morgun og vona að þú
eignist þá ógleymanlega ánægju-
stund með ástvinum þínum og
vinum. Við Álfheiður færum þér
kærar þakkir fyrir allar ánægju-
stundir, sem við höfum átt saman
með þér og þínum frá fyrstu kynn-
um, og biðjum innilega að heilsa
þínum elskulegu börnum.
Emil Björnsson.
ctiikiie clit
Fjárfesting í framtíðar öryggi
I nútíma eldhús þarf nútíma búnað. Stflhreinan,
hagkvæman, ódýran í rekstri og öruggan. Kaup á
heimilisteekjum er fjárfesting í ffamtídar öryggi.
Bauknecht kæliskápar eru háþróuð þýsk gæða-
vara, þrautreynd á íslenskum markaði og rómaðir
fyrir ótrúlega lága bilanatíðni. Þess vegna sjást
Bauknecht kæliskápar sára sjaldan á verkstæði
Rafbúðarinnar.
Bauknecht leiðir rannsóknir og framfarir í fram-
leiðslu heimilistækja, þess vegna eru Bauknecht
kæliskápamir bæði ömggir í rekstri og ótrúlega
ódýrir.
Ef þú kaupir Bauknecht þarftu ekki að spyrja um
sjálfsagða hluti eins og sjálvirka afþíðingu, eða
gúmmflista með segulþynnum því tækninýjungar
em sjálfsagður hlutur hjá Bauknecht.
Við höfum oft sagt að þú keyptir
Bauknecht gæðanna vegna
og getum hæglega bætt við að ekki sé
það síður verðsins vegna.
Verð frá kr. 21.149
Gerö: PD 2614 Gerö SD 2304 Gerð: PD 3014
Hæð: 142 cm. Hæö 140 cm. Hæö 160 cm
Breidd: 55 cm. Breidd: 55 cm. Breidd 595 cm.
Dýpt: 60 cm Dýpt: 58,5 cm Dýpt 60 cm.
Við spjöllum saman um
útborgun og greiðsluskilmála
— og komumst örugglega að samkomulagi.
Ri r a.fs n
SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMAR 681910 ~81266