Morgunblaðið - 17.11.1985, Síða 33
MORGÚNÉLáÐIÖ, SUtfNlTÖAGlJR 17. NÓVEMÉER1985
B* 33-
STJÖRNULÍFFRÆÐI
Þorsteinn Jónsson á Úlfsstöðum
skrifar:
„Ég er ekki dáin, ég er aðeins
flutt." Þessi orð heyrði ég höfð
eftir framliðinni stúlku í morgun-
útvarpinu þann 6. nóv. sl., og var
þar þá um leið talað um, hve
mikilsvert það væri að öðlast vitn-
eskju og skilning á því, sem tekur
við eftir lát hvers lifanda. En sú
vitneskja og sá skilningur þótti
mér koma svo furðulega vel fram
í þessum fáu orðum hinnar fram-
liðnu stúlku. Og hvernig hún kom
þessum orðum sínum á framfæri,
þótti mér líka eftirtektarvert. Hún
kom þeim fram þannig, að maður-
inn, sem sagði frá þessu, las þau
af blaði, sem honum þótti stúlkan
bera sér á brjósti, og er ekki ólík-
legt, að þannig hafi henni þótt
öruggast, að þau aflöguðust ekki.
Skal nú í fáum orðum reynt að
gera grein fyrir skilningi mínum
hér.
Það má segja, að um tvennt sé
að ræða, þegar látinn einstakling-
ur gerir vart við sig hjá eftirlifend-
um. Annarsvegar er þá framkoma
hans sem raunverulegur svipur
eða líkamningur, sem öllum við-
stöddum er þá jafn sýnilegur, og
mun slíkt vera fágætara. Hinsveg-
ar er um samskynjan að ræða til-
komna á sama hátt og draumsýn,
sem ber fyrir sofandi mann. Verð-
ur að ætla, að slíkt hafi átt sér
stað, þegar Emanuel Swedenborg
hinn sænski skynjaði þar, sem
hann var staddur í Gautaborg,
stórbruna í Stokkhólmi samtíma
því, að sá stórbruni átti sér þar
stað. Hefir hér verið um slíkt að
ræða, því að þess var einmitt getið,
að einungis hinn „skyggni" maður
hafi séð stúlkuna og hið áletraða
blað, hvar orðin stóðu. Og vitneskj-
an, sem þau færðu honum, var, að
dauðinn sé aðeins flutningur, og
þá að sjálfsögðu til einhvers ann-
ars staðar, sem ekki gat þó verið
hér á jörðu. Greiðir hér því það
eitt fyrir skilningi á þessu, að hafa
gert sér ljóst, að Iífsamband eigi
sér stað á milli stjarnanna. Heims-
samband lifsins stendur að því, að
líf skyldi nokkru sinni kvikna á
þessari jörð. Það stendur líka að
þvi, að líf látinna haldi áfram á
öðrum jarðstjörnum himingeims-
ins.
Bréfritari telur að Eiðfaxi hafi rækt það slælega að flytja fréttir af hesta-
mannamótum.
Eiðfaxi fréttablað?
Steingrímur Viktorsson, Bergöldu
2, Hellu skrifar:
Þegar Eiðfaxi var stofnaður átti
að reyna að bæta úr brýnni þörf
er varðaði fréttaflutning af mótum
hestamanna. Hlutverk þetta hefur
blaðið rækt slælega, þvi miður.
Nú hafa dagblöðin stórlega aukið
flutning frétta frá hestaþingum,
enda notar Eiðfaxi sér það og visar
til úrslita á síðum þeirra. Þarf því
aftur að safna blaðaúrklippum til
lestrar í svartasta, skammdeginu,
eða þar til 4. tbl. Hestsins okkar
kemur út með hækkandi sól.
Svo segja menn: Eiðfaxi stendur
undir því nafni að heita fréttablað,
því hann kemur út mánaðarlega
11. sinnum á ári, með frásagnir
sem eru orðnar 3ja mánaða gaml-
ar.
Á bernskudögum Eiðfaxa óttuð-
ust margir samkeppni milli Hests-
ins okkar og Eiðfaxa. Bentu sumir
þá á að annað væri fréttablað en
hitt fræðslurit. Nú er 10 tbl. Eið-
faxa undirlagt ættbókarskrán-
ingu, sem vanalega hefur birst í
4. tbl. Hestsins okkar. Felst styrk-
ur blaðsins í því að hafa stjórnar-
menn LH innan sinna vébanda?
Óttast ritnefnd Eiðfaxa nú sam-
keppni annars staðar frá?
Þessar hugleiðingar um útgáfu;
Eiðfaxa eru ef til vill stundarfyrir-
brigði eða mas einfeldnings, sem
ná ekki inná síður blaðsins og
verður því þar af leiðandi að
sendast dagblöðum til birtingar.
Þessir hringdu
Hver þekkir
vísuna?
Guðrún Jónsdóttir hafði sam-
band við Velvakanda og óskaði
eftir aðstoð við að rifja upp vísu
sem endar þannig:
Milli manns og hests og hunds
hangir leyniþráður.
Bað Guðrún þá er kynnu að
kannast við vísuna að hafa sam-
band við Velvakanda og einnig
ef þeir gætu upplýst eftir hvern
vísan er.
í leit að dúfum
Gunnlaugur hringdi:
Mig langar til að forvitnast um
það hvort að einhverjir dúfnaeig-
endur á höfuðborgarsvæðinu
þurfi að fækka við sig dúfum.
Mig langar til að stækka dúfna-
stofninn minn og bið því menn
að leita til Velvakanda ef þeir
hafa áhuga á að losa sig við
einhverjar dúfur.
Tommi og Jenni
Magnús Sigurðsson, 11 óra,
Vestmannaeyjum hringdi:
Mig langar að spyrja fyrir
bróðr minn sem er fjögurra ára
þvort að ekki sé hægt að aýna
Tomma og Jenna oftar í sjón-
varpinu. Einnig fyndist honum
gaman ef hægt væri að hafa
Áftanstund oftar í sjónvarpinu.
Lélegar myndir
Helga hringdi:
Ég get ekki orða bundist leng-
ur yfir þeim lélegu myndum sem
sjónvarpið hefur boðið lands-
mönnum upp á undanfarnar
helgar. Maður skilur ekki lengur
hverjum þetta sjónvarp telur sig
vera að þjóna. Ætla mætti að
það væri að styðja myndbanda-
leigurnar.
Konan sem
gleymdist
I.H. hringdi:
Ég þakka Guðmundi Hall-
varðssyni, formanni Sjómanna-
félags Reykjavíkur, kærlega fyr-
ir grein hans „Konan sem
gleymdist", sem birtist í Morgun-
blaðinu 12. nóvember sl. Jafn-
framt langar mig til að spyrja
félagskonur í Kvenfélaginu Old-
unni og Kvenfélaginu Kveðjunni
hvort að þær ætli að gera eitt-
hvað í málunum í framhaldi af
þessari grein?
Fleiri þætti um
brjóstagjöf
Þriggja barna móðir hringdi:
Mig langar til að þakka fyrir
pistilinn um brjóstagjöf sem
fluttur hefur verið í þætti Jónínu
Benediktsdóttur. I dagsins önn.
Pistillinn er afskaplega fróðlegur
og skemmtilegur og mætti vera
miklu lengri. Eða jafnvel mætti
taka alla pistlana saman og
flytjaþái einum þætti?
Frakki í óskilum
Hugborg hringdi:
Ég var stödd á veitingastaðn-
um Hrafninum 1. nóvember sl.
þegar ég hélt heimleiðis tók ég í
misgripum Ijósan karlmanns-
frakka fyrir ljósan kvenmanns-
frakka. Hún eða hann sem sakn-
ar frakkans síns og hefur minn
undir höndum er vinsamlegast
beðinn um að hringja í síma
13310.
Góðar greinar
Ingibjörg hringdi:
Ég þakka kærlega fyrir tvær
greinar sem birtust í Morgun-
blaðinu miðvikudaginn 13. nóv-
ember sl. og nefndust „Með í ráð-
um“ eftir Helga Hálfdanarson
og „Sölumenn dauðans" eftir
Kristinu Sigtryggsdóttur.
Hvorutveggja eru afbragðsgóðar
greinar og hvet ég alla til að lesa
þær.
Afkomandi
þjóðskáldsins?
Lesandi spyr.
{ sambandi við hátíðarhöld á
150 ára afmæli þjóðskáldsins og
prestsins sr. Matthíasar Joch-
umssonar hefi ég verið að grúska
í frásögnum af lífi hans og störf-
um. í fréttum blaða, m.a. Morg-
unblaðsins, útvarps og sjónvarps
er alls staðar sagt að biskups-
frúin hafi afhjúpað minnisvarð-
ann, sem einn af afkomendum
hans.
Því langar mig að spyrja blóð
og aðra fjölmiðla: Hvemig kem-
ur það heim og saman með þjóð-
skáldið og biskupsfrúna?
TÓNABÍÓ
Sími31182
Nordurlandafrumsýning:
SVIKAMYLLAN
(Rigged)
Þeir töldu aö þetta yröu einföld viöskipti en í Texas getur
þaö einfalda táknaö milljónir, kynlíf og morö.
Hörkuspennandi og snilldarvel gerö, ný amerísk saka-
málamynd í litum. Myndin er byggö á sögunni „Hit and
Run“ eftir James Hardley Chase, einn vinsælasta
spennubókahöfund Bandaríkjanna.
Ken Robertson, George Kennedy, Pamela Bryant.
Leikstjóri: C.M. Cutry.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Bönnuö innan 16 ára — íslenskur texti.
Helgartilboð
Jukkur
á stórlækkuðu verði
Verð áður 489.- nu 366 -
Verð áður 715.- nuS36-
Verð áður 889.- nu 666.
Blómapottar
Faliegir keramikpottar
með skeljamjmstn.
_ Helmmgsafslattur
Verð áður 242.- nú 121.-
Verð áður 365.- nu 182-
Verð áður 458.- nu 226,