Morgunblaðið - 17.11.1985, Qupperneq 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985
The/imofi
Glerverksmiójan Esja
tilkynnir:
Rynningar- og fræóslufundur
Tæknífræðíngar, verkfræðíngar og arkítektar
athugið:
Kynningarfundur verður í húsakynnum Byggínga-
þjónustunnar, Hallveigarstíg 1, Reykjavík,
klukkan 17.00, fimmtudagínn 21. nóvember.
Dagskrá:
1. Fyrírlestur og kynníng, hressíng.
2. Ferð með hópferðabíl í Glerverksmiðjuna Esju,
Mosfellssveít og hún skoðuð.
3. Veítingar bornar fram í húsakynnum Esju.
4. Gestum ekið tíl Reykjavíkur.
Fyrirlesarí er Gerard Janssen, verkfræðingur,
marketíng manager hjá Glaverbel í Belgíu.
Allír tæknifræðíngar, verkfræðingar og arkitektar
eru hvattir tíl að sækja þessa kynníngu.
________Brids_________
Arnór Ragnarsson
Stofnanakeppnin
1985
Mjög glæsileg þátttaka er í
Stofnanakeppni (fyrirtækja-
keppni) Bridssambands íslands
og Bridsfélags Reykjavíkur. 28
sveitir taka að þessu sinni þátt
í keppninni. Spilaðar verða 9
umferðir eftir Monrad-fyrir-
komulagi. Lokið er 6 umferðum,
og er staða efstu sveita þessi:
Sveit:
Ríkisspítala A 114
Bðrksh/f 110
ÍSALS-skrifstofa 109
ístaks 109
Suðurlandsvideós h/f 105
SÍS-sjávarafurðadeild 104
ÍSAL-flutningadeild 102
Iðnaðarbankans 100
SÍS-búvörudeild 99
Flugleiða B 98
Landsbankans 97
Keppni lýkur á mánudaginn í
Domus Medica. Keppnisstjóri er
Hermann Lárusson.
Þetta er annað árið sem þessi
keppni er spiluð, en síðasta ár
tóku 26 sveitir þátt í Stofnana-
keppni. Sigurvegari þá varð
Sendibílastöðin hf. Þeir eru ekki
með að þessu sinni.
I
Bikarkeppni sveita
á Norðurlandi
Fyrirhugað er að halda bikar-
keppni sveita á Norðurlandi á
vegum bridssambanda Norður-
lands. Verður keppnin með svip-
uðu sniði og bikarkeppni Brids-
sambandsins þ.e. útsláttar-
keppni.
Þátttökutilkynningar þurfa að
hafa borist fyrir 1. desember en
áætlað er að 1. umferð verði lokið
fyrir áramótin. Þátttökugjald
verður 1000 kr. fyrir sveit og
verður spilað um silfurstig.
Síldarverksmiðjan í Krossa-
nesi hefir gefið veglegan farand-
bikar til keppninnar en auk þess
verða veitt eignarverðlaun fyrir
tvö efstu sætin. Nánari upplýs-
ingar veita Hörður Blöndal (96-
23124) og örn Einarsson (96-
21058).
Starfsmaður Bridssambands-
ins mun sjá um að draga saman
sveitir fyrir hverja umferð.
Hreyfill — Bæjarleiðir
Kristinn Sölvason og Stefán
Gunnarsson sigruðu örugglega í
fimm kvölda tvímenningskeppni
hjá bílstjórunum, hlutu 854 stig.
Röð næstu para:
Vilhjálmur Guðmundsson
Jón Sigurðsson 818
Flosi ólafsson —
Sveinbjörn Kristinsson 803
Anton Guðjónsson —
Daníel Halldórsson 799
Kristján Jóhannesson —
Helgi Pálsson 787
Gísli Sigurtryggvason —
Eyjólfur ólafsson 783
Meðalskor 734
Á mánudaginn hefst aðal-
sveitakeppnin. Spilað er í Hreyf-
ilshúsinu kl. 19.30.
Reykjavíkurmótið
í tvímenning
Skráning í Reykjavíkurmótið í
tvímenning, undanrásir, er hafin
hjá öllum bridsfélögunum. Und-
ankeppnin verður spiluð sunnu-
daginn 24. nóvember (tvær um-
ferðir) og sunnudaginn 1. des-
ember (ein umferð) í Hreyfils-
húsinu v/Grensásveg og hefst kl.
13 báða dagana.
Spilað verður eftir Mitchell-
fyrirkomulagi í undanrásum
(tölvuútreiknað af Vigfúsi Páls-
syni) en 27 efstu pörin komast í
úrslitakeppnina, sem verður
barometer, 4 spil milli para,
helgina 14.—15. desember nk.,
einnig í Hreyfli. Keppnisstjóri
er Agnar Jörgensson.
Einnig mun skrifstofa Brids-
sambandsins (ólafur) taka við
skráningu, fram til fimmtudags-
ins 21. nóvember.
Bridsdeild
Skagfirðinga
Eftir 8 umferðir af 13 í aðal-
sveitakeppni deildarinnar, er
staða efstu sveita þessi:
Sveit:
BjörnsHermannssonar 162
Magnúsar Torfasonar 148
Hjálmars S. Pálssonar 130
Sigmars Jónssonar 126
Sigurðar Ásmundasonar 126
Bernódusar Kristinssonar 124
Guðrúnar Hinriksdóttur 123
Gísla Tryggvasonar 121
Sveit Gísla á ólokið 2 leikjum
(frá fyrsta kvöldi).
Leiðrétting
við frétta-
skýringu
í tilefni af fréttaskýringu
um plastkortaviðskipti, sem
birtist í síðasta sunnudags-
blaði Morgunblaðsins,
óskar Gunnar Bæringsson,
framkvæmdastjóri Kredit-
korta sf., eftir því að eftir-
farandi komi fram:
Kreditkort sf., sem sér um
útgáfu og umsjón Euro-
card á íslandi, krefst nú
tveggja ábyrgðarmanna hjá
hverjum þeim sem sækir
um kort hjá fyrirtækinu.
Einu undantekningarnar,
sem gerðar eru frá því að
krefjast ábyrgðarmanna,
eru þær, að umsækjandi sé
fastur viðskiptavinur hjá
einhverjum af aðildarbönk-
um Kreditkorta, sem eru
frír þ.e. Verzlunarbanki
slands, Útvegsbanki ís-
lands og Sparisjóður vél-
stjóra og bera þá bankarnir
fulla ábyrgð á viðskiptum
viðkomandi. Þetta vill
Gunnar að fram komi svo
ekki misskiljist, að ábyrgð-
armanna sé aðeins krafist,
ef fyrirtækinu finnist eitt-
hvað orka tvímælis hvað
varðar viðskiptatraust
umsækjenda.