Morgunblaðið - 11.12.1985, Qupperneq 1
64 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
280. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ákafír
bardagar í
Afganistan
Þrjú hundrud stjórn-
arhermenn hafa fallið
undanfarna daga
I.slamabad, 10. des. AP.
AFGANSKIR skæruliðar hafa fellt
um 300 hermenn Kabúlstjórnar-
innar í áköfum bardögum undan-
farna daga. Hafa bardagarnir ve-
rið hvað harðastir í héraðinu Herat
í vesturhluta landsins.
Herat er nærri landamærum
írans. Þar kom einnig til mikilla
bardaga um miðjan síðasta mánuð.
Að undanförnu hafa skæruliðar
hvað eftir annað gert árásir á
bilalestir Sovétmanna á þjóðvegin-
um frá sovézku landamærunum til
Kabúl og oft haft hluta af þessum
þjóðvegi á valdi sínu.
Vegna árása skæruliða varð um
síðustu mánaðamót að loka í heila
viku jarðgöngum, sem þjóðvegur-
inn liggur í gegnum. Um svipað
leyti eyðilögðu skæruliðar fjóra
tankbíla og skemmdu 20 til við-
bótar, er þeir sátu fyrir bílalest,
sem flutti eldsneyti til sovézka
hernámsliðsins.
Skæruliðar gerðu einnig fyrir
skömmu tvær miklar flugskeyta-
árásir á Kabúl. I annarri þeirra
féllu 6 stjórnarhermenn, sem gættu
varnarmálaráðuneytisins. Hinn 30
nóvember sl. varð herbækistöð
Sovétmanna í Bala Hissar við
Kabúl fyrir flugskeyti, sem olli þar
miklu tjóni.
AP/Símamynd
Læknarnir Yevgeny Chazov og Bernard Lown kampakátir eftir afhendingu friðarverðlauna Nóbels í Osló í gær.
Birting leyndarskjalæ
Sænskt blað
verði ákært
Stokkbólmi, 10. deaember. AP.
SÆNSKA dómsmálaráðuneyíið hef-
ur borið fram kvartanir út af dag-
blaðinu Svenska dagbladet og vill
að ríkisstjórnin ákæri blaðið vegna
greina, sem birtust í blaöinu í sum-
ar og fjölluðu um útsendara Sovét-
manna og Pólverja í sænska stjórn-
kerfinu, Spetznatz-hreyfinguna og
uppljóstranir um ferðir erlendra
kafbáta í sænskri landhelgi, sem
ekki hafði verið skýrt frá opinber-
lega.
Að mati yfirmanna sænska
hersins hafur birting leyndar-
skjala í Svenska dagbladet haft
mikið tjón í för með sér fyrir
öryggismál Svíþjóðar. Sænska
dómsmálaráðuneytið hefur ekki
getað orðið sér úti um vitneskju
um heimildarmenn blaðsins, en
hyggst með því að ákæra það fá
því framgengt, að önnur blöð hugsi
sig um áður en þau birta leyndar-
skjöl. Sænska stjórnin hyggst taka
um það ákvörðun innan skamms,
hvort Svenska dagbladet skuli
ákært.
*
Askorun mannréttindamanna við afhendingu friðarverðlauna Nóbels:
„Chazov, notaðu vald þitt,
frelsaðu Andrei Sakharov“
Undanfarnar tvær vikur hafa
Sovétmenn haldið uppi miklum
loftárásum á Shomalisvæðið fyrir
norðan Kabúl og í Jalalabad nærri
pakistönsku landamærunum voru
fimm sovézkar herþyrlur skotnar
niður, er þær gerðu loftárás í lok
nóvember.
Osló, 10. deaember. AP.
LÆKNARNIR Bernard Lown frá
Bandaríkjunum og Yevgeny
Chazov frá Sovétríkjunum tóku í
dag við friðarverðlaunum Nóbels
við hátíðlega athöfn í Osló. Tóku
þeir við verðlaununum fyrir hönd
samtaka sinna, Alþjóðasamtaka
lækna gegn kjarnorkuvá. Á með-
an efndu baráttumenn fyrir
mannréttindum til friðsamlegra
mótmælaaðgerða gegn Chazov á
snævi þöktum götum Oslóborgar
fyrir utan háskólann, þar sem
athöfnin fór fram.
„Við erum ekki ósnortnir af
mannréttindum, sem kostað hafa
harða baráttu," sagði Lown í
ávarpi sínu. „En fyrst og fremst
verðum við að geta skilað börnum
okkar í arf þeim réttindum, sem
eru mikilvægari en öll önnur, en
það er rétturinn til þess að lifa.“
„Hugsjónir okkar eru háleitar,"
sagði Chazov í ávarpi sínu. Gat
hann þess að þau fimm ár, sem
Alþjóðasamtök lækna gegn kjarn-
orkuvá hefðu verið við lýði, hefðu
ekki „eingöngu verið dans á rós-
um“. Chazov, sem er aðstoðarheil-
brigðismálaráðherra Sovéríkj-
anna, flutti ávarp sitt á ensku og
minntist þar hvergi á mannrétt-
indamál.
Baráttumenn fyrir mannrétt-
indum efndu til mótmælaaðgerða
fyrir utan Oslóarháskóla. Báru
þeir skilti og borða með áletrun-
um, þar sem Chazov var sakaður
um að hafa tekið þátt í ofsóknum
á hendur sovézka andófsmannin-
um Andrei Sakharov árið 1973, en
sá síðarnefndi hlaut sjálfur frið-
arverðlaunin tveimur árum síðar.
„Chazov, notaðu vald þitt — frels-
aðu Andrei Sakharov," stóð á
einum af borðunum. Á öðrum stóð:
„Dr. Lown, finndu þér betri vini.“
Hin Nóbelsverðlaunin voru af-
hent við hátíðlega athöfn í Stokk-
hólmi í dag. Bandaríkjamennirnir
Michael S. Brown og Joseph L.
Goldstein hlutu verðlaunin í lækn-
isfræði fyrir rannsóknir sínar á
kólesteróli, tveir Bandaríkjamenn
aðrir, þeir Jerome Karle og Her-
bert H. Hauptman, hlutu verð-
launin í efnafræði fyrir rannsókn-
ir sínar á gerð kristalla, Vestur-
Þjóðverjinn Klaus von Klitzing
hlaut verðlaunin í eðlisfræði fyrir
rannsóknir sinar á seguláhrifum
á viðnám rafmagns, Bandaríkja-
maðurinn Franco Modigliani
Moskva:
hlaut verðlaunin í hagfræði og
franski rithöfundurinn Claude
Simon fékk bókmenntaverðlaun-
in.
Lars Gyllenstein, ritari sænsku
akademíunnar, sagði við afhend-
ingu bókmenntaverðlaunanna, að
„frásagnarlist Simons leiðir í ljós
þætti, sem lifa í okkur öllum,
vonarneista, sem er til staðar
þrátt fyrir allan þann fáránleika,
sem einkennir hlutskipti manns-
ins“.
AP/Símamynd
Aase Lkrnæs (til hægri), fyrrverandi meðlimur norsku friðarverðlaunanefndar-
innar og rússneski útlaginn Leonid Plyuschch tóku þátt í friðsamlegum mót-
mælaaðgerðum fyrir utan Oslóarháskóla í gær.
Handteknir við
styttu Pushkins
Mannréttindamönnum meinað að safnast saman
Moskvu, 10. deuember. AP.
ÓEINKENNISKLÆDDIR lögreglumenn í Moskvu handtóku í dag 12
manns, sem safnazt höfðu saman við styttu skáldsins Alexanders Push-
kin í því skyni að minnast alþjóðlega mannréttindadagsins. Skelltu lög-
reglumennirnir flötum manni cinum, sem hugðist lesa upp Ijóð af fót-
stalli styttunnar.
Torgið, sem styttan af Pushkin
stendur við, er vinsæll samkomu-
staður í Moskvu og allt frá 1966
hafa baráttumenn fyrir mann-
réttindum safnazt þar saman í
byrjun desember hvert ár. í þess-
um mánuði hafa óeinkennisklædd-
ir lögreglumenn jafnóðum tekið
alla þá höndum, sem komið hafa
að styttunni í þessum erindum og
flutt þá burt í hópferðabíl.
Tveir bandarískir sjónvarps-
menn reyndu í dag að komast
þarna nærri og taka myndir af
hópnum, en þeim var strax ýtt til
hliðar af lögreglumönnum og þeir
síðan hraktir burt. Er þeir spurð-
ust fyrir um hvers vegna fólkið
fengi ekki óáreitt að koma þarna
saman, svaraði einn hinna óein-
kennisklæddu lögreglumanna, að
um „truflun á almannafriði" væri
að ræða.