Morgunblaðið - 17.11.1985, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR17. NÓVEMBER1985
B 35
Jane Fonda
Jane Fonda
með margar
myndir
í takinu
Þá hefur Jane Fonda loksins
fengiö sig fullsadda af líkams-
ræktarstússinu sem átt hefur
hug hennar allan undanfarin
árin. Fyrir nokkrum vikum var
frumsýnd mynd meö henni, en
þaö er kvikmyndaútgáfan af
„Barni Guös“ (Agnes of God),
leikritinu sem Leikfélag
Reykjavíkur sýndi síöastliöinn
vetur.
Myndinni, sem Norman Jewi-
son stýrir, hefur veriö feiknar-
lega vel tekið, gagnrýnendur
hafa lofaö hana og aðsóknin
veriö góö. í öörum hlutverkum
erum Ann Bancroft og Meg Til-
ley sem leikur ungu nunnuna.
Jane þykir standa sig mjög
vel og eru menn þegar farnir aö
spá henni Óskarsverölaun, en
leikkonan er uppfull af framtíö-
aráætlunum. Næsta mynd
hennar mun heita „The Morning
After“, og ku vera um stjórnmál
og drykkjusýki og ýmis fleiri
algeng fyrirbæri í Los Angeles.
Tvær aörar myndir hefur hún
í takinu: „Old Money“, en bróöir
hennar, Pétur, mun taka þátt í
gerö myndarinnar og „Gringo
Viejo“, en ekkert hefur veriö
gef iö upp um hvaö þær f jalla.
Sting leikur
Frankenstein
Þaö er ekki aldeilis hætt aö gera
Frankensteinmyndir ef einhverjum
skyldi hafa dottiö þaö í hug. The
Bride (Brúöurin) er heiti á kvik-
mynd, sem unnið er að þessa
dagana og er aö talsveröu leyti
byggð á hinni klassísku Bride of
Frankenstein (Brúöur Franken-
stein) frá árinu 1935. Leikstjórinn
vill þó ekki meina að hér sé ná-
kvæm eftirlíking á ferðinni.
„Ég hef engan áhuga á endurtekn-
ingum,“ segir Frans Roddam í blaöa-
viötali. „Viö byggjum aö vísu á sögu
Mary Shelley en tökum allt annan pól
í hæöina en þeir sem geröu myndina
1935. Okkar er ofur-raunsæ og henni
er ekki á neinn hátt ætlað aö vera
minnismerki um hina fyrri. Þetta er
æfintýri, sem viö förum meö líkt og
viö værum aö gera Allt the Presid-
ents Men.“
Þaö er poppstjarnan góökunna úr
hljómsveitinni Police, Sting, sem fer
meö aöalhlutverkiö í The Bride. I
fyrstu átti hann aöeins aö leika lítiö
Sting
íhlutverki
vísinda
mannsins
Franken
steins
hlutverk í myndinni, en þótti tilvalinn
í gerfi Frankenstein af einhverjum
ástæöum. Yfirleitt er litiö á Franken-
stein sem gamlan visindamann, en
Shelley skrifaöi aö sögupersóna sín
væri 32 ára og það er Sting einmitt
íár.
„Ég sé Frankenstein fyrir mér sem
visindamann er berst hetjulega gegn
takmörkunum þekkingarinnar,“ læt-
ur Sting hafa eftir sér. „Hann er líka
ekkjumaöur og skapar konu, sem
hann getur stjórnaö til aö losna viö
einmanaleikann. Og um leið og hann
skapar hana fær hann ást á henni.
Hann skapaöi hana svo hún mætti
veröa frjáls og sjálfstæð en frjáls-
ræöiö takmarkaðst viö ástina
á honum."
Og hann heldur áfram. „Þaö er
gott fyrir mig aö leika Frankenstein.
Ég vil frekar taka aö mér hlutverk,
sem hinar heföbundnu kvikmynda-
stjörnur líta ekki viö. Ég vil ekki líta út
eða haga mér eins og kvikmynda-
stjarna." En hvers vegna vill hann
alltaf leika vondu kallanna í bíó-
myndum? „Ég hef áhuga á spurning-
unni um gott og illt,“ segir hann. „Ég
hef áhuga á tvíræöni fólks. í flestum
bíómyndum sjáum viö aöeins tvær
hliðar á mönnunum: einn er góður,
annar vondur. Þannig er það ekki í
raunveruleikanum. Þess vegna vil ég
leika menn sem sýna á sér báöar
hliöarnar."
pni
I
*- *■
Si ■.&
Gene Hackman og Matt Dillon
í hlutverkum sínum
íTarget.
Um Bob Fosse, Peter
Shaffer og Arthur Penn
Leikstjórinn og dansahöfundur-
inn, Bob Fosse (Lenny, Cabaret,
All That Jazz), stendur í ströngu
þessa dagana. Hann er þó ekki aö
fást viö kvikmyndagerð, heldur
hefur hann skrifað handrit aö söng-
leik, sem hlotiö hefur heitið „Big
Deal“ og fluttur veröur á Broadway
næsta vor. Fosse, sem gert hefur
afbragös kvikmyndir, mun aö sögn
leikstýra söngleiknum og búa til
dansana í hann. „Big Deal“ söng-
leikurinn byggir Fosse á kvikmynd
frá 1958 er hét Big Deal on Ma-
donna Street og var um hálfmis-
heppnaöan þjófaflokk, sem reynir
viö stórt og mikiö rán og kemur sér
íótrúleg vandræöi í leiðinni.
Þann 4. desember nk. veröur
frumflutt nýtt leikrit eftir Peter
Shaffer í þjóöleikhúsinu í London.
Það heitir „Yonadab" og fjallar um
frænda Davíðs konungs, son og
dóttur. Þaö ætti aö vera óþarfi aö
kynna Shaffer hér, en fyrir þá sem
ekki vita er hann eitt fremsta leik-
ritaskáld Breta um þessar mundir,
m.a. höfundur aö Amadeus, en
samnefnd kvikmynd er sýnd í Há-
skólabíói viö metaösókn. Þaó er
hinn kunni leikhúsmaður, Sir Peter
Hall, sem leikstýrir nýja stykkinu
hans Shaffers en Alan Bates fer
meó aöalhlutverkiö.
Bandaríski leikstjórinn, Arthur
Penn, hefur gert nýja kvikmynd,
sem frumsýnd var fyrir stuttu vest-
an hafs. Hún heitir Target (gæti þýtt
Skotmark) og meö aöalhlutverkin í
henni fara Gene Hackman og ungl-
ingastjarnan Matt Dillon. Penn er
óskaplega skemmtilegur kvik-
myndageröarmaöur og á aö baki
sér myndir eins og Four Friends,
Little Big Man og Bonnie and
Clyde en þessi nýjasta mynd hans
er njósnaþriller, sem gerist í nútím-
anum. Hackman leikur Walter, vel-
megandi timbursala i Dallas. Konan
hans Donna Lloyd er aö halda til
Evrópu í sumarfrí en Walter hefur
ekki tíma til aö fara meö henni.
Hann ætlar í staðinn aö hressa
svolítiö upp á samband sitt viö son
sinn sem Chris heitir og Dillon leik-
ur. Myndin er síðan öll um þaö
hvernig Walter tekst aö bæta úr
stiröu sambandi feöganna. Hér er
þó ekki á feröinni fjölskyldudrama
í heföbundnum stíl heldur fléttast
fjölskylduvandamálin inní megin-
efni myndarinnar, sem er njósna-
saga. Nokkrum dögum eftir að
mamman hefur kvatt feögana fá
þeir skilaboö frá feröaskrifstofunni
um aö hún sé horfin. Walter og
Chris taka auövitaö fyrstu vél til
Parísar og lenda í ævintýrum mjög
ólíkum þeim sem Chris á aö venj-
ast. Walter kallinn er nefnilega ekki
allur þar sem hann er séður. í Ijós
kemur aö hann er fyrrverandi
starfsmaöur CIA og meö ansi litríka
fortíö og aö einn hættulegasti and-
stæðingur hans frá Austur-Evrópu
hefur rænt konu hans.
Myndin hefur hlotið mjög góöa
dóma í Ameríku.
- ai.
Jólasveinninn (David Huddleston) ræðir hér viö Einaf tæknibrellum myndarinnar.
aöstoöarmann sinn (Dudley Moore)...
... sem er sendur til stórborgar-
innar til aö gleöja börnin.
mynd, en sennilega kannast islend-
ingar ekki viö nema tvo þeirra eöa
þrjá: Jólasveinninn sjálfan leikur
David Huddleston, aöstoöarmann
hans leikur Dudley Moore, en í
minni hlutverkum eru reyndir leik-
arar, John Lithgow (lók m.a. i 2010)
og Burgess Meredith (lék í Rocky-
myndunum).
Kvikmyndataka fór fram á
þriggja ára tímabili: Viöamiklar
jólasenur úr stórborgum voru tekn-
ar jólin 1983—4, en stærsti og
flóknasti hluti myndarinnar fór fram
í Pinewood-kvikmyndaverinu í
Bretlandi. Gríöarlega stór sviö voru
reist sérstaklega fyrir þessa mynd,
sviö af fjöllum og himni, stórborg-
um, stórbyggingum, aö ekki sé
minnst á öll leikföngin sem sérstak-
lega voru hönnuö og smíöuö.
Og ekki má gleyma hreindýrun-
um átta sem tæknibrellusérfræö-
ingar myndarinnar fundu í Noregi
og tömdu í fimm mánuöi áöur en
hægt var aö nota þau viö kvik-
myndatökur.
IV.
„Viö vitum fullvel aö Jólasveinn-
inn verður fyrsta kvikmyndin sem
mörg börn sjá, og þess vegna gerö-
um viö allt til aö hún verði jafn ágæt
reynsla og þaö var fyrir okkur aö
sjá Mjallhvít og Bamba á sinum
tíma," segir framleiðandinn llya
Salkind og skulum viö bara vona
aö hann standi viö orö sín, þ.e.a.s.,
hann hafi bætt sig eftir hryllinginn
Supergirl.
Jólasveinninn veröur frumsýnd-
ur á svipuöum tíma i flestum lönd-
um hins vestræna heims.
HJÓ
Murdoch fox-
illur útí Davis
Þaö fór eins og menn óttuöust.
Þegar ástralski blaðakóngurinn
og milljónerinn Robert Murdoch,
sem hefur þá undarlegu lífs-
stefnu aö eigna sér sem flest
blöö og tímarit vítt og breitt um
heimskringluna, keypti 50%
hlutabréfa í 20th Century Fox
kvikmyndasamsteypunni af þá-
verandi einkaeiganda Marvin
Davis (sem er olíukóngur),
spáóu menn því aö Murdoch léti
sér helminginn ekki nægja. Nú
hefur hann lýst því yfir að hann
ætli sér alla kökuna.
En þaö er ekki víst aö Murdoch
veröi kápan úr því klæðinu, því
Fox er aö rétta úr kútnum eftir
hræöilegt gengi undanfarin miss-
eri. Fyrirtækiö hefur veriö rekiö
meö miklu tapi, þaö hefur framleitt
rándýrar myndir (Six Pack, Rhine-
stone o.fl.) sem kolféllu á mark-
aönum, en eftir aö Davis réö snill-
inginn Barry Diller, sem áöur
stjórnaöi Paramo(,it meö svo
miklum ágætum aö hann var rek-
inn vegna öfundar æöstu manna,
hefur Fox sett nokkrar myndir á
markaöinn og hafa þær malað
gull. Þessar myndir eru Romanc-
ing the Stone, Cocoon (ein vinsæl-
asta mynd þessa árs vestanhafs).
Marvin Davis, eigandi Fos-kvik-
myndasamsteypunnar, ásamt
konu sinni: Selur hann eða selur
hann ekki?
og Commando (stæling á Rambo).
En það er aldrei að vita hvaö
gerist í þessum frumskóg viö-
skiptanna, Murdoch er frægur '
fyrir allt annaö en aö láta skella
huröum í andlit sitt og ef til vill
æsist hann enn meir þegar hann
fréttir aö annar kvikmyndajöfur,
Dino De Laurentiis, hefur keypt
Embassy-veriö eins og þaö leggur
sig.
HJÓ.